Framkvæmdastjóri Ness formaður SÍM

Framkvæmdstjóri Ness listamiðstöðvar kjörinn formaður Sambands íslenskra mynlistarmanna. Varpa þurfti hlutkesti í formannskjöri á aðalfundi Sambands íslenskra myndlistarmanna á laugardaginn.  Hlynur Hallsson, sem verið hefur formaður sambandsins, og Hrafnhildur Sigurðardóttir voru í kjöri og fengu jafnmörg atkvæði, 134 hvort. Hrafnhildur valdi skjaldarmerkið sem kom upp.

64% kjörsókn á Skagaströnd

Kjörsókn á Skagaströnd í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðasta laugardag var 64,05%. Alls voru 370 manns á kjörskrá. Í norðvesturkjördæmi voru 21.324 á kjörskrá og kjörsóknin var 63,6%. Nei kusu 92,7% þeirra sem þátt tóku. Kjörsókn á öllu landinu var 62,7% og nei sögðu 93,2%

Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave í Fellsborg

Á morgun, laugardaginn 6. mars 2010, verður þjóðaratkvæðagreiðslan sem kennd hefur verið við Icesave samningana við Breta og Hollendinga. Eiga lög nr. 1/2010 að halda gildi? Kjörfundur hefst í Fellsborg klukkan 10 og lýkur klukkan 20. 

Óskað eftir umsóknum um byggðakvóta

Fiskistofa óskar eftir umsóknum um byggðakvóta á Skagaströnd. Um er að ræða úthlutun byggðakvót á fiskveiðiárinu 2009/2010 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 82, 29. janúar 2010 Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 187/2010 í Stjórnartíðindum. Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög: Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (www.fiskistofa.is), og þar eru ofangreindur reglur einnig aðgengilegar.   Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2010.

Listsýningin í Landsbankanum

Vettvangur fyrir listsýningar yngsta fólksins er Landsbanki Íslands. Löng hefð er fyrir því að bankinn bjóði leikskólanemum að vera með listsýningu í útibúinu  í byrjun hvers árs.   Sýningin var að þessu sinni opnuð 4. febrúar i tengslum við alþjóðlega leikskóladaginn.   Nafn sýningarinnar er „Hafið, fjaran, ég og fjölskylda mín“. Nú líður senn   að lokum sýningarinnar vill bankinn og listamennirnir hvetja þá sem ekki hafa séð sýninguna að gera það sem allra fyrst.    Skagstrendingar mega vera stoltir af þessum upprennandi listamönnum.

Atkvæðagreiðsla utankjörstaða hafin

Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 6. mars næstkomandi er á skrifstofu setts hreppstjóra Lárusar Ægis Guðmundssonar að Einbúastíg 2. Þar er opið alla virka daga frá klukkan 10 til 16. Þeir Skagastrendingar sem hyggjast vera fjarri lögheimili sínu næsta laugardag eru hvattir til að kjósa utankjörstaðar.  Kjörskrá Skagastrandar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins á skrifstofutíma til kjördags. 

Arnar með 260 milljóna króna afla eftir einn túr

Aflaverðmæti Arnars HU 1 eftir 17 daga veiði í Barentshafi er um 260 milljónir króna. Þetta er verðmætasti farmur sem Arnar hefur nokkru sinni komið með að landi eftir einn túr. Aflinn að þessu sinni var um 900 tonn, 720 tonn af þroski og um 180 tonn af öðrum tegundum, mest ýsu. 

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 3. mars 2010 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Þriggja ára áætlun Sveitarfélagsins Skagastrandar 2. Fjárhagsáætlanir byggðasamlaga a) Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál b) Félags- og skólaþjónustu A-Hún 3. Kynning á atvinnuráðgjöf SSNV Jón Óskar Pétursson og Stefán Haraldsson 4. Kynning Arkitektastofunnar Form. 5. Aðalskipulag Skagastrandar 6. Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 7. Bréf: a) Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, 31. jan. 2010. b) Smábátfélagsins Skalla, 3. febrúar 2010. c) Undirbúningsnefndar Ís-Landsmóts, dags. 11. febrúar 2010. d) Náttúrustofu Norðurlands vestra, dags. 8. febrúar 2010. e) Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 24. janúar 2010. f)Ungmennafélags Íslands, dags. 28. janúar 2010. g) Umhverfisstofnunar, dags. 5. janúar 2010. 8. Fundargerðir: a) Fræðslunefndar, 4.02.2010 b) Byggingarnefndar, 1.03.2010 c) Vinnufundar um aðalskipulag, 19.01.2010. d) Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún e) Stjórnar Byggðasamlags um Tónlistarskóla A-Hún f) Stjórnar Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál, 20.01.2010 g) Samvinnunefndar um svæðisskipulag A-Hún. 19.01.2010 h) Stjórnar Byggðasafnsins á Reykjatanga, 13.01.2010. i) Stjórnar SSNV, 18.01.2010 j) Stjórnar SSNV, 9.02.2010 k) Menningarráðs Norðurlands vestra, 3.02.2010 l) Sambands ísl. sveitarfélaga, 29.01.2010 9. Önnur mál Sveitarstjóri