Frístundakort – umsóknarfrestur til 28. febrúar

Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 15 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður. Þar sem útgáfa reikninga vegna íþróttastarfs á vegum Umf Fram á haustönn 2017 barst nokkuð seinna en venjulega er veittur frestur til 28. febrúar til að leggja fram umsókn og gögn vegna frístundastarfsins. Reglur um frístundakort Sveitarstjóri

OPIÐ HÚS Í HÖFÐASKÓLA

Höfðaskóli verður með OPIÐ HÚS miðvikudaginn 7. febrúar n.k. frá kl. 10:30 til 12 í tilefni nýafstaðinna breytinga á húsnæðinu. Gestir og gangandi eru velkomnir að ganga um sali, fylgjast með kennslu og þiggja kaffi og vöfflur þess á milli í boði 10.bekkjar. Starfsfólk Höfðaskóla

Starfsmaður í íþróttahús/sundlaug

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir starf í íþróttahúsi/sundlaug laust til umsóknar. Starfið er fólgið í vaktavinnu í íþróttahúsi og sundlaug. Um er að ræða fullt starf. Leitað er eftir reglusömum starfsmanni sem er lipur í samskiptum, fær um sjálfstæð vinnubrögð og hefur hæfni til að starfa með börnum og unglingum. Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar og hægt að sækja þau á vef sveitarfélagsins www.skagastrond.is Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar 2018. Nánari upplýsingar veitir Gígja í síma: 864 4908. Sveitarstjóri

Vilhelm Vilhelmsson ráðinn forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra

Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur hefur verið ráðinn forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra. Í nóvember sl. var auglýst til umsóknar starf forstöðumanns rannsóknasetursins með áherslu á sagnfræði. Tvær umsóknir bárust um starfið. Að loknu dómnefnar- og valnefndarferli var Vilhelm ráðinn forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra frá 1. febrúar.

Mynd vikunnar

Þorrablótið nálgast Þessi mynd var tekin á þorrablótsæfingu, líklega 2013. Á henni eru Magnús B. Jónsson til vinstri og Einar Haukur Arason til hægri í hlutverkum sínum sem Sigurbjörn Björgvinsson bifreiðastjóri og Guðmundur J. Björnsson gröfumaður í kaffi á áhaldahúsinu að bíða eftir að fá einhver verkefni fyrir tæki sín. Senda upplýsingar um myndina

Opið fyrir umsóknir í ungmennaráð

Forsætisráðuneytið leitar að 13 til 18 ára ungmennum í ungmennaráð Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Opið verður fyrir umsóknir til og með 16. febrúar nk. Leitað er að áhugasömu ungu fólki til að taka sæti í ungmennaráði heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna (SDG – Sustainable Development Goals). Ungmennaráðið hefur það skemmtilega hlutverk að kynna sjálfbæra þróun fyrir jafnöldrum sínum og vera ríkisstjórninni til ráðgjafar um hvernig ná megi sem best heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun. Ferðakostnaður vegna funda verður greiddur. Meðfylgjandi er auglýsing með nánari upplýsingum.

Álagning fasteignagjalda á Skagaströnd 2018

Ágætu fasteignaeigendur á Skagaströnd. Álagning fasteignagjalda eru í vinnslu og verður álagning keyrð um mánaðarmót. Álagningarreglur fasteignagjalda 2018 eru aðgengilegar á heimasíðunni undir „gjaldskrár“. Greiðslur fasteignagjalda: Eins og undanfarin ár verða ekki sendir greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda nema til þeirra sem þess hafa óskað sérstaklega og gildir skráning þeirra sem þess óskuðu á síðasta ári nema nýjar upplýsingar komi fram. Gjalddagar fasteignagjalda eru frá 1. febrúar til 1. júlí, en á smærri upphæðum eru gjalddagar 1 eða 2. (Gjalddagar á 0-5.000 kr. er 1.apríl og 5.001-10.000 skiptist í tvo gjalddaga 1. apríl og 1. maí). Sorphirðugjald /sorpeyðingargjald Vakin er athygli á að sorphirðugjald er lagt á íbúðir með fastri búsetu en einungis sorpeyðingargjald á sumarhús og íbúðir þar sem ekki er regluleg búseta. Það táknar að sorphirða fer ekki fram þar sem einungis er greitt sorpeyðingargjald. Sama gildir um þær eignir sem ekkert sorphirðu- eða eyðingargjald er lagt á eins og t.d. ferðaþjónustueignir (C-flokkur) þeir aðilar leysa sjálfir sorphirðu /sorpeyðingu fyrir sína starfsemi með samningum við þjónustuaðila eða öðrum hætti. Álagningaseðlar: Álagningarseðlar verða ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað. Hver og einn getur nálgast sína álagningarseðla á vefsíðunni www.island.is undir reitnum „mínar síður“ Innskráning er með kennitölu viðkomandi og íslykli eða rafrænum skilríkju. Skrifstofa sveitarfélagsins veitir fúslega upplýsingar og aðstoð til þeirra sem þess óska. Skagaströnd 30. janúar 2018 Sveitarstjóri

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar mánudaginn 29. janúar 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00. Dagskrá: Gjaldskrá sveitarfélagsins Grunnskólinn – skýrsla skólastjóra Starfsmannahald Uppbjör við Brú lífeyrissjóð Persónuvernd Byggðasamlag um menningu og atvinnumál Fundargerð stjórnar Fjárhagsáætlun 2018 Bréf Mannvirkjastofnunar, 3. janúar 2018 Sambands ísl. sveitarfélaga, 16. janúar 2018 Minnisblað Sambands ísl. sveitarfél. 16. janúar 2018 Sambands ísl. sveitafélaga, 22. janúar 2018 Kristjáns Jónassonar, KPMG, 24. janúar 2018 Fundargerðir: Sameiningarnefndar A-Hún, 10.01.2018 Stjórnar SSNV, 9.01.2018 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 24.01.2018 Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 15.01.2017 Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Bíóauglýsing Þessi útstillingar - kassi/skápur var á stafni bragga sem stóð norðan við götuna beint á móti mjölskemmunni. Eigandi kassans/skápsins var Skagastrandarbíó sem notaði hann til að auglýsa kvikmyndasýningar sínar, sem voru, þegar best lét, þrisvar í viku. Að þessu sinni er auglýst "Heimsfræg stórmynd gerð eftir samnefndri metsölubók, sýnd kl 9 í kvöld, sunnudag". Myndin sem um ræðir hét "Carpetbaggers "samkvæmt auglýsingunni. Samkvæmt bókinni "Byggðin undir Borginni" var Skagastrandarbíó stofnað 1958 að frumkvæði Hallbjörns Hjartarsonar, sem var sýningarmaður bíósins, og fleiri. Sýningar voru í Tunnunni, sem þá þjónaði sem samkomuhús bæjarbúa. Snemma á áttunda áratugnum voru sýningarnar færðar í Fellsborg en þá var farið að draga verulega úr aðsókn, einkum vegna samkeppni við sjónvarpið. Skagastrandarbíó seldi síðan Höfðahreppi sýningarvélar sínar 1979 og hætti starfsemi. Félagsheimilið hélt uppi merkinu í nokkur ár en starfsemin fjaraði út hægt og hægt á nokkrum árum. Senda upplýsingar um myndina