Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 14. júní 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00. Dagskrá: Kosning oddvita og varaoddvita Skýrsla kjörstjórnar um sveitarstjórnarkosningar 2018 Kosning í nefndir sveitarfélagsins Ráðning sveitarstjóra Siðareglur sveitarstjórnar Samningur um eldvarnareftirlit Samningur um Reykjasafnið Reglur um stuðning við nemendur í framhaldsnámi Breyting á gjaldskrá Fjárfestingar og framkvæmdir Bréf Sveitarstjórnar til bankastjóra Landsbankans, dags. 5. júní 2018 Tölvubréf Höllu Signýjar Kristjánsdóttur, dags. 7.06.2018 Svarbréf Landsbankans, dags. 8. júní 2018 Skipulagsstofnuna, 8. júní 2018 Fundargerðir Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 7.06.2018 Stjórnar Byggðasamlags um menningu og atvinnumál 17.04.2018 Stjórnar SSNV, 22.05.2018 Stjórnar Norðurár bs 28.02.2018 Stjórna Sambands íslenskra sveitarfélaga, 18.05.2018 Önnur mál Sveitarstjóri

Útboð á flotbryggjum

Útboð Skagaströnd - flotbryggjur 2018 Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Verkið felst í útvegun og uppsetning á alls 80 m af steinsteyptum flotbryggjum með landgöngum, fingrum, botnfestum og tilheyrandi búnaði. Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2018. Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) frá og með mánudeginum 11. júní 2018. Verð útboðsgagna er 5.000 kr. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. júní 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

Mynd vikunnar.

Síldarbræðsla Síldarbræðsla í fullum gangi í verksmiðjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin kringum 1950. Gufuketill verksmiðjunnar var kyntur með svartolíu en ketillinn var í rými lengst til hægri í húsinu til vinstri og svartur reykurinn fór út í andrúmsloftið gegnum stóra skorsteininn. Þaðan var gufan leidd í næsta rými hússins og látin knýja túrbínu til rafmagnsframleiðslu fyrir verksmiðjuna. Síðan var gufan leidd áfram neðanjarðar yfir í verksmiðjuhúsið þar sem hún var notuð til að sjóða síldina. Úr síldinni var svo unnið mjöl og lýsi. Mjölinu var blásið yfir í stóru skemmuna gegnum rörið sem sést á myndinni milli veksmiðjuhússins og skemmunar. Lýsinu var aftur á móti dælt í tank sem stóð upp við Höfðann rétt norður af frystihúsi Hólaness hf. Næst okkur á myndinni eru leyfar gömlu bryggjunnar sem var rétt austan við Hólsnefið. Bryggjuna byggðu sjómenn á Skagaströnd 1922 með styrk frá Verslunarfélagi Vindhælinga. Senda upplýsingar um myndina

Tveir fyrirmyndarkennarar

Tveir kennarar af Norðurlandi vestra hlutu í dag viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf en þeir eru Sara Diljá Hjálmarsdóttir, kennari í Höfðaskóla á Skagaströnd og Ingvi Hrannar Ómarsson, kennsluráðgjafi í tækni, nýsköpun og skólaþróun hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Samkvæmt fréttatilkynningu tóku fimm kennarar í dag við viðurkenningum fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra. Viðurkenningarnar voru veittar í framhaldi af átakinu „Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara á vefsíðunni hafduahrif.is Viðtökurnar voru afar góðar en hátt í þúsund tilnefningar bárust. Valnefnd skipuð fulltrúum Háskóla Íslands, Kennarasambands Íslands og kennaranema fór yfir tilnefningarnar samkvæmt ákveðnum viðmiðum. Niðurstaðan var sú að veita fjórum framúrskarandi kennurum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi viðurkenningar fyrir framlag þeirra til kennslu. Í fyrsta sinn voru veitt sérstök hvatningarverðlaun til ungs kennara fyrir framsækin störf í þágu menntamála sem hafa vakið athygli á alþjóðavettvangi. (frétt af www.feykir.is )

Laus staða stuðningsfulltrúa

Við Höfðaskóla er laus staða stuðningsfulltrúa á elsta stigi. Umsækjandi þarf að geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð, vera úrræðagóður, þolinmóður og hugmyndaríkur. Nánari upplýsingar veitir Vera Ósk Valgarðsdóttir í síma 8624950. Skólastjóri

