Jólabókakvöld í Bjarmanesi

Jólabókakvöld í Bjarmanesi miðvikudaginn 2. des., kl. 20 Heimamenn lesa úr eftirtöldum bókum: Dagný Rósa Úlfarsdóttir Hersetan á Norðurlandi vestra Sigríður Stefánsdóttir Hundadagar Valtýr Sigurðsson Syndarinn Lárus Ægir Guðmundsson Kvenfélagið Eining 1927-2013 Guðmundur Egill Erlendsson Útkall Hugrún Sif Hallgrímsdóttir Dimma Hjörtur Guðmundsson Utangarðs? Vera Ósk Valgarðsdóttir Hvítir veggir og Öskraðu gat á myrkrið Aðgangur ókeypis. Allir hjartanlega velkomnir. Bjarmanes verður með kakó, kaffi og smákökur til sölu.

Mynd vikunnar

99 ára heiðurskona. Jónína Guðrún Valdimarsdóttir frá Kárastöðum á 99 ára afmæli 29. nóvember 2015. Þessi aldna heiðurkona er mannasættir sem talar aldrei illa um nokkurn mann þrátt fyrir oft erfiða æfi. Lengi var hún ráðskona hjá bræðrunum Kára (d.11.12.1990) og Sigurbirni Kristjánssonum (d.10.9.1989) á Kárastöðum og hélt þeim heimili ásamt dóttur sinni. Jónína eignaðist tvö börn, Svavar Bergmann Indriðason 1939, sem lést 1.nóv. 2010, og Kristínu Ragnheiði Sigurðardóttur 1949, sem var með móður sinni á Kárastöðum. Jónína dvelur nú á Sæborg í góðu yfirlæti og eru henni færðar innilegar hamingjuóskir með afmælið. Myndina af Nínu tók Jón Jónsson árið 1990.

Mál- og læsisstefna

Sameiginleg mál- og læsisstefna leik-og grunnskóla í Húnavatnssýslum og leikskólanum á Hólmavík Skólastjórnendur leik-og grunnskóla í Austur Húnvatnssýslu, Húnaþingi vestra og leikskólanum á Hólmavík hafa ákveðið að vinna að sameiginlegri mál- og læsisstefnu skólanna í samræmi við ákvæði í Aðalnámskrá leik- og grunnskóla og þann 24. nóv. s.l. undirrituðu skólastjórar viljayfirlýsingu um að stefna sameiginlega að þessu markmiði. Stefnt skal að því að vinna heildstæða mál- og læsisstefnu fyrir leik- og grunnskóla en hver skóli mun síðan í framhaldinu móta sína eigin stefnu sem tekur mið af þeirri sameiginlegu. Í grunnskólunum er nú unnið að þróunarverkefninu Orð af orði undir handleiðslu Guðmundar Engilbertssonar lektors við Háskólann á Akureyri. Í leikskólunum er unnið að þróunarverkefninu Málþroski og læsi, færni til framtíðar og þar er verkefnastjóri Ásthildur Bj. Snorradóttir talmeinafræðingur. Í hverjum skóla er starfandi teymi sem ber ábyrgð á faglegri vinnu varðandi mál og læsi innan hvers skóla en tengiliðir frá skólunum hittast reglulega og vinna að sameiginlegri stefnu. Markmiðið með þessari vinnu er að efla málþroska og færni allra nemenda á báðum skólastigum er varðar læsi í víðum skilningi og með áherslu á snemmtæka íhlutun. Ábyrgðamenn verkefnisins í leikskólunum eru Guðrún Lára Magnúsdóttir leikskólastjóri í Ásgarði og Borðeyri og Þórdís Hauksdóttir fræðslustjóri Austur Húnavatnssýslu sem einnig er ábyrgðarmaður fyrir verkefninu í grunnskólunum ásamt Kristínu Ólöfu Þórarinsdóttur aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra.

