12.08.2015
Skagginn 2015
Útisvið á Hólanesi laugardaginn 15. ágúst
Söngvaborg kl 13.00
Barna- og fjölskylduskemmtunin Söngvaborg verður á útisviði þar sem Sigga Beinteins og María Björk mæta með Söngvaborg ásamt Subba sjóræningja og leynigesti.
Söngvaborg er þekkt fyrir skemmtilegt efni í leik, tali og tónum þar sem alls konar persónur koma við sögu.
Dagskráin er studd af Minningarsjóði um hjónin frá Garði og Vindhæli
Tónlistardagskrá kl. 21:00-23:00
Á útisviðinu koma fram nokkur ungmenni á Skagaströnd ásamt eldri og reyndari tónlistarmönnum.
Unglistamennirnir; Eymundur, Laufey Lind, Snæfríður, Guðný Eva, Arna Rún, Kristmundur og Jón Árni munu syngja og leika á ýmis hljóðfæri og standa fyrir tónlistarveislu undir stjórn Guðmundar Egils.
Nes listamennirnir; Cristina og Beate munu sýna dans við undirleik kontrabassa.
Trúbadorinn; Gunnar S. Björnsson mun taka nokkur lög og hita upp fyrir ball með Trukkunum sem verður á Borginni seinna um kvöldið.
Gítarsnillingurinn; Gummi Jóns mun taka góða syrpu af lögum sínum eins og honum einum er lagið.
Varðeldur verður kveiktur kl 23.00 og þá mun Guðmundur Egill ásamt fleiri góðum stýra varðeldasöngvum.
07.08.2015
Dagskrá bæjarhátíðarinnar Skaggans 2015 liggur nú fyrir og verður borin í hús um helgina. Nánari útfærsla einstakra atriða verður kynnt á næstu dögum. Tómstunda- og menningarmálanefnd stendur fyrir dagskránni og óskar eftir samstarfi íbúa en einkum þó gleði þeirra og jákvæðu viðhorfi til að gera sér dagamun og eiga góðar stundir saman.
Skagginn 2015
Föstudagur 14. ágúst
10:30 - 24:00 Bjarmanes Café
Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.
Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.
13:00 - 17:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd
Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.
13:00 - 18:00 Spákonuhof
Sýning- Þórdís spákona. Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.
18:00 Skagganum skotið af stað með fallbyssu við Bjarmanes Café
18:30 - 21:00 Útigrill á Borginni og hlaðborð inni
Tilboð á grillveislu í tilefni dagsins.
21:00 - 22:00 Ljóðaganga um Höfðann
Gengið um Höfðann og stansað á nokkrum stöðum til að lesa ljóð.
Lagt af stað frá Tjaldklaufinni.
21:00 - 24:00 Kósýkvöld í sundlauginni
Boðið upp á kaffi – sumarsvala og stemningu,
Frá kl. 22 verður 16 ára aldurstakmark.
23:00 - 01.00 Lifandi tónlist á Borginni (opið til kl. 03)
Gummi Jóns og Hjörtur Guðbjarts leika og syngja (frítt inn).
Laugardagur 15. ágúst
10:30 - 23:00 Bjarmanes Café
Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.
Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.
10:30 - 11:30 Froðudiskó á Kaupfélagstúni
10:30 - 12:00 Björgunarsveitin Strönd sýnir bíla og búnað
Við Björgunarsveitarhúsið Bjarnabúð.
10:00 - 11:00 Sjósund við Höfðann, mæting við sundlaug
Sundlaugin er opin kl 10:00 – 12:00. Lokað eftir hádegi.
12:00 – 13.00 Víðavangshlaup Umf. Fram við Höfðaskóla
Skráning á staðnum.
12:00 - 12:30 Björk
Skógræktarfélagið gróðursetur bjarkir í skjóli Spákonuhofs.
12:00 – 14:00 Samkaup Úrval býður upp á grillaðar pylsur
13:00 - 18:00 Sveitamarkaður í tjaldi við Árnes
Skráning söluaðila; gudlaug.gretars@gmail.com, 893 2645.
13:30 – 14:30 Opið listaverk í Bjarmanesi
Linda - listamaður í Nes byrjar á mynd sem gestir geta tekið þátt í.
14:00 – 17:00 Kaffihlaðborð í Bjarmanes Café, með gamaldags ívafi
Verð 1.800 kr; 6-11 ára 750 kr.; 0-5 ára frítt.
Flaututónlist Sibylle frá Nes listamiðstöð.
14:00 - 16:00 Grímugerð og andlitsmálun (Bjarmanes Café, neðri hæð)
13:00 - 17:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd
Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.
13:00 - 18:00 Spákonuhof
Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.
14:00 – 14:30 Spákonugjörningurinn „Rúnakast – spáð í framtíðina“
Við Spákonuhofið.
14:00 - 15:00 Snarfari – hópreið hestamanna og teymt undir börnum
Teymt á Hnappstaðatúni.
