Lýsing fyrir breytingu á deiliskipulagi á Hólanessvæði á Skagaströnd

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar hefur samþykkt skipulagslýsingu vegna breytingu á deiliskipulagi Hólanessvæðis sbr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Flokkstjórar Vinnuskóla Skagastrandar

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir flokkstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins sumarið 2021.

Gleðilega páska

Sveitarfélagið Skagaströnd óskar íbúum og landsmönnum gleðilegra páska með von um að allir hafi það sem best yfir páskahátíðina og eigi ánægjulegar súkkulaði-samverustundir með fjölskyldu og vinum.

Helgihald í Hólaneskirkju

Á föstudaginn langa kl. 14.00 verður Píslarsagan flutt í Hólaneskirkju samkvæmt Jóhannesarguðspjalli, „Jóhannesarpassía“, flutt af leshóp sem einnig les valda Passíusálma.

Framlengdur frestur til að sækja um styrk vegna frístundakorts

Vegna Covid19 hefur sveitarfélagið ákveðið að framlengja frest til þess að sækja um styrk vegna frístundakorts vegna 2020. Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á styrk fyrir hvert barn á grunnskólaaldri sem tekur þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Frestur til þess að skila gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er framlengdur til 10. apríl. 

Mynd vikunnar

Gleðilega páska !