Fræsingaþjónusta

Dimension of sound bíður uppá fræsiþjónustu á Skagaströnd, Hægt er að fræsa í allskonar timbur sem og léttari málma eins og t.d ál. Fræsum eftir teikningum, ásamt því bjóðum við uppá teikniþjónustu þannig að það eina sem þú þarft að koma með eru hugmyndir og við sjáum um restina. Vélin getur fræst í hluti sem eru allt að 124cm X 249cm X 15cm Vélin fræsir í 2D og 3D. Verð; 1Klst teiknivinna er 2.500kr 1klst vél+maður á vél er 10.000kr Hægt er að hafa samband í síma 868 8257 eða senda póst á fraesing@gmail.com með fyrirspurnir. https://www.facebook.com/Fr%C3%A6si%C3%BEj%C3%B3nusta-Nor%C3%B0urlands-Vestra-1634827400112658/timeline

Umsókn um byggðakvóta

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2015/2016 Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 605/2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016 Grundarfjarðarbær (Grundarfjörður) Vesturbyggð (Patreksfjörður) Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1043/2015 í Stjórnartíðindum Árborg (Stokkseyri, Eyrarbakki) Garður Vogar Vesturbyggð (Brjánslækur/Barðaströnd) Ísafjarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur, Ísafjörður) Strandabyggð (Hólmavík) Húnaþing vestra (Hvammstangi) Blönduósbær (Blönduós) Sveitarfélagið Skagaströnd Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður) Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur, Hauganes) Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík) Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi. Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2015. Fiskistofa 20. nóvember 2015

Mynd vikunnar

Grjótnám í Höfðanum. Á þessari mynd eru verkamenn við grjótnám í Höfðanum vegna hafnargerðar á Skagaströnd 1934. Milli 40 og 60 verkamenn unnu við hafnargerðina þetta sumar. Grjótið var sprengt úr Höfðanum og komið upp á vörubíl, oftast með handafli, og síðan flutt í uppfyllingu frá landi og út í Spákonufellsey, sem einnig var brotin niður að hluta og notuð í uppfyllinguna. Strax sumarið 1935 var svo söltuð síld á tréplani í höfninni, sem gjörbreytti allri aðstöðu fyrir báta og fiskmóttöku. Húsin í baksýn voru Melstaður (nær) og Laufás lengst til vinstri.

Mynd vikunnar

Kántrýhátíð 2001. Margt var um manninn á Kántrýhátíðinni um verslunarmannahelgina 2001 og margt í boði fyrir hátíðagesti. Meðal annars var hægt að leigja þennan glæsilega tveggja hestafla hestvagn til að koma sér á milli staða í góða veðrinu. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson.

Framhaldsaðalfundur Foreldrafélags Höfðaskóla

Framhaldsaðalfundur Foreldrafélags Höfðaskóla verður haldinn í íþróttahúsinu miðvikudaginn 18. nóv. og hefst kl. 18. Fundarefni: - Kosning stjórnar. Ath. að tillaga að stjórn er komin - Önnur mál s.s. o starfið í vetur  Spjaldtölvuvæðing  Lestrarátak/lestrarömmur/afar  Viðhorf til skólastarfs  Jólaföndur – af eða á?  Grímuball á öskudegi  Annað sem kemur upp í hugann og fólk vill ræða. Endilega mætið sem flest því þannig getið þið haft áhrif. Foreldrafélag Höfðaskóla

Fatamarkaður RKÍ 19. nóv. 2015

Fatamarkaður Fatamarkaður Rauða krossins á Skagaströnd verður haldinn fimmtudaginn 19. nóvember frá kl. 17:00-19:00 í húsnæði deildarinnar að Vallarbraut. Fullur poki af fötum á 2000 kr. Rauði krossinn á Skagaströnd

Elínborgardagurinn á mánudaginn 16. nóv

Elínborgardagurinn menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg mánudaginn 16. nóvember 2015 kl. 18:00 Skv. hefð er Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Í Höfðaskóla er dagurinn einnig helgaður minningu Elínborgar Jónsdóttur fyrrverandi kennara við skólann. Höfðaskóli mun því standa fyrir menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg mánudagskvöldið 16. nóvember n.k. Eins og undanfarin ár mun nemendafélagið Rán, með dyggri aðstoð foreldra, bjóða upp á kökuhlaðborð að lokinni dagskrá. Aðgangseyrir á dagskrána er:  1000 kr. fyrir eldri en grunnskólanemendur  500 kr. fyrir grunnskólanemendur  frítt fyrir þriðja barn frá heimili  frítt fyrir leikskólanemendur Innifalið er aðgangur að kökuhlaðborðinu. Vonumst við til þess að sjá sem flesta í hátíðarskapi. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla. Vonumst við til þess að sjá sem flesta í hátíðarskapi. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla