Opið hús listamanna og alþjóðlega listsýning Solitude

Í Nesi listamiðstöð á Skagastönd dvöldu þrettán listamenn í júlí. Þeir verða með opið hús föstudaginn 24. júlí frá kl 20:00 – 22:00 og er öllum boðið að líta inn. Þar verður hægt að skoða það sem listamennirnir hafa verið að vinna að og spjalla við þau og aðra um verkin.  Þeir sem sýna verk sín að þessu sinni eru:  Bernadette Reiter Adriane Wacholz Kreh Mellick Ashley Lamb Hanneriina Moisseinen Mia Damberg Bodil Steinsund Christopher Garcia Reinhard Buch Hiroko Tanahashi Caroline Kent Jennie Moran Til sýnis verða málverk, teikningar, hljóðverk, keramik, vídeóverk, myndir frá súkkulaðiskúlptúr vinnslu og fleira.  Einnig verða verk nokkurra barna til sýnis en þau Bodil Steinsund og Christopher Garcia héldu leirlistanámskeið í mánuðinum þar sem börnin unnu með álfa og landvætti. Á sama tíma er sýningin SOLITUDE, opin í nýjum sýningarsal Ness í Gamla kaupfélaginu. Myndlistarsýningin, er sett upp af Nesi Listamiðstöð á Skagaströnd í samvinnu við Neues Kunsthaus Ahrenshoop og Kunstlerhaus Lukas og er samsýning listamanna frá Íslandi, Lettlandi og Þýskalandi.  Listamennirnir unnu allir út frá ljóðum skálda frá þessum löndum og íslensku skáldin sem listamennirnir leggja út frá eru Steinunn Sigurðardóttir og Andri Snær Magnason.  Fulltrúar Íslands á sýningunni eru Ragnhildur Stefánsdóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Jeannette Castioni.  Verkin á sýningunni eru afkvæmi spurninga á borð við: ,,Er draumastaður mannsins ennþá til, þar sem hann getur notið einveru, unaðar og hvíldar?“  og ,,Hvernig geta listir stuðlað að meðvitaðri umgengni við náttúruna?“ Sýningin er opin um helgar frá kl. 13:00 – 17:00 og virka daga eftir samkomulagi í síma 663-3757 og stendur til 30. ágúst.  Þessi glæsilega myndlistarsýning er styrkt af  Menningarráði Norðurlands vestra, Fisk Seafood á Sauðárkróki og Minningarsjóði um hjónin frá Garði og Vindhæli. 

Gestabók og viðhorfskönnun í Spákonufellshöfða

Gestabók hefur verið komið fyrir í Spákonufellshöfða. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að kanna fjölda þeirra sem leggja leið sína um Höfðann. Á vegum Sveitarfélagsins Skagastrandar og samtakanna The Wild North er í gangi rannsókn á áhrifum ferðaþjónustu á villt dýra- og fuglalíf sem og að vekja áhuga ferðamanna á ósnortinni náttúru.  Náttúrustofa Norðurlands Vestra hefur tekið að sér að rannsaka fuglalífið í Höfðanum og annast Þórdís Bragadóttir, líffræðingur, um framkvæmdina. Ekki er einfalt að telja ferðamenn í Spákonufellshöfða og er því talið ódýrast og hagkvæmast að hafa gestabók staðsetta á áberandi stað og hvetja fólk til að rita nafn sitt í hana. Við botn Vækilvíkur hefur því verið komið fyrir litlum kassa og er gestabókin í honum. Þar er einnig könnun á vegum The Wild North um umhverfis- og nátturuverndarmál. Hún er liður í að afla upplýsinga um viðhorf ferðafólks til friðaðra svæða og sjálfbærrar ferðamennsku. Náttúrutengd ferðaþjónusta er ein af markmiðum The Wild North og tilgangurinn að fjölga ferðamönnum sem áhuga hafa á því að skoða fugla- og dýralíf í ósnortnu umhverfi. Vaxtarsamningur Norðurlands Vestra hefur styrkt framkvæmd rannsóknarinnar og annarrar svipaðrar tengdum selaskoðunum á Vatnsnesi. 

