Styrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 25 þús kr. skólaárið 2008-2009. Styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð. Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 27. febrúar 2009. Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á www.skagastrond.is Umsókn Reglur Skagaströnd, 4. febrúar 2009. Fyrir hönd sveitarstjórnar Sveitarstjóri

Stærðfræðikeppni í Höfðaskóla

Á föstudaginn 6. febrúar er dagur stærðfræðinnar. Af því tilefni verður efnt til stærðfræðikeppni innan Höfðaskóla í samstarfi við Lionsklúbb Skagastrandar. Lögð verður ein þraut fyrir hvert aldursstig, þ.e. keppt er í 1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Þrautirnar má finna vef Höfðaskóla. Lausnum skal skila á kennararstofuna í síðasta lagi fimmtudaginn 5. febrúar kl. 16:00. Nauðsynlegt er að merkja lausnirnar með nafni. Dregið verður úr réttum lausnum á degi stærðfræðinnar og hljóta sigurvegarar að launum smá glaðning. Allir nemendur eru hvattir til að taka þátt og senda inn sína lausn.

Fjárhagsáætlun Skagatrandar samþykkt

Fjárhagsáætlun Skagastrandar fyrir árið 2009 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 27. janúar. Gert er ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu rekstraráætlunar upp á rúmar 4 milljónir króna. Minnihlutinn benti á að í áætluninni væri gert ráð fyrir því að nota allar fjármagnstekjur sveitarfélagsins til þess að standa undir rekstri eða 69 af þeim 73 milljónum króna sem áætlaðar eru á árinu. Til að standa undir afborgunum og framkvæmdum á árinu þyrfti því að ganga á sjóðseign sveitarfélagsins. Minnihlutinn taldi því brýnna en áður að ráðast í hagræðingaraðgerðir vegna hættu á hallarekstri frekar en að skerða þjónustu sveitarfélagsins síðar. Enn fremur benti minnihlutinn á að endurskoða þyrfti áætlunina á vordögum. Meirihlutinn sagðist gera sér grein fyrir gjörbreyttu landslagi og að flest öll sveitarfélög landsins yrðu að endurskoða fjárhagsáætlun sína á vordögum. Í fjárhagsáætlun 2009 væri ekki dregið úr neinni grunnþjónustu, laun ekki lækkuð og gjaldskrárhækkunum haldið í algjöru lágmarki. Fjárfestingar á árinu væru áætlaðar um 35 milljónir og miðast flestar við að vera vinnuaflsfrekar. Staða Sveitarfélagsins Skagastrandar væri sterk til að takast á við þá erfiðu tíma sem óhjákvæmilega væru framundan. Að því loknu var áætlunin samþykkt samhljóða.

Gunnþjónusta heilbrigðisstofnanna

Sveitarstjórnin ályktaði eftirfarandi um sameiningar heilbrigðisstofnana á fundi sínum 27. janúar: Sveitarstjórn Skagastrandar lýsir áhyggjum yfir því að heilbrigðisráðherra hafði ekki meira samráð en raun bar vitni við heimamenn um þær breytingar sem kynntar hafa verið á starfsemi heilbrigðisstofnana víða um land. Mjög brýnt er að sú grunnþjónusta sem verið hefur í A-Húnavatnssýslu skerðist ekki frá því sem verði hefur. Sveitarstjórn krefst þess að heilbrigðisyfirvöld tryggi að svo verði ekki. Nú er bara spurning hvort núverandi heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, breyti þeirri ákvörðun en eins og flestir vita hvaði fyrrverandi ráðherra áður ákveðið að sameina stofnanirnar á Blönduósi og Sauðárkróki undir eina stofnun.

Þorrablót 2009

Þorrablót Kvenfélagsins Einingar  verður í Félagsheimilinu á Skagaströnd laugardaginn 7. febrúar 2009.   Húsið opnað kl. 20:00. Borðhald hefst stundvíslega kl. 20:30. Veislustjóri er Lárus Ægir Guðmundsson. Skemmtiatriði að hætti heimamanna Kántrýbær sér um matinn Hljómsveitin Vítamín sér um að halda uppi fjörinu til klukkan 03:00 Miðaverð kr. 5.000. Miðasala verður í félagsheimilinu sunnudaginn 1. febrúar á milli kl. 11:00 og 12:00   Eldri borgarar ásamt unglingum fæddum árið 1993 greiða kr. 4.000.   Kvenfélagið Eining

Samtals 33,7 milljón kr. fjárlögum til Skagastrandar

Samkvæmt fjárlögunum ársins 2009 munu styrktir og framlög til Húnavatnssýslna nema rúmlega 70,0 milljónum á næsta ári. Hæst ber þar styrkur til Sjávarlíftækniseturs á Skagaströnd en því er úthlutað 22,7 milljónum og framlag til tveggja sérfræðinga í Húnavatnssýslu sem er úthlutað 17,0 milljónum. Af öðrum verkefnum þá má nefna eftirfarandi: Grettistak ses, 1,5 milljón, Selasetur 5,0 milljónir, Hálendismiðstöð á Hveravöllum 4,0 milljónir, Grettisverkefni í Húnaþingi vestra 4,0 milljónir, Nes, listamiðstöð Skagaströnd 1,0 milljón, Spákonuhof á Skagaströnd 4,0 milljónir, Á slóðum Vatnsdælusögu 2,0 milljónir, Biopol á Skagaströnd 6,0 milljónir og Hveravallafélagið, mannahald á Hveravöllum á veturna 1,5 milljón. Einnig mun verða veitt fjármagn í sjóvarnir á Norðurlandi upp á 19,4 milljónir. Af ofangreindu má ráða að veittir eru styrkir og framlög til Skagastrandar að fjárhæð kr. 33,7 milljónir króna.

