Málþing um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld

Laugardaginn 7. nóvember næstkomandi efna Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og sagnfræðideild Háskóla Íslands til málstofu um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld. Málstofan er hluti af námskeiði í sagnfræði og gera sjö sagnfræðinemar grein fyrir rannsóknum sínum um efnið. Kennari námskeiðsins er Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Harpa Ásmundsdóttir sagnfræðinemi. Málstofan fer fram í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra að Einbúastíg 2 á Skagaströnd. Hún hefst kl. 14 og eru allir velkomnir og frítt inn. Átjándu aldar kökur í kaffihléinu. DAGSSKRÁ í Rannsóknasetri Háskólans, Skagaströnd 7. nóvember kl. 14. Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og sagnfræðideild Háskóla Íslands efna til málstofu um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld. Málstofan er hluti af námskeiði í sagn-fræði og gera sjö sagnfræðinemar frá rannsóknum sínum um efnið. Kennari námskeiðsins er Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Harpa Ásmundsdóttir sagnfræðinemi. Málstofan hefst kl. 14 og eru allir velkomnir og frítt inn. Átjándu aldar kökur í kaffihléinu. 14:00: Setning 14:10-14:30 Baldur Þór Finnsson: Ríkidæmi Þingeyraklausturs. Óánægður almúgi og innheimta yfirvalda 14:30-14:50 Þórður Vilberg Guðmundsson: Hungurdauði og hallæri í Húnavatnssýslu 1755 -1756 14:50-15:10 Brynhildur L. Ragnarsdóttir: Dauðamein Húnvetninga í Tjarnarsókn 1785 til 1815 Kaffihlé 15:10-15:40 15:40-16:00 Bjarni Þ. Hallfreðsson: Fólk á Vatnsnesi. Hvernig þróaðist byggð og félagsgerð byggðarinnar á norðanverðu Vatnsnesi á 18.öld? 16:00-16:20 Hafdís Líndal: Byggð og búfé í Vatnsdal 16:20-16:40 Linda Ösp Grétarsdóttir: Sakamál í Húnavatnssýslu á árunum 1756-1760. Framkvæmd refsinga 16:40-17:00 Þórdís Lilja Þórsdóttir: Blóðskömm í Húnavatnssýslu 1720 – 1806. Dómar og refsingar fyrir blóðskömm í Húnavatnsýslu Vinsamlegast, Vilhelm Vilhelmsson

Áhugaverðir fyrirlestrar um sagnfræði

Málstofa um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld í Rannsóknasetri Háskólans, Skagaströnd 7. nóvember kl. 14. Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og sagnfræðideild Háskóla Íslands efna til málstofu um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld. Málstofan er hluti af nám­skeiði í sagn­fræði og gera sjö sagnfræðinemar frá rannsóknum sínum um efnið. Kenn­ari námskeiðsins er Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Harpa Ásmunds­dóttir sagn­fræðinemi. Málstofan hefst kl. 14 og eru allir velkomnir og frítt inn. Átjándu aldar kökur í kaffihléinu. 14:00: Setning 14:10-14:30 Baldur Þór Finnsson: Ríkidæmi Þingeyraklausturs. Óánægður almúgi og innheimta yfirvalda 14:30-14:50 Þórður Vilberg Guðmundsson: Hungurdauði og hallæri í Húnavatnssýslu 1755 -1756 14:50-15:10 Brynhildur L. Ragnarsdóttir: Dauðamein Húnvetninga í Tjarnarsókn 1785 til 1815 Kaffihlé 15:10-15:40 15:40-16:00 Bjarni Þ. Hallfreðsson: Fólk á Vatnsnesi. Hvernig þróaðist byggð og félagsgerð byggðarinnar á norðanverðu Vatnsnesi á 18.öld? 16:00-16:20 Hafdís Líndal: Byggð og búfé í Vatnsdal 16:20-16:40 Linda Ösp Grétarsdóttir: Sakamál í Húnavatnssýslu á árunum 1756-1760. Framkvæmd refsinga 16:40-17:00 Þórdís Lilja Þórsdóttir: Blóðskömm í Húnavatnssýslu 1720 – 1806. Dómar og refsingar fyrir blóðskömm í Húnavatnsýslu

