Íbúafundur miðvikudaginn 18. mars um aðalskipulag

Boðað er til almenns íbúafundar í Fellsborg 18. mars n.k. kl. 17  um tillögur að aðalskipulagi og Staðardagskrá 21 . Kynnt verða drög að landnotkun fyrir sveitarfélagið í heild, þéttbýli á Skagaströnd og matslýsing aðalskipulagsins. Ennfremur verða kynntar tillögur að málaflokkum Staðardagskrár og verkefnum innan þeirra (sjá nánar um hvað Staðardagskrá 21 er hér fyrir neðan). Ráðgjafar frá Landmótun og Staðardagskrá 21 gera grein fyrir tillögum og taka á móti athugasemdum. Aðal tilgangur fundarins verður að leita eftir ábendingum og athugasemdum, gefa íbúum og hagsmunaaðilum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sem snerta aðalskipulagið. Jafnframt er leitað eftir hugmyndum íbúa um verkefni sem falla undir Staðardagskrá 21 og stuðla að sjálfbærri þrjún samfélagsins. Íbúar eru hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á samfélagið og þróun þess. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu Fellsborg miðvikudaginn 18. mars kl. 17:00.   Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri Nánar um Staðardagskrá 21 Staðardagskrá 21 (Local Agenda 21) er áætlun sem öllum sveitarstjórnum heimsins er ætlað að gera í samræmi við ályktun Heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiró 1992.  Nánar tiltekið er hér um að ræða áætlun um þau verk sem vinna þarf í hverju samfélagi um sig til að nálgast markmiðið um sjálfbæra þróun á 21. öldinni, þ.e.a.s. þróun sem tryggir komandi kynslóðum viðunandi lífsskilyrði. Staðardagskrá 21 er með öðrum orðum heildaráætlun um þróun hvers samfélags um sig fram á 21. öldina.  Áætlunin snýst ekki eingöngu um umhverfismál í venjulegum skilningi, heldur er henni ætlað að taka jafnframt tillit til efnahagslegra og félagslegra þátta. Í raun og veru er Staðardagskrá 21 fyrst og fremst velferðaráætlun. Staðardagskrá 21 er ekki einkamál sveitarstjórna.  Samkvæmt samþykkt Ríóráðstefnunnar ber að vinna verkið í samráði við íbúana á hverjum stað og með þátttöku atvinnulífs og félagasamtaka.  Staðardagskrá 21 er nefnilega áætlun alls samfélagsins. Vinnu við gerð Staðardagskrár 21 lýkur aldrei, þó að stórum áfanga sé náð þegar 1. útgáfa hennar hefur verið lögð fram og samþykkt í sveitarstjórn. Með samþykkt sveitarstjórnar er Staðardagskráin orðin að formlegu stefnumótunarplaggi, og þar með er kominn tími til að hrinda henni í framkvæmd. Auk heldur þarf Staðardagskráin að vera í stöðugri endurskoðun í takt við breytta tíma og nýjar áherslur. Staðardagskrá 21 er með öðrum orðum ekki bara skjal, og ekki bara umhverfisáætlun, heldur fyrst og fremst ferli. Á haustmánuðum 1998 hófu íslensk sveitarfélög skipulagt starf við gerð Staðardagskrár 21. Eftirfarandi fimm atriði hafa verið skilgreind sem meginþættir eða vegvísar fyrir Staðardagskrárstarfið: Heildarsýn og þverfagleg hugsun Virk þátttaka íbúanna Hringrásarviðhorf Tillit til hnattrænna sjónarmiða Áhersla á langtímaáætlanir Sjá nánar á vef Samands íslenskra sveitarfélaga,  http://www.samband.is/template1.asp?id=746&

Árshátíð Höfðaskóla

Árshátíð Höfðaskóla verður haldin í Fellsborg föstudaginn 13. mars 2009 og hefst kl. 19:30. Dagskrá: Skemmtiatriði frá öllum bekkjum Diskótek Aðgangseyrir: Fullorðnir: 1000 kr. Grunnsk.nem: 600 kr. Frítt fyrir 3. barn og fleiri frá heimili Tertuhappdrætti – aðgöngumiðar fullorðinna eru úmeraðir. Boðið upp á gæslu fyrir yngstu börnin meðan á skemmtiatriðum stendur. Verið velkomin. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla

