Heilsuátak kvenna á Skagaströnd

Kynningarfundurinn sem haldinn var í gær um heilsuátak fyrir konur á Skagaströnd tókst afskaplega vel. Um 40 konur mættu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, og eru allar áhugasamar um framhaldið.  Nú er stefnt að því að koma á fjölbreyttri, og vonandi skemmtilegri, tíu vikna dagskrá. Markmiðið með er að byggja upp bæði líkama og sál. Boðið verður upp á  alhliða hreyfingu, svo sem jóga, pilates, þolfimi og dans. Einnig verður rætt um aðhald í mat fyrir þær sem vilja og svo er ætlunin að bjóða upp á fyrirlestra, matarkvöld og skemmtikvöld.  Mikil og góð stemning myndaðist á fundinum og nú er stefnt að því að byrja þriðjudaginn 8. febrúar.  Nánari upplýsingar og skráning er hjá Sigríði Stefáns í síma: 820 2644.

Ekki bara norðaustanátt á Skagaströnd

Veðurstofa Skagastrandar hefur stundað ítarlegar og ónákvæmar rannsóknir á vindganginum á Skagaströnd. Á þriggja mánaða löngum athugunartíma kemur í ljós að norðaustanáttin er ekki eins algeng eins og oft er haldið fram. Engu að síður „andar“ oft úr þeirri átt en einnig úr suðri og suðvestri og jafnvel suðaustri. Aðrar áttir koma lítið sem ekkert við sögu. Sé vindrós þriggja mánaða skoðuð, en þau blóm má sjá með fréttinni, kemur margt skrýtið í ljós. Í janúar og desember hefur annað hvort verið norðaustanátt eða suðvestanátt. Í nóvember voru norðlægar áttir ráðandi. Hlutfall vindátta á Skagaströnd í nóvember. Algengastar eru norðan-, norðausta-, suðaustan- og sunnanáttir. Norður         31,5% Norðaustur  17,8% Austur         15,5% Suðaustur           9,6% Suður         17,2% Suðvestur           8,0% Vestur           0,3% Norðvestur           0,2% Hlutfall vindátta á Skagaströnd í desember. Norðaustan-, suður- og suðvesturáttirnar eru ráðandi. Norður          2,3% Norðaustur          26,2% Austur          9,4% Suðaustur          8,9% Suður         25,6% Suðvestur         22,7% Vestur          3,6% Norðvestur          1,4% Hlutfall vindátta á Skagaströnd í janúar. Sömu áttir og í desember en til viðbótar austanátt. Norður          2,2% Norðaustur         17,7% Austur         20,8% Suðaustur          4,7% Suður         20,0% Suðvestur         29,5% Vestur          4,7% Norðvestur          0,3% Vísindamenn hafa rannsakað mjög náið vindgang á Skagaströnd og niðurstaða þeirra bendir til að lítil vinddreifing skapist af einhæfu mataræði og þá sérstaklega ofneyslu á súrmeti og skorti á grænfóðri.

