Umsókn um byggðakvóta

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 665, 10. júlí 2013 Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir: Grundarfjarðarbær (Grundarfjörður) Kaldrananeshreppur (Drangsnes) Akureyrarkaupstaður (Grímsey) Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður eystri) Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 990/2013 í Stjórnartíðindum Snæfellsbær (Arnarstapi, Hellissandur, Rif og Ólafsvík) Húnaþing vestra (Hvammstangi) Sveitarfélagið Skagaströnd Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður) Grýtubakkahreppur (Grenivík) Langanesbyggð (Þórshöfn og Bakkafjörður) Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík) Sveitarfélagið Hornafjörður Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2013. Fiskistofa, 8. nóvember 2013.

Fatamarkaði frestað vegna veðurs

Fatamarkaðurinn sem átti að vera í Fellsborg í dag verður frestað vegna veðurs. Nánar auglýst síðar

Stórtónleikar Kristjáns Jóhannssonar

S T Ó R T E N Ó R I N N Kristján Jóhannsson ásamt Jónasi Þóri, píanóleikara og Matthíasi Stefánssyni, fiðluleikara Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, heldur tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 9. nóvember 2013, kl. 20:30. Kristján mun flytja margar gullfallegar íslenskar og erlendar söngperlur. Söngskráin verður mjög fjölbreytt, léttir og leikandi tónleikar við allra hæfi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir Tónleikarnir eru í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli Til baka

Mynd vikunnar

Skagaströnd 1913 Gamalt póstkort frá Skagaströnd. Á kortið er ritað þann 17. nóvember 1913. Tvílyfta húsið lengst til vinstri er Verslunarstjórahúsið, sem seinna var kallað Kaupfélagshúsið. Húsið var byggt um 1906 og stóð skammt vestan við núverandi Gamla kaupfélagið við Einbúastíg. Stóra rismikla húsið fyrir miðri mynd var pakkhús. Framundan því að norðanverðu sést í Assistentahúsið. Litla húsið vestan í Einbúanum var þvottahús. Eins og sést var þessi mynd tekin áður en vinna hófst við núverandi höfn (1934). Þá var Einbúinn klettadrangur sem stóð fram í sjó í víkinni sem annars var órofin frá Hólsnefi og inn að Bjargi (nú Breiðabliki). Þjóðtrúin segir að álfar búi í Einbúanum og því boði það ógæfu fyrir samfélgið ef hann verður skertur eða skemmdur á einhvern hátt. Leyfi fékkst þó hjá álfunum til að koma fyrir fánastöng efst á Einbúanum og þar er enn flaggað á tyllidögum. Myndina tók Evald Hemmert kaupmaður.

Morgunþrek

Morgunþrek mun byrja föstudaginn 8. nóv.2013 (ef næg þáttaka fæst). Námskeiðið mun standa yfir í 6 vikur (12 tímar) og vera á þriðjudögum og föstudögum kl.6:15 -7:00. Vinsamlegast skrá sig í síðasta lagi fimmtudaginn 7. nóv á netfangið: bogig@simnet.is eða í síma 8972884 Gjald fyrir námskeiðið er 8000 kr. Leiðbeinandi verður Sigrún Líndal Hlakka til að sjá ykkur eldhress í morgunþreki

VINÁTTUDAGAR Í HÖFÐASKÓLA 2013.

Kæru bæjarbúar og nærsveitungar. Þessa vikuna eru þemadagar í Höfðaskóla með yfirskriftinni Vináttudagar. Á þriðjudegi og miðvikudegi vinna nemendur að ýmsum verkefnum tengdum vináttu og baráttu gegn einelti. Þann 8.nóvember (á föstudaginn) ætlum við síðan í vináttugöngu um bæinn. Sá dagur er helgaður baráttunni gegn einelti (www.gegneinelti.is). Það myndi gleðja okkur mikið að sem flestir tækju þátt í göngunni með okkur. Stefnt er að brottför frá Höfðaskóla kl. 10:40 og gengið verður fyrir víkina að höfninni og aftur til baka. (Ef svo ólíklega vill til að veðurguðirnir verði að stríða okkur, er vara skipulagið þannig að við hittumst í söng og leik í íþróttahúsinu kl. 12:00 á föstudeginum.) Með fyrirfram þökk. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla.

Formlega hleypt á hitaveitu á Skagaströnd

Ný hitaveita var tekin formlega í notkun á Skagaströnd föstudaginn 1.nóvember þegar Árni Steinar Jóhannsson, stjórnarformaður RARIK hleypti vatni á dreifikerfið. Tenging húsa við kerfið er hafin. Sveitarfélagið Skagaströnd og RARIK ohf. undirrituðu samning 30. desember 2011 um lagningu hitaveitu til Skagastrandar og 22.maí s.l. var fyrsta skóflustungan tekin fyrir dreifikerfi hitaveitu RARIK á Skagaströnd. Hitaveitan á Skagaströnd er stækkun Blönduósveitu sem nær yfir veitusvæði á Blönduósi og Skagaströnd, auk hluta af dreifbýlinu milli Blönduóss og Skagastrandar. Hleypt var á stofnæðina til Skagastrandar fyrir nokkrum dögum. Þá var opnað fyrir til reynslu í dælustöðinni á Skagaströnd og búnaður prófaður. Hitastig vatnsins reyndist 61°C og mun hækka með aukinni notkun. Íbúar á Skagaströnd geta því tengt hús sín við veituna og eru hvattir til að tengjast sem fyrst Heita vatnið kemur frá Reykjum í Húnavatnshreppi. Boruð var ný vinnsluhola til að mæta auknu álagi og stofnpípa til Blönduóss endurnýjuð, en sú framkvæmd var á dagskrá burtséð frá hitaveitunni á Skagaströnd. Að undanförnu hefur verið unnið að frágangi á tengigrindum og uppsetningu mæla fyrir hitaveituna á Skagaströnd. Nýjustu tækni er beitt við mælingu og álestrar verða rafrænir og því verða allir reikningar byggðir á raunverulegri notkun, í stað þess að áætla milli álestra eins og algengast var. Sama gjaldskrá mun gilda fyrir allt veitusvæðið. Samhliða lagningu dreifikerfis hitaveitu um Skagaströnd voru lögð rör fyrir ljósleiðara í öll hús sem tengjast hitaveitunni og má reikna með að ljósleiðaratengingar verði til staðar fyrir þá sem þess óska í byrjun næsta árs. Heildarkostnaður við verkið var áætlaður um 1.117 m.kr. þar af var kostnaður við borun og virkjun nýrrar holu að Reykjum um 160 m.kr. og endurnýjun stofnpípu frá Reykjum til Blönduóss um 346 m.kr. RARIK vill þakka íbúum Skagastrandar og Blönduóss fyrir mjög góða samvinnu við uppbyggingu veitunnar og óskar Skagstrendingum til hamingju með heita vatnið.