Mynd vikunnar. Gleðilegt nýtt ár !

Gleðilegt nýtt ár 2015 Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar öllum gleðilegs og farsæls nýs árs. Við þökkum öllu því góða fólki sem hefur aðstoðað okkur á árinu með innsendum athugasemdum og leiðréttingum og öllum þeim sem sýnt hafa safninu áhuga og velvilja á annan hátt. Myndina tók Ásdís Birta Árnadóttir og sendi inn í ljósmyndakeppni Skagastrandar árið 2010. Ljósmyndasafn Skagastrandar

Jólatónleika í Blönduóskirkju 4. janúar

Jólatónleikar Kirkjukór Hólaneskirkju heldur jólatónleika í Blönduóskirkju sunnudaginn 4. janúar kl 20:00. Komið og eigið með okkur hugljúfa og notalega kvöldstund og öðlist hinn sanna jólaanda. Aðgangseyrir 1000 kr. sem rennur í ferðasjóð kórsins. Ekki posi á staðnum Tónlistarstjóri: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir Hljómsveit: Guðbjartur Vilhjálmsson Guðmundur Egill Erlendsson Jón Ólafur Sigurjónsson Laufey Lind Ingibergsdóttir Skarphéðinn Einarsson Valgerður Guðný Ingvarsdóttir Einsöngvarar: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir Hafþór Gylfason Halldór Gunnar Ólafsson Helga Dögg Jónsdóttir Helga Gunnarsdóttir Herdís Þórunn Jakobsdóttir Jenný Lind Sigurjónsdóttir Jón Ólafur Sigurjónsson María Ösp Ómarsdóttir Sigríður Stefánsdóttir Sigrún Rakel Tryggvadóttir Hljóðblöndun: Ævar Baldvinsson Styrktaraðilar: Minningarsjóðurinn um hjónin frá Garði og Vindhæli Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar

Flugeldasala

Flugeldasala björgunarsveitarinnar Strandar og UMF. Fram verður í húsnæði RKÍ að Vallarbraut 4 Opnunartímar verða sem hér segir: Sunnudaginn 28.des. kl. 18-22 Mánudaginn 29.des. kl. 14-22 Þriðjudaginn 30.des. kl. 14-22 Miðvikudaginn 31.des. kl. 10-16 Selt verður í Skagabyggð þriðjudaginn 30. des Flugeldasalan er ein aðal fjáröflunarleið björgunarsveitarinnar Strandar og U.M.F. Fram. Skagstrendingar og nærsveitamenn, verslum í heimabyggð það er allra hagur. A.T.H að börn og unglingar 16 ára og yngri fá ekki að versla flugelda nema í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum og munið ábyrgðin er ykkar.

Opið hús í Nes listamiðstöð

Nes listamiðstöð hefur opið hús í dag laugardaginn 27. desember kl 15-17. Á meðan á opnu húsi stendur mun Julie Pasila taka andlitsmyndir af fólki en Steffi og Paula munu elda súpu og spjalla við gesti frá 15:30-16:30. Súpan verður borin fram kl 16:30 Ben Freedman (Kanada), Jessica Mathews (USA), Julie Pasila (Kanada), Makiko Nishikaze (Japan/Þýskalandi) Maja Horton (UK), Paula Ordonhes (Brasilíu), Ryo Yamauchi (Japan), Steffi Stangl (Þýskalandi)

ÁRÍÐANDI TILKYNNING!! frá jólasveinunum

Vegna mikilla anna fara jólasveinarnir ekki af stað með jólapóstinn fyrr en kl. 16 á Þorláksmessudag. Endilega látið berast svo allir fái fréttir af. "Brjálað að gera hjá þessum köllum " Jólakveðja Aðstoðamenn jólaveinanna

Sorphreinsun á Þorláksmessu

Síðasti sorphreinsunardagur fyrir jól verður á morgun 23. desember. Húsráðendur eru minntir á að hreinsa snjó frá sorptunnum svo hreinsun geti gengið greiðlega fyrir sig. Ef sorptunnur eru ekki aðgengilegar verða þær ekki losaðar. Gámastöðin við Vallarbraut verður opin á morgun 23. desember kl 16-18 og laugardaginn 27. desember kl 13-17. Minnt er á að jólapappír er ekki endurvinnanlegur á að fara í almennt sorp. Sveitarstjóri

Viðhorf til ferðaþjónustu

Á fundi atvinnumálanefndar 18. desember sl. kynnti Kristín B. Leifsdóttir verkefni sem hún vann við háskólann í Bifröst. Í verkefninu var leitað svara við spurningunni „Hver eru viðhorf Skagstrendinga til ferðaþjónustu og til frekari uppbyggingar hennar“? Verkefni Kristínar er aðgengilegt hér á heimasíðunni.

Jólatrésskemmtun 26. desember 2014

Árleg jólatrésskemmtun Lionsklúbbsins Skagastrandar verður haldin í Fellsborg föstudaginn 26. desember (annan í jólum). Skemmtunin hefst kl. 15:00. Fjölskyldur eru hvattar til að fjölmenna og eiga notalega stund með börnunum. Enginn aðgangseyrir. Með jólakveðju Lionsklúbbur Skagastrandar

Blóðsykursmælingar á Þorláksmessu

Lionsklúbbur Skagastrandar hefur ákveðið að bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingar í tengslum við skötuveisluna í Fellsborg á Þorláksmessu. Mælingar á blóðsykri er tiltölulega einföld mæling sem gefur til kynna hvort fólk sé með sykursýki eða ekki. Verkefnið er unnið í samstarfi við Heilsugæsluna á Skagaströnd. Fólk er hvatt til að nýta sér þessa þjónustu. Með jólakveðju Lionsklúbbur Skagastrandar

Mynd vikunnar

Landsbankahlaup 1987 Í mörg ár stóð Landsbankinn fyrir víðavangshlaupum á Skagaströnd. Hlaupin voru miðuð við yngstu aldursflokkana og komu keppendur víða að úr héraðinu. Á þessari mynd frá því í maí 1987 sjást keppendur í einum aldursflokki á ráslínu. Frá vinstri á myndinni: Kristín Þórðardóttir, Gestur Arnarson og óþekkt barn framan við þau. Á ráslínunni eru tveir óþekktir keppendur, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Soffía Lárusdóttir, Guðný Finnsdóttir (Gýgja), óþekktur, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, óþekktur, Jón Heiðar Jónsson, Atli Þórsson, Friðrik Gunnlaugsson og óþekktur. Ræsirinn, sem snýr baki í myndavélina, er Lárus Ægir Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á netfangið: olibenna@hi.is