Álagning fasteignagjalda á Skagaströnd 2019

Álagning fasteignagjalda 2019 er lokið. Álagningarreglur fasteignagjalda 2019 eru aðgengilegar á heimasíðunni undir „gjaldskrár“.   Greiðslur fasteignagjalda: Eins og undanfarin ár verða ekki sendir greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda nema til þeirra sem þess hafa óskað sérstaklega og gildir skráning þeirra sem þess óskuðu á síðasta ári nema nýjar upplýsingar komi fram. Gjalddagar fasteignagjalda eru frá 1. febrúar til 1. júlí, en á smærri upphæðum eru gjalddagar 1 eða 2. (Gjalddagar á 0-5.000 kr. er 1.apríl og 5.001-10.000 skiptist í tvo gjalddaga 1. apríl og 1. maí).   Sorphirðugjald /sorpeyðingargjald Vakin er athygli á að sorphirðugjald er lagt á íbúðir með fastri búsetu en einungis sorpeyðingargjald á sumarhús og íbúðir þar sem ekki er regluleg búseta. Það táknar að sorphirða fer ekki fram þar sem einungis er greitt sorpeyðingargjald. Sama gildir um þær eignir sem ekkert sorphirðu- eða sorpeyðingargjald er lagt á eins og t.d. ferðaþjónustueignir (C-flokkur). Þeir aðilar leysa sjálfir sorphirðu/sorpeyðingu fyrir sína starfsemi með samningum við þjónustuaðila eða öðrum hætti.   Álagningaseðlar: Álagningarseðlar verða ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað. Hver og einn getur nálgast sína álagningarseðla á vefsíðunni www.island.is undir reitnum „mínar síður“  Innskráning er með kennitölu viðkomandi og íslykli eða rafrænum skilríkjum.   Skrifstofa sveitarfélagsins veitir fúslega upplýsingar og aðstoð til þeirra sem þess óska.   Skagaströnd 24. janúar 2019   Sveitarstjóri

Aukin þjónusta á Skagaströnd

Eygló snyrtistofa hefur aftur hafið starfsemi á Skagaströnd eftir nokkur hlé. Þar er boðið upp á alhliða snyrtingu  sem hefur ekki verið í boði hér að undanförnu. Það er Eygló Amelía Valdimarsdóttir sem á og rekur snyrtistofuna en stofan er í húsnæði Vivu hársnyrtistofunnar. Ekki þarf að efast um að margir fagni þessari auknu þjónustu enda eru einkunnarorð snyrtistofunnar, Geislandi fegurð & vellíðan, lýsandi fyrir það sem fólk sækir á stofuna hjá Eygló. Opnunartími þessa nýja fyrirtækis er eftir samkomulagi en hægt er að hafa samband og panta tíma á facebooksíðunni: www.facebook.com/Eyglósnyrtistofa/  eða í síma 8684482.

Mynd vikunnar

Sorg á Skagaströnd 1961 Um þessar mundir (2019) eru rúm 58 ár síðan óhugur og sorg ríkti meðal fólks á Skagaströnd.  Ástæðan var að bræðurnir Hjörtur Hjartarson,  sem er til vinstri á myndinni, og Sveinn Hjartarson frá Vík fórust í sjóróðri  á Húnaflóa á bát sínum Skíði Hu 8 22. nóvember 1961.  Í dagblaðinu Vísi birtist eftirfarandi frétt af málinu hinn 23. nóvember 1961: "Óttast að tveir bræður hafi farizt. Norður á Skagaströnd óttast menn mjög að tveir bræður hafi farizt í róðri í gærdag. Bræðurnir sem eru Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir eiga heima á Skagaströnd  og eru menn einhleypir. í gærdag hófst leitin, og hefur henni verið haldið látlaust  áfram þrátt fyrir stórsjó og hríð á Húnaflóa. Laust fyrir hádegið átti blaðið tal við  Skagaströnd. Var þá tíðindalaust af leitinni, sem varðskipið Óðinn hefur haldið uppi  í alla nótt. Var flokkur manns farinn á fjörur. Lítilsháttar frost var, hvasst og hríð.  Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru synir Hjartar Klemenzsonar sem er maður við aldur  og sjálfur stundaði sjómennsku. Um klukkan 1,30 í gærdag voru bræðurnir undan Skallarifi.  Þeir voru þá að draga línuna, en höfðu slitið hana og voru að leita. Var þá orðið hvasst.  Var ákveðið að þeir skyldu láta til sín heyra um klukkan 3. Er um 2 og 1/2—3 tíma  sigling frá Skagaströnd á þessi mið. Vélskipið Húni var í róðri. Kl. 3 er ekkert heyrðist  frá bræðrunum hélt Húni þegar á vettvang og leitaði hann á allri leiðinni frá Skallarifi  og inn, en árangurslaust. Í gærkvöldi voru 10 vindstig á Skagaströnd og mikill sjór  og hríð. Varðskipið Óðinn kom á vettvang og hóf að leita, og leitaði enn í morgun  en hafði einskis orðið var. Óttast sjómenn á Skagaströnd, að brot hafi komið á bátinn,  en sjólag er mjög slæmt undan Skallarifi.  Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru menn á fertugsaldri og hafa stundað sjóinn  í sameiningu á bát sínum, en hann var 8 tonn dekkbyggður". Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.  Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.

