Aðventuhátíð í Hólaneskirkju 4. desember

Aðventuhátíð verður í Hólaneskirkju þriðjudaginn 4. desember kl. 18.00 Kirkjukór Hólaneskirkju, Sunnudagskóla- og TTT- börnin syngja jóla- og aðventusöngva undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista.  Fermingarbörn flytja hugvekjuþátt og helgileik. Vera Ósk Valgarðsdóttir skólastjóri flytur jólahugleiðingu og  Sr. Bryndís Valbjarnardóttir jólasögu.   Verið öll hjartanlega velkomin.  Gleðilega aðventu, Sr. Bryndís

Sprotar í atvinnu og þjónustu

Enn vaxa skemmtilegir og góðir atvinnusprotar á Skagaströnd. Um áramótin opnar Erla Jónsdóttir rekstrarfræðinigur bókhalds- og rekstrarráðgjafastofu í kjallaranum í gamla kaupfélaginu. Starfsmaður þar, með Erlu, verður Sigríður Gestsdóttir sem er menntuð sem viðurkenndur bókari. Þetta nýja fyrirtæki heitir Lausnamið. Þá hefur Eygló Amelía Valdimarsdóttir snyrtifræðingur unnið hörðum höndum að undanförnu við að standsetja snyrtistofu sem hún ætlar að vera með í húsnæði hárgreiðslustofunnar Vivu í rýminu þar sem áður var ljósabekkur. Bæði þessi þjónustufyrirtæki eru þörf viðbót við atvinnuflóruna á Skagaströnd og er þeim óskað velgengni á komandi tímum. Nýverið fékk svo Rannsóknarsetur HÍ loforð fyrir níu milljóna styrk til að vinna að verkefni um að koma bókum sáttanefnda á landinu á tölvutækt form og gera þær aðgengilegar á netinu. Þetta kallar á að ráðinn verði starfsmaður eða menn í verkið sem unnið verður í samvinnu við Héraðsbókasafnið á Sauðárkróki. Allt eru þetta góðir sprotar sem auka breiddina á atvinnulífinu hjá okkur.

Jólatónleikar Tónlistarskóla A-Hún

Jólatónleikar Tónlistarskóla A-Hún eru á næsta leiti.  Þeir fara fram sem hér segir: Húnavallaskóli, 5. desember kl.15:30 (ath. breytt tímasetning, áður auglýstir kl.15:00). Blönduósskirkja, 6. desember kl.17:00. Hólaneskirkja Skagaströnd, 10. desember kl.17:00.   Allir hjartanlega velkomnir. Skólastjóri. 

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 28. nóvember 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00. Dagskrá: Fjárhagsáætlun 2019 (fyrri umræða) Samningur um ræsingu Húnaþinga Verklagsreglur um viðauka við fjárhagsáætlanir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, breyting á reglugerð Skólaakstur Umsögn um rekstrarleyfi Bréf Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytis, dags. 22. nóvember 2018 Fiskistofu, dags. 14. nóvember 2018 Framkvæmdastjóra EBÍ, dags. 18. október 2018 Þjóðskrár Íslands, dags. í okt. 2018 Umhverfisstofnunar, dags. 16. nóvember 2018 Sóknarprests Hólaneskirkju, dags. 12. nóvember 2018 Heimilisiðnaðarsafnsins, dags. 8. nóvember 2018 USAH, dags. 13. nóvember 2018 Stígamóta, 31. október 2018 Fundargerðir Fræðslunefndar 11.09.2018 Sameiningarnefndar A-Hún, 1.10.2018 Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 5.11.2018 Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 14.11.2018 Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 20.11.2018 Fjárhagsáætlun Tónlistarskólans 2019 Þjónusturáðs – þjónustu við fatlað fólk á Nv, 20.11.2018 Rekstraryfirlit jan-sept 2018 Fjárhagsáætlun 2019 Stjórnar SSNV, 6.11.2018 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 24.10.2018 Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Hnúfubakur Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur - tarfur - um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni er Hafró fólkið, íklætt hlífðarbuxum, að undirbúa sýnatöku. Guðmundur J. Björnsson stendur við sporðinn í blárri peysu, aðrir eru óþekktir. Til gamans má geta þess að reður hvalsins var sendur til Reðursafns Íslands að ósk eiganda safnsins en hann ætlaði að hafa reðurinn þar til sýnis með öðrum slíkum líffærum af hinum ýmsu spendýrum. Myndina tók Magnús B. Jónsson. Senda upplýsingar um myndina

Mynd vikunnar.

Árshátíð Höfðaskóla 2008. Árshátíð Höfðaskóla 2008 var haldin 11. apríl. Á myndinni eru krakkar úr mörgum bekkjum að syngja. Krakkarnir eru frá vinstri: Standandi: Rebekka Róbertsdóttir (nær), Silfá Sjöfn Árnadóttir (fjær), Andrea Björk Kristjánsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sæunn Steingrímsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir (fjær), Svandís Hallgrímsdóttir (nær), Guðmann Magnússon, Sveinn Hallgrímsson, Ísak Tryggvason, Páll Halldórsson, Heba Líf Jónsdóttir, Eymundur Lorens Grétarsson, Ísabella Róbertsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Karen Ósk Sigurðardóttir og Birkir Gunnarsson. Sitjandi frá vinstri: Bjarndís Annþórsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Arnrún Guðjónsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Birgitta Bjarnadóttir, Tryggvi Fjölnisson og Kristján Róbertsson.

Árshátíð Höfðaskóla

Árshátíð Höfðaskóla verður haldin 16. nóvember n.k. í Fellsborg og hefst kl. 18:00 Fjölbreytt skemmtiatriði í anda áranna 1918-2018         Nemendafélagið Rán með dyggri aðstoð foreldra býður upp á kökuhlaðborð að dagskrá lokinni.   Sandra Ómars heldur uppi diskóstuði fram eftir kvöldi. Nemendur 1.-6.b. fara heim kl. 22:00.                   Aðgangseyrir:         1500 kr fyrir fullorðna, kökuhlaðborð innifalið, annars 1000 kr. 500 kr fyrir börn, kökuhlaðborð innifalið, annars frítt.   Hámark 4000 kr á fjölskyldu (foreldra og börn).           Vonumst til að sjá sem flesta.   Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla.

Mynd vikunnar.

Hvaladráp fyrir 100 árum. Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm háhyrningar voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Nokkru síðar uppgötvuðust tveir hnúfubakar í annarri vök dálítið bnorðar. Þeir voru einnig drepnir og fólk gerði sér mat úr þeim. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að öðrum hnúfubaknum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berndsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir munnlegri frásögn Steingíms Jónssonar). Myndin tók Evald Hemmert.

Íbúafundur um aðalskipulag Skagaströnd

Fimmtudaginn 15. nóvember nk. kl 20.00 verður haldinn opinn íbúafundur í Bjarmanesi vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Skagastrandar Á fundinum munu ráðgjafar frá Landmótun kynna verkefnislýsingu skipulagsvinnunnar og fara yfir helstu áherslumál og næstu skref. Eftir kynningu verða almennar umræður og leitað til íbúa um ýmis atriði varðandi framtíðarþróun sveitarfélagsins. Allir sem eru áhugasamir um skipulag og framtíðarsýn sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta. Sveitarstjóri Sveitarstjóri