Göngutúr og kreppulaust kaffi

Öllum þykir vænt um bæinn sinn en ekki er víst að þekking þeirra á honum sé mjög nákvæm eða ítarleg. Ólafur Bernódusson býður nú þeim sem vilja að ganga með sér um útbæinn og skoða hús og staði og rifja upp sögur af mönnum og málefnum. Hann ætlar til dæmis að líta inn í gamla kaupfélagið, skoða endurbæturnar þar og kannski kíkjum inn í verksmiðjuna og fleiri staði. Hristu nú af þér drungann og komdu með í léttan og skemmtilegan labbitúr sem kostar ekkert nema þokkalega skó. Mæting á bílastæðinu uppi á Höfða á sunnudaginn kl. 14. Eftir göngu verður svo boðið upp á fítt kreppulaust kaffi í Bjarmanes.

Mikið at í Skagastrandarhöfn

    Mjög góður afli hefur verið í Húnaflóa að undanförnu og fjöldi báta lagt upp á Skagaströnd. Flestir selja afla sinn á markað. Stórir bátar eins og Valdimar GK og Ágúst GK, báðir gerðir út af Þorbirni Fiskanesi í Grindavík, hafa lagt hér upp á rúnti sínum um landið, sá fyrrnefndi landaði 15. októberum 66,2 tonnum og sá síðarnefndi tæplega 48 tonnum daginn eftir   Mikið at hefur því verið í Skagastrandarhöfn og ekkert lát á því þar sem togarinn Arnar kemur inn á sunnudagskvöldið.   Þann 15. október lönduðu þessir bátar:   Sæfari SK,           2.315 kg Svanhvít HU,       2.738 kg Bjartur í Vík HU,     616 kg Kristbjörg HF,      5.353 kg Hildur GK,            5.694 kg Kristinn SH,         9.989 kg Hafrún                  4.222 kg Valdimar GK,    66.211 kg Surprise HU,          288 kg   Þann 16. október lönduðu þessir bátar:   Gunnar afi SH,   3.410 kg Óli Gísla GK,      8.785 kg Ágúst GK,         47.865 kg Hildur GK,           4.319 kg Kristbjörg HF,     5.499 kg Kristinn SH,      12.845 kg Dagrún ST,         2.537 kg  

Allt flott við Fellsborg

Umhverfi Fellsborgar hefur tekið miklum stakkaskiptum að undanförnu. Bílastæðið hefur verið malbikað, kantsteinar steyptir, ljósastaurar settir upp, verið er að helluleggja fyrir framan innganginn, og innan skamms verða lagðar túnþökur meðfram framkvæmdasvæðinu og loks er ætlunin að mála bílastæði. Bílastæðið er 2100 fermetrar að stærð, þar verður pláss fyrir 71 bíl og það verður allt upplýst. Óhætt er að fullyrða að vel hefur tekist til hjá Árna Geir og samstarfsmönnum hans, en þeir eru Stefán Sveinsson, Vilhjálmur Jónsson, Gunnar Tryggvi Ómarsson og Ragnar Már Björnsson.

Signý og Ingibergur unnu

Mikið grín og mikið gaman var í spurningakeppninni „Drekktu betur“ sem haldin var í Kántrýbæ á föstudagskvöldið.  Stjórnandi og spyrill í þetta sinn var Ólafía Lárusdóttir, starfsmaður BioPol ehf. Mörgum þóttu spurningarnar þungar en engu að síður náði sigurliðið 23 stigum sem var það sama og sigurliðið fékk í keppninni fyrir hálfum mánuði.   Hjónin Signý Ósk Richter og Ingibergur Guðmundsson sigruðu að þessu sinni og fengu Carlsberg bjórkassa í verðlaun.  Nokkuð færri höfðu bjórspurninguna rétta, en spurt var hvaða tindur landsins  er næst hæstur. Svarið sem Ólafía gaf upp var Bárðarbunga, 2000 m. Sjö manns voru með rétt svar sem er snöggtum færra en síðast þegar nær hálfur salurinn gat sér til um að lengra væri til Færeyja en Grænlands.   Næsta keppni verður 24. október og þá verður Hjörtur Guðbjartsson  spyrill.

