Leikskólastjóri óskast

Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd auglýsir eftir leikskólastjóra frá og með næsta skólaári. Leikskólinn er 30 – 40 barna, tveggja deilda skóli sem ætlar að innleiða starfshætti í samstarfi við Hjallastefnuna ehf. Nánari upplýsingar um leikskólann er m.a. að finna á http://skagastrond.is/leikskoli.asp Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í innleiðingu á Hjallastefnunni þar sem metnaður, gleði og kærleikur er hafður að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að vera leikskólakennari eða hafa aðra uppeldismenntun, sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa brennandi áhuga á jafnrétti og lýðræði í leikskólastarfi. Skólar Hjallastefnunnar starfa að sameiginlegum markmiðum eftir sömu hugmyndafræði en sjálfstæði hvers skóla er mikið. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Áhugasamir hafi samband við Áslaugu Huldu Jónsdóttur, aslaug@hjalli.is eða Magnús B. Jónsson í síma 455 2700, magnus@skagastrond.is Sveitarfélagið Skagaströnd, Hjallastefnan ehf

Samstarfssamningur Hjallastefnunnar og Skagastrandar samþykktur

Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar 2. júlí 2014 var samþykktur samningur við Hjallastefnuna ehf. Í honum kemur fram að Hjallastefnan og sveitarfélagið Skagaströnd geri með sér samkomulag þar sem Hjallastefnan veiti leikskólanum Barnaból faglega ráðgjöf, kemur að breytingum og aðstoðar við innleiðingu á starfsháttum, umhverfi og aðferðum Hjallastefnunnar. Hjallastefnan ehf og sveitarfélagið Skagaströnd munu auglýsa sameignlega eftir skólastjóra leikskólans Barnabóls og starfsmenn Hjallastefnunnar munu sömuleiðis aðstoða við ráðningu skólastjóra og endurskipulagningu á starfsmannahaldi. Við innleiðingu Hjallastefnunnar mun Hjallastefnan leggja til ráðgjafa og aðra sérfræðinga eftir þörfum, standa fyrir námskeiðum og fræðslu til starfsmanna og sinna upplýsingagjöf til forráðamanna. Rekstur skólans og ábyrgð verður áfram hjá sveitarfélaginu en markmið samkomulagsins er að rekstur leikskólans færist yfir til Hjallastefnunnar um áramótin 2014-2015 en eigi síðar en 1. ágúst 2015. 2. júlí 2014 Sveitarstjóri

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 2. júlí 2014 kl 800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Grunnskóli: Starfsmannahald skólaárið 2014-2015 Erindi um stuðningsfulltrúa Hjallastefna Önnur mál Sveitarstjóri

Flokksstjóri óskast

Sveitarfélagið Skagaströnd óskar eftir flokksstjóra tímabundið í júlí og fyrstu viku ágúst við vinnuskólann og afleysingu í áhaldahúsi. Nánari upplýsingar veitir Árni Geir í síma 8614267 Sveitarstjóri

Framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) auglýsa eftir framkvæmdastjóra. SSNV er þjónustu- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og sér um mikilvæga sameiginlega málaflokka og hagsmunamál sveitarfélaga á starfssvæðinu. Verkefni SSNV eru fjölbreytt og snúa að hagsmunum svæðisins, atvinnuþróun og rekstri sameiginlegra verkefna sveitarfélaganna sem að því standa. Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, sýnir frumkvæði og hefur góða hæfileika í mannlegum samskiptum. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði og æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á sveitarstjórnarmálum og rekstri. Höfuðstöðvar SSNV eru á Hvammstanga. Áhugasamir umsækjendur skulu senda inn umsókn fyrir 7. júlí til: Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra Höfðabraut 6 530 Hvammstangi Merkt: „Framkvæmdastjóri“ Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Jónsson formaður SSNV í síma 8947479

Mynd vikunnar

Gísl Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð, sem var sýnd í Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru leikarar og starfsfólk sýningarinnar eftir æfingu í Fellsborg. Fremsta röð frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Magnús B. Jónsson, Ragnhildur Steingrímsdóttir leikstjóri, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gunnar Benónýsson (d. 29. 7.2003). Næsta röð frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Elín Njálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir. Þriðja röð frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Einar Helgason, Rúnar Loftsson, Hjörtur Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Ingibergur Guðmundsson og Bernódus Ólafsson. Fjórða röð frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Þar fyrir ofan frá vinstri: Birna Blöndal, Hjörtur Guðmundsson og Hallbjörn Hjartarson.

