Gæsluvöllur

Gæsluvöllur verður starfræktur á leikvelli Barnabóls 10. júlí – 3. ágúst 2012 Gæsluvöllurinn verður opinn virka daga kl 13 - 16. Börn á aldrinum tveggja til sex ára geta sótt völlinn gegn 400 kr greiðslu fyrir hvert skipti. Í leikskólanum verður opin salernisaðstaða fyrir börnin en að öðru leyti verður fyrst og fremst um gæslu utandyra að ræða. Æskilegt er að börnin taki með sér nesti og er sérstaklega bent á að öll leikföng sem þau kunna að taka með sér eru á eigin ábyrgð. Þrátt fyrir áætlaðan opnunartíma er allur réttur áskilinn til að leggja þetta þjónustutilboð niður ef aðsókn að gæsluvellinum verður lítil eða engin. Sveitarstjóri

Starfsmaður í íþróttahús/sundlaug

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir starf í íþróttahúsi/sundlaug laust til umsóknar. Starfið er fólgið í vaktavinnu í íþróttahúsi yfir vetrarmánuðina og sundlaugarvörslu á sumrin. Leitað er eftir reglusömum starfsmanni sem er lipur í samskiptum, fær um sjálfstæð vinnubrögð og hefur hæfni til að starfa með börnum og unglingum. Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar og hægt að sækja þau á vef sveitarfélagsins www.skagastrond.is Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2012. Nánari upplýsingar veitir Árni Geir í síma: 861 4267. Sveitarstjóri

Atvinna í boði

Höfðaskóli auglýsir Stuðningsfulltrúa vantar við Höfðaskóla veturinn 2012 – 2013 Um er að ræða: · 50% stöðu stuðningfulltrúa á yngstastig · 75% stöðu stuðningsfulltrúa á miðstig · 30% stöðu stuðningsfulltrúa í Frístundaver yngsta stigs Umsækjendur þurfa að hafa gaman af að vinna með börnum, vera þolinmóðir, ákveðnir og sjálfstæðir í starfi. Menntun í uppeldisfræðum er kostur en ekki skilyrði. Umsóknir berist á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar eða á netfangið hofdaskoli@skagastrond.is Umsóknarfrestur er til 12. júlí, hægt er að nálgast umsóknar - eyðublöð á skrifstofu sveitarfélagsins eða á heimasíðu þess. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, í síma 452 2800 eða gsm 8490370. Skólastjóri

Kjör forseta Íslands 2012

Kjörfundur í Sveitarfélaginu Skagaströnd vegna forsetakosninganna fer fram í félagsheimilinu Fellsborg. Kjörfundur hefst klukkan 10.00 að morgni laugardagsins 30. júní 2012 og stendur til kl. 21.00 Kjörstjórnin.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 27. júní 2012 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Kosning oddvita og varaoddvita 2. Kjörskrá vegna forsetakosninga 2012 3. Búnaður í bókasafn 4. Rekstur íþróttahúss og sundlaugar 5. Bréf: a. Fjárlaganefndar Alþingis, dags. 18. júní 2012 b. Djásn og dúllerí, dags. 20. júní 2012 c. Sveitarstjóra til Farskóla Nl. vestra, dags. 15. júní 2012 d. RARIK dags. 16. maí 2012 e. Sveitarstjóra til Siglingastofnunar, dags. 14. júní 2012 f. Umhverfisráðuneytisins, dags. 20. júní 2012 g. Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Ísl. dags. 22. maí 2012 h. Maríu Ómarsdóttur og Ernu Hreinsdóttur, dags. í júní 2012 i. Hrafnhildar Sigurðardóttur, formanns SÍM, dags. 21. maí 2012 j. Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar, dags. 31. maí 2012 k. Centra fyrirtækjaráðgjöf, dags. 13. júní 2012 l. Tónlistarskólans á Akureyri, dags. 12. júní 2012 m. Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 11. apríl 2012 n. Framkvæmdastjóra SSNV, dags. 21. maí 2012 6. Fundargerðir: a. Fræðslunefndar, 14.06.2012 b. Hafnarnefndar, 04.06.2012 c. Stjórnar Félags og skólaþjónustu A-Hún, 07.06.2012 d. Stjórnar Byggðasamlags um Tónlistarskóla A-Hún, 04.05.2012 e. Stjórnar Fjölbrautarskóla Norðurl. vestra, 07.06.2012 f. Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 01.06.2012 g. Stjórnar SSNV, 19.06.2012 h. Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga. 25.05.2012 i. Stjórnar Hafnasambands Íslands. 16.05.2012 j. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 20.06.2012 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Kjörskrá vegna forsetakosninga

