Munið skáldin !

Jón Kalman Stefánsson, Eiríkur Guðmundsson og Óskar Árni Óskarsson Rithöfundarnir þrír lesa upp úr verkum sínum og spjalla við gesti í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í gamla kaupfélagshúsinu á Skagaströnd Fimmtudaginn 31. október Dagskráin hefst klukkan 20:00 Allir eru hjartanlega velkomnir að hlýða á og þiggja veitingar

Mynd vikunnar

Kerlingin á Höfðanum Myndin er af klettadrangi sem var úti á Höfða rétt norðan við staðinn þar sem gamli, aflagði vegurinn endar. Upphaflega var kerlingin með "bók" og virtist vera að lesa í henni. Bókin er horfin þegar þessi mynd var tekin. Sagt var að þetta væri tröllkona/kerling að bíða eftir manninum sínum koma af sjónum. Hann kom ekki en hún sat og beið of lengi þannig að hún breyttist í stein þegar sólin náði að skína á hana. Því miður er kerlingin nú horfin vegna veðrunar þannig að þessi mynd er skemmtileg minning um horfna tíð.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 31. október 2013 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Byggðakvóti – tillaga að sérstökum úthlutunarreglum. 2. Önnur mál Sveitarstjóri

Hólaneskirkja 9. nóvember kl. 20:30

S T Ó R T E N Ó R I N N Kristján Jóhannsson ásamt Jónasi Þóri, píanóleikara og Matthíasi Stefánssyni, fiðluleikara Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, heldur tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 9. nóvember 2013, kl. 20:30. Kristján mun flytja margar gullfallegar íslenskar og erlendar söngperlur. Söngskráin verður mjög fjölbreytt, léttir og leikandi tónleikar við allra hæfi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir Tónleikarnir eru í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli

Stuðningur við nemendur í dreifnámi

Í ljósi sérstakra aðstæðna veturinn 2013-2014, þar sem fáir nemendur frá Skagaströnd sækja dreifnám á Blönduósi, hefur sveitarstjórn samþykkt að veita stuðning til þeirra nema sem hafa búsetu á Skagaströnd en ferðast daglega á milli heimilis og námsstaðar á Blönduósi. Í grundvallaratriðum byggja reglurnar á að stuðningur vegna óhagræðis fyrir einn nemanda að kosta ferðir sínar á námsstað séu bættar með stuðningi sem nemur tvöföldum akstursstyrks Námsstyrkjanefndar (LÍN) á önn en sé um að ræða tvo nemendur verður stuðning á hvern nemanda sem nemur einum akstursstyrk á önn. Sé um að ræða að þrjá eða fleiri nemendur sem falla undir framangreindar skilgreiningar fellur sérstakur stuðningur sveitarfélagsins niður. Reglurnar eru á heimasíðu sveitarfélagsins og má nálgast hér.

