Opnun ljósmyndasýningar í íþróttahúsi

Ljósmyndasýning Arnars Ólafs Viggóssonar og Jóns Hilmarssonar verður opnuð í íþróttahúsinu á Skagaströnd í dag föstudaginn 1. júní og verður einnig opin á morgun laugardaginn 2. júní. Sýningin er hluti af dagskrá hátíðar sjómannadagsins og er opin kl 13-18 báða dagana.

Sjómannadagur

Golfkennsla

Golfkennsla Blönduós og Skagaströnd. Árni Jónsson, golfkennari verður með golfkennslu dagana 7. – 11. júní nk. Boðið verður upp á barna- og unglingahópa, byrjendur og lengra komna. Kennslan þessa 5 daga kostar 3000 krónur fyrir börn og unglinga. Einnig verður fullorðinskennsla, byrjendur og lengra komnir. Golfklúbbarnir hafa ákveðið að bjóða fullorðnum nýliðum í tvær kennslustundir og hvetjum við alla sem hafa áhuga að nýta sér þetta tækifæri. Skráning á Blönduósi er hjá Jóhönnu á netfangið jgjon@mi.is og á Skagaströnd hjá Dagnýju dagny@marska.is eða Guðrúnu Pálsd.pannug@simnet.isí síðasta lagi þann 1. júní næstkomandi. Nánari tímasetningar verða sendar út þegar skráningu lýkur. Golfklúbburinn Ós og Golfklúbbur Skagastrandar

Frá Tónlistarskóla A-Hún.

Skólaslit og afhending prófskírteina fyrir skólaárið 2011-2012 fer fram í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 26. maí n.k. kl:1600 Fram koma nemendur sem hafa lokið stigsprófum og nemendur 10. bekkja sem kveðja skólann. Allir velkomnir. Innritun fyrir næsta skólaár fer fram sem hér segir: Húnavöllum, föstudaginn 25. maí n.k. við skólaslit. Blönduósi, þriðjudaginn 29. maí n.k. kl 16-18 Skagaströnd, miðvikudaginn 30. maí n.k. kl 16-18. Skólastjóri.

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2012

„Bútar úr fortíð“ Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2012 Þann 28. maí, (annan í Hvítasunnu) kl. 15.00 mun Íris Ólöf Sigurjónsdóttir opna sýningu sína „Bútar úr fortíð“ í Heimilisiðnaðarsafninu. Íris hefur vakið athygli fyrir endurnýtingu og frumlega notkun hráefnis úr ýmsum áttum sem hefur verið einkennandi fyrir list hennar. Við opnunarathöfnina mun hún og eiginmaður hennar Hjörleifur Hjartarson (úr dúettinum „Hundur í óskilum“) taka lagið. Að vanda verður boðið upp á kaffi og kleinur, mjólk og kókómjólk fyrir börnin. Aðgangur er ókeypis á opnunina og allir hjartanlega velkomnir. Heimilisiðnaðarsafnið verður opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10.00 – 17.00

Sundlaugin opnuð

Sundlaug Skagastrandar verður opnuð fimmtudaginn 24. maí nk. Opnunartímar sundlaugar eru: · mánud. – föstudaga kl. 9.00-12.00 og 13.00-20.00 · laugardaga og sunnudaga kl. 13.00-17.00 Nú er komið vor og góður tími til að rifja upp sundtökin og láta fara vel um sig í pottinum. Allir í sund!!!!!

Ræktum okkar eigi grænmeti

Matjurtagarðarnir á Tótutúni hafa verið tættir og eru tilbúnir til notkunar. Garðarnir hafa verið úðaðir með Avalon til að hamla vexti á illgresi. Þeir sem hyggjast nýta sér plássið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Árna Geir í síma 861 4267.

Sýning í list- og verkgreinum í Höfðaskóla

Á morgun, miðvikudag 23.maí, er sýning í list- og verkgreinum í Höfðaskóla kl. 12. - 16. Þar sýna nemendur ýmis verk úr myndmennt, textílmennt, smíðum og heimilisfræði. Hvetjum alla bæjarbúa til að koma og skoða verkefni nemenda. Sumarkveðjur, starfsfólk og nemendur Höfðaskóla.

