Átján og hálf milljón í menningarstyrki

undefined

SUMARSTARF Í SUNDLAUG

Laust er til umsóknar sumarstarf í sundlaug Skagastrandar. Æskilegt er að umsækjendur séu eldri en 20 ára, hafi farið á skyndihjálparnámskeið og séu með a.m.k 9. stig í sundi. Upplýsingar um starfið gefur Árni Geir í síma 861 4267. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsjónarmaður sundlaugar.

Framsagnarkeppni

Fimmtudaginn 3. apríl var haldin að Húnavöllum árleg framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi. Keppnin er haldin til minningar um Grím Gíslason frá Saurbæ í Vatnsdal. Keppendur voru tólf og lásu þrisvar hver. Fyrst var lesinn kafli úr sögu eftir Jón Sveinson og síðan kvæði eftir Stein Steinarr og að lokum kvæði að eigin vali. Allir keppendur stóðu sig vel og hlutu lof dómara og áheyrenda. Það var því erfitt verk að úrskurða hverjir hefðu staðið sig best. Sigurvegarar keppninnar að þessu sinni voru: 1. Eydís Sigurðardóttir, Húnavallaskóla 2. Alma Dröfn Vignisdóttir, Höfðaskóla 3. Árný Dögg Kristjánsdóttir, Grunnskólanum á Blönduósi Sérstök aukaverðlaun fyrir vandaðan lestur hlutu þau: Bragi Hólm Birkisson, Húnavallaskóla og Kristín Karen Karlsdóttir, Grunnskóla Húnaþings vestra. Myndir: Sigurvegarar keppninnar Formaður dómnefndar, Þórður Helgason, tilkynnir úrslit

Úthlutun verkefnastyrkja

Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Norðurlands vestra fer fram í Félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 5. apríl, kl. 15.45. Verkefnastyrkir Menningarráðs byggjast á þriggja ára samningi ríkisvaldsins og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem undirritaður var 1. maí 2007. Samkvæmt honum er gert ráð fyrir rúmlega 30 milljón króna árlegu framlagi ríkisins til menningarmála á Norðurlandi vestra. Auk þess að sjá um úthlutun verkefnastyrkja er hlutverk Menningarráðsins að standa fyrir þróunarstarfi í menningarmálum og hvetja til samstarfs og faglegra vinnubragða. Þá er ráðinu ætlað að efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista og styrkja starfsemi menningartengdrar ferðaþjónustu. Þetta er í annað sinn sem Menningarráðið úthlutar verkefnastyrkjum en fyrsta úthlutunin var í október 2007. Að þessu sinni verður úthlutað styrkjum til 55 aðila, samtals að fjárhæð 18,5 milljónir króna. Hæstu styrkirnir nema einni milljón króna. Þetta er fyrri úthlutun Menningarráðs á þessu ári, næsti umsóknarfrestur er 15. september nk. Menningarfulltrúi

Ráðstefna um menningartengda ferðaþjónustu

Laugardaginn 5. apríl stendur Menningarráð Norðurlands vestra fyrir ráðstefnu um menningartengda ferðaþjónustu. Ráðstefnan verður haldin í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst kl. 13.00 með ávarpi ferðamálastjóra. http://www.skagastrond.is/frettir/users3/stjori/Dagskrá%20fundar%20menningarráðs%202008.pdf Menningarráði Norðurlands vestra er m.a. ætlað að vera samstarfsvettvangur um menningarmál í fjórðungnum. Stefna ráðsins er m.a. sú að auka samstarf í menningarmálum og stuðla að frekari kynningu á því menningarstarfi sem unnið er á svæðinu. Áhersla er lögð á að öflug menningarstarfsemi sé mikilvægur þáttur í því að skapa góð atvinnu- og búsetuskilyrði. Ráðstefnan er haldin undir kjörorðinu Samstarf til sóknar og er tilgangurinn að vekja athygli á möguleikum sem felast í samstarfi aðila er starfa að menningarmálum og ferðaþjónustu í landshlutanum. Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, mun flytja ávarp við setningu ráðstefnunnar. Þá mun Guðrún Þ. Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamáladeildar Hólaskóla, flytja erindi sem hún nefnir „Sviðsetning menningartengdrar ferðaþjónustu“. „Menningin og við“ nefnist erindi Hrafnhildar Víglundsdóttur, framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands á Hvammstanga en fyrirtækið er nýtt og hefur vakið mikla athygli fyrir fróðlegar og skemmtilegar sýningar. Eitt af leiðandi fyrirtækjum á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu er án efa Landnámssetrið í Borgarnesi. Kjartan Ragnarsson, framkvæmdastjóri þess, mun á ráðstefnunni flytja erindi sem hann nefnir „Landnámssetrið í samstarfi“ og fjallar þar um samstarf fyrirtækisins við aðra aðila á Vesturlandi. Rögnvaldur Guðmundsson, ferðamálaráðgjafi, hefur unnið víða um land með ferðþjónustuaðilum, sveitarfélögum og fleirum. Hann er formaður Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu og mun á ráðstefnunni fjalla um árangur samtakanna og framtíðarsýn. Á meðan á ráðstefnunni stendur verður ljósmyndasýning í anddyri Félagsheimilisins sem er hluti af væntanlegri sýningu er nefnist Horft til himins og fékk á síðasta ári styrk frá Menningarráðinu. Í anddyrinu verður einnig sýnd á stórum sjónvarpsskjá upptaka af óperunni La Traviata eftir Verdi sem Ópera Skagafjarðar setti upp og sýndi á síðasta ári og naut til þess styrks frá Menningarráði. Hestaíþróttir eru vinsælar á Norðurlandi vestra og þess vegna mun Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi sýna í anddyrinu reiðföt karla og kvenna frá fyrri tíð. Nánari upplýsingar veitir: Ingibergur Guðmundsson Menningarfulltrúi Norðurlands vestra Sími: 892 3080 / 452 2901 Tölvupóstur: menning@ssnv.is