Blysför - Brenna - Flugeldasýning

Fyrirkomulag áramótabrennu og blysfarar verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.  Brennan verður staðsett við Snorraberg (vegamót Vetrarbrautar og Ásvegs) og leggur blysförin af stað frá félagsheimilinu Fellsborg.   Lagt verður af stað frá Fellsborg kl 20:30 og kveikt verður í brennunni um kl 20:45.  Þegar góður eldur er kominn í bálköstinn sjáum við glæsilega flugeldasýningu sem styrkt hefur verin af fyrirtækjum bæjarins.   Þökkum stuðninginn og með von um góða þáttöku. Björgunarsveitin Strönd og Ungmennafélagið Fram  

Flugeldasala

Flugeldasala Björgnarsveitarinnar Strandar og Umf. Fram verður í ár að Oddagötu 4 í húsnæði Rauðakrossins.  Opnunartímar verða sem hér segir: Föstudaginn 28. des kl. 20-22 Laugardaginn       29. des kl 16-22 Sunnudaginn        30. des kl 16-23 Mánudaginn         31. des kl. 11-15   ATH!! Börn yngri en 12 ára fá ekki afgreiðslu nema í fylgd með fullorðnum og unglingar yngri en 16 ára fá ekki afgreidda skotelda. Þökkum stuðninginn og með von um góða þáttöku. Björgunarsveitin Strönd og Ungmennafélagið Fram

Mynd vikunnar

Gleðilegt ár 2019 Ljósmyndasafnið óskar öllum gleðiríks góðs nýs árs um leið og það  þakkar alla hjálp á árinu 2018. Safnið óskar allaf eftir að fá að láni  myndir sem fólk á heima hjá sér og tengjast Skagaströnd á einn eða  annan hátt. Öllum myndum er skilvíslega skilað aftur til eigenda sinna  eftir að þær hafa verið skannaðar og settar út á netið.  Ljósmyndasafnið er jú sameign okkar allra og því fleiri myndir sem  þar eru því skemmtilegra verður það.  Þar eru nú aðgengilegar um 13.500 myndir sem allar tengjast  Skagaströnd á einn eða annan hátt.  Lifið heil.

Gleðilegt nýtt ár

Sveitarfélagið Skagaströnd óskum íbúum sínum og landsmönnum öllum, farsældar á nýju ári, með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.

Varaaflsvélar keyrðar til rafmagnsframleiðslu

Rafmagnsnotendur á Skagaströnd og Skaga að vestanverðu að Hrauni  Á morgun laugardag 29.12.2018 frá kl 07:30 til kl 15:00 verða varaaflsvélar keyrðar til rafmagnsframleiðslu á Skagaströnd og á Skaga að vestanverðu að Hrauni. Ekki er reiknað með rafmagnstruflunum vegna þessa. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9690.

Skrifstofan lokuð 28.12

Skrifstofa sveitarfélagsins Skagastrandar verður lokuð föstudaginn 28. desember 2018. Áramótakveðjur Starfsfólk

Mynd vikunnar

Gleðileg Jól Jólin eru tími samveru og fjölskyldunnar. Kirkjugarðurinn er einn af  þessum stöðum sem við heimsækjum fyrir eða um jólin til að minnast  þeirra sem áður nutu jólanna með okkur og gerðu þau yndisleg.  Við treystum því að þau séu hjá okkur um jólin og njóti þeirra með  okkur þó þau séu horfin yfir á annað tilverustig.  Ljósmyndasafnið óskar öllum Skagstrendingum og öðrum velunnurum  gleðilegra jóla og hamingjuríks komandi árs.

Hólaneskirkja - nýtt orgel.

Um þessar mundir er verið að setja upp nýtt orgel í Hólaneskirkju. Orgelið er smíðað í Þýskalandi og er af gerðinni AHLBORN ORGANUM III. Það er innflytjandi orgelsins Sverrir Guðmundsson organisti og rafeindavirki sem annast það verk.   Orgelið verður vígt við messu á aðfangadagskvöld kl. 23:00

Skagastrandarprestakall Helgihald um jól 2018

Hólaneskirkja 24. desember Aðfangadagur jóla Miðnæturmessa kl. 23.00 Í hátíðarmessunni verður nýtt orgel vígt.Kór Hólaneskirkju flytur hátíðarsöngva séra Bjarna Þorsteinssonar og sungnir verða jólasálmar við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Hofskirkja 25. desember - Jóladagur Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 Kór Hólaneskirkju flytur hátíðarsöngva séra Bjarna Þorsteinssonar og sungnir verða jólasálmar við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista.  Bólstaðarhlíðarkirkja 27. desember - Þriðji dagur jóla Hátíðarguðsþjónusta kl. 13:00 Kór Bergsstaða-, Bólstaðarhlíðar– og Holtastaðakirkju syngur jólasálma við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Nemendur í Tónlistarskóla A-Hún. leika á hljóðfæri. Dögun Einarsdóttir á klarinett og Hugrún Lilja Pétursdóttir á orgel. Jólaball verður í Húnaveri strax eftir messu. Hólaneskirkja 31. desember gamlársdagur kl. 14.00 Hátíðarstund um áramót með samsöng fyrir allar kynslóðir. Guð að gefi þér gleðiríka jólahátíð og blessunarríkt nýtt ár.   Bryndís Valbjarnardóttir, sóknarprestur. Fésbók: Skagastrandarprestakall.