Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 19. desember 2013 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun 2014 (seinni umræða) 2. Þriggja ára áætlun 2015-2017 (seinni umræða) 3. Byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks 4. Skýrsla KPMG um hagkvæmni sameiningar sveitarfélaga í A-Hún 5. Bréf: a. Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, dags. 23. október 2013 b. Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 15. nóvember 2013 c. Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 24. október 2013 d. Farskólans, dags. 15. október 2013 e. Landsbyggðin lifi, dags. 2. október 2013 f. USAH, dags. 30. september 2013 g. Stígamóta, dags. 20. október 2013 h. Skíðadeildar Tindastóls, dags. 21. nóvember 2013 i. Egils Bjarka Gunnarssonar, dags. 23. september 2013 j. Menningarfélagsins Spákonuarfs, dags. 13. desember 2013 6. Fundargerðir: a. Stjórnar Hafnarsambands Íslands, 13.12.2013 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Fjallaferð 1992. Árið 1992 fóru þessir 14 og 15 ára krakkar í þriggja daga gönguferð með leikfimikennaranum sínum. Ferðin hófst við Blöndulón og gengu krkkarnir að Hveravöllum fyrsta daginn og gistu þar. Annan daginn gengu þau upp að rótum Langjökuls og gistu í skála sem þar er. Síðasta daginn gengu þau svo niður í Vatnsdal. Báru þau með sér nesti fyrir ferðina og svefnpoka en vegalengdin sem þau gengu var um 100 kílómetrar. Margir höfðu vantrú á að krakkarnir mundu endast ferðina, því þau þurftu að ganga 25 - 30 km á dag, en ferðin gekk upp og var góð lífsreynsla fyrir krakkana. Þessi mynd var tekin fyrir utan Höfðaskóla áður en lagt var af stað í bíl upp á Kjalveg. Frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson, Þóra Ágústsdóttir, Gunnþór Óskar Sæþórsson, Jón Örn Stefánsson, Magnús Helgason, Þorlákur Guðjónsson, Guðrún Björg Elísdóttir, Viktor Pétursson, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Carl Erik Jakopsen kennari og leiðangursstjóri og Árni Max Haraldsson.

Frá Spákonuhofinu

Spákonuhofið á Skagaströnd er opið á miðvikudagskvöldum til jóla frá klukkan 20:00- 22:00. Ýmislegt skemmtilegt til jólagjafa í litlu sölubúðinni t.d. úrval af prjónavörum, margskonar armbömd, hálsfestar, myndakerti og margt margt fleira, handverk úr heimabyggð, kaffi og kökur í boði. Gjafabréf í Spákonuhofið er skemmtileg og spennandi gjöf , upphæð að eigin vali. Undanfarnar vikur hefur verið mikið um draugagang í Spákonuhofinu, eða réttara sagt þar hafa verið haldin tvö draugasögukvöld, annað fyrir fullorna og hitt fyrir yngri kynslóðina. Var mæting alveg feyki góð og mættu rúmlega 60 manns á þessa viðburði sem þóttu nokkuð skelfilegir en umfram allt skemmtilegir. Verið velkomin, Dagný og Sigrún >

Jólabókakvöld í Bjarmanesi

Jólabókakvöld í Bjarmanesi miðvikudaginn 11. des., kl. 20.00 Heimamenn lesa upp úr eftirtöldum bókum: María Ösp Ómarsdóttir; Alla mína stelpuspilatíð Ingibjörg Kristinsdóttir; Andköf Trostan Agnarsson; Í norðanvindi og vestanblæ Magnús B. Jónsson; Guðni - léttur í lund Magnús Örn Stefánsson; Útkall - lífróður Valdimar Jón Björnsson; Árleysi alda Bryndís Valbjarnardóttir; Sæmd Guðrún Pálsdóttir; Við Jóhanna Einnig taka Guðmundur og Jonni nokkur létt jólalög. Aðgangur ókeypis. Allir hjartanlega velkomnir. Bjarmanes verður með kakó, nýja kaffidrykki og smákökur til sölu. Jólakveðja, Gleðibankinn