Ályktun um fækkun starfa við Landsbankann á Skagaströnd

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur mótmælt harðlega niðurskurði í útibúi Landsbankans á Skagaströnd við bankastjóra Landsbankans. Í ályktuninni segir að með uppsögn á einu og hálfu starfi í eina bankaútibúi Landsbankans í Austur - Húnavatnssýslu sem telur um 1.800 íbúa, sé höggvið í sama knérunn og í öðrum byggðum þar sem Landsbankinn segir upp starfsfólki í 11 útibúum víðsvegar um landið. Í nafni hagræðingar sé störfum í litlum byggðum fórnað á forsendum þess að tæknivæðingin hafi leyst fólkið af hólmi. Það mótmæli því hins vegar enginn að þróun og framfarir breyti störfum og verkefnum en með sömu tæknivæðingu og þróun væri hægt að nýta starfsfólk þvert á alla búsetu þar sem þekking og reynsla starfsmanna er notuð á nýjum forsendum, á nýjan hátt. Í þessu hlutverki hafi Landsbankinn alfarið brugðist og virðist ætla að stefna sem flestu starfsfólki sínu saman í musteri sem stjórnendur bankans eru að reisa í miðborg Reykjavíkur, sjálfum sér til dýrðar. Kostnaðurinn við það musteri, sem hlaupi sennilega á tug milljarða, geri hagræðingu með uppsögn nokkurra starfsmanna á taxtalaunum næsta hjákátlega. Sveitarstjórn Skagastrandar skori því á ríkisstjórn Íslands sem aðaleiganda bankans að taka stjórnarhætti og hugmyndafræði stjórnenda bankans til alvarlegrar skoðunar.