Stór og glæsileg listsýning í Gamla kaupfélaginu

Myndlistarsýningin SOLITUDE - Landslag í umróti er sett upp af Nes listamiðstöð á Skagaströnd í samvinnu við Neues Kunsthaus Ahrenshoop og Kunstlerhaus Lukas. Þetta er samsýning listamanna frá Íslandi, Lettlandi og Þýskalandi. Listamennirnir unnu allir út frá ljóðum skálda í löndum sínum. Þau íslensku sem listamennirnir leggja út frá eru Steinunn Sigurðardóttir og Andri Snær Magnason. Fulltrúar Íslands á sýningunni eru Ragnhildur Stefánsdóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Jeannette Castioni. Verkin á sýningunni eru afkvæmi spurninga á borð við: „Er draumastaður mannsins ennþá til, þar sem hann getur notið einveru, unaðar og hvíldar?“ og „Hvernig geta listir stuðlað að meðvitaðri umgengni við náttúruna?“ Sýningunni frá Ahrenshoop í Norðaustur Þýslandi fylgir vegleg sýningarskrá. Opnun sýningarinnar verður laugardaginn 11. júní kl 15:00 í Gamla kaupfélaginu á Skagaströnd og framinn verður gjörningur kl. 15:30. Sýningin er opin um helgar frá kl. 13 – 17 og virka daga eftir samkomulagi í síma 452 2816 og stendur til 30. ágúst. Hin glæsilega myndlistarsýning er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra, Fisk Seafood á Sauðárkróki og Minningarsjóði um hjónin frá Garði og Vindhæli.

Spástofa verður í elsta húsi Skagastrandar

Menningarfélagið Spákonuarfur ehf. á Skagaströnd hefur tekið á leigu Árnes,elsta húsið á Skagaströnd. Það var fyrir skömmu tekið formlega í notkun en sveitarfélagið hefur frá árinu 2007 unnið að endurbyggingu þess.  Fjöldi bæjarbúa skoðuðu húsið á opnunardeginum og er engu líkar en það sé tímavél sem stillt er á árið 1920. Allt innanstokks miðast við fyrri hluta síðustu aldar og eru ýmsir húsmunir komnir af Sjóminja- og sögusafni Skagastrandar og Byggðasafninu á Reykjum. Spákonuarfur leigir Árnes til þriggja ára og hyggst meðal annars nýta sér húsið fyrir Spástofu sem er hluti af starfsemi fyrirtækisins. Auk þess er gert ráð fyrir að húsið verði til sýnis og einnig notað til sýningarhalds. Árnes var byggt árið 1899 af Fritz H. Berndsen kaupmanni sem hafði átt verslun á Skagaströnd um langt árabil. Frá upphafi hafa eigendur hússins einungis verið fjórir. Árnes hefur umtalsvert menningar- sögulegt gildi. Það er gott dæmi um aðstöðu og lifnaðarhætti á fyrra hluta 20 aldar og er fallega staðsett á svæði sem sveitarstjórn hefur skilgreint sem safnasvæði.  Árnes er dæmigert timburhús frá fyrri hluta síðustu aldara og hið eina þessarar gerðar í bænum sem mögulegt var að varðveita. Innréttingar eru að mestu upprunalegar sem enn frekar eykur gildi hússins. Sveitarfélagið Skagaströnd keypti það 2007 til að láta gera það upp í upprunalega mynd. Frá upphafi var gert ráð fyrir að húsið verði notað til sýningar og leitast hefur verið við að búa til sannfærandi mynd af heimili sem nútímafólk myndi telja afar gamaldags.

