Skrifstofa sveitarfélagsins lokuð föstudaginn 2.ágúst

Skrifstofa Sveitarfélagsins Skagastrandar verður lokuð föstudaginn 02.08.2013 vegna sumarleyfa Sveitarstjóri

Næsti fundur sveitarstjórnar

Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 30. júlí 2013 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 1600. Dagskrá: 1. Leiga á Bjarmanesi 2. Óveruleg breyting á aðalskipulagi 3. Önnur mál Sveitarstjóri

Vatnslaust í Mýrinni vegna óhapps

Þriðjudagur 23.07.213 Vegna óhapps við hitaveitulagnir fór vatnsleiðsla í sundur í Mýrinni. Viðgerð verður hraðað eins og unt er, en gæti tekið 2-3 klst. Bæjarverkstjóri

Opnuð tilboð í lengingu Miðgarðs

Fimmtudaginn 18. júlí 2013 voru opnuð tilboð í verkið “Skagaströnd – Lenging Miðgarðs, harðviðarbryggja”. Þrjú tilboð bárust í verkið: 1. Guðmundur Guðlaugsson kr. 35.802.000,- 2. Knekti ehf kr. 47.275.900,- 3. Ísar ehf kr. 45.871.000,- Kostnaðaráætlun kr. 35.152.760,- Spurt var um athugasemdir fyrir og eftir opnun en engar gerðar.

Gróðursetning

Fimmtudagskvöldið 11. júlí 2013 verða gróðursettar trjáplöntur í skógræktarreitinn ofan við tjaldsvæðið á Skagaströnd. Mæting kl. 20:00; allir velkomnir , Skógræktarfélag Skagastrandar

mynd vikunnar

Lionsfélagar í veislu Lionklúbbur Skagastrandar var lagður niður fyrir allmörgum árum eftir að hafa starfað með myndarbrag í mörg ár. Var hann þá eini Lionklúbbur landsins sem lagður var niður. Klúbburinn var síðan endurreistur fyrir nokkrum árum með nýjum félögum, enda margir félagar úr eldri klúbbnum látnir. Þessi mynd er af einhverri samkomu hjá eldri Lionklúbbi Skagastrandar. Sennilega var myndin tekin á heimili Valdimars Núma Valdimarssonar, sem líklega var formaður á þeim tíma, því konan hans og dóttir eru með á myndinni en eins og vitað er þá eru Lionklúbbar karlaklúbbar. Tilefni veislunnar var gestakoma því á myndinni eru tveir ókunnir gestir að öllum líkindum hátt settir menn innan Lionhreyfingarinnar á Íslandi. Aðrir á myndinni eru félagar í Lionklúbbnum. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri frá Breiðabliki. Þorfinnur Bjarnason (d. 16.11.2005) oddviti Höfðahrepps og starfaði sem framkvæmdastjóri hreppsins. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri Höfðahrepps frá Brúarlandi (bjó í Norður Skála). Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd sem hann þjónaði í 40 ár. Ókunnur gestur. Margét Valdimarsdóttir (dóttir V. Núma). Valdimar Númi Guðmundsson (d. 14.3. 1972) flutningabílstjóri með áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Skagastrandar í mörg ár. Ókunnur gestur. Unnur Ingvarsdóttir eiginkona V. Núma. Jón Pálsson kennari, sem seinna fór í fótspor föður síns og gerðist skólastjóri Höfðaskóla. Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) bifreiðastjóri og umboðsmaður fyrir Shell olíufélagið lengi. Þá starfaði hann líka sem ómenntaður rakari og klippti fólk. Björgvin Jónsson (d. ?) framkvæmdastjóri og eigandi saumastofunnar Violu, sem var til húsa á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Sveinn S. Ingólfsson kennari og seinna oddviti Höfðahrepps og fyrsti framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til fjölda ára. Lengst til hægri er svo Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993) rafvirki .

Auglýsing um útboð í Skagastrandahöfn

Hafnarsjóður sveitarfélagsins Skagastrandar óskar eftir tilboðum í lengingu Miðgarðs, harðviðarbryggju. Helstu magntölur: Jarðvinna, gröftur, fylling og grjótvörn Steypa landvegg bryggju um 41 m. Rekstur brygjustaura, 28 stk. Byggja harðviðarbryggju um 320 m² Lagnir fyrir vatn og rafmagn Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. desember 2013. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Siglingastofnunar Íslands, Vesturvör 2 í Kópavogi og hjá sveitarfélaginu Skagaströnd, Túnbraut 1-3 á Skagaströnd frá og með þriðjudeginum 2. júlí 2013, gegn 5.000 kr. greiðslu. Tilboð verða opnuð á sömu stöðum fimmtudaginn 18. júlí 2013 kl. 11.00.