10 ára afmæli Nes listamiðstöðvar🎈🎈🎈

Vinnustofa með málm og gler Lærðu að búa til fjölbreytta hluti á 8 kvölda námskeiði í silfur- og gullsmíði. Hannaðu og búðu til þinn eigin silfurhring og aðra skartgripi eða skrautmuni. Hentar byrjendum jafnt sem öðrum. Leiðbeinandi: Tosca Teran (Kanada) Þátttökugjald: Aðeins efniskostnaður 9,500kr Hámarksfjöldi: 5-8 manns, Dagsetningar: 5. – 7. – 12. – 14. – 19. – 21. – 26. og 28. júní nk. Staður: Nes Listamiðstöð, Fjörubraut 8, Skagaströnd Skráning: Kerryn 6915554 eða nes@neslist.is Um leiðbeinandann Tosca Teran er fjöllistamaður frá Toronto, Kanada, Hann hefur unnið með málma, tölvur og hreyfimyndir síðan á níunda áratugnum. Sjá heimasíðu hennar https://toscateran.com/ Olía, sandur og pappír – Gerð hreyfimynda Í þessari tveggja daga vinnustofu verða gerðar tilraunir með mismunandi aðferðir til að búa til stutt tónlistarmyndband. Við munum nota pappír, olíu á gleri og fleiri aðferðir sem til samans munu breyta teikningum í hreyfimyndir. Þátttakendur þurfa að koma með myndavél (við þurfum 3 vélar fyrir hvert hópverkefni), ýmiss konar efnivið (litaðan pappír, pensla, skæri, olíumálningu, vatnsliti og fleira) og frjótt ímyndunarafl. Leiðbeinandi: Jérémy Pailler (Frakkland) Þátttökugjald: Ókeypis Hámarksfjöldi: 10 manns Dagsetning: 9. og 10. júní 2018, kl. 10:00-17:00, báða dagana Staður: Gúttó, Sauðárkróki Skráning: Erla Einarsdóttir 6987937 eða nes@neslist.is Um leiðbeinandann Jeremy Pailler er myndlistarmaður með áherslu á sjónræna list. Hann hefur skrifað ritgerð um hreyfimyndir og er virkur á fjölmörgum sviðum kvikmyndagerðar. Sjá vefsíðu hans og dæmi um hreyfimyndir. http://www.jeremypailler.com/films/ Námskeið í teikningu (umhverfi okkar) Í þessari vinnustofu er áherslan lögð á náttúruna í kringum okkur, m.a. með gönguferðum og söfnun sýnishorna til að teikna. Við teiknunina verður tekið tillit til áhugasviðs þátttakenda, s.s. með notkun vatnslita, prentunar, fjölþættra efna og textagerðar. Leiðbeinandi: Pam Posey (Bandaríkin) Þátttökugjald: Ókeypis Hámarksfjöldi: 6-8 manns, (fullorðnir) Dagsetning: 10 júní 2018, kl. 13.00-17.00 Staður: Skagaströnd – Kaffi Bjarmanes – kjallari Skráning: Kerryn 6915554 eða nes@neslist.is Námskeið í teikningu (litlir hlutir) Hér er áherslan lögð á náttúrulega smáhluti í umhverfinu. Þátttakendur munu læra margvíslegar teikniaðferðir, notkun vatnslita, prentun, margmiðlunartækni og fleira. Leiðbeinandi: Pam Posey (Bandaríkin) Þátttökugjald: Ókeypis Hámarksfjöldi: 6-8 manns, (fullorðnir) Dagsetning: 20 júní 2018, kl. 18.30-22.30 Staður: Skagaströnd – Kaffi Bjarmanes – kjallari Skráning: Kerryn 6915554 eða nes@neslist.is Um leiðbeinandann Pam Posey býr í Los Angeles og vinnur fyrst og fremst með náttúruna í sinni myndlist. Þetta er í fjórða sinn sem Pam dvelur í Nes listamiðstöð. Vefsíða: https://www.pamposey.org/ Bókagerð Í þessari vinnustofu listamannsins Ron Linn munu þátttakendur nota náttúru og umhverfi Skagastrandar sem innblástur og efnivið til að búa til eigin myndlistarbók. Fyrri daginn verður efniviður úr náttúrunni nýttur til að búa til fallega og þrykkimyndir sem verður svo nýttur til bókagerðar. Seinni daginn verður unnið einfalt bókband þar sem stuðst er við brot og skurð. Áherslan er á verkferlum sem eru öllum aðgengilegir án þess að krefjast tækja til bókbands og prentunar. Leiðbeinandi: Ron Linn (Bandaríkin) Þátttökugjald: Ókeypis Hámarksfjöldi: 12-15 manns, Dagsetning: 9. og 16. júní, kl. 10.00-13.00 Staður: Nes Listamiðstöð, Fjörubraut 8, Skagaströnd Skráning: Kerryn 6915554 eða nes@neslist.is Um leiðbeinandann Ron Linn er fjöllistamaður frá Oregon í Bandaríkjunum, með áherslu á teikningu. Hann vinnur með tengsl á milli manngerðar og mannlausrar náttúru með því að kanna minningar, dulúð og sögur. Hann kennir nú við Brigham Young háskólann í Utah, USA. Vefsíða: http://ronlinnportfolio.com/ Blau-hvítar myndir Á þessu námskeiði vinnur þú međ sólarljósiđ, til ađ prenta bláhvítar ljósmyndir. Þátttakendur búa til ljósmyndir með því að nota hluti eins og blóm, fjaðrir, hnappa o.s.frv. sem framkallast beint á pappír í fallegum bláum og hvítum ljósmyndum. Þetta er frekar auðveld tækni og hentar öllum 12 ára og eldri. Leiðbeinandi: Danielle Rante (Bandaríkin) Þátttökugjald: Aðeins efniskostnaður – 1,000kr Hámarksfjöldi: 15-20 manns, 12 ára og eldri Dagsetning: 17. júní 2018, kl. 13.00-16.00 Staður: Menningarfélag Húnaþings vestra Eyrarland 1, 530 Hvammstangi Skráning: Greta Clough 611 4694 eða nes@neslist.is Um leiðbeinandann Danielle Rante er myndlistarkona sem býr í Dayton, Ohio í USA. Hún starfar nú við Wright State háskólann í Ohio. Sjá heimasíðu hennar https://www.daniellerante.com/