Fréttatilkynning frá Nes Listamiðstöð

Nes Listamiðstöð hefur verið starfrækt frá árinu 2008 og hefur gengið í gegnum ýmislegt í rekstri sínum frá stofnun. Það er vissulega eðlilegt að ný starfsemi geti átt erfitt uppdráttar fyrstu árin og ákveðið gleðiefni að á síðustu tveimur árum hefur verið meiri stöðugleiki í rekstri listamiðstöðvarinnar og ánægjulegt að segja frá því að undanfarin þrjú ár hefur hún skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Horfur eru einnig nokkuð góðar því allt komandi ár er að mestu fullbókað. Fasteignakaup Í sumar var tekin nokkuð stór stefnumarkandi ákvörðun þegar stjórn félagsins samþykkti að kaupa efri hæð Fellsbrautar 2. Kaupin voru gerð til að hýsa þá listamenn sem eru gestir Nes Listamiðstöðvar á hverjum tíma. Kaupin voru fjármögnuð með eigin fé og lántöku í Landbankanum. Stjórn telur að þessi ráðstöfun muni létta rekstur félagsins m.a. í ljósi þess að sagt hefur verið upp leigu á þremur íbúðum sem áður voru notaðar í þessum tilgangi. Stefnumótunarvinna/fundarboð Stjórn Nes Listamiðstöðvar hefur einnig ákveðið að ráðast í stefnumótun fyrir listamiðstöðina. Njörður Sigurjónsson sérfræðingur frá Háskólanum í Bifröst hefur verið ráðinn til þess að stjórna þeirri vinnu. Markmið stefnumótunarinnar er í raun að greina núverandi hlutverk félagsins og marka því stefnu til komandi ára. Haldinn hefur verið einn undirbúningsfundur með stjórn félagsins en fimmtudaginn 12. nóvember nk. er fyrirhugað að halda opinn fund um málið. Þar býðst öllum að koma sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu eða lýsa skoðun sinni á starfsemi félagsins. Fundurinn verður auglýstur nánar þegar nær dregur en stjórn bindur miklar vonir við að fólk hafi áhuga á að taka þátt í þessari vinnu. Stjórn Nes listamiðstöðvar þakkar þeim mörgu sem hafa beint og óbeint stutt við þetta óvenjulega verkefni og þannig hjálpað til að gera það að frumkvöðlaverkefni sem litið er til víða um land. Fh Nes Listamiðstöðvar Halldór Gunnar Ólafsson Stjórnarformaður

Mynd vikunnar

Sérhæfðir fiskvinnslumenn. Fólkið á þessari mynd var starfsfólk Hólaness hf meðan þar störfuðu kringum 40 manns við fiskvinnslu. Fólkið sat námskeið á vegum fyrirtækisins 1987 og hlaut eftir það starfsheitið: Sérhæfður fiskvinnslumaður. Hólanes hf hélt sínu fólki kaffisamsæti við lok námskeiðsins og öllum voru afhent skírteini og blóm í tilefni dagsins. Frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Guðbjartur Sævarsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Rúnar Jóhannsson er á bakvið óþekkta konu, Fjóla Jónsdóttir, Magnús Guðmannsson, Guðrún Magnúsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Gunnar Stefánsson, Soffía Pétursdóttir, Arnar Arnarsson, Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), Amy Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Þórunn Þorláksdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Matthildur Jónsdóttir (d. 5.6.2015), Þorgeir Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Erna Högnadóttir, Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) og Erna Sigurbjörnsdóttir. Myndin var tekin í kaffistofu Hólaness hf.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 4. nóvember 2015 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Fjáhagsáætlun 2016 - 2019 (fyrri umræða) Samningur um sóknaráætlun Norðurlands vestra Bréf: Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytis, dags. 20. október 2015 Bryndísar Valbjarnardóttur, sóknarprests dags. 20. október 2015 Eftirlitsnefndar með fjármálum sv. fél. dags. 7. október 2015 Svarbréf sveitarstjóra til EFS, dags 22. október 2015 Tölvubréf Impru Nýsk.miðst. Íslands, dags. 12. október 2015 Fundargerðir: Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún 27.07.2015 Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún 15.09.2015 Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 2.06.2015 Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 30.09.2015 Ársreikningur Tónlistarskóla Austur Húnvetninga 2014 Fulltrúa aðildarsveitarfélag Róta bs 14. október 2015 Stjórnar Róta bs., 20.10.2015 Samþykktir fyrir byggðasamlagið Rætur bs. Þjónustusamningur sveitarfélaga Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Mjólkurpósturinn kemur Á myndinni, sem tekin var í kringum 1950, er Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978), sem þá var bóndi á Efri Harrastöðum, með kerru sína fulla af börnum. Gunnlaugur og fleiri bændur á Skaga seldu bæjarbúum á Skagaströnd mjólk og fluttu hana til kaupenda í mjólkurbrúsum á kerrum sínum eða sleðum aftan í dráttarvél eða hesti. Krakkarnir í hverfinu hópuðust að þegar mjólkurpósturinn kom og fengu að fljóta með smá spöl í því farartæki sem notað var hverju sinni. Á myndinni má þekkja Birgi Þórbjarnarson á Flankastöðum, sem stendur hjá kerrunni. Fyrir aftan hann er Sveinn Torfi Þórólfsson og Árni Þórólfsson (fjær) og aftast er Almar Þórólfsson (dökkhærður) sem allir áttu heima í Höfðaborg. Halla Bernódusdóttir Stórholti er hægra megin við Birgi og hallar sér fram með úlpuhettu yfir höfðinu. Litla ljóshærða stúlkan við hlið Höllu er Elínborg Ingvarsdóttir í Sólheimum. Næst henni hægra megin er Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum með barn í fanginu (Halla Jökulsdóttir ?). Þórunn Bernódusdóttir Stórholti er ljóshærð lengst til hægri og framan við hana er dökkhærð Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin í Bankastræti og húsin sem sjást eru Höfðabrekka til vinstri og Bjarnarhöfn til hægri.

