Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 15. apríl 2014 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: Ársreikningur 2013 (fyrri umræða) Atvinnumál Bréf Samorku dags. 1. apríl 2014 Rannsókna og ráðgjafar dags. í apríl 2014 Fundargerðir: Fræðslunefndar, 14.04.2014 Hafnarnefndar, 09.04.2014 Stjórnar Róta bs, 21.02.2014 Stjórnar Róta bs, 27.02.2014 Skólanefndar FNV, 18.03.2014 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 28.03.2014 Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 27.03.2014 Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 21.03.2014 Önnur mál Sveitarstjóri

Kynningarfundur 14.apríl um raunfærnimat

Fundurinn verður sendur út í fjarfundabúnaðinn í Námsverinu á efstu hæðinni í Gamla Kaupfélags-húsinu og í búnaðinn á Þverbraut 1 á Blönduósi. Taktu frá klukkutíma og kynntu þér þetta mál því það gæti gjörbreytt möguleikum þínum á atvinnumarkaðnum.

Mynd vikunnar

Útbæingar Skipting Skagastrandar í útbæ og innbæ var mun meira áberandi á árunum 1950 - 1970 en hún er nú í dag. Þá börðust fylkingar ungra út - og innbæinga með trésverðum og öðrum slíkum vopnum með reglulegu millibili en eins og úr öðrum stríðum heimsins kom ekkert út úr þeim orrustum nema stöku blóðnasir. Á þessari friðsemdarmynd eru nokkrir útbæingar framan við Höfðabrekku (Bankastræti 10) einhverntíma kringum 1960. Frá vinstri: Matthildur Hafsteinsdóttir Fossdal frá Dvergasteini, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) Höfðabrekku, Björn Hafsteinsson Fossdal, frá Dvergasteini (bróðir Matthildar), Ólöf Smith (Lólý) Höfðabrekku, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum, Heiðar Elvan Friðriksson Höfðabrekku, Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Ólafur Bernódusson Stórholti og Steindór R. Haraldsson Höfðakoti. Ef þú þekkir óþekktu krakkana endilega sendu okkur þá athugasemd á netfangið : ljosmyndasafn@skagastrond.is eða olibenna@hi.is .

Einstakt tækifæri !

Í kvöld fimmtudaginn 10. apríl klukkan 20:00 ætlar Svanhildur Gunnarsdóttir safnakennari hjá Árnastofnun að sýna fólki eftirlíkingu af þjóðargerseminni: Flateyjarbók. Svanhildur mun einnig sýna áhöld og efni eins og þau sem notuð voru við ritun bókarinnar á sínum tíma. Fólk fær að skoða, handfjatla og prófa þau verkfæri til að átta sig betur á hvílíkt þrekvirki Flateyjarbók er. Auðvitað mun Svanhildur líka svara spurningum sem vakna um bókina og önnur fornrit sem við eigum saman í Árnastofnun. Kynningin verður í Rannsóknasetrinu á Gamla Kaupfélaginu (gengið inn að vestanverðu) klukkan 20:00 í kvöld. Gríptu gæsina og komdu þó fyrirvarinn sé stuttur því þetta tækifæri kemur ekki aftur. RANNSÓKNASETUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Á NORÐURLANDI VESTRA

