Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins

Sveitarstjórn samþykkti á fundi 19. desember sl. fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og stofnana hans. Í rekstraryfirliti áætlunar 2014 kemur fram að heildartekjur samstæðu eru áætlaðar 525.479 þús., þar af eru skatttekjur 358.929 þús. og rekstrartekjur 168.329 þús. Rekstrargjöld eru áætluð 530.934 þús. þar af kostnaður vegna launa áætlaður 249.994 þús. Rekstrarniðurstaða er áætluð jákvæð um 9.409 þús. Í sjóðstreymi áætlunar er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri samstæðu verði jákvætt um 52.897 þús. Samanlagðar fjárfestingahreyfingar eru áætlaðar 84.600 þús. Að teknu tilliti til fjárfestinga og fjármögnunarhreyfinga er áætlað að handbært fé lækki um 41.703 þús. og handbært fé verði í árslok 597.562 þús. Á fundinum var einnig afgreidd þriggja ára áætlun 2015-2017. Í áætluninni er gert ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu samstæðu öll áætlunarárin.

Jólatréskemmtun frestuð fram á laugardag

Jólatréskemmtunin sem átti að vera á fimmtudag (annan í jólum) verður frestað fram á laugardag 28. des. og mun skemmtunin hefjast kl. 15:00 þann dag. Jólakveðja Lionsklúbbur Skagastrandar

Jólatréskemmtun

Hin árlega jólatréskemmtun Lionsklúbbs Skagastrandar verður haldin í Fellsborg fimmtudaginn 26. desember ( annan í jólum ). Skemmtunin hefst kl. 15:00. Fjölskyldur eru hvattar til að fjölmenna og eiga notalega stund með börunum Með jólakveðju Lionsklúbbur Skagastrandar

Bókasafnið opið á Þorláksmessu

Vegna slæmrar veðurspár verður bókasafnið opið frá 14-16 á Þorláksmessu. Kveðja Sússý

Jólaálfar taka á móti pökkum í DAG.

Jólaálfar Foreldrafélags Höfðaskóla munu áfram taka við pökkum og kortum til jólasveinanna í dag á neðstu hæð Túnbraut 1-3 á Skagaströnd. Opið frá kl. 9 - 15:00. Það kostar 500 kr. fyrir pakkann og 50 kr. fyrir kortið. Kær kveðja Sigurlaug Lára, Jensína, Kolbrun Osk, Ása Ósk og Gígja Heiðrún

Mynd vikunnar- Gleðileg jól!

Með þessari fallegu jólamynd úr ljósmyndakeppni 2010, eftir Árna Geir Ingvarsson, vill Ljósmyndasafn Skagastrandar óska öllum gleðilegra og friðsælla jóla. Sérstakar þakkir fá allir þeir sem lánað hafa safninu myndir og/eða hjálpað okkur með því að senda inn upplýsingar eða leiðréttingar vegna mynda á vefnum. Slíkar sendingar eru okkur ómetanlegar. Gleðileg jól.

Jólapóstur

Samningar hafa náðst við þá jólasveinabræður og eru þeir væntanlegir til byggða á Aðfangadag til að bera út pakka og bréf. Þeir sem vilja nýta sér þjónustu þessara pilta geta hitt umboðsmenn/jólaálfa þeirra á Vinnumálastofnun á 2. hæð að Túnbraut 1-3, fimmtudaginn 19. desember frá kl.18-20. Bréf 50 kr. Pakki 500 kr. (erum ekki með posa á staðnum) Fyrir hönd jólasveinanna, Foreldrafélag Höfðaskóla

Litlu jólunum frestað

Kæru nemendur og forráðamenn! Vegna slæms veðurútlits eftir hádegi þá munum við fresta Litlu jólunum þar til í fyrramálið 20. desember. Skipulagið á morgun verður á þennan hátt: Mæting í skólann kl. 9:00 Kirkjuferð kl. 9:00 –10:00 Gengið í kringum jólatré kl. 10:00 – 10:50 Stofujól og grautur kl. 10:50 – 12:00 Skólastjóri

Atvinna í boði!

Stuðningsfulltrúa vantar í 20% starfshlutfall á unglingastig Höfðaskóla Vinnutími: mánudagar kl.10:00 – 14:20 þriðjudagar kl. 12:00 – 14:20 miðvikudagar kl. 12:00 – 14:20 Umsækjendur þurfa að hafa gaman af að vinna með börnum, vera þolinmóðir, ákveðnir og sjálfstæðir í starfi. Umsóknir berist á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar eða á netfangið hofdaskoli@skagastrond.is fyrir föstudaginn 3. janúar 2014. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu sveitarfélagsins eða heimasíðu þess. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, í síma 452 2800 eða gsm 8490370. Skólastjóri

Hraðatakmarkanir á Skagaströnd eru 35 km/klst.

Ákveðið hefur verið að takmarka hraða ökutækja á Skagaströnd við 35 km. Í Lögbirtingablaðinu birtist svohljóðandi auglýsing þann 22. nóvember 2013: Auglýsing um umferð - Skagaströnd Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og fenginni tillögu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagastrandar, er með hliðsjón af 4. mgr. 37. gr. umferðarlaga, staðfest að hámarkshraði ökutækja innan þéttbýlismarka sveitarfélagsins skuli framvegis vera 35 km/klst. Auglýsing þessi tekur þegar gildi. Með auglýsingu þessri er numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga um umferð á Skagaströnd sem kunna að brjóta í bága við auglýsingu þessa. Lögreglustjórinn á Blönduósi 20. nóvember 2013 Bjarni Stefánsson