Landsbankinn og Pósturinn

Vegna herts samkomubanns og til að sporna gegn útbreiðslu Covid-19 geta viðskiptavinir aðeins fengið afgreiðslu í útibúum Landsbankans ef erindið er mjög brýnt og ekki er hægt að leysa úr því með öðrum hætti, þe. í sjálfsafgreiðslu eða með samtali við Þjónustuver. Til að fá afgreiðslu er nauðsynlegt að panta tíma fyrirfram. Breytingarnar tóku gildi að morgni þriðjudagsins 24. mars 2020 og gilda þar til samkomubanni stjórnvalda verður aflétt.

Yfirlýsing frá Samráðshópi um áfallahjálp í Húnavatnssýslum

Heimsendingar á bókum verður frestað til morguns 24. mars

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður heimsendingu bóka frestað til morguns 24. mars

Hertar aðgerðir heilbrigðisyfirvalda

Í ljósi hertra aðgerða til þess að stemma stigu við útbreiðslu Covid19 mun íþróttahús loka frá og með mánudeginum 23. mars.

Mynd vikunnar

Arnar og borgarísjaki

LOKSINS! Besta bakarí á landinu DEIG með pop up á Skagaströnd

Heimsendingar frá bókasafni

Vegna lokana á bókasafni munum við á meðan við getum bjóða upp á heimsendingar á bókum til íbúa á Skagaströnd. Hægt er að panta bækur á hefðbundnum opnunartíma safnsins í síma 452 2708

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra

Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra biðlar til einstaklinga á Norðurlandi vestra sem eru í sóttkví

Opnunartími á skrifstofu á meðan á samkomubanni stendur

Lokað verður fyrir almenna afgreiðslu á skrifstofu sveitarfélagsins á meðan á samkomubanni stendur.

Opnunartímar í íþróttahúsi vegna samkomubanns

Vegna opnunartíma í þróttahúsi og sundlaug munum við láta reyna á eftirfarandi verklag frá og með morgundeginum 18. mars.