GRP14h lesskimunarpróf fyrir elstu nemendur grunnskólans

Kennarar grunnskóla Húnavatnssýslna læra að nota lesskimunarprófið GRP14h GRP14h er skimunarpróf sem lagt er fyrir nemendur unglingastigs grunnskólanna til að finna þá nemendur sem eru með dyslexíu/lesblindu/leshömlun. Tilgangur prófsins er fjölþættur en þó fyrst og fremst að veita kennurum upplýsingar um stöðu nemenda svo þeir geti gripið til réttra ráðstafana og fundið úrræði og verkefni við hæfi. Nemendur sem greinast í áhættuhópi á prófinu fara með þær upplýsingar í framhaldsskóla sem getur þegar í stað brugðist við og veitt þjónustu við hæfi. Nánskeiðið var á vegum Fræðsluskrifstofu A-Hún. Mynd: „Námskeiðarar“ og fyrirlesari

Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi auglýsir.

Breyttur tími fyrir lyfjaendurnýjanir. Frá og með 1. maí 2012 verður einungis hægt að endurnýja lyfseðla í síma 455-4110 alla virka daga milli kl 13:00 – 14:00. Lyfseðlarnir verða svo tilbúnir til afgreiðslu næsta virka dag. Eftir sem áður er hægt að endurnýja lyfseðla rafrænt í gegnum heimasíðu HSB.

Nýr framkvæmdastjóri Nes Listamiðstöðvar

Melody Woodnutt. Mynd: neslist.is Nýr framkvæmdastjóri er tekin til starfa hjá Nes Listamiðstöð og kallast hún Melody Woodnutt og kemur frá Ástralíu. Melody hefur tvisvar dvalið við listamiðstöðina og er því svæðinu og starfseminni vel kunnug. Á heimsíðu Nes listamiðstöðvar, Neslist.is, birtir Melody opið bréf þar sem hún segist hún hlakka til að takast á við komandi verkefni og að vinna að því að gera Neslist að menningar- og listamiðstöð sem endurspeglar hið mikla listalandslag sem þrífst hér á Íslandi. Þegar Melody dvaldi hér áður heillaðist hún af landi og þjóð, eins og hún lýsir í bréfinu, og segist hafa snúið hingað aftur vegna hrifningu hennar af „Skagaströnd, Íslandi, landslaginu, og vegna þeirri glóandi og síbreytilegu birtu sem hér ríkir. Og af sjálfsögðu vegna fólksins sem hér býr, og ég ber mikla virðingu fyrir,“ segir hún. Melody er sjálf listamaður og hefur notast við fjölmarga þætti við innsetningar sínar, t.d. hljóð, myrkur, ljós, margmiðlun, skúlptúra og sviðsframkomur, með áherslu á upplifun skynfæranna. Með því skapar hún umhverfi þar sem hægt er að koma og vera í – fá sér sæti, upplifa og skynja. Á sama hátt vill hún nálgast hið nýja hlutverk hennar sem framkvæmdastjóri Neslistar. Að skapa umhverfi þar sem listamenn geta komið og prófað sig áfram í listinni. Kannað sjálfa sig og þar með draga fram eitthvað nýtt og óvænt. Umhverfi þar sem listamenn geta upplifað tilfinningar sínar og umhverfi og brugðist við þeim. Hér má lesa bréf Melody í heild sinni.

Ég skal vaka í nótt.