Nýtt fyrirtæki hefur starfsemi

Erla Jónsdóttir opnaði bókhalds- og rekstrarráðgjafafyrirtæki sitt, Lausnamið, formlega 10. janúar 2019. Í tilefni af því bauð hún gestum og gangandi í heimsókn í Gamla kaupfélagið til að skoða fyrirtækið og þiggja léttar veitingar. Rúmlega 70 manns þáðu boðið og fögnuðu með þeim Erlu og Sigríði Gestsdóttur þessum spennandi tímamótum.  Það er alltaf mikið gleðiefni þegar ný fyrirtæki verða til á Skagaströnd. Það sýnir að fólk hefur trú á bænum okkar og er til í að grípa þau tækifæri sem bjóðast til að fjölga stoðunum undir atvinnulífið á staðnum. Um leið og við óskum Erlu allra heilla með Lausnamið vonum við að fyrirtækið eigi eftir að vaxa og dafna í framtíðinni.

Mynd vikunnar

Reyklaus framtíð Tóbaksvarnaráð Íslands hélt samkeppni í nokkur ár meðal 8. bekkinga  á landinu um besta áróðurefnið gegn tóbaksreykingum.   8. bekkir Höfðaskóla sigruðu tvisvar í þessari keppni en verðlaunin voru vikuferð til Danmerkur.  Þessir nemendur sigruðu árið 2001 með áróðursspjöldum og bæklingi sem borinn var í hús  á Skagaströnd. Krakkarnir fóru síðan í skemmtilega ferð til Danmerkur í framhaldinu.  Krakkarnir eru, frá vinstri: Ásdís Adda Ólafsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir,  Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Albert Ingi Haraldsson,  Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Friðvin Ingi Ernstsson, Eyþór Kári Egilsson,  Björn Viðar Jóhannsson, Sindri Njáll Hafþórsson og Kristinn Andri Hjálmtýsson.

Tilkynning frá Heilbrigiðsstofnun Norðurlands á Blönduósi.

Vegna framkvæmda í biðsofu og móttöku heilsugæslunnar þarf að loka A inngangi um tíma, frá og með 10/1 2019. Inngangur í Lyfju verðu þó óbreyttur. Þeir sem koma á heilsugæsluna á dagvinnutíma ganga inn um innganginn sem snýr að Svínvetningabraut, SV á byggingunni við hliðina á sjúkrabílainnkeyrslunni. Þeir sem leita til heilsugæslunnar utan dagvinnutíma koma inn í samráði við vaktlækni. Þeim sem koma í sjúkraþjálfun er bent á að nota B inngang og taka lyftuna þar niður í kjallara. Heimsóknargestir og aðrir sem erindi eiga í húsið noti B inngang. Beðist er afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda en vonum að þau verði sem minnst.

Félagsstarfið

  Byrjum aftur eftir jólafrí fimmtudaginn 10. jan. Starfið er frá kl. 14:00- 17:00   Allir öryrkjar og 60 ára og eldri eru velkomnir, gaman væri nú ef fleiri vildu koma og taka þátt í starfinu með okkur.   Það sem við gerum okkur til skemmtunar er prjónaskapur, saumum bæði út og á ssaumavélar, málum á keramik, gler/krukkur, mosaik,spilum og síðast en ekki síst þá spjöllum við og höfum gaman.  Við höfum farið í smá ferðalag á vorin og jafnvel yfir veturinn.   Það er líka hægt að kíkja í kaffisopa og spjall.   Vonumst til að fleiri komi og njóti samverunnar með okkur.   Kveðja Obba og Ásthildur