Kjörskrá vegna forsetakosninga 30. júní 2012 liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar. Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 9. júní 2012. Sveitarstjóri

Heimsókn bandaríska sendiherrans

Bandaríski sendiherrann, Luis E. Arreaga, kom í heimsókn til Skagastrandar 18. júní 2012 ásamt eiginkonu sinni Mary og dótturdótturinni Elenu. Sveitarstjórn hafði boðið sendiherranum formlega að koma í heimsókn til að kynna sér atvinnulíf, menningu og mannlíf á Skagaströnd en þó ekki síst til að kynnast Kántrýsetrinu, Kántrýbæ og þeirri tilhöfðun til bandarískrar menningar sem þar hefur þróast. Auk þess að skoða Kántrýbæ og hitta Kúreka norðursins fékk sendiherrann og fylgdarlið hans kynningu á Rannsóknarsetri HÍ, BioPol, Fiskmarkaði Íslands, Spákonuhofi, Nes – listamiðstöð, Hólaneskirkju og Greiðslustofu Vinnumálastofnunar. Allsstaðar voru góðar viðtökur við sendiherranum og veittar upplýsingar og tekin umræða um verkefni, störf og stefnur. Sendiherrahjónin, sem bæði eru sérstaklega góð viðkynningar, voru mjög áhugasöm um allt sem til umfjöllunar var og sýndu Skagaströnd mikinn áhuga. Í bloggi sendiherrans kemur einnig fram hans sýn á heimsóknina: http://ambassadorblogiceland.blogspot.com/2012/06/skagastrond-nice-blend-of-science.html

Laus staða leikskólakennara

Laus staða leikskólakennara við Leikskólann Barnaból Skagaströnd Leitað er að metnaðarfullum, jákvæðum og áhugasömum leikskólakennara eða starfsmanni með sambærilega uppeldismenntun sem er tilbúinn að taka þátt í kraftmiklu leikskólastarfi m.a. að vinna við gerð á nýrrar skólanámsskrár og skipulagningu faglegs starfs. Um er að ræða 50% starf á tímabilinu kl. 12 - 16/16:15. Viðkomandi þarf að geta hafið störf frá og með 15. ágúst 2012. Leikskólinn Barnaból er tveggja deilda leikskóli og auglýst starf er aðallega á deild með eldri nemendum á aldrinum 2½ - 6 ára. Ef ekki berast umsóknir frá leikskólakennurum eða fólki með sambærilega uppeldismenntun og sem uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða leiðbeinanda í stöðuna tímabundið til eins árs. Á Leikskólanum Barnabóli er leitast við að jafna kynjamun og karlmenn jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 28. júní 2012 Nánari upplýsingar gefur Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Sími 452-2706 eða á barnabol@skagastrond.is Heimsíða skólans er á leikskolinn.is /barnabo