Mynd vikunnar

Bankastræti Á þessari mynd af Bankastræti sjást, vinstra megin við götuna, talið frá vinstri: fjárhús/fjós og hlaða sem var í eigu Þórbjörns Jónssonar á Flankastöðum, Höfðabrekka í eigu hjónanna Björgvins Jónssonar (d. ?) og Þorgerðar Guðmundsdóttur (d. ?), Bjarnarhöfn í eigu Bjarna Loftssonar (d.?) og Fanneyjar Jónsdóttur. Lengra frá er Höfðakot með tilheyrandi útihúsum í eigu hjónana Steingríms Jónssonar (d. 5.1.1992) og Halldóru Pétursdóttur (d. 23.12.1987) og uppi í brekkunni stendur Höfðaberg í eigu Júlíusar Árnasonar og Steinunnar Guðmundsdóttur sem fluttu burtu og eru nú látin. Hægra megin við götuna eru, næst okkur: Höfðaborg en í því eru tvær íbúðir. Íbúðina nær okkur áttu og eiga enn hjónin Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir. Hina íbúðina áttu hjónin Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) og Gunda Cecelía Jóhannsdóttir. Þá koma Flankastaðir en þeir voru í eigu þeirra hjóna Þórbjörns Jónssonar (d. 22.1.1996) og Guðmundu Árnadóttur. Kárastaðir eru næstir. Þar bjuggu bræðurnir Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989) og Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) ásamt ráðskonu sinni Jónínu Valdimarsdóttur. Í Stórholti sem er næst í röðinni (með kvist á þakinu) eru þrjár íbúðir. Í norðurendanum bjó Gunnar Albertsson með konu sinni Hrefnu Björnsdóttur ásamt móður hennar Steinunni Jónsdóttur(d.6.4.1982). Á neðri hæðinni í suðurendanum bjuggu þegar myndin var tekin, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) og konan hans Elísabet G. Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991). Uppi í suðurendanum voru hjónin Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999). Skálholt er síðan örlítið til hægri við Stórholt. Skálholt tilheyrir ekki Bankastræti heldur Skagavegi. Allmargir hafa búið í Skálholti en líklega hafa búið þar hjónin Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) og Lára Loftsdóttir (d.21.4.2010) þegar myndin var tekin. Til hægri við Skálholt sjást svo Sólheimar ( með kvisti). Það áttu hjónin Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) og Elínborg Árnadóttir (d. 7.4.1979). Sólheimar eru við Skagaveg eins og Skálholt. Hægra megin við Sólheima og nær okkur á myndinni er Þórshamar sem líka er við Skagaveg. Þegar myndin var tekin bjuggu líklega á efri hæðinni Kristján Sigurðsson (d. 3.11.1966) og Unnur Björnsdóttir (d. ?) kona hans. Á neðri hæðinni voru Baldur Árnason (d.14.11.2009) og hans kona Esther Olsen (d.17.4.2003). Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) hétu hjónin sem bjuggu í Bjarmalandi sem stendur hinum megin við Skagaveginn á móti Skálholti. Húsið lengst til hægri á myndinni var Þórsmörk. Hjónin Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) og Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) bjuggu þar og þeim tilheyrðu líka fjáhúsin, hlaðan og hjallurinn sem bera í Þórshamar á myndinni. Allt þetta fólk sem upp er talið hér að ofan átti börn sem bjuggu að sjálfsögðu hjá foreldrum sínum . Kárastaðabræður voru þó undantekning því þeir voru barnlausir en hjá þeim ólst upp dóttir Jónínu ráðskonu þeirra.

Skáldin á Skagaströnd!

Jón Kalman Stefánsson, Eiríkur Guðmundsson og Óskar Árni Óskarsson Rithöfundarnir þrír lesa upp úr verkum sínum og spjalla við gesti í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í gamla kaupfélagshúsinu á Skagaströnd Fimmtudaginn 31. október Dagskráin hefst klukkan 20:00 Allir eru hjartanlega velkomnir að hlýða á og þiggja veitingar Jón Kalman Stefánsson er með þekktustu rithöfundum samtímans, ekki síst fyrir bækurnar Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins. Ásamt skáldsögum hefur hann gefið út ljóðabækur, smásögur. Þrjár af bókum hans hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverð­launa Norður­landa­ráðs og hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2005. Í ár kemur út eftir Jón skáldsagan Fiskarnir hafa enga fætur Eiríkur Guðmundsson er landsmönnum bæði kunnur sem dagskrár­gerðar­maður og umsjónarmaður útvarpsþáttarins Víðsjár og fyrir skáld­sögur sínar 39 þrep á leið til glötunar, Undir himninum og Sýrópsmánann. Nýjasta skáldsaga Eiríks heitir 1983 og kemur út á haustdögum. Óskar Árni Óskarsson er með virtustu ljóðskáldum og þýðendum okkar, og hefur bæði verið tilnefndur til Þýðingarverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Meðal verka hans má nefna Ljós til að mála nóttina, Vegurinn til Hólmavíkur og Kuðungasafnið; síðastnefnda bókin er safn smáprósa, en Óskar Árni hefur náð undraverðum tökum á því formi. Það sem við tölum um þegar við tölum um ást er heiti á þýðingu hans á smásögum bandaríska höfundsins Raymond Carver. Háskóli Íslands

