Fréttatilkynning

Nýr þjónustusamningur milli félagsmálaráðuneytis og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra – málefni fatlaðra (SSNV málefni fatlaðra) verður undirritaður þriðjudaginn 19. desember 2006 kl. 16:00 á Löngumýri í Skagafirði. Samningurinn er gerður til 6 ára, frá 1. janúar 2007 til 31. desember 2012. Félagsmálaráðuneytið skuldbindur sig til að leggja u.þ.b. 1.900 milljónir króna til verkefnisins á þeim tíma. Samtök sveitarfélaga taka að sér að veita fötluðum börnum og fullorðnum á starfssvæði sínu þá þjónustu sem er á ábyrgð ríkisins samkvæmt lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaðra. Umsjón og framkvæmd samningsins verður í höndum SSNV málefna fatlaðra. Verkefnisstjóri er Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir. Með samningnum ákveða félagsmálaráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra ( SSNV málefni fatlaðra ) að halda áfram því mikilvæga samstarfi sem hófst í apríl 1999. Meginmarkmið samningsins er að samþætta þjónustu við fatlaða í heimabyggð og fella hana eins og framast er unnt að starfsemi annarra þjónustuaðila; færa þjónustuna nær notendum og auðvelda þannig aðgang að henni. Þetta er gert með meiri skilvirkni, betri nýtingu fjármuna og auknum þjónustugæðum að leiðarljósi. Samhliða undirritun mun félagsmálaráðuneytið kynna ný drög að stefnu í þjónustu við fötluð börn og fullorðna 2007 – 2016.

Fréttir frá Leikskólanum Barnaból

Aðventan er skemmtilegur tími á leikskólanum Barnabóli, mikið að gerast og hver viðburðurinn rekur annan. Í áranna rás hafa skapast margar hefðir sem okkur finnst ómissandi að viðhalda á þessum árstíma. Fyrir dag íslenskrar tungu 16. nóvember æfðu börnin á eldri deildinni smá dagskrá sem þau buðu yngri börnunum að koma og hlýða á og syngja með. Laugardaginn 2. desember komu leikskólabörn, foreldrar og starfsmenn saman og bökuðu piparkökur og skreyttu. Börnunum er skipt niður í 6-7 barna hópa sem koma með um hálftíma millibili á leikskólann og hefur þetta skipulag gengið vel í gegnum árin en stundum orðið bið eftir ofninum. Mikill munur er á aðstöðunni í nýja eldhúinu t.d. að þar eru nú tveir ofnar og baksturinn gekk mjög vel. Margir fara síðan með systkinum sínum í Höfðaskóla og taka þátt í föndurdegi þar. Komin er hefð fyrir að þessi laugardagur er fjölskyldudagur hjá skólunum á Skagaströnd og finnst mörgum þetta ómissandi þáttur í byrjun aðventu. Börnin buðu foreldrum sínum, ömmum og öfum í aðventukaffi 7. desember og höfðu sjálf bakað piparkökur sem runnu ljúflega niður ásamt bananabrauðinu hennar Ásthildar. Einn daginn birtust þrír, íturvaxnir jólasveinar á glugganum á Lundi einmitt þegar við vorum nýbyrjuð á jólaballinu! Það varð uppi fótur og fit og börnin vildu ólm bjóða þeim í bæinn og þeir komu og dönsuðu með okkur kringum jólatréð. Þetta voru sko fínir sveinkar sem kunnu öll jólalögin okkar og fannst auðséð gaman að dansa þó þeir væru nokkuð stórstígir. Börnin voru mjög hrifin af þeim og enginn var hræddur eða fór að gráta. Jólasveinarnir voru að vonum þreyttir eftir ferðina ofan úr fjöllum og fegnir að fá að hvíla sig hjá okkur smá stund og þá kom í ljós að þeir voru með poka fullan af gjöfum, ein fyrir hvert barn. Í pakkanum var bók, popp, svali og mandarína sem börnin þökkuðu jólasveinunum kurteislega fyrir. Þegar síðast sást til sveinkanna voru þeir að kafa í skafli sunnan við leikskólann, detta hver um annan þveran og smávegis að fljúgast á, já, smá jólasveinatusk í góðu. Við fórum í heimsókn í Hólansekirkju og áttum góða stund með Sr. Fjölni og föstudaginn 15. desember fórum við í jólatrésferð á Hnappastaðatúnið, torgið okkar, og dönsuðum í kringum bæjarjólatréð. Börnin fundu nokkra poka með piparkökum festa í tréð og voru þær etnar upp til agna á staðnum, ótrúlegir þessir jólasveinar hvað þeir eru góðir við börn! Smávegis snjór er á leikskólalóðinni og eins og vant er hann uppspretta ævintýra og gleði hjá börnunum, margar smá holur komnar í skaflinn við austurgirðinguna eina og litlar kanínur hafi verði þar á ferð. Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu. Með kveðju frá Barnabóli Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri og starfsfólk leikskólans