Áminning um skráningu hunda og katta

Sveitarfélagið Skagaströnd minnir á að skylt er að skrá hunda og ketti á skrifstofu sveitarfélagsins á þar til gerðum eyðublöðum. Hunda skal skrá eigi síðar en mánuði eftir að þeir eru teknir á heimili og hvolpa eigi síðar en þeir verða sex mánaða gamlir. Mynd af hundinum og vottorð um að hundur hafi verið ormhreinsaður skulu fylgja umsókn um skráningu. Hundurinn skal skráður á nafn og heimilisfang lögráða einstaklings, og fær eigandi hundsins afhenta merkta plötu með númeri hundsins, sem jafnan skal vera í ól um háls hans. Árlegt gjald fyrir hunda er 9.000 kr. Allir heimiliskettir á Skagaströnd skulu skráðir á skrifstofu sveitarfélagsins gegn greiðslu skráningargjalds og þar fá eigendur heimiliskatta afhenta númeraða plötu með skráningarnúmeri kattarins, sem alltaf skal vera í ól um háls dýrsins. Árlegt gjald fyrir ketti er 2.500 kr. Reglur um hunda- og kattahald má finna á heimasíðunni: http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp

KUL - Könnun Umhverfisáhrifa á Listsköpun

KUL Könnun umhverfisáhrifa á listsköpun Skagaströnd 1. - 30. september 2012 KUL er þverfaglegt verkefni í listsköpun, í umsjón Nes listamiðstöðvar á Skagaströnd, sem haldið verður í september nk.. Verkefnið tengir saman íslenska og erlenda listamenn sem dvelja einn mánuð í listamiðstöðinni og því lýkur með hátíð, þar sem listamennirnir sýna hvernig Skagaströnd og nágrenni hefur áhrif á listsköpun þeirra. KUL verkefnið fjallar um listsköpun og áhrif umhverfisins á hana. Markmið verkefnisins miðar að því að skapa afurð sem hægt er að vinna að á staðnum, afurð sem er hagnýt, afurð sem getur verið þverfagleg og sem örvar huga og hönd. KUL miðar að því að skapa tengsl milli listforma, þar sem við erum til staðar og virk. Verkefnið kannar samræðuna milli staðarins og tilverunnar, hvernig við erum mótuð af innri og ytri aðstæðum og hina síkviku og gagnvirku mótun umhverfis og sjálfsins. Nes listamiðstöð auglýsir eftir tveimur íslenskum listamönnum, til að dvelja í listamiðstöðinni í september, sem eru tilbúnir til að taka þátt í KUL. Innifalin er frí dvöl í listamiðstöðinni og styrkur vegna efniskostnaðar, gegn framlagi listamannanna til verkefnisins. Lokahátíð KUL verður á Skagaströnd 29. september, með listkynningum og matarviðburðum, listamannanna, matreiðslumanna á svæðinu og heimamanna. Einn þáttur í KUL er matreiðsluverkefni sem Henry Fletcher, sérfræðingur í nýtingu vannýttra hráefna, stjórnar. Hann mun safna plöntum og sjávarfangi við strendur Skagastrandar og nágrennis og vinnur síðan með matreiðslumönnum á svæðinu að nýta hráefnin við að skapa nýjar mataruppskriftir og endurbæta gamlar. Þeir matreiðslumenn sem taka þátt í verkefninu eru Gunnar Sveinn Halldórsson í Kántrýbæ á Skagaströnd, Björn Þór Kristjánsson og Shijo Mathew í Pottinum Restaurant á Blönduósi og Jón Daníel Jónsson á Sauðárkróki. KUL er hugmynd sem Tanja Geis, Henry Fletcher, Jacob Kasper og Andrea Cheatham Kasper áttu frumkvæði að. Verkefnið er í umsjón Melody Woodnutt, framkvæmdastjóra Nes listamiðstöðvar. Nes listamiðstöð er staðsett á Skagaströnd og í ár dvelja þar yfir 100 listamenn frá fjölmörgum þjóðlöndum. Vaxtarsamningur Norðurlands vestra styrkir KUL verkefnið. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: http://neslist.is/ Netfang: Melody Woodnutt: nes@neslist.is Sími: Melody Woodnutt: 691 5554 Umsóknareyðublað: http://neslist.is/application/call-for-artists/