Drekktu betur ... í kvöld

Spurningakeppni „Drekktu betur“ verður í kvöld í Kántrýbæ og er þetta í annað skiptið sem hún er haldin. Ókeypis er inn og ekkert kostar heldur að taka þátt. Keppnin fer þannig fram að lesnar eru upp spurningar og viðstaddir skrifa niður svörin. Að því loknu, eftir þrjátíu spurningar, er farið yfir svörin. Það gera þátttakendur sjálfir, þeir skiptast á blöðum og spyrillinn les upp rétt svör og dæmir í vafaatriðum. Spyrill í kvöld verður Ólafía Lárusdóttir, starfsmaður BioPol ehf á Skagaströnd. Óhætt er að lofa skepptilegum spurningum og fjölbreyttum. Auðvitað er tilgangurinn sá að skemmta sér og njóta samvista við aðra. Ekki spillir að bjórkassi er í verðlaun fyrir þá sem hafa flestar spurningar réttar, en þær verða að vera minnsta kosti að fimmtán, þ.e. helmingurinn. Að auki er ein „bjórspurning“, þ.e. allir sem hafa svarið rétt fá fullt bjórglas í verðlaun. Síðast mættu rétt tæplega sextíu manns og búast má við enn fleirum núna. Keppnin hefst stundvíslega klukkan 21:30 í kvöld.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 8. október 2008 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá:   1.       Fjármál og framkvæmdir 2.       Erindi til fjárlaganefndar 3.       Atvinnumál 4.       Félags- og skólaþjónusta A-Hún a)    Fundargerð stjórnar, 1. okt. 2008. b)   Fjárhagsáætlun 2008, endurskoðuð útgáfa. c)    Ábyrgð vegna lántöku í Lánasjóði sv.fél.   5.       Aðalskipulag a)    Drög að aðalskipulagi (sept 08) b)   Matslýsing vegna aðalskipulags (18.09.2008) c)    Fornleifaskráning Skagastrandar (tilboð í verkið)   6.       Bréf: a)    Eignarhaldsfélag BÍ, dags. 2. okt. 2008. b)   SSNV atvinnuþróunar c)    Umboðsmanns barna, dags. 20. sep. 2008. d)   Stjórnar smábátafélagsins Skalla, dags. 18. sept. 2008. e)    Alþjóðahúss á Norðurlandi, dags. 23. sept. 2008. f)     Strætó bs. dags. 17. sept. 2008. g)    Þórðar Skúlasonar, dags. 1. sept. 2008. h)   MX-klúbbs Skagastrandar, dags. 4. sept. 2008.   7.       Fundargerðir a)        Skipulags- og byggarnefnd, 15.09.2008 b)       Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 10.09.2008 c)        Stjórnar Byggðasaml um menningar og atvinnum. 31.07.08 d)       Heilbrigðisnefndar Nl.vestra, 26.08.2008. e)        Stjórnar Norðurár bs. 20.08.2008 f)         Stjórnar SSNV, 3.09.2008 g)        Ársþings SSNV, 19.-20.09.2008 h)       Stjórnar Sambands ísl. sv.fél, 22.08.2008.   8.       Önnur mál

Rósamál í Bjarmanesi á fimmtudaginn

    Rósamál heitir hin nýja ljóðabók Steinunnar P. Hafstað. Hún mun lesa upp úr bókinni fimmtudaginn 9. október næstkomandi í Kaffíhúsinu Bjarmanesi á Skagaströnd. Bók sem verð er allrar athygli. Í bókinni eru mögnuð ljóð, rík að lífsvisku og dýpt sem snertir strengi í hjarta lesandans. Steinunn P. Hafstað er fædd í Reykjavík og gaf út fyrstu bók sína fyrir fjórum árum ljóðabókina „Vertu sem lengst“. Í ljóðum Steinunnar er sannarlega engin lognmolla, en í þeim felst samt mikill friður, gleði og einlæg sátt.

Listamenn í október

    Núna um mánaðamótin komu nýjir listamenn í Nes-listamiðstöðina á Skagaströnd. Nokkur forföll hafa verið úr hópnum en þessir koma og eru þeir að sjálfsögðu boðnir velkomnir:   Anna S. Björnsdóttir  - rithöfundur og ljóðskáld  Sverrir Sveinn Sigurðsson - rithöfundur William Schlough - myndlistarmaður Kate Dambach - myndlistarmaður en hún kom í byrjun september og verður út nóvember Noemi Romano - hönnuður og textíllistamaður   Tveir listamenn af þeim sem voru hér í september munu koma aftur eftir áramótin, en það eru Jessica Langley og Ben Kingsley, bæði myndlistamenn frá Bandaríkjunum.    

Virðing og umhyggja - ákall 21. aldar

Námskeið á vegum Fræðsluskrifstofu A-Hún.   Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor við Háskóla Íslands, hélt námskeið fyrir kennara leik- og grunnskóla Húnavatnssýslna og Borðeyrar 25. september síðast liðinn. Umfjöllunarefnið var gagnkvæm virðing og umhyggja og hvernig  byggja á upp góðan bekkjar- og skólabrag og styrkja nemandann félagslega og námslega. Nálgaðist hún efnið þannig að fræði og framkvæmd voru tengd nánum böndum. Sérstaka áherslu lagði hún á leiðir við að leysa árekstra og ágreiningsmál. Þátttakendur unnu einnig verkefni í hópum. Myndir: Þátttakendur og  leiðbeinandi.  

Spurningakeppnin „Drekktu betur“

Guðbjörg Ólafsdóttir og Finnur Kristinsson sigruðu í spurningakeppninni „Drekktu betur“ í Kántrýbæ. Tæplega sextíu manns mættu og skemmtu sér hið besta enda spurningarnar frekar léttar.   Mjótt var á mununum í keppninni. Guðbjörg og Finnur fengu 23 stig en tvö önnur lið komu þétt á hæla þeirra með 22 stig. Bjórspurningin taldist líklega allt of létt. því henni svöruðu líklega þriðjungur liða rétt og í kjölfarið varð mikil örtröð á barnum enda bjórglas í verðlaun.  Keppnin þótti ágæt skemmtun og þátttakendur voru allir vel með á nótunum og létu til dæmis stjórnanda heyra það óþvegið þegar hann hélt því fram að KR væri Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu. Yfirleitt er sá sem spyr bæði dómari og alvaldur og þýðir ekkert að tjónka við hann jafnvel þó hann hafi sannarlega rangt fyrir sér. Í þetta skipti sá hann hins vegar að sér og var ljúfur og góður það sem eftir lifði leiks þrátt fyrir framíköll og glósur þátttakenda.   Spurningar í keppninni voru þrjátíu og var keppt í tveggja manna liðum. Gera má ráð fyrir að það taki rétt tæplega tvo tíma að spyrja spurninganna og fara yfir svörin, en hluti af leiknum er að fara yfir svör annarra.  Næsta keppni verður föstudaginn 10. október og stjórnandi verður þá Ólafía Lárusdóttir, starfsmaður BioPol ehf. á Skagaströnd.