Fundur skógræktarfélagsins

Skógræktarfélag Skagastrandar Fundur verður haldinn um endurvakningu Skógræktarfélags Skagastrandar mánudaginn 13. júlí nk. kl. 20.00 í Skíðaskálanum. Brynjólfur Jónsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands mætir á fundinn og fer yfir félagsmálefni, árangur og störf í skógrækt. Rætt verður um skógrækt og ræktunarmöguleika á Skagaströnd. Allir áhugamenn velkomnir. Undirbúningsnefndin.

Kynningarfundur um tillögu að breytingu á svæðisskipulagi A-Hún 2004-16

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu boðar til kynningar skv. 1. mgr. 13. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Kynningin verður á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi mánudaginn 6. júlí 2009.  Gerð er tillaga um eftirfarandi breytingar á svæðisskipulaginu.  Landbúnaðarsvæði í landi Sölvabakka í Blönduósbæ breytt í sorpförgunar- og efnistökusvæði.  Landbúnaðarsvæði og opnu svæði til sérstakra nota í landi Hnjúka austan við Blönduós er breytt í iðnaðarog athafnasvæði  Landbúnaðarsvæði á Öxl II í Húnavatnshreppi breytt í verslunar- og þjónustusvæði og opið svæði til sérstakra nota.  Lögformleg auglýsing breytingartillögunnar verður jafnframt til sýnis frá 6. júlí 2009 til 4. ágúst 2009 og á eftirfarandi stöðum; Skrifstofu Húnavatnshrepps, Húnavöllum, skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3, skrifstofu Skagabyggðar, Örlygsstöðum 2, Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, í Reykjavík og á heimasíðum sveitarfélaganna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. ágúst 2009.  Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu 

Tillaga að breytingu á Svæðisskipulagi A-Hún 2004-2016

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu auglýsir skv. 1. mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. tillögu að breytingu á svæðisskipulagi á jörðunum Sölvabakka í Blönduósbæ, Hnjúkum í Blönduósbæ og Öxl II í Húnavatnshreppi. Gerð er tillaga um eftirfarandi breytingar á svæðisskipulaginu: Landbúnaðarsvæði í landi Sölvabakka breytt í sorpförgunar- og efnistökusvæði. Landbúnaðarsvæði og opnu svæði til sérstakra nota austan við Blönduós breytt í iðnaðar- og athafnasvæði Landbúnaðarsvæði á Öxl II í Húnavatnshreppi breytt í verslunar- og þjónustusvæði og opið svæði til sérstakra nota. Breytingartillagan, greinargerð og umhverfisskýrsla verður til sýnis á eftirfarandi stöðum; Skrifstofu Húnavatnshrepps, Húnavöllum, 541 Blönduósi, skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduós, skrifstofu sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd, skrifstofu Skagabyggðar, Örlygsstöðum 2, 545 Skagaströnd og á Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík frá 6. júlí 2009 til 4. ágúst 2009. Tillagan er einnig til sýnis hér á skagastrond.is. Þarna er að finna kort af því svæðí sem um er rætt og einnig umhverfisskýrslu vegna breytinganna. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út þriðjudaginn 18. ágúst 2009. Skila skal athugasemdum á þeim stöðum sem gögnin eru til sýnis og eru nefndir hér að ofan og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir viðbreytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni. Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur Húnavatnssýslu