Mynd vikunnar

Lionsfélagar með mökum sínum Þessi mynd sýnir hátíðafund Lionsklúbbs Skagastrandar (eldri) í Skátaskálanum. Hér hafa félagarnir boðið mökum sínum eða vinkonum með sér á fund. Við háborðið sitja frá vinstri: Ole Aamundsen (d.?), Margrét Jóhannesdóttir, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), Helga Berndsen, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996), Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) og Þórður Jónsson (d. 25.12.2010). Standandi frá vinstri eru: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Jón Pálsson, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Hörður Ragnarsson, Sveinn Ingólfsson, Helga Jóhannesdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008), Björgvin Jónsson (d. 21.12.1998), Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005), Hulda Pálsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Jóna Guðjónsdóttir, Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Edda Pálsdóttir, Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið einhverntíma á árunum 1960 - 1965.

Jónsmessubrenna og opnun göngubrúar yfir Hrafná

Á mánudagskvöld 23. júní, kvöldið fyrir Jónsmessunótt, klukkan 20:30 verður opnuð ný göngubrú yfir Hrafná og í kjölfarið verður haldin Jónsmessubrenna á fjörukambinum innan við brúna í landi Árbakka. Jónsmessunótt er nótt kynjavera og galdra því þá eru skilin milli raunheima og kynjaheima óskýr og jafnvel opin sumsstaðar. Því væri tilvalið að koma með óskir og fyrirbænir á miðum til þess að senda með logagöldrum til vera sem gætu jafnvel orðið við þeim. Ef þið hafið ekki trú á svoleiðis væri tilvalið að skrifa einhverja fordóma á miða og brenna þá til ösku – svona í anda Pollapönkarana. Spákonur úr Spákonuhofinu mæta á svæðið og hver veit hvað gerist þá..... Svo er nú bara alltaf gaman að hittast, kveikja í kesti og jafnvel syngja nokkur lög. Kassagítarar og hverskonar hljóðfæri eru líka sérstaklega velkomin. Ungmennafélagið Fram Sveitarfélagið Skagaströnd

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 24. júní 2014 kl 1600 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Kosning oddvita og varaoddvita Skýrsla kjörstjórnar um sveitarstjórnarkosningar 2014 Kosning í nefndir sveitarfélagsins (skv. 40. gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar) Ráðning sveitarstjóra Siðareglur sveitarstjórnar Stuðningur við framboð til sveitarstjórnar Grunnskóli: Ráðning skólastjóra Erindi um stuðningsfulltrúa Skýrsla um frístundaver Vinabæjamót – dagskrá Bréf: Tónlistarskóla Akureyrar, dags. 16. júní 2014 Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 28. maí 2014 Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 12. júní 2014 Skákfélagsins Hróksins, dags.11. júní 2014 Þjóðskrár Íslands, dags. 13. júní 2014 Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, dags. 12. júní 2014 Fundargerðir: Skipulags- og byggingarnefndar, 22.05.2014 Stjórnar Félags og skólaþjónustu A-Hún, 12.06.2014 Stjórnar Norðurár bs, 15.05.2014 Stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga, 15.05.2014 Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 16.05.2014 Önnur mál Sveitarstjóri

Jónsmessutónleikar í Hólaneskirkju

Drew Krasner heldur tónleika sunnudaginn 22. júní, kl 18.00 í Hólaneskirkju. Jasspíanistinn og saxófónleikarinn Drew Krasner, Nes listamiðstöð og Hólaneskirkja bjóða þér á einleikstónleika Drew Krasner í kirkjunni. Aðgangur ókeypis. Fögnum Jónsmessunni. Allir velkomnir Drew Krasner, - Nes listamiðstöð, - Hólaneskirkja