Mynd vikunnar

Þór Arason verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju laugardaginn 25. ágúst klukkan 14:00 Hógværð og iðjusemi eru fyrstu orðin sem upp koma í huga þeirra sem þekktu Þór Arason, þegar þeir minnast hans. Hann var maður sem vann öll sín verk af alúð, hávaðalaust og vel. Eftirsóttur verkmaður þó aldrei færi mikið fyrir honum enda dulur og hlédrægur. Þór var tryggur vinur vina sinna, greiðvikinn og afar hjálpsamur. Nú er hann kominn á bjartari stað með verkfærin sín albúinn að leysa þau verkefni sem honum verða þar falin, orðalaust en betur en flestir aðrir. Hugur okkar, sem nutum þess að vera samferða Þór í lífinu, er hjá aðstandendum hans, sem nú kveðja góðan dreng.

Heimsókn frá Ringerike /Hönefoss

Norræna félagið á Skagaströnd mun taka á móti hópi frá vinabæ Skagastrandar Ringerike í Noregi um næstu helgi. Hópurinn sem telur 28 manns, kemur föstudaginn 24. ágúst og verður í heimsókn fram á sunnudaginn 26. ágúst. Þau munu gista í Salthúsinu og ætla m.a. að skoða Spákonuhof, fara í Kálfshamarsvík og heimsækja Nes listamiðstöð. Áhugafólk um norrænt samstarf og/eða þeir sem vilja hitta fólkið og kynnast því eru beðnir að hafa samband við undirritaða. Sigríður Stefánsdóttir, formaður Norræna félagsins á Skagaströnd. Sími: 774 1434

Norðurlandsjakinn á Skagaströnd 23. ágúst

Keppni sterkustu manna landsins fer fram 23 - 25. Ágúst 2018 Fimmtudagur 23. ágúst Kl. 13 Blönduós, Drumbalyfta, Bæjartorginu við félagsheimilið Kl. 17 Skagaströnd, Kast yfir vegg, Grundarhólum við Spákonuhof Föstudagur 24. ágúst Kl. 12 Sauðárkrókur, Réttstöðulyfta, við safnhús Skagfirðinga Kl. 17 Ólafsfjörður, Víkingapressa og Mylluganga, við Tjarnarborg Laugardagur 25. ágúst Kl. 12 Mývatn, Framhald og Réttstöðuhald, við Dimmuborgir

Frá Tónlistarskóla A-Hún.

Innritun er hafin fyrir næsta skólaár Tónlistarskóla A-Hún. Umsóknum skal skila rafrænt á síðu tónlistarskólans http://www.tonhun.is undir flipanum umsóknir. Opið er fyrir umsóknir til 26. ágúst. Þeir sem gengu frá umsókn í vor þurfa ekki að sækja aftur um. Nánari upplýsingar í síma 868-4925. Skólastjóri.

BioPol tekur þátt í verkefni um umhverfisvöktun

Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að gerður hefur verið samningur við BioPol á Skagaströnd um vöktun í samræmi við samning um verndun hafrýmis Norður Atlantshafi. Þar segir: Í sumar bættist ný strönd við kerfisbundna vöktun stranda á Íslandi samkvæmt aðferðafræði og leiðbeiningum frá OSPAR (samningur um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins). Starfsfólk Biopol hefur tekið að sér OSPAR vöktun á ströndinni Víkur á Skagaströnd fyrir Umhverfisstofnun og fór starfsmaður Umhverfisstofnunar, þann 12. júlí sl. og aðstoðaði þau við fyrstu vöktunina. Á ströndinni var mikið rusl sem kemur frá sjávarútvegi, eins og t.d. netakúlur, olíubrúsar og fiskikassar. Einnig fannst mikið af plastbrotum í ýmsum stærðum (sjá mynd). Ströndin verður vöktuð þrisvar sinnum á ári og verða niðurstöðurnar skráðar inn í gagnagrunn hjá OSPAR. Víkur verður sjötta ströndin sem er vöktuð á Íslandi samkvæmt aðferðafræði OSPAR, en hinar eru: Surtsey, Bakkavík á Seltjarnanesi, Búðavík á Snæfellsnesi, Rauðisandur og Rekavík bak Höfn á Hornströndum (Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar: https://ust.is/atvinnulif/haf-og-vatn/voktun-stranda/).

Skólasetning Höfðaskóla

Skólasetning Höfðaskóla verður í Hólaneskirkju mánudaginn 27. ágúst n.k. og hefst kl. 10. Eftir formlega skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum í sínar stofur. Kennsla hefst skv. stundaskrá (sund) þriðjudaginn 28. ágúst. Nánari upplýsingar á skólasetningu. Skólastjóri. .

Opið hús í Nes listamiðstöð

Opið Hús @ Nes Listamiðstöð View this email in your browser OPIÐ HÚS  //  LAU 28 júlí  //  16.30 - 18.30 Call in and see what our artists from around the globe have been creating this month!   Copyright © 2018  Nes Listamiðstöð Ehf. All rights reserved. You are receiving this email because you have subscribed to our newsletter or given us your email so we can keep in touch :) How nice!  Our mailing address is: Nes Artist Residency Fjörubraut 8 545 Skagaströnd http:\\neslist.is We hope you don’t want to leave us but if by some remote chance you do, then please click the unsubscribe link below. unsubscribe from this list   

Umsækjendur um starf sveitarstjóra

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur auglýst starf sveitarstjóra laust til umsóknar og var umsóknarfrestur til 2. júlí sl. Eftirtaldir sóttu um stöðuna: Gunnólfur Lárusson Hjörleifur H. Herbertsson Ingimar Oddsson Kristín Á. Blöndal Linda B. Hávarðardóttir Ragnar Jónsson Sigurbrandur Jakobsson Þorbjörg Gísladóttir