13:00 – 15:00 Minigolfmót á svæðinu fyrir ofan Bjarmanes Café
Spilaðar sex holur, verðlaun fyrir 1. sæti – frítt.
„Hola í höggi“ á Hólanesi
Slegið á haf út til að hitta í fljótandi „holu“ (1.000 kr./3 boltar).
13:30 – 17:00 Hoppukastali á Hólanesi
14:00 – 17:00 Loftbolti á sparkvellinum (500 kr. / skipti).
13:00 - 13:30 Söngvaborg – barna og fjölskylduskemmtun
Skemmtunin verður á útisviði á Hólanesi.
15:00 - 18:00 Opin vinnustofa í Nes listamiðstöð
Kennsla í gerð heimatilbúinna myndavéla (12 ára og eldri).
21:00 - 23:00 Tónleikar á útisviði á Hólanesi
Ungir tónlistarmenn hefja skemmtunina og nokkrir eldri og reyndari taka einnig lagið. Guðmundur Egill, Gummi Jóns og fl. Dansatriði frá Nes – Cristine og Beate.
23:00 - 24.00 Varðeldur á Hólanesi
Varðeldasöngvar og kvöldstemning.
23:00 - 03:00 Ball á Borginni
Hljómsveitin Trukkarnir leikur fyrir dansi (2.000 kr).
Sunnudagur 16. ágúst
11:30 – 14:00 Brunch á Borginni
13:00 – 16:00 Gengið á Spákonufell
Lagt af stað frá golfvelli – leiðsögn.
13:00 - 21:00 Bjarmanes Café
Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.
Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.
13:00 - 17:00 Lummukaffi í Árnesi, elsta húsinu á Skagaströnd
Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.
13:00 - 18:00 Spákonuhof
Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.
07.08.2015
Slysavarnaæfing.
Að lokinni slysavarnaæfingu hjá Björgunarsveitinni í
nóvember 1987.
Hér hafa félagar í sveitinni stillt sér upp til myndatöku utan
við Bjarnaborg, sem þá var hús sveitarinnar.
Á myndinni eru frá vinstri: Davíð Reynisson, Sigurjón Ástmarsson,
Árni Geir Ingvarsson, Gísli Snorrason, Ástmar Kári Ásmarsson,
Frits Hendrik Berndsen, Helgi Gunnarsson, Margrét Ólafsdóttir,
Birna Sveinsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Magnús Sigurðsson
og Jóhannes Sveinsson.
Helgi, Margrét, Birna og Magnús klæðast "Hannes original" sem
var appelsínugulur anorak með góðum vasa framan á
nefndur eftir Hannesi Þ. Hafstein sem lengi var framkvæmdastjóri
og forstjóri Slysavarnafélags Íslands.
Árni Geir, Gísli, Kári og Hendrik eru í þurr-björgunarbúningum
sem notaðir voru af þeim sem voru um borð í Þórdísi, sem
var björgunarbátur sveitarinnar.
31.07.2015
Innbæingar.
Á árum áður skiptist Skagaströnd í útbæ og innbæ.
Svo var að minnsta kosti í hugum barna og unglinga og
stundum laust saman fylkingum út- og innbæinga.
Í dag eru mörkin milli bæjarhlutana ekki eins klár þannig að
slíkir bardagar eiga sér ekki stað lengur.
Á þessari mynd, af nokkrum innbæingum, sem var tekin á lóðinni
við Grund sennilega upp úr 1960, eru frá vinstri:
Kristinn Ágústsson Blálandi, Kristófer Einarsson Dagsbrún,
Guðbjörg Viggósdóttir (nær), Gunnlaugur Sigmarsson (fjær),
Díana Kristjánsdóttir Grund (næst), Gísli Bergsson Hólanesi (fjær),
Fritz Bjarnason Bjargi, Linda Kristjánsdóttir Grund (næst),
Hallbjörn Ágústsson Blálandi (í miðið), Hjörtur Guðbjartsson (fjærst),
Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) (nær), Bogi Ingvar Traustason,
Heiðar Elvan Friðriksson (nær) og Ómar Jakobsson Grund (fjær) með heimilisköttinn Klóa.
29.07.2015
Á fundi um umhverfismál sem haldinn var á Skagaströnd sl. vor flutti James Kennedy sjávarlíffræðingur hjá BioPol fyrirlestur um plastmengun í hafi. Í texta hans og myndmáli með fyrirlestir kom skýrt fram hve ógnvænlegur sóðaskapur mannsins er í umgengni við hafið sem er ein af undirstöðum lífs á jörðinni.
