Samráð samfélagsfræðikennara

Samfélagsfræðikennarar Húnavatnssýslna voru boðaðir til samráðsfundar þriðjudaginn 3. mars í Grunnskólann á Blönduósi.   Markmið fundarins var að ræða saman, skiptast á verkefnum,  hugmyndum og kennsluaðferðum í samfélagsfræði. Kennarar komu  með til fundarins kennsluáætlanir, verkefni, bækur og önnur gögn sem tengjast greininni og reynst hafa vel í kennslunni. Allir höfðu eitthvað fram að færa og jókst því hugmyndabanki kennaranna mikið.  Stjórnandi samráðsfundarins var Hörður Ríkharðsson, kennari. Námskeiðið var haldið á vegum Fræðsluskrifstofu A- Hún. Myndin er af þátttakendum og leiðbeinanda.

Framkvæmdastjóri Ness formaður SÍM

Framkvæmdstjóri Ness listamiðstöðvar kjörinn formaður Sambands íslenskra mynlistarmanna. Varpa þurfti hlutkesti í formannskjöri á aðalfundi Sambands íslenskra myndlistarmanna á laugardaginn.  Hlynur Hallsson, sem verið hefur formaður sambandsins, og Hrafnhildur Sigurðardóttir voru í kjöri og fengu jafnmörg atkvæði, 134 hvort. Hrafnhildur valdi skjaldarmerkið sem kom upp.

64% kjörsókn á Skagaströnd

Kjörsókn á Skagaströnd í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðasta laugardag var 64,05%. Alls voru 370 manns á kjörskrá. Í norðvesturkjördæmi voru 21.324 á kjörskrá og kjörsóknin var 63,6%. Nei kusu 92,7% þeirra sem þátt tóku. Kjörsókn á öllu landinu var 62,7% og nei sögðu 93,2%

Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave í Fellsborg

Á morgun, laugardaginn 6. mars 2010, verður þjóðaratkvæðagreiðslan sem kennd hefur verið við Icesave samningana við Breta og Hollendinga. Eiga lög nr. 1/2010 að halda gildi? Kjörfundur hefst í Fellsborg klukkan 10 og lýkur klukkan 20. 

Óskað eftir umsóknum um byggðakvóta

Fiskistofa óskar eftir umsóknum um byggðakvóta á Skagaströnd. Um er að ræða úthlutun byggðakvót á fiskveiðiárinu 2009/2010 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 82, 29. janúar 2010 Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 187/2010 í Stjórnartíðindum. Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög: Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (www.fiskistofa.is), og þar eru ofangreindur reglur einnig aðgengilegar.   Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2010.

Listsýningin í Landsbankanum

Vettvangur fyrir listsýningar yngsta fólksins er Landsbanki Íslands. Löng hefð er fyrir því að bankinn bjóði leikskólanemum að vera með listsýningu í útibúinu  í byrjun hvers árs.   Sýningin var að þessu sinni opnuð 4. febrúar i tengslum við alþjóðlega leikskóladaginn.   Nafn sýningarinnar er „Hafið, fjaran, ég og fjölskylda mín“. Nú líður senn   að lokum sýningarinnar vill bankinn og listamennirnir hvetja þá sem ekki hafa séð sýninguna að gera það sem allra fyrst.    Skagstrendingar mega vera stoltir af þessum upprennandi listamönnum.

Atkvæðagreiðsla utankjörstaða hafin

Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 6. mars næstkomandi er á skrifstofu setts hreppstjóra Lárusar Ægis Guðmundssonar að Einbúastíg 2. Þar er opið alla virka daga frá klukkan 10 til 16. Þeir Skagastrendingar sem hyggjast vera fjarri lögheimili sínu næsta laugardag eru hvattir til að kjósa utankjörstaðar.  Kjörskrá Skagastrandar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins á skrifstofutíma til kjördags. 

Arnar með 260 milljóna króna afla eftir einn túr

Aflaverðmæti Arnars HU 1 eftir 17 daga veiði í Barentshafi er um 260 milljónir króna. Þetta er verðmætasti farmur sem Arnar hefur nokkru sinni komið með að landi eftir einn túr. Aflinn að þessu sinni var um 900 tonn, 720 tonn af þroski og um 180 tonn af öðrum tegundum, mest ýsu. 