Barnaból 35, þorpsvalsinn

Barnaból 35 ára: Leikskólinn á Skagaströnd heldur upp á 35 ára afmæli sitt á árinu 2012.Nes listamiðstöð veitti styrk til sjónlistamannsins AnneMarie van Splunter frá Hollandi til að gera heimildarmynd í tilefni tímamótanna. AnneMarie fékk 88 nemendur og starfsfólk, sem hafa verið á leikskólanum á árabilinu 1977-2012, til að „taka snúning“ með myndavélina. Tónlistarkennarinn á staðnum, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, samdi og flutti með manni sínum, Jóni Ólafi Sigurjónssyni, fallegan vals við „snúningsmyndir“ af andlitum barna og fullorðinna. Myndin er gerð við takt tónlistarinnar; samspil hljóðs og myndar sem lífga hugmynd endurfunda sem vekur upp skemmtilegar minningar frá leikskólanum, vals í gegnum rás tímans og kynslóðanna. Myndin er á slóðinni: http://www.youtube.com/watch?v=pnxh6MqCnPY Verkefnislýsing: Nes listamiðstöð valdi listamanninn AnneMarie van Splunter frá Amsterdam úr hópi 32 umsækjenda frá 18 löndum til að koma til Skagastrandar og gera heimildarmynd um 35 ára afmæli leikskólans Barnabóls. ConnieDekker sem einnig er listamaður frá Amsterdam, kom með henni og tók nærmyndir (portraits) af öllum þátttakendum í myndinni og bjó til vef-blogg á slóðinni www.conniedekker.nl/iceland Umsögn AnneMarie um gerð myndarinnar: Gerð myndarinnar, sem var m.a. innblásinn af leikskólastjóranum, var að ná myndum af eins mörgum og ég næði til á þeim mánuði sem ég hafði til verksins og ættu tengingar við leikskólann frá árinu 1977 til líðandi stundar. Óskað var eftir fyrrum nemendum og starfsfólki á heimasíðu Skagastrandar og öðrum samskiptasíðum á netinu. Fjöldi fullorðinna og barna brást við og skipulagði einnig þátttöku systkina og skyldmenna sem voru flutt á Blönduós, Sauðárkrók og til Reykjavíkur. Þetta leiddi af sér 88 myndatökur! Sum barnanna sýndu sérstakan áhuga og komu með uppáhalds húfuna sína eða vildu vera á sérstökum stað við myndatökuna. Ég bað þau að snúa sér í hringi,halda myndavélinni í útréttri hendi og snúa linsunni að sér. Leikskólabörnin héldu á myndavélinni og sátu á skrifstofustól, þau yngstu á hnjám kennara. Stólnum var síðan snúið af vinum þeirra og oft varð úr hin skemmtilegasta uppákoma. Þar sem ung börn hafa stutta handleggi sést aðallega andlit þeirra. Myndskeið með þeim sem eldri eru og hafa öðlast meiri armlengd sýna meira af umhverfinu: heimili þeirra, hafinu, kirkjunni á Skagaströnd eða höfninni. Tónlistarkennarinn á Skagaströnd, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, samdi fallegan vals við snúning myndanna og flutti á píanó, flautu og hljómborð með manni sínum, Jóni Ólafi Sigurjónssyni, sem lék á gítar í upptökunni. Myndin er gerð við takt tónlistarinnar; samspil hljóðs og myndar sem lífga hugmynd endurfunda sem vekur upp skemmtilegar minningar frá leikskólanum, vals í gegnum rás tímans og kynslóðanna. Til hamingju með afmælisárið Barnaból !! Um listamanninn: AnneMarie van Splunter er sjónlistamaður sem býr og starfar í Amsterdam. Verk hennar hafa margvíslegar birtingarmyndir: þær geta verið teppi úr salti,sykurhaugar sem eru skammtíma innsetningar,steinsteyptir leikvellir eða stál-garðhlið (styrktarverkefni unnið með fleirum fyrir rannsóknarstofnun byggingarmála) Til að ná sambandi við AnneMarie eða skoða verk hennar er hægt að fara á heimasíðu hennar: www.annemarievansplunter.nl “Barnaból 35, a village waltz” Project description Nes Artist Residency invited artist AnneMarie van Splunter from Amsterdam out of 32 applications from 18 countries, to come to Skagaströnd and create a retrospective film about the 35th anniversary of Leikskolinn Barnabol. Connie Dekker, also artist from Amsterdam, came with her and made portraits of all people filmed, and a (well visited) weblog at www.conniedekker.nl/iceland AnneMarie about the making of the video film: The concept of the film (inspired by the wish of the head mistress of the preschool to include as many as possible children and their families) was to film as many people as I could find in a month who are or were involved at the preschool from 1977 up until now. A call for former pupils and staff was made on the Skagaströnd website, posters, and Twitter. Many adults and children responded and arranged meetings with sisters, brothers or relatives, as far as in Blonduós, Sauðárkrókur and Reykjavik: 88 portraits! Some children showed a special interest and came with a favourite hat or wanted to be filmed on a special location. I asked them to swivel around with stretched arms, the camera-lens pointed towards them. The preschool children held the camera while they sat on an office chair, the babies on the lap of the teacher. The chair was pushed around by their friends, which often lead to hilarious scenes. Because young children have short arms, it is mainly their face. Scenes with more grown-ups, with longer arms, show more of the surroundings: their home, the sea, Skagaströnd’s church, the harbour. Local music teacher, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir composed a beautiful waltz to the rotating mages and performed it on piano, flute and accordion with her husband Jón Ólafur Sigurjónsson on guitar in their studio. The film is edited to the beat of the music: image and sound interact, evoking an idea of a festive reunion of the preschool, a waltz through time and generations. A celebration: Happy anniversary Leikskólinn Barnaból!! Aboutthedirector: AnneMarie van Splunter is a visual artist and lives and works in Amsterdam. Her work has many appearances: it may be a carpet of salt, or plinths of sugar (temporarily existing installations), a concrete playground or steel park-gate (commissioned work, among others, by the Government Buildings Agency) If you want to get in contact with AnneMarie or take a look at her work, this is the link to her website: www.annemarievansplunter.nl

Sumarstörf námsmanna á Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir sumarstörf námsmanna í samstarfi við Vinnumálastofnun. Störfin eru við ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins m.a. við skógrækt, umhverfismál og umsjón með golfvelli. Umsóknareyðublöð má fá á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur vegna sumarstarfa námsmanna er til föstudagsins 1. júní 2012. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700. Sveitarstjóri