Húnvetnskar hljóðheimildir

Í dag, 8. júní verður opnaður nýr vefur ismus.is þar sem verður hægt að hlusta á hljóðupptökur í eigu Fræðafélags Vestur-Húnvetninga sem hafa verið í geymslu Héraðsskjalasafnsins á Hvammstanga. Upptökurnar eru meðal annars viðtöl með lífsferilssögum 42 sveitunga frá 7.-10. áratug síðustu aldar, ásamt upptökum af mannamótum, skemmtunum og pólitískum fundum.Vefurinn með húnvetnsku upptökunum er undir heitinu "Fræðafélag" Afritun og skráning heimildanna er verkefni unnið að frumkvæði Rannsóknarseturs HÍ á Norðurlandi vestra á Skagaströnd í samvinnu við Tónlistarsafn Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Miðstöð munnlegrar sögu og Forsvars ehf. á Hvammstanga sem sá um skráninguna,. Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, Menningarsamningur Norðurlands vestra, Húnaþing vestra og Þjóðhátíðarsjóður styrktu verkefnið.

Leikskólinn Barnaból 35 ára 7. júní nk.

Leikskólinn Barnaból 35 ára 7.júní 2012 Á afmælisdaginn verður opið hús frá kl. 13:30 – 16:00 og öllum bæjarbúum boðið að koma í heimsókn Dagskrá: Kl 13:30-16:00 Opið hús: Sýning á verkefnum nemenda skólaárið 2011- 2012 og myndbandi AnneMaríe von Splunter sem hún tók í febrúar s.l. af „nýjum og gömlum“ nemendum Barnabóls Kl 14:00-14:45 Skoppa og Skrítla koma í heimsókn Kl. 15:00-16:00 Afmælisveitingar: Kaka, Svali og kaffi Föstudaginn 8. júní er einnig opið hús frá kl.09:30-16:00 og gestum boðið að koma og kynnast leikskólastarfinu, verkefnum nemenda og afmælismyndband AnneMaríe verður látið rúllar í tölvum yfir daginn. Allir hjartanlega velkomnir Nemendur, kennarar og foreldrafélag Leikskólans Barnabóls Leikskólinn Barnaból 35 ára 7.júní 2012 Myndbandsverk hollensku listakonunnar AnneMarie von Splunter var gert í febrúar 2012 og sýnir nemendur og kennara Barnabóls í nýju ljósi. Umsögn AnneMarie um gerð myndarinnar: Gerð myndarinnar, sem var m.a. innblásinn af leikskólastjóranum, var að ná myndum af eins mörgum og ég næði til á þeim mánuði sem ég hafði til verksins og ættu tengingar við leikskólann frá árinu 1977 til líðandi stundar. Óskað var eftir fyrrum nemendum og starfsfólki á heimasíðu Skagastrandar og öðrum samskiptasíðum á netinu. Fjöldi fullorðinna og barna brást við og skipulögðu einnig þátttöku systkina og skyldmenna sem voru flutt á Blönduós, Sauðárkrók og til Reykjavíkur. Þetta leiddi af sér 88 myndatökur! Sum barnanna sýndu sérstakan áhuga og komu með uppáhalds húfuna sína eða vildu vera á sérstökum stað við myndatökuna. Ég bað þau að snúa sér í hringi og halda myndavélinni í útréttri hendi og snúa linsunni að sér. Leikskólabörnin héldu á myndavélinni og sátu á skrifstofustól, þau yngstu á hnjám kennara. Stólnum var síðan snúið af vinum þeirra og oft varð úr hin skemmtilegasta uppákoma. Þar sem ung börn hafa stutta handleggi sést aðallega andlit þeirra. Myndskeið með þeim sem hafa vaxið meira og hafa öðlast meiri armlengd sýna meira af umhverfinu: heimili þeirra, hafinu, kirkjunni á Skagaströnd eða höfninni. Tónlistarkennarinn á staðnum Hugrún Sif Hallgrímsdóttir samdi fallegan vals við snúning myndanna og flutti á píanó, flautu og hljómborð með manni sínum Jóni Ólafi Sigurjónssyni sem lék á gítar í upptökunni. Myndin er gerð í takti tónlistarinnar, samspili hljóðs og myndar sem lífga hugmynd endurfunda, vals þorpsins í gegnum rás tímans og kynslóðanna. Til hamingju með afmælisárið Barnaból !! Um listamanninn: AnneMarie van Splunter er sjónlistamaður sem býr og starfar í Amsterdam. Verk hennar hafa margvíslegar birtingarmyndir: þær geta verið teppi úr salti eða sykurhaugar sem eru skammtíma innsetningar eða steinsteyptir leikvellir eða stál-garðhlið (styrktarverkefni unnið með fleirum fyrir rannsóknarstofnun byggingarmála) Til að ná sambandi við AnneMarie eða skoða verk hennar er hægt að fara á heimasíðu hennar: www.annemarievansplunter.nl