Álagningarreglur fasteignagjalda 2019

Álagning fasteignagjalda fyrir árið 2019 Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar 18. desember 2018 Fasteignagjöld Fasteignaskattur: Álagning á íbúðarhúsnæði (A-flokkur) verði 0,48% af álagningarstofni. Álagning á opinberar stofnanir (B-flokkur) verði 1,32% af álagningastofni. Álagning á verslunar- og atvinnuhúsnæði verði (C-flokkur) 1,65% af álagningarstofni. Lóðarleiga: Lóðarleiga verði 1,65% af fasteignamatsverði lóða. Vatnsskattur: Vatnsskattur verði 0,3% af fasteignamati að lágmark 7.260 kr. og á íbúðarhúsnæði að hámarki 36.300 kr. Holræsagjald: Holræsagjald verði 0,24% af fasteignamati lóða og mannvirkja Sorphirðugjald /sorpeyðingargjald: Sorphirðugjald verði 44.151 kr./íbúð fyrir reglubundna sorphirðu og eyðingu. . Sorpeyðingargjald verði 13.913 kr./sumarhús og íbúðir þar sem ekki er regluleg sorphirða. Sorpeyðingargjald á hesthús og fjárhús verði 4.937 kr./hús í notkun. Sorpeyðingargjöld á fyrirtæki verða samkvæmt gjaldskrá. Leiga ræktunarlóða: Fyrir hvern ha ræktunarlóða er greitt fast leigugjald. Auk þess greiða lóðarhafar fasteignagjöld af lóðunum skv. fasteignamati. Lóðaleiga verði 7.260 kr./ha. Eftirfarandi reglur gilda umlækkun fasteignagjalda elli- og örorkulífeyrisþega: Fasteignagjöld verða eingöngu lækkuð af íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega, sem þeir búa í sjálfir. Til viðmiðunar eru allar tekjur viðkomandi, þar með taldar fjármagnstekjur. Fasteignagjöld lækki um allt að kr. 40.000,- hjá: • Einstaklingum með tekjur allt að 3.587.000 kr/ári • Hjónum eða fólki í sambúð með tekjur allt að 5.862.000 kr/ári Fasteignagjöld lækki um allt að kr. 20.000,- hjá: • Einstaklingum með tekjur allt að 4.483.000 kr/ári • Hjónum eða fólki í sambúð með tekjur allt að 7.327.000 kr/ári Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Snjómokstur Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells.  Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar  umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku.  Stundum kom fyrir að það snjóaði það mikið að vír lyftunnar  snjóaði á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli svo hægt væri að opna lyftuna.  Þessi mynd var tekin í einu af þessum tilvikum.  Her manns er að moka upp vírinn en oftar en ekki þurfti að moka  mannhæðardjúpt eftir vírnum þar sem dýpst var.  Þá var ekki nóg að moka einn skurð heldur þurfti að moka tvo,  annars vegar vírinn á leið upp og hins vegar vírinn á leið niður.  Á þessari mynd má þekkja Ingiberg Guðmundsson næst okkur og  Magnús B. Jónsson næst honum en aðrir á myndinni eru óþekktir.

Nýtt orgel í Hólaneskirkju á Skagaströnd

Við hátíðamessu í Hólaneskirkju á Skagaströnd á aðfangadagskvöld var vígt og tekið í notkun nýtt orgel í kirkjunni. Það var sóknarpresturinn, Bryndís Valbjarnardóttir, sem vígði orgelið og Sigríður Gestsdóttir, fyrir hönd sóknarnefndar, afhenti Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur, organista og kórstjóra, lyklana að nýja orgelinu. Orgelið er úr ljósri eik af gerðinni  AHLBORN ORGANUM III og er þýskt en að mestu leiti framleitt á Ítalíu samkvæmt staðli, BDO, sem eru samtök þýskra orgelsmiða og hefur það hlotið sérstaka viðurkenningu fagaðila. Orgelið er 57 sjálfstæðar raddir sem deilast á þrjú nótnaborð og fótspil en að auki eru 128 aukaraddir sem hægt er að sækja og  skipta út í stað aðalraddanna. Þessi möguleiki eykur fjölbreytni orgelsins mikið. Raddirnar eru teknar upp í stafrænu formi úr góðum pípuorgelum og síðan endurspilaðar aftur í  stafrænu formi þegar leikið er á orgelið og þannig næst fallegur pípuorgelhljómur úr orgelinu. Orgelið kostaði rúmlega 3 milljónir króna og er að fullu greitt með fjórum minningargjöfum sem bárust kirkjunni í desember mánuði. Við athöfnina þakkaði Sóknarnefnd Hólaneskirkju gefendum innilega fyrir höfðinglegar gjafir og þann mikla hlýhug og velvilja sem þau sýna kirkjunni og því starfi sem þar fer fram.