Breyting á sorphirðu og opnunartímum gámastæðis

Sveitarfélagið Skagaströnd hefur gert samning við Sorphreinsun VH um breytingu á tíðni sorphirðudaga og opnunartíma endurvinnslustöðvar. Frá 1. nóvember 2015 verða sorphirðudagar á þriggja vikna fresti samkvæmt neðanrituðu sorphirðudagatali og nýju dagatali sem verður gefið út í desember fyrir 2016. Jafnframt breytist tíðni losunar endurvinnslutunnu og verður sömu daga og almenna sorphirðan. Opnunartími gámastöðvar breytist þannig að eftir 1. nóv. verður gámastöðin opin á þriðjudögum kl 14-17 og á laugardögum kl 13-16. Opnunartími á fimmtudögum fellur niður. Sveitarstjóri OKTÓBER Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 NÓVEMBER Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 DESEMBER Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

Mynd vikunnar

Skátar - ávallt reiðubúinn . Öflugt skátastarf var á Skagaströnd á sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda. Meirihluti unglinga á Skagaströnd, á þessum árum, tók þátt í skátastarfinu sér til uppbyggingar og ánægju. Þessi mynd var tekinn af hópi skáta úr Sigurfara, sem var nafn skátafélagsins á Skagaströnd, að leggja af stað í gönguferð á Spákonufellsborg í vetrarfærð. Frá vinstri: Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti, Birgir Júlíusson Höfðabergi, Kristinn Lúðvíksson Steinholti, Þórunn Bernódusdóttir Stórholti, Pálfríður Benjamínsdóttir Skálholti, Jóhann Björn Þórarinsson Höfðaborg, Hrafnhildur Jóhannsdóttir Blálandi og Hallbjörn Björnsson Jaðri. Í baksýn er hluti af útbænum með mörgum húsum sem eru horfin í dag. Myndina, sem sennilega var tekin einhverntíma á árunum 1965 - 1970, tók Þórður Jónsson sem lengi var félagsforingi Sigurfara.

Zumba námskeið

Zumba námskeið fyrir káta krakka hefst þriðjudaginn 20.október í Félagsmiðstöðinni Undirheimum á Skagaströnd

Aðalfundur foreldrafélags Höfðaskóla

Aðalfundur Aðalfundur foreldrafélags Höfðaskóla verður haldinn þriðjudaginn 20. október 2015 kl. 17:00 í íþróttahúsi. Dagskrá fundarins: * Skýrsla formanns * Reikningar lagðir fram * Kosning nýrrar stjórnar * Bekkjarfulltrúar * Bréf frá Skólafélaginu Rán * Önnur mál Stjórnin