Verkfæri fyrir Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd og SSNV atvinnuþróun bjóða til "súpufundar" um atvinnumál, aðstoð og ráðgjöf sem fyrirtækjum og frumkvöðlum stendur til boða. Tilgangurinn er að kynna þau "verkfæri" sem nota má að ráða til að efla rekstur fyrirtækja sinna eða byggja upp ný. Fundurinn verður haldinn í Bjarmanesi fimmtudaginn 12. mars kl. 12 til 13. Dagskráin verður sem hér segir og eru dagskrárliðir aðeins fimm mínútur hver að undanskildum umræðum: Uppbygging á Skagaströnd: Halldór Ólafsson formaður atvinnumálanefndar Sótt á markað: Sigurður Sigurðarson, markaðs- og atvinnuráðgjafi Sveitarfélagsins Skagastrandar. Atvinnuþróun: Jón Óskar Pétursson framkvæmdastjóri SSNV Stuðningur við sérstök verkefni: Líney Árnadóttir, forstöðukona Vinnumálastofnunar á Skagaströnd Vaxtarsamningur: Hjördís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vaxtarsamningsins Norðurlands vestra Menningarráð: Ingibergur Guðmundsson, menningarfulltrúi Norðurlands vestra Fyrirspurnir og umræður Á fundinum verðu dreift hagnýtum upplýsingum sem byggðar eru á erindunum

Kynningar á möguleikum í Evrópusamstarfi

Byggðastofnun og ráðuneyti menntamála og iðnaðar (í samstarfi við vaxtarsamningana) gangast þessa dagana fyrir kynningum á möguleikum í Evrópusamstarfi. Kynningarnar eru haldnar á nokkurm stöðum um landið, og miðvikudaginn 18. mars er komið að Norðurlandi vestra. Þá munu fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana. Kynningin fer fram í bóknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, kl. 10 – 13. Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstaklinga, skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs. Dagskráin hefst með sameiginlegum kynningum áætlananna, og sagt verður frá nokkrum verkefnum hér af Norðurlandi vestra. Að því búnu munu fulltrúar einstakra áætlana verða til viðtals, allt fram til kl. 13. Við sama tækifæri munu fulltrúar eftirtalinna aðila innan stoðkerfisins kynna starfsemi sinna stofnana stuttlega, og þá möguleika sem í henni felast: · Impra á Nýsköpunarmiðstöð · Vinnumálastofnun · SSNV atvinnuþróun · Menningarráð Norðurlands vestra · Vaxtarsamningur Norðurlands vestra. Allir velkomnir!

Mjög lærdómsríkt og skemmtilegt námskeið um útikennslu

Námskeið um útikennslu var haldið á vegum Fræðsluskrifstofunnar á Húnavöllum þann 4. mars s.l. Fyrirlesarinn Aðalsteinn Örn Snæþórsson, líffræðingur og kennari útskýrði með áhugaverðum dæmum, bóklegum og verklegum, kosti útikennslu í skólastarfi. Útikennsla er þegar hluti kennslunnar er fluttur út í nánasta umhverfi skólans og reglulega eru unnin verkefni utan skólastofunnar. Aðalsteinn Örn lagði áherslu á kosti útikennslu og nefndi sem dæmi að hún auki skilning á náttúru, vísindum og umhverfi og ítrekaði að umhverfi hvers skólasvæðis leggði skólunum endalaus tækifæri í hendur til að auka fjölbreytni í viðfangsefnum í öllum námsgreinum fyrir alla aldurshópa. Námskeiðið sóttu 32 kennarar grunnskóla Húnavatnssýslna og grunnskólans á Borðeyri. Þátttakendur lýstu mikilli ánægju með daginn. Myndir: Þátttakendur og Leiðbeinandi að störfum úti og inni

