Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi auglýsir.

Dagana 8/2-10/2 2016 verður krabbameinsleit á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi. Konur sem fengið hafa bréf frá leitarstöðinni eru hvattar til að panta tíma í síma 455-4100 milli kl 09:00-15:00 í síðasta lagi miðvikudaginn 3/2 2016. Ásdís H. Arinbjarnardóttir Yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslu Staðarumsjón Blönduósi The Health Care Institution of North Iceland

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 26. janúar 2016 kl 800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: 1. Endurskoðun samnings við Hjallastefnu 2. Þjónustusamningur um málefni fatlaðs fólks 3. Gjaldskrár sveitarfélagsins 4. Sala íbúða 5. Bréf: a. Lohja, dags. 11. desember 2015 b. Ámundakinnar, dags. 13. janúar 2016 6. Fundargerðir: a. Fræðslunefndar, 20.01.2016 b. Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún18.01.2016 c. Stjórnar SSNV, 12.01.2016 d. Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 29.12.2015 e. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 14.12.2015 f. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 18.01.2016 g. Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 15.01.2016 h. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 30.11.2015 i. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 11.12.2015 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Verslunin Borg Verslunin Borg , sem var í húsinu á myndinni, var ekta krambúð þar sem hægt var að fá keypt nánast hvað sem var til heimilisins. Verslunina áttu og ráku hjónin Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) og Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974). Hjónin bjuggu í húsinu - í austurenda þess - en verslunin var í meginhluta hússins. Kjallari var undir því og var hann nýttur fyrir hluta af lager verslunarinnar. Hinum megin við götuna var líka lagerhúsnæði, sem þau hjón áttu, en það hús stendur enn. Eftir að Sigurður lést var húsið selt rafmagnsfyrirtækinu Neistanum sem þá var í eigu þeirra Jóns Inga Ingvarssonar og Hallbjörns Björnssonar. Ráku þeir félagar saman rafverkstæði í húsinu í allmörg ár. Hallbjörn keypti síðan hlut Jóns Inga, þegar hann fór að starfa á öðrum vettvangi. Hallbjörn byggði stórt húsnæði yfir starfsemi sína ekki langt frá þessu húsi og þar hefur hann rekið Neistann til þessa dags (janúar 2016). Húsið á myndinni var svo rifið allnokkrum árum eftir að Neistinn hafði flutt í sitt nýja húsnæði.

Mynd vikunnar

Systkini. Myndin er tekin af systkinum í 70 ára afmæli Kára Kristjánssonar 5. desember 1984. Standandi frá vinstri: Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), afmælisbarnið Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001). Fyrir framan þá situr systir þeirra, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Litla stúlkan til hægri er Erla María Lárusdóttir sem er langömmubarn Láru. Myndin var tekin heima á Kárastöðum (Bankastræti 5), sem nú eru horfnir, en þar bjuggju þeir Kári og Sigurbjörn saman ásamt ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur.

Mynd vikunnar

Snjótittlingar Þessi mynd á að minna okkur á gefa smáfuglunum þegar hart er á jörð. Það getur verið ótrúlega gaman að fylgjast með þessum varkáru fuglum tína í sig korn eða brauðmola rétt fyrir utan gluggann. Kattaeigendur eru líka beðnir að huga að því að halda þeim fjarri fuglunum því veiðieðli kattanna er ekki auðvelt að temja. Myndina tók Hjalti Viðar Reynisson og sendi í Ljósmyndakeppni sveitarfélagsins árið 2010.