Kjörskrá vegna forsetakosning

Kjörskrá vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016 liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar frá 15. júní til kjördags. Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 4. júní 2016. Athygli er vakin á því að kjósendur geta einnig kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá. http://www.skagastrond.is/frettir/users3/stjori/Kjörskrá%2025%20júní%202016.pdf Sveitarstjóri

Kjörskrá vegna forsetakosning

Kjörskrá vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016 liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar frá 15. júní til kjördags. Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 4. júní 2016. Athygli er vakin á því að kjósendur geta einnig kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá. Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Hestaskoðun. Sumarið 1991 heimsóttu leikskólakrakkarnir af Barnabóli hrossabóndann Gunnar Sveinsson. Á þessari mynd eru komnar á bak þær Jenný Lind Sigurjónsdóttir aftast, Anna María Magnúsdóttir í miðið og Eydís Inga Sigurjónsdóttir fremst en Gunnar heldur í hestinn. Ragnar Gunnarsson er í skræpóttri úlpu en Elva Ösp Gunnarsdóttir fylgist með til hægri. Þar standa líka starfsstúlkurnar Katrín Sigurjónsdóttir fjær og Bára Þorvaldsdóttir nær. Barnið sem Bára leiðir er óþekkt

Vatnslaust í dag frá 14-15

Vatnslaust verður í dag (08. júní) í Skeifunni og efri hluta Bogabrautar á milli 14 og 15.

Héraðsritið Húnavaka

Til íbúa Austur-Húnavatnssýslu USAH hefur staðið árlega að útgáfu héraðsritsins Húnavöku síðan 1961. Ritið er vettvangur húnvetnskrar sögu og menningar sem við höfum verið mjög stolt af. Sala bókarinnar undanfarin ár hefur þó farið minnkandi. Á þingi USAH í mars 2016 var ákveðið að gera tilraun til að auka dreifingu og lestur ritsins og verður ritið því sent inn á hvert heimili í sýslunni með valgreiðsluseðli í von um að með þessu móti væri hægt að lækka verð, auka vægi ritsins og fjölga lesendum þess. Með von um góðar viðtökur Stjórn USAH

Mynd vikunnar

Sjómannadagur 1966. Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á Skagaströnd frá árinu 1939. Fastur liður í hátíðahöldunum er kappróður þar sem sjómenn og aðrir reyna með sér. Fyrst voru notaðar skektur sem menn áttu til fiskveiða við kappróðurinn en árið 1948 voru í fyrsta sinn notaðir sérsmíðaðir kappróðrarbátar - Gustur og Gola - sem voru smíðaðir á Akureyri í bátastöð Kristjáns Nóa Kristjánssonar. Á hverju ári síðan hefur verið keppt á Gusti og Golu. Bátarnir eru nú í umsjón og geymslu slysavarnadeildarinnar Strönd á Skagaströnd. (Heimild: "Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár" eftir Lárus Ægi Guðmundsson, útg. 2009) Á þessari mynd frá sjómannadegi 1966 er sigursveit í kappróðri karla að taka við verðlaunapeningum sínum á planinu við Hafnarhúsið. Frá vinstri: Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), sem er að hengja pening á sjálfan sig því hann var kynnir dagsins auk þess að vera stýrimaður þessarar sigursveitar, Eiður Hilmarsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Viggó Brynjólfsson og Gunnar Sveinsson. Börnin eru óþekkt. Myndin er úr safni Jóns Pálssonar og Bjarkar Axelsdóttur.

Hátíðarhöld á Skagaströnd í tilefni sjómannadags

Sjómannadagurinn er á sunnudaginn og eins og venja er verður mikið um að vera á Skagaströnd í tilefni dagsins en hátíðarhöldin fara fram laugardaginn 4. júní. Björgunarsveitin Strönd hefur veg og vanda af deginum eins og áður. Dagskrá hefst klukkan 10:30 með skrúðgöngu frá höfninni að Hólaneskirkju. Dagskrá sjómannadagsins á Skagaströnd laugardaginn 4. júní 2016 Klukkan 10:30 Skrúðganga frá höfninni að Hólaneskirkju Fjölmennum á skrúðgönguna til að viðhalda þessari skemmtilegu hefð. Klukkan11:00 - Sjómannamessa í Hólaneskirkju Kór sjómanna syngur undir stjórn Hugrúnar S. Hallgrímsdóttur. Ræðumaður Að messu lokinni verður lagður blómkrans við minnismerki drukknaðra sjómanna til að heiðra minningu þeirra. Klukkan 13:15 Skemmtisigling Foreldrar hvattir til þess að fjölmenna með börn sín. Klukkan 14:00 Skemmtun á Hafnarhúsplani Skemmtun hefst á fallbyssuskoti. Kappróður og leikir á plani. Sjoppa á staðnum, gos, pylsur og sælgæti. Klukkan 15:30 Kaffisala í Fellsborg Rjúkandi heitt á könnunni og fjölbreytt bakkelsi. Hestamannafélagi! Snarfari býður börnum að fara á hestbak. Klukkan 23:00 Stórdansleikur í Fellsborg Bland ætla að sjá um fjörið á stórdansleik í Fellsborg. Allir að mæta og skemmta sér nú duglega. Listakonan Jónborg Sigurðardóttir Verður með sýningu á listaverkum sínum í Nesi listamiðstöð 4.-5. júní frá klukkan 14 til 17.

Ljósmyndasýning í Bjarmanesi

Ljósmyndasýningin ,,Leyst úr læðingi" verður í Kaffihúsinu Bjarmanesi á Skagaströnd júni-júli 2016 Vigdís H Viggósdóttir sýnir myndir sem hún tileinkar vorkomunni. Tileinkun: Veturinn kveður með kalda fætur, en vorið með varma í lófum sínum vaknar af vetrarblundi. Lífið er ýmist í burðarlið eða fætt og farið á stjá. Blátt ljósið leitar að gulum fleti til að gera veröldina græna.

Vinnuskóli Skagastrandar 2016

Vinnuskóli Skagastrandar er fyrir nemendur sem hafa nýlokið 8., 9. og 10. bekk Höfðaskóla. Markmið vinnuskóla er að gefa unglingum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu í sumarleyfi sínu. Vinnuskóli Skagastrandar er starfræktur í 10 vikur: Hann hefst 1. júní og lýkur 5. ágúst. Skráning í vinnuskólann er á skrifstofu sveitarfélagsins Daglegur vinnutími 10. bekkjar er frá 09:00-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga en á föstudögum til 12:00. Daglegur vinnutími 8. og 9.bekkja er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga ekki er unnið á föstudögum. Símar: Áhaldahús: 4522607 Árni Geir: 8614267 Netfang Vinnuskólans er ahaldahus@skagastrond.is

Skólaslit Höfðaskóla.

Skólaslit Höfðaskóla fara fram þriðjudaginn 31. maí n.k. og hefjast kl 18:00. Meðan á skólaslitum stendur eru nemendur beðnir um að sitja hjá forráðamönnum. Nemendur verða kallaðir upp á svið ásamt sínum umsjónarkennara þar sem þeir fá afhentan vitnisburð, byrjað á 1. og 2. bekk og svo koll af kolli. Að skólaslitum loknum verður kaffihlaðborð fyrir 10.bekkinga, aðstandendur þeirra og starfsfólk skólans. Við þökkum fyrir gott samstarf á liðnum vetri og hlökkum til að takast á við verkefnin sem framundan eru í samvinnu við nemendur, aðstandendur og samfélagið allt :-) Hafið það sem best í sumar :-)