Samstarf Hjallastefnunnar við Skagaströnd

Sveitarstjórn Skagastrandar og Hjallastefnan ehf. hafa gert með sér viljayfirlýsingu um samstarf í skólamálum á Skagaströnd. Viljayfirlýsingin var undirrituð 31. mars sl. að afloknum kynningarfundi á Hjallastefnunni sem foreldrafélög skólanna á Skagaströnd héldu. Sveitarfélagið og Hjallastefnan ehf móta með viljayfirlýsingunni sameiginlega sýn á fyrirkomulag samstarfsins á Skagaströnd en í henni kemur m.a. fram: 1. Um leikskóla: Aðilar eru sammála um að frá og með dagsetningu undirritunar viljayfirlýsingarinnar hefjist Hjallastefnan handa við undibúning þess að gerður verði bindandi samningur um rekstur leikskólans Barnabóls á Skagaströnd. Stefnt er að því Hjallastefna taki við rekstri leikskóla frá miðju ári 2014. Í apríl verði unnið að gerð formlegs samings um leikskólann og þar með hefji Hjallastefnan aðlögun að breytingu í fagstarfi leikskólans sem væri m.a. fólgið í komu „gestakennara“ frá Hjallastefnuskólanum á Akureyri. Sömuleiðis færi starfsfólk frá Skagaströnd á Akureyri til að kynnast starfsemi Hjallstefnuleikskóla. Stefnt skuli að því að Hjallastefnan taki við mannaforráðum í leikskólanum 1. júní 2014. Fyrir þann tíma hafi fulltrúar Hjallastefnu farið yfir mönnun og starfsmannahald sem leiði af sér endurráðningu starfsmanna á forsendum Hjallastefnunnar. Ef samningar ganga eftir muni Sveitarfélagið Skagaströnd gefa út nýtt starfsleyfi til Hjallastefnu 1. ágúst 2014 fyrir sjálfstætt starfandi leikskóla. 2. Um grunnskóla: Aðilar eru sammála um að hefja samstarf um þróun grunnskólans í átt að Hjallastefnu og að skoðað verði með starfsfólki og foreldrum á skólaárinu 2014-2015 hvort grundvöllur er til að hefja formlegt samstarf eða gera samning um rekstur grunnskólans. Sá fyrirvari er gerður af hálfu beggja aðila að fjárhagslegt samkomulag náist og sameiginleg sýn á endanlegt fyrirkomulag og rekstur skólanna.

Mötuneyti Höfðaskóla í Kántrýbæ

Skráning í og úr mat fer alfarið í gegnum skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar. Skráningu er ekki breytt ef um tilfallandi fjarvistir vegna veikinda eða ferðalaga. Ef foreldrar sjá fram á að nemandi verði fjarverandi í 5 daga eða lengur er hægt að skrá nemandann úr mat tímabundið. Skráning eða tilkynningar vegan tímabundinnar fjarveru berist í síma 4552705 eða á netfangið skagastrond@skagastrond.is Skólastjóri Kveðja Hildur Ingólfsdóttir, skólastjóri

Mynd vikunnar

Jóhanna Hemmert. ----- Jóhanna Hemmert kaupmannsfrú á Skagaströnd var fyrsta konan sem kosin var í hreppsnefnd Vindhælishrepps hins forna árið 1910. Um þennan merka atburð má finna eftirfarandi klausu í tímaritinu Norðurland 29. tölublaði (16. 7.1910) 10. árgangi úr grein sem sem ber fyrirsögnina "Bréf frá Skagaströnd": "....... Nýmæli eru það, að konur séu kosnar í hreppsnefnd. Á hreppaskilum Vindhælinga nú í vor, var kona kosin í hreppsnefnd. Kona þessi er frú Jóhanna Hemmert á Skagaströnd. Einnig var hún kosin í fræðslunefnd. Það er sómi fyrir hreppsbúa að hafa riðið á vaðið með að kjósa konu í þessar nefndir og ættu sem flestir hreppar að gera hið sama. Einnig á frú J. Hemmert þakkir skilið fyrir að gefa kost á sér til þessara starfa. Vonandi að árlega fjölgi konum í hreppsnefndum víðsvegar um landið og eigi verði langt að bíða þess, að konur fái fult jafnrétti við karlmenn. Ritað í júní 1910. Skagstrendingur ". Þess má geta í þessu sambandi að konur og vinnuhjú, 40 ára og eldri, á Íslandi fengu ekki almennan kosningarétt fyrr en árið 1915. Á árinu 1882 fengu ekkjur og aðrar ógiftar konur, sem stóðu fyrir búi eða áttu með sig sjálfar, kosningarétt til að kjósa til hrepps- og sýslunefnda, bæjarstjórna og á safnaðarfundum ef þær voru orðnar 25 ára gamlar. Þó þessar konur mættu kjósa máttu þær ekki bjóða sig fram nema að uppfylltum ströngum skilyrðum um eignir, aldur og sjálfstæði. Lögunum var svo breytt 1920 þannig að þá fengu konur og vinnuhjú full pólitísk réttindi við 25 ára aldur.