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 11. desember 2013 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Álagningarreglur útsvars og fasteignagjalda 2014 2. Fjárhagsáætlun 2014 (fyrri umræða) 3. Þriggja ára áætlun 2015-2017 (fyrri umræða) 4. Byggðasamlag um menningu og atvinnumál a. Fundargerð stjórnar,14. nóvember 2013 b. Fundargerð stjórnar, 3. desember 2013 c. Fjárhagsáætlun byggðasamlagsins 2014 5. Félags og skólaþjónusta A-Hún: a. Fundargerð stjórnar, 21. nóvember 2013 b. Fundargerð stjórnar, 28. nóvember 2013. c. Fjárhagsáætlun Félags og skólaþjónustunnar 2014 6. Tónlistarskóli A-Hún: a. Fundargerð stjórnar, 24. október 2013 b. Fjárhagsáætlun Tónlistarskólans 2014 7. Skólamál 8. Bréf: a. Ungmennafélags Íslands, dags. 15. nóvember 2013 b. Stéttarfélaginu Samstöðu, dags. 18. nóvember 2013 c. Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 18. nóvember 2013 d. Lindu B. Ævarsdóttur, dags. 11. nóvember 2013 e. Heilbrigðisstofnunar til Velferðarráðuneytisins, dags. 11. nóvember 2013 f. Landskerfis bókasafna, dags. 8. nóvember 2013 g. Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, dags. 23. október 2013 9. Fundargerðir: a. Menningarráðs Norðurlands vestra, 27.11.2013 b. Skólanefndar FNV, 14.11.2013 c. Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 2.12.2013 d. Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 25.10.2013 e. Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 22.11.2013 10. Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Lokamessan. Síðasta messan í gömlu Hólaneskirkjunni 6. október 1991. Kirkjan var seinna afhelguð og í framhaldi af því var hún rifin. Hafði hún þá þjónað söfnuðinum í rúmlega 63 ár frá 17. júní 1928 þegar hún var vígð. Á myndinni er Julian Hewlet organisti og Rosemary Hewlet undirleikari á þverflautu. Í kórnum eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason frá Bjargi, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) frá Vindhæli (aftast), Dagný Hannesdóttir, Hidigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) (gráhærður), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Gylfi Sigurðsson, Hjördís Sigurðardóttir og Kristín Kristmundsdóttir. Allir kórfélagar, sem hér eru taldir og eru enn á lífi, þjóna nú í nýju kirkjunni nema Kristín sem hætti fyrir nokkrum árum. Kirkjugestir sem sjást á myndinni eru frá vinstri: feðgarnir Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Sigurjón Guðbjartsson frá Vík. Við hlið Sigurjóns situr Hildu Inga Rúnarsdóttir, sem seinna vígðist til prests, og framan við þau þrjú sést Erla María Lárusdóttir.

Tæplega 50% fjölgun nemenda í Dreifnámi í A-Hún

Skráningu fyrir vorönn lauk nú um helgina og ljóst er að nemendum Dreifnáms í A-Hún fjölgar um sex um áramót sem verður að teljast mjög góður árangur en fyrir voru nemendur alls 13 talsins. Á vorönn hefja því 19 nemendur nám að loknu jólaleyfi. Nýnemarnir eru ólíkir innbyrðis, þeir hafa ýmist verið í öðrum skólum nú á haustönn og eru að flytja heim eða eru að byrja nám eftir langt hlé. Einnig eru dæmi um að nemendur hafi búið á heimavist FNV og nýti nú tækifærið og haldi áfram námi í heimabyggð. Þessi tíðindi eru sérlega gleðileg og sýna svo ekki verður um villst að dreifnám í A-Hún er að festa sig í sessi og sanna gildi sitt fyrir heimamönnum. Þessa dagana standa svo yfir skráningar í meistaranám fyrir iðnaðarmenn, almenna hluta, sem kennt verður á vor- og haustönn 2014. Nemendur A-Hún í meistaranáminu munu nýta aðstöðu dreifnámsins að Húnabraut 4 á Blönduósi. Skráningu lýkur í meistaranámið þann 12. desember. Skráning fer fram á skrifstofu FNV í síma 455-8000.