Tónleikar Brass Con Brio í Hólaneskirkju

Sænska blásarasveitin Brass Con Brion heldur tónleika í Hólaneskirkju fimmtudaginn 18. september kl 17.30 Brass Con Brion er átta manna hljómsveit nemenda í Menningarskóla Växjöbæjar sem er vinabær Skagastrandar. Hljómsveitarmeðlimir eru á aldrinum 15-18 ára og spila allt frá sígildri tónlist til pop og rokktónlistar. Þegar sveitin leikur rokktónlist sest einn af trompetleikurunum við trommusettið og gítarkennari skólans leikur á rafmagnsgítar. Hljómsveitin er í tónlistarferð til Íslands og gerði sér sérstaka ferð til vinabæjarins Skagastrandar til að halda tónleika. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. Växjö kulturskola Norræna félagið Sveitarfélagið Skagaströnd Tónlistarskóli A-Hún

Bæjarmálafélag stofnað á Skagaströnd

Hinn 28. ágúst s.l. var stofnað bæjarmálafélag sem hefur það að markmiði að vera vettvangur fyrir íbúa Skagastrandar að ræða um málefni sveitarfélagsins og að koma skoðunum sínum á framfæri við þá sem fara með yfirstjórnina. Það hefur verið í umræðunni árum saman að okkur vantaði svona félagsskap og hér er hann kominn á koppinn. Þessi vettvangur er fyrir alla áhugamenn, hvort sem þeir eru tengdir einhverju framboði eða engu. Það mættu 13 manns á stofnfundinn. Á fundinum voru valdir 3 til að halda utan um starfið, eins og að boða fund eða það sem til fellur. Vonum að þetta verði vettvangur sem fólk vill nýta sér til að fylgjast betur með málefnum samfélagsins og hafa áhrif á. Þetta er tilraunarinnar virði. Með kveðju. Bæjarmálafélag Skagastrandar Guðmundur Erlendsson, Guðmundur Ólafsson, og Sigríður Gestsdóttir

Sundlaugin opin í september

Sundlaugin verður opin mán-föst kl.17-20 og laugardaga kl.13-16. Lokað á sunnudögum Þessi opnun verður til og með 30. sept. Sundlaugavörður

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 16. september 2014 kl 1000 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Leikskólinn Barnaból Höfðaskóli Viðaukar við fjárhagsáætlun Bréf frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga Fundargerðir: Stjórnar SSNV, 07.07.2014 Stjórnar SSNV, 15.07.2014 Stjórnar SSNV, 23.07.2014 Stjórnar SSNV, 23.07.2014 Stjórnar SSNV, 30.07.2014 Stjórnar SSNV, 21.08.2014 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 3.09.2014 Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Börn . Frá vinstri á myndinni: Áslaug Gunnarsdóttir, Hulda Magnúsdóttir, Stefán Ægir Lárusson, Páll Jóhannesson, Pálína Harðardóttir og Jóney Gylfadóttir. Myndin tekin á áttunda áratugnum.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar föstudaginn 12. september 2014 kl 800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Kosning í fræðslunefnd Námskeið f/sveitarstjórnarmenn Samningur v/atvinnuráðgjafa Samningur um skólamáltíðir Hitaveita Heimsókn frá Växjö Bjarmanes Bréf: Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytis, dags. 2. sept. 2014 Formanns USAH, dags í ágúst 2014 Sóknar, lögmannsstofu, dags. 2. sept. 2014 Fundargerðir: Fræðslunefndar, 20.08.2014 Atvinnu- og ferðamálanefndar, 11.09.2014 Stjórnar Norðurár bs. 18.06.2014 Stjórnar Norðurár bs. 2.07.2014 Önnur mál Sveitarstjóri

Pálínuboð

Nes Listamiðstöð býður í Pálínuboð „Pot- luck" sunnudaginn 7. september í Bjarmanesi milli kl 18:00 og 20:00. Takið með ykkur rétt á hlaðborðið og njótið með listamönnum septembermánaðar. Jafnframt gefst tækifæri að hitta Andreas Jari Juhani Toriseva’s og skoða sýningu hans sem hefur staðið í Árnesi og kjallara Bjarmanes í sumar. Nes Listamiðstöð 3 delicate ecosystems is slowly growing into symbiosis. In the end self sustainability is the utopian goal. However these tanks are but a fake construction based on a pervert obsession about control and ultimately the will of man and the empowerment over her surroundings. This is no more than a respirator keeping life going as long as there is a supply of the essential elements necessary for plant life; light, water and air. It is supplied by electricity controlled by timers to simulate a daily rhythm, although it might not be what the plants are used to.

Mynd vikunnar

Hnappstaðir. Þessi mynd, sem er tekin af almanaki, sýnir bæinn Hnappstaði á Skagaströnd. Bærinn stóð á Hnappstaðatúni sem er við Oddagötu niður af Bogabraut. Bærinn er löngu horfinn.

GÖNGUM TIL GÓÐS

Rauði krossinn á Skagaströnd ætlar að Ganga til góðs fimmtudagskvöldið 4. september. Vonumst við til þess að Skagstrendingar taki vel á móti söfnunarfólki okkar. Allir eru velkomnir að taka þátt í þessari göngu með okkur, nánari upplýsingar og skráning hjá Sigrúnu í síma 8972884. Með bestu kveðju Rauði krossinn á Skagaströnd