Opnun ljósmyndasýningar í íþróttahúsi

Ljósmyndasýning Arnars Ólafs Viggóssonar og Jóns Hilmarssonar verður opnuð í íþróttahúsinu á Skagaströnd í dag föstudaginn 1. júní og verður einnig opin á morgun laugardaginn 2. júní. Sýningin er hluti af dagskrá hátíðar sjómannadagsins og er opin kl 13-18 báða dagana.

Sjómannadagur

Golfkennsla

Golfkennsla Blönduós og Skagaströnd. Árni Jónsson, golfkennari verður með golfkennslu dagana 7. – 11. júní nk. Boðið verður upp á barna- og unglingahópa, byrjendur og lengra komna. Kennslan þessa 5 daga kostar 3000 krónur fyrir börn og unglinga. Einnig verður fullorðinskennsla, byrjendur og lengra komnir. Golfklúbbarnir hafa ákveðið að bjóða fullorðnum nýliðum í tvær kennslustundir og hvetjum við alla sem hafa áhuga að nýta sér þetta tækifæri. Skráning á Blönduósi er hjá Jóhönnu á netfangið jgjon@mi.is og á Skagaströnd hjá Dagnýju dagny@marska.is eða Guðrúnu Pálsd.pannug@simnet.isí síðasta lagi þann 1. júní næstkomandi. Nánari tímasetningar verða sendar út þegar skráningu lýkur. Golfklúbburinn Ós og Golfklúbbur Skagastrandar

Frá Tónlistarskóla A-Hún.

Skólaslit og afhending prófskírteina fyrir skólaárið 2011-2012 fer fram í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 26. maí n.k. kl:1600 Fram koma nemendur sem hafa lokið stigsprófum og nemendur 10. bekkja sem kveðja skólann. Allir velkomnir. Innritun fyrir næsta skólaár fer fram sem hér segir: Húnavöllum, föstudaginn 25. maí n.k. við skólaslit. Blönduósi, þriðjudaginn 29. maí n.k. kl 16-18 Skagaströnd, miðvikudaginn 30. maí n.k. kl 16-18. Skólastjóri.

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2012

„Bútar úr fortíð“ Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2012 Þann 28. maí, (annan í Hvítasunnu) kl. 15.00 mun Íris Ólöf Sigurjónsdóttir opna sýningu sína „Bútar úr fortíð“ í Heimilisiðnaðarsafninu. Íris hefur vakið athygli fyrir endurnýtingu og frumlega notkun hráefnis úr ýmsum áttum sem hefur verið einkennandi fyrir list hennar. Við opnunarathöfnina mun hún og eiginmaður hennar Hjörleifur Hjartarson (úr dúettinum „Hundur í óskilum“) taka lagið. Að vanda verður boðið upp á kaffi og kleinur, mjólk og kókómjólk fyrir börnin. Aðgangur er ókeypis á opnunina og allir hjartanlega velkomnir. Heimilisiðnaðarsafnið verður opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10.00 – 17.00

Sundlaugin opnuð

Sundlaug Skagastrandar verður opnuð fimmtudaginn 24. maí nk. Opnunartímar sundlaugar eru: · mánud. – föstudaga kl. 9.00-12.00 og 13.00-20.00 · laugardaga og sunnudaga kl. 13.00-17.00 Nú er komið vor og góður tími til að rifja upp sundtökin og láta fara vel um sig í pottinum. Allir í sund!!!!!

Ræktum okkar eigi grænmeti

Matjurtagarðarnir á Tótutúni hafa verið tættir og eru tilbúnir til notkunar. Garðarnir hafa verið úðaðir með Avalon til að hamla vexti á illgresi. Þeir sem hyggjast nýta sér plássið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Árna Geir í síma 861 4267.

Sýning í list- og verkgreinum í Höfðaskóla

Á morgun, miðvikudag 23.maí, er sýning í list- og verkgreinum í Höfðaskóla kl. 12. - 16. Þar sýna nemendur ýmis verk úr myndmennt, textílmennt, smíðum og heimilisfræði. Hvetjum alla bæjarbúa til að koma og skoða verkefni nemenda. Sumarkveðjur, starfsfólk og nemendur Höfðaskóla.