James hefur ásamt konu sinni Karin verið iðinn við að tína saman og færa til endurvinnslu allt það plast sem finnst á fjörum í nágrenni við Skagaströnd. Þau eiga mikinn heiður skilinn fyrir að hafa með því móti sett fram fyrirmynd sem við öll ættum að tileinka okkur. Magnið sem rekur á fjörur er með ólíkindum og ógnin við lífríkið meiri en við almennt gerum okkur grein fyrir í daglegu lífi. Fyrir forgöngu James og Karin var sett af stað verkefni þar sem BioPol og sveitarfélagið Skagaströnd standa saman að því verkefni að hvetja alla sem ganga um fjörur sem og önnur náttúrusvæði til að taka með sér það plast sem verður á vegi þeirra og koma í ferli sorps og endurvinnslu.
Það er ugglaust hægt að finna ótölulegan fjölda skýringa á því hvers vegna svo mikið plast er að finna í hafinu og annarsstaðar í okkar „hreinu náttúru“. Umgengni við hafið er vissulega orðin miklu betri en áður þar sem sorpi er ekki lengur sturtað beint í sjóinn og reglur hafi verið settar um að sjófarendum sé óheimilt að kasta sorpi í hafið. Það er hins vegar vel þekkt að á okkar stormasömu eyju fýkur allt sem laust er ekki síst hið létta plast þegar hvassviðri ganga yfir. Við þurfum því að huga betur að því að laust efni – ekki síst plast, geti ekki fokið á haf út gert þar usla í umhverfi og lífríki. Við sem neytendur þurfum líka að huga betur að því hvað efni við drögum að okkur í daglegri neyslu, efni sem við í mörgum tilfellum notum ekki nema til að koma neysluvörunni á milli verslunar og heimilis, efni sem oftast flokkast undir efnaheitið PLAST.
27.07.2015
Reikna má með tímabundnum vatnstruflunum í Mýrinni eitthvað fram eftir degi.
24.07.2015
Mynd vikunnar
Mynd vikunnar tók Herdís Þ. Jakobsdóttir
Sagt er að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Líklega er þetta alveg rétt og þess vegna syrgir líka heilt þorp þegar eitt af þessum börnum hættir að ganga veginn með okkur og fer að ganga um aðra og bjartari vegi. Ósögð orð sækja á hugann og áleitnar spurningar, sem engin svör fást við. Fyrst og fremst dvelur þó hugur þorpsbúa hjá þeim sem næst barninu stóðu því þeirra sorg er óendanlega sár. Stöndum saman og tökum utan um hvert annað á erfiðum stundum .
17.07.2015
Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð frá kl. 12 í dag vegna sumarleyfa.
14.07.2015
Við Höfðaskóla er laus staða stuðningsfulltrúa. Vinnutími er frá 7:30 til 15:30. Nánari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri í síma 8624950.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist á netfangið hofdaskoli@skagastrond.is .
Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí n.k.
Vera Ósk Valgarðsdóttir, skólastjóri.
09.07.2015
Lárus Ægir Guðmundsson á Skagaströnd hefur kynnt tvær nýjar bækur sem hann hefur tekið saman, skráð og gefið út.
Hér er um að ræða bækurnar - Leiklist á Skagaströnd 1895 – 2015 og Kvenfélagið Eining Skagaströnd 1927 – 2013.
Kvenfélagið Eining var stofnað 1927 og hefur síðan stuðlað að framförum og þróun sam- félagsins og auðgað það með ýmsum menningarviðburðum og öðru starfi. Félagið stóð fyrir stofnun og rekstri sjúkrasjóðs, tók þátt í byggingu félagsheimilisins Fellsborgar og lagði fjármuni í byggingu Hólaneskirkju ásamt ýmsu öðru markverðu. Gjafir félagsins eru ótrúlega margar og flestar til ýmissa góðgerða- og framfaramála á Skagaströnd og nágrenni. Verðmæti þeirra skiptir mörgum tugum milljóna króna væru þær reiknaðar til núvirðis. Félagið hefur alla tíð ályktað um hugðarefni samtímans og lagt fram uppbyggilegar tillögur og barist fyrir framgangi þeirra.
Leikstarfsemi hefur í langan tíma verið töluverð á Skagaströnd og koma þar margir við sögu. Að því er best er vitað var fyrsta leikritið sett upp í kauptúninu árið 1895. Leikfélag Höfðakaupstaðar var stofnað 1945 og Leikklúbbur Skagastrandar 1975. Fjöldi leikrita lifnuðu við á fjölum þeirra sex húsa sem gegnt hafa hlutverki leikhúss. Sögurnar úr starfinu eru margar og einnig er til fjöldi skemmtilegra mynda. Hér er lögð áhersla á að varðveita söguna, nöfn og myndir af þeim sem þátt tóku í stórmerkilegu menningarstarfi.
Útgáfa bókanna var styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.
Lárus Ægir hefur áður gefið út 4 bækur en það eru: Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár sem kom út 2009, Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 – 2010 útgefin 2011, Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 – 2012 og Björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd 80 ára en báðar þessar bækur voru útgefnar árið 2012.