Hirðing brotamálma

Ágætu Skagstrendingar. Nú stendur yfir átak í hreinsun brotamálma. Mjög víða er að finna ýmsa málmhluti sem hafa lokið hlutverki sínu og nýtast best sem endurunnin málmur í nýja hluti. Til þess að svo megi verða þarf að koma þeim í endurvinnslu. Héraðsnefnd hefur gert samning við Hringrás ehf. um brottflutning allra brotamálma af svæðinu til endurvinnslu. Sérstakt átak er gert til að mögulegt verði að ná sem bestri hagkvæmni út úr því verkefni. Við leitum því eftir samstarfi við ykkur um hreinsun á brotamálmum bæði stórum og smáum og biðjum ykkur að koma þeim á söfnunarsvæðið í gryfjunum á Fellsmelum. Sérstök ástæða er til að minna á ónýta bíla sem finna má nokkuð víða um bæinn. Talning á númerslausum bílum innan þéttbýlismarka hefur gefið vísbendingu um allt að 50 óskráða bíla á staðnum. Mögulegt er að fá 15 þús. króna endurgreiðslu ef bílar eru skráðir ónýtir og þeim skilað til endurvinnslu. Skrifstofa Höfðahrepps gefur út kvittun fyrir afskráningu slíkra bíla gegn framvísun skráningarskírteina eftir að þeim hefur verið komið í brotajárn í samráði við starfsmenn sveitarfélagsins. Þá er ástæða til að minna á að heilbrigðisfulltrúi getur látið fjarlægja slíkar bifreiðar á kostnað eigenda ef þær eru orðnar ónýtar og taldar til óþrifnaðar. Skagaströnd, 29. nóvember 2006. Sveitarstjóri

Góður árangur unglinga úr Húnaþingi á frjálsíþróttamóti

Unglingar úr Húnaþingi náðu góðum árangri á frjálsíþróttamóti sem haldið var í Boganum á Akureyri um síðustu helgi. Alls tóku 25 unglingar þátt í mótinu og er óhætt að segja að þeir hafi staðið sig með miklum sóma enda stigu þeir alls 20 sinnum á verðlaunapall og þar af sjö sinnum sem sigurvegarar. Má þar nefna að þeir Stefán Velemer, Sæþór Bragi og Magnús Örn fögnuðu þreföldum sigri í kúluvarpi 11-12 ára. Torfi Friðriksson fagnaði sigri í 60 metra hlaupi á glæsilegum tíma í sinnu fyrstu keppni í hlaupi á ævinni. Hilmar Þór Kárason sigraði bæði í 60 metra og 800 metra hlaupi. Sigmar Guðni Valberg sigraði bæði hástökk og kúluvarp. Fyrir utan þennan góða árangur voru margir að bæta sinn persónulega árangur. Húnvetnsku unglingarnir komu svo sannarlega á óvart á mótinu og var umtalað hversu öflugan hóp þjálfari liðsins, Guðmundur Þór Elíasson væri með og hversu gott starf væri unnið í Húnaþingi á sviði frjálsíþrótta. Það vekur þó athygli að aðeins eru tvær frjálsíþróttaæfingar í sýslunni á viku en flestir þeir sem tóku þátt í mótinu á Akureyri æfa frjálsar íþróttir 4-5 sinnum í viku. Óhætt að segja að Húnvetningar eigi mikið af mjög efnilegu frjálsíþrótta fólki sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni ef rétt verður haldið á málum. Frekari úrslit úr mótinu má finna á www.fri.is. Heimild og myndir frá Húnahorninu.