Kistill Þórdísar er kominn upp á Borgarhausinn

Kistill Þórdísar spákonu var í gær fluttur upp á Spákonufell og þar komið fyrir í vörðunni. Hann geymir gestabók fjallsins og áheitastein. Kistlinum er komið fyrir við gömlu vörðuna og var hlaðið í kringum hann þannig að engu líkar er en hann að sitji efst í henni. Kistillinn var formlega vígður. Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri, tónaði viðeigandi erindi úr Hávamálum og Völuspá. Halldór Ólafsson, framkvæmdastjóri BioPol ehf. var meðhjálpari við vígsluna. Í kistlinum er eftirfarandi texti: Velkomin á Borgarhaus Þetta er kistill Þórdísar spákonu. Hann geymir gestabók og áheitastein. Hvatt er til þess að göngufólk riti nafn sitt í bókina.  Á steininn er rist rúnin Ægishjálmur. Hann getur unnið bæði mein og bót.  Hins vegar er náttúra steinsins slík að einungis óeigingjarnar og góðar óskir eða áheit gagnast. Viðbúið er að ill áheit og ófrómar óskir snúist og hitti þann sjálfan sem óskar. Þórdís spákona var fégjörn nokkuð og því gæti verið til bóta að leggja í sjóð hennar ef mikið liggur við.   Mikilvægt er að ætíð sé vel frá kistlinum gengið.  Sá sem spillir því sem hér er, má búast við ævilangri ógæfu. Góða heimferð - gætið varúðar í fjallinu Kistillinn er einstaklega fallegur gripur sem Helgi Gunnarsson, trésmiður á Skagagströnd bjó til. Ari Jón Þórsson hjá Vélaverkstæði Skagastrandar sá um að leggja kopar á kannta, læsingar, undirstöður og annað. Fyrir vikið er kistillinn ansi forn í útliti og engu líkar en þarna sé sá kistill kominn sem Þórdís spákona lagði forðum fjársjóð sinn í og kom fyrir í hömrum Borgarhaussins. Heljarmennið Jón Heiðar Jónsson tók 15 kg kistilinn á bakið og flutti upp á fjallið ásamt járngrindinni sem notuð er til að festa hann. Þess er vænst að kistill Þórdísar verði nú á Borgarhausnum að minnsta kosti næstu tvöhundruð og fimmtíu ár en það er sá endingartími sem Helgi og Ari geta ábyrgst.  

Þórdísarganga á Spákonufell föstudaginn 3. júlí kl. 21

Menningarfélagið Spákonuarfur á Skagaströnd stendur fyrir göngu á Spákonufell n.k. föstudagskvöld.  Á síðasta ári voru farnar tvær Þórdísargöngur á Spákonufell sem tókust mjög vel og voru þátttakendur þá alls um 150. Fararstjóri er að vanda sagnamaðurinn Ólafur Bernódusson. Hann segir frá Þórdísi spákonu og bendir á staði sem tengjast sögu hennar. Mæting er við Golfskálann að Háagerði. Að lokinni göngu verður boðið upp á nátthressingu sem er innifalin í verð. Þátttökugjalder 1500 kr. en ókeypis er fyrir yngri en 16 ára. Frekari upplýsingar gefnar í síma 8615089.

Yndislegur staður, sögðu Þjóðverjarnir

Þau litu inn í kaffihúsið í Bjarmanesi rétt eins og hundruðir annarra, dvöldu þar kannski ívið lengur og spurðu margs. Daginn eftir komu þau aftur og kölluðu vertinn, hana Steinunni Ósk, til sín. Þetta er yndislegur staður, sögðu þessir Þjóðverjar og vildu þau gefa Steinunni listaverk úr tré vegna þess að Café Bjarmanes er sá veitingastaður á Íslandi sem þau kunnu best við, var þó úr mörgum góðum að velja. Með listaverkinu fylgdi bréf með þessum orðum, í lauslegri íslenskri þýðingu: Kæri listamaður, Þetta listaverk bjó vinur okkar til en hann býr í Rejensburg í Þýskalandi. Hann kallar það Walle (Veggur/Múr). Hann lét okkur fá það þegar við sögðum honum frá því að við ætluðum að ferðast um hið yndislega Ísland með vinum okkar. Listaverkinu er ætlað að hvetja til skilnings milli þjóða heimsins. Það er myndað úr dökkrauðum hjörtum. Vonandi fellur þér það vel í geð - það er gjöf til þessa fallega veitingahúss þar sem svo gott er að heimsækja. Ef til vill finnur þú stað fyrir það þar sem það getur minnt þig á okkur. Með kveðju, Julia Jochwirtt og finir, Gabriel, Kathi og Jörg frá Þýskalandi.