Umferðartafir á Þverárfjalli

Fréttatilkynning Búast má við töluverðum töfum á umferð um Þverárfjall á tímabilinu frá kl. 17:00 – 23:00 í dag fimmtudaginn 29. ágúst vegna fjárrekstur um Norðurárdal, nánar tiltekið frá Þverá niður að Skrapatungurétt, en smölun þessi fylgir í kjölfarið á óveðursviðvörun Veðurstofu fyrir Norðurland nk. föstudag og laugardag. Vegfarendum er vinsamlegast bent á að fara um Vatnsskarð í staðinn. Blönduósi, 29. ágúst 2013 Bjarni Stefánsson, lögreglustj. á Blönduósi og Skagafirði

Mynd vikunnar

Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) landar fiski úr Sigurði Hu við "Litlu bryggju". Á bryggjunni er Guðmundur J. Björnsson bróðir Hallbjörns og býr sig undir að tína fiskinn upp á kerruna sem sér í hornið á til vinstri. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð Hu og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var báturinn þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns og Guðmundar. Sigurður Hu er enn til og er í öruggri vörslu Sigurðar Björnssonar. Báturinn aftan við Sigurð Hu hét Ósk Hu og var í eigu Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988). Aftast sér svo í Víking St 12 sem var í eigu Péturs Ástvaldssonar á Hólmavík. Pétur fórst ásamt öðrum manni með Víkingi í mars 1971. "Litla bryggjan" er nú löngu horfin en hún var um það bil þar sem nú er suð-austur hornið á Miðgarði (Arnarsbryggjunni). "Litla bryggjan" lækkaði fram til endans til að auðveldara væri að landa fiski við hana eftir stærð bátsins sem landað var úr. Maðurinn fremst á bryggjunni er óþekktur.

ZUMBA - ZUMBA

6 vikna Zumba námskeiðin hefjast 9. sept á Skagaströnd og 10. sept á Blönduósi Ef næg þáttaka fæst. Tímarnir verða á Blönduósi í Félagsheimilinu og á Skagaströnd í Félagsheimilinu Fellsborg 5-8 ára 1 x í viku 9-13 ára 1 x í viku 14—100 ára 2 x í viku Verð: 5-13 ára 6.500 kr 14—100 ára 15.000 kr ZUMBA PART’Y 1.000 kr Skráning á lindabj@simnet.is Síðasti skráningardagur og greiðsla námskeiðsgjalda er 5. september

Sjálfbærni /Spil í leik og starfi

Mjög áhugaverð fræðsla í upphafi skólastarfs fyrir alla starfsmenn skóla Húnavatnssýslna. Verkefni fræðsludagsins var tvíþætt, fyrir hádegi lærðu starfsmenn skólanna um grunnþátinn SJÁLFBÆRNI sem er einn af sex grunnþáttum nýrrar aðalnámskrár. Í starfi skólanna í vetur verður tími notaður til að skoða hvað verið er að gera og hvað gera þarf frekar til að vinna í anda nýrrar aðalnámskrár og efla áherslur grunnþáttanna í skólastarfinu. Ný aðalnámskrá og grunnþættirnir sex, læsi í víðum skilningi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, sköpun, eiga að vera öllu skólastarfi leiðarvísir og fyrirmynd um áherslur, vinnulag og framsetningu. Allt efnisval og inntak kennslu, leiks og náms skal mótast af grunnþáttunum. Eftir hádegi lærðu starfsmenn hvernig nýta má spil til að efla ýmsa færni- og getu hjá nemendum og skemmta sér um leið. Námskeiðið var skipulagt af skólastjórum grunnskólanna og Fræðsluskrifstofu A-Hún. og haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi. Þátttakendur voru 89 og lýstu þeir mikilli ánægju með daginn. Mynd: Þátttakendur og leiðbeinendur.

Skólasetning Höfðaskóla

Skólasetning Höfðaskóla verður í Hólaneskirkju fimmtudaginn 22. ágúst kl 11:00. Að skólasetningu lokinni mæta nemdur í skólann til umsjónarkennara og taka við stundarskrám. Kennsla hefst föstudaginn 23. ágúst skv. stundarskrá. Frístund og skólamötuneyti byrja einnig föstudaginn 23. ágúst. Innkaupalista vegna námsgagna má finna á vef skólans. (hér) Skólastjóri

Auglýsing um breytt aðalskipulag

Breyting á Aðalskipulagi Skagastrandar 2010-2022 Lega stofnpípu hitaveitu Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti 30. júlí 2013 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Skagastrandar 2010-2022 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í breyttri legu stofnpípu hitaveitu sunnan Vallarbrautar þar sem stofnpípan verður lögð austar en fram kemur í gildandi aðalskipulagi. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 9. júlí 2013 í mkv. 1:10.000, sjá heimasíðuna www.skagastrond.is Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til sveitarstjóra Skagastrandar. Sveitarstjóri Skagastrandar

Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 – 2012

Út er komin bókin – Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 – 2012. Kirkja stóð á Spákonufelli a.m.k. frá því um 1300 og fram til 1928 er ný kirkja var vígð á Hólanesi. Í bókinni er fjallað vítt og breitt um málefni kirkju og safnaðar á Skagaströnd og víðar og greint nokkuð frá því hvernig mál gengu fyrir sig á öldum áður.Jafnframt er tímanum fylgt allt til dagsins í dag og sagt frá fjölmörgum þáttum sem snertu viðfangsefni presta og safnaðar á hverjum tíma. Í bókinni má m.a. finna upplýsingar um: hvaða prestar þjónuðu kirkjunum; hverjir sátu í sóknarnefndum; fyrstu konuna í sóknarnefnd; starfsemi kirkjukórsins; kirkjubyggingar; skrá um gjafir til kirkjunnar; breytingar á prestakallinu; ýmislegt um kirkjugarðinn; frásagnir af galdramálum sem og söguna að baki Lucinduvarðans og margt fleira. Í bókinni eru um 90 ljósmyndir. Lárus Ægir Guðmundsson á Skagaströnd tók saman og skráði fyrrgreindar upplýsingar og gefur hann jafnframt bókina út. Útgáfan er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

Loka þarf fyrir vatn...

Loka þarf fyrir vatn á ofanverðri Bogabraut og í Skeifunni eitthvað fram eftir degi, vegna viðgerða á vatnslögn sem fór í sundur. Bæjarverkstjóri

Skrifstofa sveitarfélagsins lokuð föstudaginn 2.ágúst

Skrifstofa Sveitarfélagsins Skagastrandar verður lokuð föstudaginn 02.08.2013 vegna sumarleyfa Sveitarstjóri