Blóðsykursmælingar

Lionsklúbbur Skagastrandar hefur ákveðið að bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingar í tengslum við skötuveisluna í Fellsborg á Þorláksmessu. Mælingar á blóðsykri er tiltölulega einföld mæling sem gefur til kynna hvort fólk sé með sykursýki eða ekki. Verkefnið er unnið í samstarfi við Heilsugæsluna á Skagaströnd. Fólk er hvatt til að nýta sér þessa þjónustu. Með jólakveðju Lionsklúbbur Skagastrandar

Opnunartími Lyfju Skagaströnd

Vinsamlegast athugið Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur orðið að gera eftirfarandi breytingar á opnunartíma Lyfju Skagaströnd útibúi í Desember. 20. Desember opið 10-13 21. Desember opið 12-16 22. Desember opið 10-13 23. Desember Lokað 28. Desember opið 12-16 29. Desember opið 10-13 30. Desember opið 12-16 Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta getur valdið. Bent er á að næstu Lyfju er að finna á Blönduósi sem er opin 10-17 virka daga S:452-4385 og Lyfja Sauðárkróki S:453-5700 sem er opin 10-18 virka daga og 11-13 laugardaga.

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2016/2017

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 641/2016 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017   Vesturbyggð (Patreksfjörður) Kaldrananeshrepp (Drangsnes)   Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1081/2016 í Stjórnartíðindum   Sveitarfélagið Ölfus (Þorlákshöfn) Sveitarfélagið Garður Vesturbyggð (Brjánslækur, Bíldudalur) Sveitarfélagið Skagaströnd Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður) Langanesbyggð (Þórshöfn, Bakkafjörður)   Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.  Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.   Umsóknarfrestur er til og með 28. desember 2016.   Fiskistofa 9. desember 2016  

Lokað fyrir vatn

Lokað verður fyrir vatn í dag, mánudaginn 19. desember, frá hádegi og fram eftir degi í efri hluta Bogabrautar, efri hluta Fellsbrautar og Hólabrautar ofan Sólarvegar Sveitarstjóri

Opið hús desember 2016

Laugardagur 17 desember 15.00 - 17.00 Come watch animation and video works, and a performance with puppetry! Some works are also for sale, including Photos and Jewellery :) Allir eru velkomnir!

Mynd vikunnar

Róið í land. Þegar vélin bilar er gott að geta gripið til vöðvaaflsins til að koma sér í land. Á þessari mynd eru mágarnir Hjörtur Guðmundsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri að róa í land með bilaðan utanborðsmótor á lítilli skektu í austan kælu.

Jólasveinapóstur

  Jólasveinarnir hafa samið við Foreldrafélag Höfðaskóla um að taka á móti pökkum og bréfum í skólanum fimmtudaginn 22. desember frá kl 18-20:00. Sjálfir ætla þeir síðan að koma póstinum til skila á Þorláksmessu á milli 16 og 19:00. Verð fyrir þjónustuna er eftirfarandi:                                          Bréf 100 kr Pakki 500 kr (Ath ekki er posi á staðnum)     Foreldrafélag Höfðaskóla

Húsaleigubætur verða húsnæðisbætur

Frá og með áramótum verður sú breyting að sveitarfélagið hættir að greiða húsaleigubætur en þess í stað verða teknar upp húsnæðisbætur sem verða í umsjá Greiðslustofu húsnæðisbóta https://husbot.is/ Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur sem eru ætlaðar til að aðstoða þá sem leigja íbúðarhúsnæði, hvort sem er í félagslega kerfinu, námsgörðum eða á hinum almenna leigumarkaði „út í bæ“. Greiðslustofan er hluti af Vinnumálastofnun sem annast framkvæmd laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og tekur ákvarðanir um rétt til húsnæðisbóta. Almenn afgreiðsla er í höndum Greiðslustofu húsnæðisbóta á Sauðárkróki. Opnunartími. Afgreiðsla er opin frá kl. 09:00 - 15:00 alla virka daga. Skrifstofan er á Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki. Sími: 515-4800 Netfang: husbot@vmst.is

Afmælis og útgáfuhóf UMF Fram.

Afmælis og útgáfuhóf Mánudaginn 19. desember klukkan 18:00 býður ungmennafélagið Fram uppá súpu og brauð í Fellsborg í tilefni 90 ára afmælis félagsins. Lárus Ægir Guðmundsson mun kynna nýútkomna bók sína um 90 ára sögu Ungmennafélagsins Fram. Eigum notalega stund saman á aðventunni og fögnum farsælu starfi Ungmennafélagsins í 90 ár. stjórn Ungmennafélagsins Fram