Mynd vikunnar

Breytt götumynd í útbænum Myndin er tekin af Höfðanum yfir útbæinn og höfnina. Mörg af húsunum á myndinni eru horfin eins og Efri Sólheimar sem sést ofan á fremst til vinstri og Valhöll sem stendur hinum megin við götuna. Höfðaberg hét húsið næst okkur til hægri á myndinni og Höfðakot hægra megin við það. Niður með Skagaveginum eru síðan horfin útihúsin og viðbyggingar við Bjarmaland vinstra megin og Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður hægra megin við götuna. Kaupfélagshúsið, braggarnir og löndunarútbúnaður vegna síldarverksmiðjunnar á höfninni eru einnig horfin í dag. Ef grannt er skoðað sést hafís á sjónum þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1965 eða 1968. Senda upplýsingar um myndina

Íbúafundur 18. janúar kl 17.30

Íbúafundur verður haldinn fimmtudaginn 18. janúar nk. kl. 17.30 í félagsheimilinu Fellsborg. Efni fundarins er að ræða almennt um málefni Skagastrandar bæði stöðu sveitarfélagsins, atvinnumál og sameiningu sveitarfélaga í A-Hún Sveitarstjóri

Umsóknir um byggðakvóta fiskveiðiárið 2017-2018

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018 Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018 Grundarfjörður Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 5/2018 í Stjórnartíðindum Snæfellsbær (Arnarstapi, Hellissandur, Rif og Ólafsvík) Sveitarfélagið Garður Sveitarfélagið Skagaströnd Húnaþing vestra (Hvammstangi) Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi. Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2018. Fiskistofa 5. janúar 2018

Forritarar framtíðarinnar - styrkur til Höfðaskóla

Forritarar framtíðarinnar í Höfðaskóla Úthlutun hefur farið fram úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar, en tilgangur hans er að efla tækni- og forritunarkennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins. Sjóðnum bárust 32 umsóknir í þessari úthlutun, flestar frá grunnskólum. Höfðaskóli var einn af 11 grunnskólum sem fékk úthlutað styrk úr sjóðnum. Styrkirnir eru ýmist í formi tölvubúnaðar og/eða fjárstyrks sem fer í að þjálfa kennara til forritunarkennslu en Höfðaskóli fékk einmitt styrk til þess síðarnefnda. Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar var stofnaður árið 2014 og hafa veitt styrki árlega til skóla landsins. Áður hafa þrír skólar á Norðurlandi vestra hlotið styrk úr sjóðnum, Árskóli, Grunnskólinn austan Vatna og Blönduskóli. Sjóðurinn er samfélagsverkefni og eru hollvinir sjóðsins Reiknistofa bankanna, Íslandsbanki, Landsbankinn, CCP, Icelandair, Össur, Cyan, KOM, Marel og Advania. Tækni-og forritunarþekking er afar mikilvæg nú á tímum upplýsingatæknibyltingar og því eru kennarar Höfðaskóla afar spenntir að takast á við verkefnið í vetur. Frá og með næsta vetri er því gert ráð fyrir að forritun verði mikilvægur þáttur í öllu námi nemenda okkar.

Mynd vikunnar

Hvaladráp fyrir 100 árum Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm hvalir voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að einum hvalnum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berndsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir munnlegri frásögn Steingíms Jónssonar). Myndin tók Evald Hemmert. Senda upplýsingar um myndina