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur söngdagskrá með lögum og/eða ljóðum húnvetnskra og skagfirskra listamanna. Í Hólaneskirkju á Skagaströnd fimmtudaginn 12. apríl kl. 20.30 Stjórnandi kórsins er Sveinn Árnason. Undirleik annast Elvar Ingi Jóhannesson ásamt hljómsveit Skarphéðins H Einarssonar. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hefur starfað í tæp 90 ár og með kórnum hafa í gegnum tíðina starfað mikilvirkir laga og ljóðasmiðir. Meðal þeirra má nefna Jónas Tryggvason frá Finnstungu ( bjó í Ártúnum ásamt Jóni bróður sínum, söngstjóra kórsins) , en heiti verkefnisins “ Ég skal vaka í nótt” er nefnt eftir þekktasta lagi Jónasar sem fyrir löngu er orðið einkennislag Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps. Á seinni árum hafa oftast verið á söngskrá kórsins lög eftir heimamenn. Má þar nefna Svein Árnason, stjórnanda kórsins frá árinu 1994, Skarphéðinn H. Einarsson, Hallbjörn Hjartarson og Geirmund Valtýsson, hagorðir kórfélagar hafa síðan oft samið ljóð við lög sem kórinn flytur. Í júní nk. mun Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps taka þátt í norrænu karlakóramóti Í Hönefoss í Noregi og kemur þar fram sem fulltrúi Sveitarfélagsins Skagastrandar. Því er vel við hæfi að lokatónleikar kórsins fyrir utanlandsferð verði á Skagaströnd. Miðaverð er 2.500 kr. posi á staðnum. Hlökkum til að sjá sem flesta. Dagskráin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra. Kórfélagar.

Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir flokksstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Skilyrði er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og reynsla af sambærilegum störfum kostur. Jafnframt eru auglýst laus til umsókna sumarstörf námsmanna í samstarfi við Vinnumálastofnun. Störfin eru við ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins m.a. við skógrækt, umhverfismál og umsjón með golfvelli. Umsóknareyðublöð má fá á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur um flokkstjórastörf er til 4. maí n.k. en umsóknarfrestur vegna sumarstarfa námsmanna verður auglýstur síðar. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700. Sveitarstjóri

Drekktu betur

Fyrirtækjakeppni í Kántrýbæ í kvöld, miðvikudaginn 4. apríl, kl. 21.30 Þrír í liði – 30 spurningar Trostan Agnarsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir eru spyrlar og dómarar. Góð verðlaun. Kántrýbær

Flutningar á efni í hitaveitu hafnir

Fyrsti farmur af efni í hitaveitu sem á að leggja frá Reykjum til Blönduóss og áfram Skagastrandar er kominn. Framleiðandinn, Logstör í Danmörku hefur valið þá leið að flytja meirihlutann af efninu á flutningavögnum með ferjunni Norrænu. Þótt um sé að ræða flutninga á um 1.200 tonnum á efni og 70 - 80 ferðir á dráttarbílum með vagna var þessi leið valin umfram beina flutninga með skipi. Fyrstu bílarnir með stálrör komu í gær og losuðu framinn í nágrenni við borholurnar á Reykjum. Efnið sem um ræðir er í um 13 km aðveitulögnin frá jarðhitasvæðinu á Reykjum (Húnavöllum) til Blönduóss og 20 km stofnlögn frá Blönduósi til Skagastrandar og dreifikerfi á Skagaströnd. Lagning veitunnar munu skiptast í þrjá megin verkhluta: Lagningu nýrrar stofnæðar frá Reykjum að Blönduósi sem verði unnin á árinu 2012, lagningu stofnæðar frá Blönduósi til Skagastrandar á fyrri hluta árs 2013 og lagningu dreifikerfis um byggðina á Skagaströnd sumarið og haustið 2013.

Kaffi Bjarmanes til leigu

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir umsóknum um að leigja og reka Kaffi-og menningarhúsið Bjarmanes á Skagaströnd. Húsið er laust til afnota í lok maí og í því er allur búnaður til reksturs kaffihúss. Bjarmanes er fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004,og hefur þann einstaka anda sem einkennir mörg gömul hús. Það stendur miðsvæðis með góðu útsýni yfir höfnina og Húnaflóann. Óskað er eftir að umsækjendur leggi fram með umsókn sinni hugmyndir um rekstrarform og menningarlegt hlutverk kaffihússins. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 15. apríl 2012. Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið skagastrond@skagastrond.is Fyrir hönd sveitarstjórnar, 2. apríl 2012. Sveitarstjóri