Fjöruhreinsunarátak Höfðaskóla

Nemendur fimm elstu bekkja Höfðaskóla fóru út úr skólanum þriðjudaginn 29. maí og eyddu skóladeginum í að tína rusl í fjörunum í nágrenni Skagastrandar, með kennurum og starfsfólki frá BioPol. Tíundu bekkingar fóru þó lengra því þeir hreinsuðu rusl í Kálfhamarsvík og víkinni norðan við hana. Sjötti og sjöundi bekkur byrjuðu sinn leiðangur í Bæjarvíkinni á Finnstaðanesinu og gengu svo alla leið heim að Salthúsinu með pokana sína. Krakkarnir í áttund og níunda bekk gengu síðan leiðina frá Vinhælisstapanum og heim að Bjarmnesi. Á svæðinu við Kálshamarsvík safnaðist um 150 kg af rusli en ca 95% af því var alls konar plastefni. Þar voru áberandi stuttir grænir nælonspottar eins og eru í trollum togara og snurvoðarbáta. Greinilega var um að ræða afskurð sem til fellur þegar verið er að gera við trollið og er hér með farið fram á það við sjómenn að þeir passi betur upp á þessa litlu spotta þannig að þeir fari ekki í sjóinn. Á leiðinni frá Finnstöðum og heim tíndust upp 220 kg af alls kyns rusli meðal annars nokkur gömul dekk og netadræsur auk alls plast- og járnaruslsins. Frá Vinhælisstapanum og heim voru dekk mest áberandi. Krakkarnir tíndu þau saman í stóran haug en síðan voru þau sótt á kerru og með dráttarvél. Giska má á að hér hafi verið um 60 – 70 dekk og dekkjarifrildi. Auk þess var tínt mikið af plasti eins og á hinum stöðunum. Í þessu hreinsunarátaki, sem er hluti af umhverfismennt skólans, var nemendunum uppálagt að skipta sér ekki af spýtum né fuglshræum sem telja má að séu “eðlilegir‘‘ hlutir í fjörum landsins enda eyðast þeir með tímanum öfugt við plastið sem sagt er að endist a.m.k 500 ár í náttúrunni. Nemendur voru sammála um að það kom þeim á óvart hve mikið af plastrusli þau fundu og áttu erfitt með að ímynda sér hve mikið af því væri þá í hafinu við strendur landsins fyrst svo mikið rekur í fjörurnar. Myndirnar tók James Kennedy

Mynd vikunnar

Skemmtisigling á sjómannadegi er ómissandi hluti hátíðahaldanna á Skagaströnd og nýtur alltaf mikilla vinsælda. Hér kemur Ólafur Magnússon Hu 54 úr einni slíkri siglingu í renniblíðu með fullan bát af glöðu fólki. Myndina tók Ingibergur Guðmundsson á sjómannadaginn árið 2000. Senda upplýsingar um myndina

Hetjur hafsins – Sjómannadagurinn á Skagaströnd 2018

Fimmtudagur 31. Maí 2018 Kl. 19-20 Björgunarsveitin Strönd gengur í hús og bíður til sölu sjómannamerkið Kl. 20:00 – 22:00 Æfingar fyrir kappróður Föstudagur 1. Júní 2018 Kl. 18:00-19:00 Sundlaugargleði – tónlist og gleði Kl.20 Hátíðin Hetjur hafsins sett formlega með fallbyssuskoti á hátíðarsvæði Klukkan 20:15 – 21:00 Lokaæfingar fyrir kappróður 20:30 Sigling, útsýnissigling á Húnaflóa 21-22:30 Bjarnabúð: Tækjasýning og tónleikar í Bjarnabúð Á tónleikunum koma eftirfarandi hljómsveitir fram: Skagabandið/Gagnaver/Nýríki Nonni/Janus/Tíglar/Jójó Björgunarsveitin Strönd verður með sjoppu á tónleikunum Kl. 22:30 Friðrik Halldór trúbador spilar í Bjarmanesi Laugardagur 2. Júní 2018 Kl. 10:30 skrúðganga frá hátíðarsvæði til messu Kl. 11:00- 12.00 Messa í Hólaneskirkju, að lokinni messu verður lagður blómsveigur á minnisvarða um drukknaða sjómenn Kl. 13:30 Undirbúningur fyrir karnivalgöngu hefst við Höfðaskóla Kl. 14:00 Karnivalskrúðganga frá Höfðaskóla að hátíðarvæði Kl. 14:30 Skemmtidagskrá á hafnarsvæði – róðrar, leikir, fallbyssuskot, skemmtiatriði. Kl. 15:30 – 17:30 Hringekja og hoppukastali á skólalóð Kl. 16:00 Vigdís Viggósdóttir opnar ljósmyndasýninguna Haf og hagi í Bjarmanesi Sjómannadagsball og hátíðarkvöldverður 2. Júní 2018. Húsið opnar 18:30 borðhald hefist 19:15 Hljómsveitin Trukkarnir spila fyrir dansi Verð 9.900- fyrir mat og ball. Bara matur 6.900- -Áfengissala verður í húsinu til kl 22:00 (Opið er fyrir allan aldur í matinn.) Stakur miði á ball kostar 3.500- Sunnudagur 3. Júní 2018 Kl. 14:00-16:00 Lummukaffi í Árnesi Kl. 14:00-17:00 Húsdýragarður á Holtinu