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 3. mars 2010 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Þriggja ára áætlun Sveitarfélagsins Skagastrandar 2. Fjárhagsáætlanir byggðasamlaga a) Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál b) Félags- og skólaþjónustu A-Hún 3. Kynning á atvinnuráðgjöf SSNV Jón Óskar Pétursson og Stefán Haraldsson 4. Kynning Arkitektastofunnar Form. 5. Aðalskipulag Skagastrandar 6. Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 7. Bréf: a) Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, 31. jan. 2010. b) Smábátfélagsins Skalla, 3. febrúar 2010. c) Undirbúningsnefndar Ís-Landsmóts, dags. 11. febrúar 2010. d) Náttúrustofu Norðurlands vestra, dags. 8. febrúar 2010. e) Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 24. janúar 2010. f)Ungmennafélags Íslands, dags. 28. janúar 2010. g) Umhverfisstofnunar, dags. 5. janúar 2010. 8. Fundargerðir: a) Fræðslunefndar, 4.02.2010 b) Byggingarnefndar, 1.03.2010 c) Vinnufundar um aðalskipulag, 19.01.2010. d) Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún e) Stjórnar Byggðasamlags um Tónlistarskóla A-Hún f) Stjórnar Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál, 20.01.2010 g) Samvinnunefndar um svæðisskipulag A-Hún. 19.01.2010 h) Stjórnar Byggðasafnsins á Reykjatanga, 13.01.2010. i) Stjórnar SSNV, 18.01.2010 j) Stjórnar SSNV, 9.02.2010 k) Menningarráðs Norðurlands vestra, 3.02.2010 l) Sambands ísl. sveitarfélaga, 29.01.2010 9. Önnur mál Sveitarstjóri

Vetrarleikar í Tindastól um helgina

Fjölskylduhátíð verður dagana 26. - 28. febrúar á skíðasvæðinu í Tindastóli. Þar verður sett upp ævintýrabraut, snjóraft og fleira.  Þá verður Vetrarleikabrenna á föstudagskvöldinu og  kvöldvaka á laugardeginum í reiðhöll Skagfirðinga. Það er ekki skilyrði að geta staðið á skíðum eða snjóbrettum til að geta skemmt sér á Vetrarleikunum. Föstudagskvöld 26. febrúar
kl. 19:00  Safnast saman við íþróttahúsið á Sauðárkróki og gengið í skrúðgöngu að kirkjunni. Setning Vetrarleikanna, Vetrarleikabrenna, söngur og samvera. Laugardagur  27. febrúar
 Skíðasvæðið í Tindastól  Ævintýrabraut Vetrarleikanna
kl. 11:00   Fyrirkomulag kynnt og skráning 
kl. 11.30   Ævintýrabrautin opnar
kl. 12.30   Hádegishlé í eina klst.
kl. 15:30   Skíðað niður í bæ eftir ákveðinni braut.
 Sund og afslöppun á Sauðárkróki (180 kr. fyrir börn/380 kr. fyrir fullorðna)
kl. 19.00  Pizzahlaðborð og kvöldvaka í reiðhöllinni Svaðastöðum (pizzuhlaðborð ekki innifalið í þátttökugjaldinu – kostar 800 kr. á barn/1400 kr. á fullorðinn).    Á kvöldvökunni verða dregnir út fjöldi glæsilegra vinninga og því þarf að halda vel utan um númerin sem úthlutað er við skráningu á leikana.  Sunnudagur 28. febrúar
kl. 11.00  Skíðaleikar
                Samhliða svig, foreldrar og börn keppa við hvert annað.   Grín og glens!
kl. 12.30  Hádegishlé í eina klst. Fiskur í fjalli í boði Fisk Seafood.
 Þátttökugjald 1500 kr á mann fyrir 4 ára og eldri (lyftugjöld ekki innifalin).  Umf. Fram verður með rútuferðir á leikana bæði laugardag og sunnudag og eru ferðirnar þátttakendum að kostnaðarlausu.  Lagt verður af stað kl.10.00  báða dagana og farið heim að lokinni dagskrá (eftir kvöldvökuna á laugardagskvöldið).   Skráning í rútuna þarf að fara fram fyrir kl. 20:00 á föstudagskvöldið í símum 895 5472 (Dísa), 862 6997 (Björk) og 845 2991 (Elva) sem einnig gefa nánari upplýsingar – ekki er hægt að ganga að því vísu að fá sæti í rútunni eftir að skráningu lýkur.  Börn fædd 1998 og síðar þurfa að vera í umsjón einhvers fullorðins í ferðinni.  En við viljum benda á að leikarnir eru hugsaðir sem fjölskylduhátíð og ekki þarf að vera á skíðum til þess að geta tekið þátt í dagskránni.  Tökum þátt í frábærri skemmtun og eigum góða helgi saman.  Frekari upplýsingar má einnig finna á heimasíðu Tindastóls, www.tindastoll.is