Strákar/stelpur: Mismunandi áherslur í kennslu og uppeldi?

Þann 8. nóv. s.l. var haldið á vegum Fræðsluskrifstofunnar námskeið um áherslur Hjallastefnunnar í skóla og uppeldisstarfi. Námskeiðið byggði á fyrirlestri Margrétar Pálu Ólafsdóttur, skólastjóra og frumkvöðli, um mögulegt tap stúlkna og drengja í kynjablönduðum hópum í leik og starfi. Einnig fjallaði hún um hvernig byggja megi upp mismunandi áherslur og leiðir í kennslu stúlkna og drengja til hagsbóta fyrir alla. Margrét Pála kynnti kynjanámskrá Hjallastefnunnar sem leið að jafnréttiskennslu. Sjötíu starfsmenn skólanna í Húnavatnssýslum mættu til að læra af Margréti Pálu. Allir virtust mjög ánægðir með námskeiðið, sem sagt var bæði lærdósmríkt og skemmtilegt. Fundað var í félagsheimilinu Ásbyrgi, Laugarbakka. Mynd: Allir þátttakendur, Leiðbeinandi fyrir miðju fremst.

2+2=4?

Þann 2. nóv. s.l. var haldin á vegum Fræðsluskrifstofunnar málstofa um Kennslu í stærðfræði. Tuttugu og einn kennari grunnskólanna í Húnavatnssýslum mættu til að bera saman bækur sínar. Farið var yfir nýjustu áherslur, aðferðir, námsefni, námsmat og verkefni tengt kennslu greinarinnar. Málstofan byggðist á verkefnaskiptum og umræðum um mismunandi leiðir í kennslu námsefnisins. Umsjónarmaður málstofunnar var Sigríður Adnegaard, aðstoðarskólastjóri. Málstofan var haldin í Grunnskólanum á Blönduósi. Kennararnir voru mjög ánægðir með fundinn og ákváðu að halda samstarfi áfram, með því að hittast og hafa samskipti á netinu. Mynd Allir þátttakendur, Leiðbeinandi og fræðslustjóri standandi

Byggingarlóðir án gatnagerðagjalda

Hreppsnefnd Höfðahrepps hefur ákveðið að auglýsa sérstaklega byggingarlóðir við þegar tilbúnar götur þannig að veittur verði afsláttur allra gatnagerðagjalda vegna bygginga á lóðunum. Hreppsnefnd samþykkir jafnframt að eftirfarandi ákvæði gildi um úthlutun allt að fjögurra íbúðarhúsalóða sem afslátturinn muni ná til: · Lóðirnar sem um ræðir verða skilgreindar á lista sem hreppsnefnd samþykkir. · Umsóknir um lóðirnar skulu berast eigi síðar en 31. desember 2006 en umsóknir sem berast á umsóknarfresti verða afgreiddar af skipulags- og byggingarnefnd eftir því sem efni standa til og gildir röð umsókna um nýtingu fyrrgreinds afsláttar. · Við úthlutun lóðanna skulu gilda ákvæði um að byggingarframkvæmdir skuli vera hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar skuli hafa hlotið fokheldisvottorð innan tveggja ára, að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðagjalda Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Höfðahrepps. Skagaströnd, 2. nóvember 2006. Sveitarstjóri