Latneski mánuðurinn hjá Nes-listamiðstöð

Átta listamenn verða á Skagaströnd í mars á vegum Nes-listamiðstöðvar. Með mökum og einu barni er um að ræða þrettán manns. Gárungarnir kalla mars latneska mánuðinn vegna þess hve margir koma frá suðlægum löndum. En þetta eru listamennirnir: Marie Britt, myndhöggvari frá Írlandi ásamt maka og barni Lucy McKenna, málari frá Írlandi Nadege Druzkowski, málari frá Frakklandi Lucas Gervilla, videó-listamaður frá Brasilíu Julieta do Vale, portúgalskur myndlistamaður ásamt maka Noemi Romano, textílistamaður frá Ítalíu Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, myndhöggvari ásamt maka Mie Olise Kjærgaard, fjöllistamaður frá Danmörku

Ný heimasíða UMF Fram

Ungmennafélagið Fram hefur opnað nýja heimasíðu. Hún er fyrst og fremst hugsuð til þesssafna saman myndum sem til eru úr starfi félagsins.   Vitað er að margir eiga myndir sem þeir hafa tekið bæði á stafrænu formi og á filmu. Þætti okkur í stjórn Umf. Fram vænt um ef fólk væri tilbúið að deila þessum myndum með okkur og getur það haft samband við Elvu í síma 452 2761. Veffang heimasíðunnar er: http://fram.123.is/. 

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 4. mars 2009 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Gjaldskrár sveitarfélagsins 2. Stofnun Starfsendurhæfingar 3. Samningur um sorphirðu 4. Bréf: a) Umhverfisstofnunar, dags. 30. jan. 2009. b) Sambands íslenskra sveitarfélaga, 27. jan. 2009. c) Sjávarútvegs og landbúnaðarráðun. dags. 17. feb. 2009. d) Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 16. feb. 2009. e) Samgönguráðuneytisins, 16. feb. 2009. f) Lánasjóðs sveitarfélaga ohf, dags. 10. feb. 2009. g) Bændasamtaka Íslands, dags. 16. jan. 2009. h) Dóms- og kirkumálaráðuneytis, dags. 22. jan. 2009. i) Orkusölunnar, dags. 23. jan. 2009. j) Óbyggðanefndar, dags. 21. jan. 2009. k) Menningarráðs Norðurl. vestra, dags. 3. feb. 2009. l) Félags tónlistarkennara, dags. 6. jan. 2009. m) Valdimars Viggóssonar, dags. 3. feb. 2009. 5. Fundargerðir: a) Vinnufundar um skipulagsmál, 3.02.2009. b) Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 24.02.2009. c) Menningarráðs Nl. vestra, 23.01.2009. d) Stjórnar Norðurár bs. 30.01.2009. e) Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 06.02.2009. 6. Önnur mál Sveitarstjóri

Prjónakaffi í Kvennaskólanum

Prjónakaffið í Kvennaskólanum er í 2. viku mánaðarins – áhugasamir eru hvattir til að mæta með prjóna eða aðra handavinnu, sýna sig og sjá aðra, fræðast og njóta.   Úrval bóka og tímarita eru til útláns. Kompan - hannyrða- og föndurverslun á Sauðárkróki kynnir vöru sína og þjónustu. Herdís í Kompunni mun leggja sérstaka áherslu á að kynna ýmiskonar garn fyrir hekl, prjón og útsaum, og ull í þæfingu.  Þá kynnir hún þá þjónustu sem verslunin býður upp á: námskeið, leiðbeiningar og pöntunarþjónustu.   Handverkshús Textílsetursins – undirbúningur er hafinn og verða ýmis námskeið í boði fyrir áhugasama.  Tóvinnunámskeið er fyrirhugað helgina 14. – 15. mars.  Einnig verður boðið upp á prjónanámskeið, þæfingarnámskeið og námskeið í vinnu með leður og roð. Skráning í s. 894-9030 og textilsetur@simnet.is.

Grímuball í Fellsborg á öskudag

Grímuball verður haldið í Fellsborg á öskudaginn, miðvikudaginn 25. febrúar, kl. 18:00 - 20:00.  Aðgangseyrir er 400 kr. fyrir þá sem eru í búningum en 600 kr. fyrir aðra. Frítt fyrir þriðja barn frá heimili. Allir velkomnir, jafnt stórir sem smáir. Eins og venjulega verður marserað, farið í leiki, kötturinn sleginn úr tunnunni og veitt verðlaun fyrir flotta búninga. Mætum nú öll og skemmtum okkur saman. Skólafélagið Rán.