Meðalhitinn á Skagströnd í janúar var 0,7 gráður

Veðurstofa Skagastrandar hefur gefið út yfirlit yfir veðrið á Skagaströnd í nýliðnum janúar. Sumir telja verðið hafa verið til vandræða. Það er rangt og yfirleitt haldið fram af þeim sem einkum halda sig innandyra.  Skortur á snjókomu var nokkur og sá snjór sem náði til jarðar var á iðulausu ferðalagi hluta mánaðarins og endaði yfirleitt við húsveggi og lét þar mikið yfir sér. Stöku götur fennti í kaf og mikla vélavinnu þurfti til að ryðja þær. Svo ringdi og hvarf þá snjórinn á augabragði, hraðar en nokkur vél getur afkastað.  Meðalhitinn í janúar var aðeins hærri en í desember, var 0,7 gráður en í desember var hann 0,5. Hlýjasti dagur mánaðarins var 22. janúar en þá fór meðalhitinn upp í 6,3 gráður. Mjög hlýtt var þá og fór hitinn hæst upp í 8,6 gráður um klukkan 18 þennan dag. Ekki kólnaði þótt liði á nóttina. Um klukkan 5.50 næsta morgun, 23. janúar, náði hitinn 7 gráðum og meðalhiti þess dags var 5,2 gráður en fór síðan lækkandi til mánaðarmóta. Kaldasti dagur mánaðarins var 6. janúar. Þá fór meðalhitinn niður í -9,4 gráður en hann segir nú ekki alla söguna því frostið fór ofan í -11,1 gráður klukkan 17 þann dag. Raunar var brunagaddur frá því kl. 9 um morguninn og fram til klukkan 21 um kvöldið. Frostið fór þá sjaldnast aldrei undir tíu gráður. Frá 4. janúar og fram til þess 18. dvaldi hitamælirinn flesta daga undir frostmarki en eftir það var aldrei frost á Skagaströnd sé enn og aftur reiknað með hinu lygilega meðaltali. Vindgangur var nokkur á Skagaströnd í janúar. Í kuldakaflanum í byrjun mánaðarins fór blés vindurinn langtímum saman yfir 20 m/s. Þannig var meðalvindhraðinn 7. janúar 17  m/s, en fór þann dag hæst upp í 24 m/s og hélt sínum krafti frá því klukkan átta um morguninn og langt fram yfir hádegi. Það þykir bornum og barnfæddum Skagstrendingum heldur lítið og ylja sér við minningar um stórviðri sem entust jafnvel lengur en í viku. Það draga aðfluttir stórlega í efa og furða sig um leið á minnisleysi samborgara sinna.  Hvað um það, vindhraðinn og meðalvindhraðinn segja ekki nándar nærri eins mikla sögu og hviðurnar. Þær slógu tímunum saman á þessum fárviðrisdegi yfir 30 m/s og undruðust dvalargestir Ness listamiðstöðvar hvernig húsin gæti staðist svona áhlaup en þakkaði jafnframt hver sínum sæla fyrir þá staðreynd. Ekki er mæld úrkoma á Skagaströnd enda flestum ljóst hvenær rignir eða snjóar. Þó veðurstofa Skagastrandar átti sig á því hvaðan vindurinn blæs er erfiðara að koma þeim upplýsingum á framfæri svo vel sé. Skárst væri að búa til svokallaða vindrós en hvernig það er gert er óbreyttum starfsmönnum veðurstofunnar hulin ráðgáta. Þó er greinilegt að norðlægar áttir voru algengastar fyrri hluta janúar enda fylgir þeim oft lægra hitastig. Áhugasömum um veður er bent á að hægt er að framkalla ólíklegustu upplýsingar um veðrið með því að skoða boxið hér vinstra megin sem í stendur „Veðrið á Skagaströnd“. Meðfylgjandi myndir voru teknar þann 7. janúar. Þá þurfti björgunarsveit til að flytja starfsmenn Vinnumálastofnunar til síns heima. Aðrir settu undir sig hausinn og sumir bjuggu svo vel að geta ekið í ófærðinni á fjórhjóli. Spá veðurstofu Skagastrandar fyrir febrúar er tilbúin. Helst er úr henni að frétta að vorið er enn fjarri. snjóa mun í febrúar, stundum verður hvasst, sjaldan mjög hvasst. Frost verður af og til og þess á milli hitnar. Mestur hiti verður í Skagstrendingum á komandi þorrablóti. Kaldast verður á Spákonufelli.

Styrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2010-2011. Styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð. Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 26. febrúar 2011. Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni má einnig finna reglur um námsstyrki. Umsóknareyðublað má nálgast hér. Skagaströnd, 1. febrúar 2011. Fyrir hönd sveitarstjórnar Sveitarstjóri