Líffræðingur / fiskifræðingur / líftæknifræðingur

Líffræðingur / Fiskifræðingur / Líftæknifræðingur BioPol ehf., Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd, óskar eftir að ráða líffræðing / fiskifræðing / líftæknifræðing eða starfsmann með sambærilega menntun til starfa. Starfssvið: · Framkvæmd og umsjón rannsóknaverkefna tengd lífríki Húnaflóa. · Mótun nýrra rannsóknaverkefna. · Þátttaka í uppbyggingu og stefnumótun BioPol ehf. Hæfniskröfur: · Áskilið er B.Sc eða M.Sc. próf í fyrrgreindum fræðigreinum. · Reynsla af rekstri og uppsetningu rannsóknaverkefna. · Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar nk. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og meðmælendur berist BioPol ehf., Bjarmanesi, 545 Skagaströnd Nánari upplýsingar veitir Halldór G. Ólafsson framkvæmdastjóri í síma 452-2977 eða 896-7977 BioPol ehf., Sjávarlíftæknisetri á Skagaströnd er ætlað starfa á vettvangi: · Rannsókna á lífríki Húnaflóa með það að leiðarljósi að auka þekkingu á vistkerfi hans og landgrunnsins við Ísland. Á þessum rannsóknum verður byggð markviss leit að auknum nýtingarmöguleikum auðlinda sjávar. · Rannsókna á vettvangi líftækni, nýsköpun og markaðssetning á afurðum líftækni úr sjávarlífverum. · Fræðslu í tengslum við fyrrgreindar rannsóknir. BioPol ehf. hefur gert samstarfssamninga við Háskólann á Akureyri, Scottish Association for Marine Science og Veiðimálastofnun.

Fjáhagsáætlun 2008

Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 á fundi sínum 27. desember sl. Heildarniðurstaða fjárhagsáætlunar er að rekstrarniðurstaða er jákvæð um 20 milljónir króna. Áætlaðar skatttekjur nema tæpum 230 milljónum og heildartekjur A-hluta eru áætlaðar 339 milljónum og heildartekjur samstæðu tæpar 408 milljónir. Heildargjöld A-hluta eru áætluð 286 milljónir og heildargjöld samstæðu 355 milljónir. Í yfirliti um sjóðstreymi er m.a. gerð áætlun um fjáfestingar og eru samtals fjárfestingar áætlaðar 125,8 milljónir. Þar kemur fram að gert er ráð fyrir að handbært fé lækki um 38,6 milljónir á árinu og verði rúmar 655 milljónir. Sveitarstjóri http://www.skagastrond.is/frettir/users3/stjori/Samþykkt%20áætlun%20-%20deildayfirlit08.pdf