Næsti fundur hreppsnefndar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í hreppsnefnd Höfðahrepps mánudaginn 30. október 2006 á skrifstofu hreppsins kl 1100. Dagskrá: 1. Daggæslumál. 2. Tillaga um afslátt af gatnagerðagjöldum. 3. Bréf: a) Eignarhaldsfélags BÍ, dags. 26. okt. 2006. b) Stígamóta, dags. 19. okt 2006. c) Foreldra grunnskólabarna, dags. í okt 2006. d) Styrktarsjóðs EBÍ, dags. 18. okt. 2006. e) Samráðshóps um nýtt álagningakerfi fasteignagjalda, dags. 13. okt. 2006. 4. Fundargerðir: a) Fræðslunefndar, 23. okt. 2006. b) Atvinnu- og ferðamálanefndar, dags. 25. okt. 2006. c) Skipulags- og byggingarnefndar, dags. 16. okt. 2006. d) Stjórnar SSNV, dags. 24. ágúst 2006. e) Stjórnar SSNV, dags. 10. ágúst 2006. f) 14. ársþings SSNV, dags. 25.-26. ágúst 2006. 5. Önnur mál Sveitarstjóri

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi Verður að þessu sinni haldin í Austur Húnavatnssýlsu. Síðasta ár var uppskeruhátíðin við Mývatn og nú er komið að Húnvetningum að bjóða til sín ferðaþjónustuaðilum af öllu Norðurlandi. Hátíðin verður haldin fimmtudaginn 9. nóvember. Gestir mæta við Upplýsingamiðstöð ferðamála í Brautarhvammi á Blönduósi kl. 11:00. Þar verða rútur sem fara með hópinn í sýnisferð um héraðið. Fróðir heimamenn kynna áhugaverða ferðamannastaði fyrir þátttakendum. Austur Húnavatnssýsla hefur margt að bjóða gestum sínum, bæði í náttúru og menningu. Vonast er til að ferðaþjónustuaðilar af öllu Norðurlandi mæti til leiks og ekki síst að heimamenn taki þátt. Það er mjög gagnlegt og skemmtilegt fyrir fólk í greininni að bera saman bækur sínar og eyða deginum saman. Hádegisverður verður snæddur í nýju hóteli á landnámsbænum Hofi í Vatnsdal. Þór Hjaltalín minjavörður mun kynna verkefnið “Á slóð vatnsdælasögu”. Komið verður við í Blöndustöð, Þingeyrakirkju og á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi þar sem Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstýra á Blönduósi og Elín Sigurðardóttir safnstýra taka á móti gestum. Eftir skemmtilega skoðunarferð verða gestir boðnir velkomnir til Skagastrandar í hinu glæsilega kaffihúsi, Kaffi Viðvík. Matarveisla og skemmtun verður í Kántrýbæ, þar sem Magnús B. Jónsson sveitastjóri sér um veislustjórn í Villta vestrinu. Skoðunarferð og veitingar eru gestum að kostnaðarlausu, en gistingu verður hver að sjá um fyrir sig. Gist verður á Blönduósi . Gistimöguleikar eru á Hóteli, Gistihúsi og í sumarhúsum. Bókanir í gistingu: Glaðheimar s. 898 1832 og Gistiheimilið Blönduból s. 892 3455. Sértilboð verður á gistingu í tilefni uppskeruhátíðarinnar. Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi tekur við skráningum og veitir upplýsingar á heimasíðunni www.nordurland.is eða í netfangingu nordurland@nordurland.is , einnig Haukur Suska-Garðarsson starfsmaður SSNV Atvinnuþróunar í síma 455 4300 eða haukur@ssnv.is . Helst þarf að skrá þátttöku fyrir 2. nóvember. Hátíðin í fyrra heppnaðist mjög vel og verður þessi ekki síðri. Ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að taka þátt. Mætum hress í Húnvatnssýsluna og njótum skemmtunar og fróðleiks með öðrum ferðaþjónustuaðilum á Norðurlandi.

Íslenska-málstofa 9. október 2006

Þann 9. okt. s.l. var haldin á vegum Fræðsluskrifstofunnar málstofa um íslenskukennslu fyrir kennara grunnskólanna í Húnavatnssýslum. Farið var yfir nýjustu áherslur, aðferðir, námsefni og verkefni tengt kennslu greinarinnar. Málstofan byggðist á fyrirlestrum, verkefnaskiptum og umræðum um mismunandi leiðir í kennslu námsefnisins. Umsjónarmaður málstofunnar var Gunnþóra Önundardóttir, kennari. Málstofan var haldin í Húnavallaskóla.