Heita vatnið kom til Skagastrandar

Hitaveituvatnið kom til Skagastrandar í gær miðvikudaginn 23. október. Undanfarna daga hafa starfsmenn RARIK verið að hleypa á stofnpípuna milli Blönduóss og Skagastrandar. Um miðjan dag í gær náði heitavatnið svo til dælustöðvar á Skagaströnd og var látið renna í fráveitukerfið á meðan stofnlögnin er skoluð út. Næstu daga verður svo unnið að því að hita upp dreifikerfið, lofttæma það og skola út köldu vatni sem situr í því eftir útskolun í sumar. Gert er ráð fyrir að fyrstu hús geti farið að tengjast í síðustu viku október.

Árangur sem tekið er eftir

Nú upphafi vikunnar var birt miðannarmat nemenda Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Árangur nemenda í dreifnámi í A – Hún er almennt góður en sérstaka athygli vekur afburðagott gengi í stærðfræði, bæði í STÆ102 eða STÆ193. Óhætt er að álykta að margir samverkandi þættir hafi þar áhrif, t.d. góður undirbúningur úr grunnskóla, gott aðhald og fyrirtaks námsaðstaða og síðast en ekki síst gott aðhald og stuðningur foreldra. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að tengsl við nærsamfélag er eitt af grundvallarþáttum í jákvæðum þroska barna og ungmenna. Nú á haustönn eru nemendur dreifnámsins 13, úr öllum byggðum A-Húnavatnssýslna. Vonir standa til þess að nemendum fjölgi strax um áramót og svo enn frekar á næsta skólaári enda er hér um að ræða mjög gott menntunartækifæri fyrir ungmenni og fullorðið fólk sem þurft hefur að hverfa frá námi. Innritun fyrir dreifnám í A-Hún stendur yfir dagana 1. til 30. nóvember á www.island.is

Heita vatnið kemur

Heita vatnið kemur! Þessa dagana er verið að ganga frá tengigrindum og uppsetningu mæla fyrir hitaveituna á Skagaströnd. Vatni verður hleypt á eftir nokkra daga og þá er mikilvægt að allir séu tilbúnir. Aðgengi starfsmanna hitaveitunnar að inntaki þarf að vera óhindrað og gott samstarf við húseigendur því mikilvægt. Til að veitan virki eðlilega þurfa nægjanlega mörg hús að vera tengd til að halda uppi rennsli í ákveðnum reinum eða hverfum. Í fyrstu má því búast við að hitastig vatns verði lægra en það verður þegar veitan kemst í fulla notkun. Í gjaldskrá er tekið tillit til hitastigs á vatni. Ókeypis: Ekki þarf að greiða fyrir notkun heita vatnsins fram að áramótum! Er húsið þitt tilbúið? Til að haldauppiréttu hitastigi er mikilvægt að sem flestir tengist sem fyrst. Þeir sem ekki hafa tök á því að taka strax inn vatn til húshitunar, eru hvattir til að taka inn kranavatn. Áttu eftir að sækja um? Þeir sem hafa ekki þegar sótt um tengingu geta gert það með eyðublöðum sem fást á heimasíðu RARIK og á skrifstofu Skagastrandar. http://www.rarik.is/umrarik/eydublod HITAVEITA Á SKAGASTRÖND Tengiliðir: ÁRSÆLL DANÍELSSON RARIK 451 2472 | 892 6667 HAUKUR ÁSGEIRSSON RARIK 528 9510 | 892 6666 Við þökkum Skagstrendingum ánægjulegt samstarf við undirbúninginn.