Fundur v/Hjallastefnunar í Fellsborg í DAG

Kæru foreldrar barna í Leikskólanum Barnabóli og Höfðaskóla! Ákveðið var að hafa samband við forsvarsmenn Hjallastefnunnar og fá fulltrúa til að koma norður til okkar og segja okkur frá stefnunni og svara þeim spurningum sem brenna á foreldrum. Við viljum bjóða ykkur velkomin á fræðslufund Í DAG (mánudag) kl. 18 í Fellsborg. Með okkur verða Margrét Pála sjálf, Alfa leikskólastjóri og Lína aðstoðarleikstjóri á leikskólanum Hólmasól, Ingunn Eir og Sigrún Björg sem eru fulltrúar foreldra. Við biðjum ykkur að afsaka þennan stutta fyrirvara en við stukkum á tækifærið að hafa Margréti Pálu líka með okkur, áður en hún fer erlendis í frí. Kær kveðja stjórn foreldrafélags grunn og leikskóla

Mynd vikunnar

H 351 Adolf J. Berndsen, lengst til hægri, stendur hér við Dodge vörubíl sinn númer H 351. Maðurinn við hlið hans er óþekktur og hefur líklega verið gröfustjóri á gröfunni á myndinni. Adolf átti nokkuð marga vörubíla - H 351 - gegnum tíðina og vann sem vörubifreiðastjóri. Á þessari mynd er hann greinilega í malarflutningum e.t.v. í vegavinnu. Á þessum tíma var vinsælt hjá krökkum að fá að "sitja í" hjá bílstjórunum við vinnu sína. Sú er raunin á þessari mynd því Adolf er með þrjá unga farþega með sér í vinnunni. Það skal tekið fram að þessi mynd var tekin fyrir þann tíma að nokkrum var farið að detta í hug öryggisbelti í bílum. Myndin var sennilega tekin á sjöunda áratugnum í krúsinni/malarnáminu fyrir ofan Spákonufellsrétt. Senda upplýsingar um myndina

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 25. mars 2014 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: Samþykktir um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Framkvæmdir Fellsborg Lýsing í skóla Hitaveitutengingar Fræðslumál: Samstarf við Hjallastefnu Bréf skólastjóra dags. 19.03.2014 Erindi Nes listamiðstöðvar dags. 19.03.2014 Atvinnumál Hugmyndasamkeppni um sprotafyrirtæki Dimension of sound ehf Bréf UMFÍ, um Landmót UMFÍ 50+ dags. 28. febrúar 2014 UMFÍ um Unglingalandsmót UMFÍ 2017, dags. 28. febrúar 2014 Náttúrustofu Norðurlands vestra, dags. 27. febrúar 2014 Fundargerðir: Félags og skólaþjónustu A-Hún, 24.02.2014 Stjórnar Norðurár bs, 26.02.2014 Stjórnar SSNV, 14.10.2013 Stjórnar SSNV, 17.10.2013 Stjórnar SSNV, 21.10.2013 Stjórnar SSNV, 6.11.2013 Stjórnar SSNV, 21.11.2013 Stjórnar SSNV, 5.12.2013 Stjórnar SSNV, 16.12.2013 Stjórnar SSNV, 13.01.2014 Stjórnar SSNV, 23.01.2014 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 28.02.2014 Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 31.01.2014 Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 28.02.2014 Önnur mál Sveitarstjóri