Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi auglýsir

Erlingur Hugi Kristvinsson háls, -nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi fimmtudaginn 14. desember 2017. Tímapantanir í síma 455-4100 milli kl.08:00 og 16:00.

Mynd vikunnar

Þrjár blómarósir. Stúlkurnar á myndinni voru nágrannar í útbænum þegar þær voru að alast upp. Lengst til vinstri er Matthildur Fossdal Hafsteinsdóttir í Dvergasteini. Dvergasteinn er horfinn fyrir löngu en hann stóð milli Skálholts og Bankastrætis. Í miðið er svo Sóley Benjamínsdóttir í Skálholti, sem enn stendur við Skagaveg. Lengst til hægri er Áslaug Hrólfsdóttir úr Bjarmalandi sem stendur í skakkhorn við Skálholt hinum megin við Skagaveginn en þar hefur engin búið í mörg ár. Matthildur átti þrjá bræður en tveir þeirra eru nú látnir. Sóley átti tvær systur og er önnur þeirra látin. Áslaug var einbirni. Allar fluttu þessar blómarósir ungar burt frá Skagaströnd. Myndina tók Guðmundur Guðnason líklega kringum 1960. Senda upplýsingar um myndina

Sálfræðisetrið ehf. hefur starfsemi á Blönduósi

Sálfræðisetrið ehf. hefur starfsemi á Blönduósi í desember 2017 Sofia B. Krantz, sálfræðingur, býður upp á sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna og verður hún með viðveru á skristofu Félags- og skólaþjónustu A-Hún, Flúðabakka 2 á miðvikudögum og fimmtudögum kl. 09:00 – 17:00. Opnað hefur verið fyrir tímabókanir. Sími: 894-3204 Heimasíða: www.salfraedisetrid.is Tölvupóstur: sofia@salfraedisetrid.is

Tilkynning frá Rarik

Rafmagnslaust verður á Litla Felli, hesthúsahverfi Skagastrandar og Vatnsveitu Hrafndal fimmtudaginn 30.11.2017 frá kl 13:00 til kl 15:45 vegna spennaskipta á Litla Felli. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9690.

Sundlaugin lokuð fimmtudaginn 30.nóv.2017

Sundlaug Skagastrandar verður lokuð fimmtudaginn 30.nóvember 2017 vegna árshátíðar Höfðaskóla. Sundlaugarverðir.

Opið hús hjá Nes Listamiðstöð 25.nóv.2017

Mynd vikunnar

Jónas Skaftason Jónas Skaftason frá Dagsbrún á Skagaströnd lést 17. nóvember síðastliðinn, 76 ára að aldri. Jónas var einn af þeim sem trúðu á sjálfan sig í lífinu og gekk sína götu, sannfærður um að vera á réttri leið, hvað sem öðrum fannst. Oft var hann með storminn í fangið en hélt alltaf ótrauður áfram, teinréttur, þrátt fyrir að stundum hefði kannski verið auðveldara að beygja af leið. Jónas bjó lengst af á Skagaströnd eða Blönduósi og var einn af þessum mönnum sem setti svip á bæinn þar sem hann átti heima hverju sinni. Samúð okkar er hjá börnum hans og öðrum aðstandendum sem nú kveðja mann sem ávallt sópaði af. Útför Jónasar fer fram í kyrrþey.

Árshátíð Höfðaskóla verður 30. nóv 2017

Árshátíð Höfðaskóla 2017 fimmtudaginn, 30. nóv. n.k. Hátíðin hefst kl. 18:00 og verður í Fellsborg. Fjölbreytt skemmtiatriði að hætti skólans. MIÐAVERÐ: Fullorðnir: 1500 kr fyrir árshátíð og kaffihlaðborð 1000 kr fyrir árshátíð Börn: Frítt á árshátíð ; 500 kr kaffihlaðborð f grunnskólanemendur Frítt fyrir börn á leikskólaaldri.

Mynd vikunnar

Skarfur kemur úr kafi Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er síðan annar krani að hífa Skarfinn úr kafinu eftir óhappið. Senda upplýsingar um myndina

Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi auglýsir

Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi fimmtudaginn 23.nóvember 2017. Tímapantanir í síma 455-4100 milli kl 08:00 og 16:00.