Lárus Ægir maður ársins á Húnahorninu

Lesendur Húnahornsins hafa valið Lárus Ægi Guðmundsson á Skagaströnd mann ársins 2008 í Húnaþingi. Lárus Ægir fékk yfirburða kosningu í valinu eða rúmlega 80% atkvæða. Lárus Ægir stofnaði á síðasta ári styrktarsjóð til eflingar menningar- og listalífi á Skagaströnd og Skagabyggð. Sjóðnum er einnig ætlað að greiða styrki til þeirra sem verða fyrir slysum eða alvarlegum veikindum og þarfnast aðstoðar. Stofnfé sjóðsins eru 50 milljónir króna og áætlað að styrkir úr honum geti numið allt að 5 milljónum á ári. Lárus Ægir er borinn og barnfæddur á Skagaströnd og liggja rætur hans þar sem hefur hann starfað mestan hluta ævi sinnar. Af þeim verkefnum sem hann hefur unnið að má nefna þessi: · Sveitarstjóri á Skagaströnd frá árinu 1972 til 1984. · Framkvæmdastjóri frystihússins Hólanes frá 1984 til 1994. · Stofnandi, eigandi fiskmarkaðarins Örva á Skagaströnd, framkvæmdastjóri hans frá 1994 til 2007. Lárus Ægir hefur sinnt fjölmörgum málum sem til framfara hafa horft á Skagaströnd. Hann keypti meðal annars í félagi við aðra gamla kaupfélagshúsið og gerði það upp. Húsið hefur að hluta til þegar verið tekið í notkun og í því eru skrifstofur Menningarráðs Norðurlands vestra og BioPol ehf. Hann átti líka þátt í að kaupa húsið sem áður var frystihúsið Hólanes en til stendur að breyta því og finna hentuga starfsemi fyrir það.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 27. janúar 2009 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun 2009 (önnur umræða) 2. Bréf: a) Farskólans, dags. 22. janúar 2009. b) Sturlu Böðvarssonar, dags. 1. desember 2009. c) Heilbrigðisráðuneytisins, dags. 7. janúar 2009. d) Framkvæmdastjóra SSNV, dags. 5. janúar 2009. e) Landsskrifstofu Std 21, dags. 20. janúar 2009. 3. Fundargerðir: a) Fræðslunefndar, 21. janúar 2009. b) Stjórnar SSNV, 14. janúar 2009. 4. Önnur mál Sveitarstjóri

Með bros á vör og ljós í glugga

Gleðibankinn hvetur þjóðina til að taka ótæpilega út innistæður sínar í bankanum. Þá biður bankinn íbúa þessa lands að sýna friðarhug sinn í verki og setja næstu kvöld áberandi ljós út í þann glugga sem snýr að götu eða friðarkerti við útidyr ef veður leyfir. Megi þeir sem nærast á ofbeldi og eignaspjöllum sjá að landsmenn eru slíku andsnúnir. Á síðustu vikum hefur nokkur halli verið á viðskiptum Gleðibankans með Bros, Spaug og Hlátra. BSH vísitalan er víst fremur neikvæð þessa dagana. Það skal undirstrikað að ekki eru bein tengsl milli Gleðibankans og stöðu efnahagsmála. Hins vegar er það Gleðibankanum áhyggjuefni að landsmenn skuli kjósa að leggja inn BSH (bros, spaug og hlátur) en brúka þess í stað YB (ygglibrún) sem er óæskilegur gjaldmiðill í samskiptum fólks. Um leið og Gleðibankinn óskar eftir því að landsmenn brúki innistæður sínar sem mest og leggi YB af vill hann taka eftirfarandi fram: Innistæður eru nægar, lánalínur tryggar, krosseignatengsl örugg og viðskiptavild ótæmandi. Í ljósi þessara aðstæðna biður Gleðibankinn mótmælendur efnahagskreppunnar að ganga hratt inn um gleðinnar dyr og stuðla að varanlegum friði milli ólíkra aðila í þjóðfélaginu. Það er rétt sem forðum var mælt að friður er grundvöllur allra góðra þjóðfélagsaðgerða. Fréttatilkynning frá Gleðibankanum Aðalútbúið á Skagaströnd Fyrir hönd Gleðibankans bankastjórar

Óli Benna stjórnar Gettu betur í kvöld

Stjórnandi, spyrill, dómari og alvaldur í Gettu betur í kvöld verður Ólafur Bernódusson, kennari og þúsundþjalasmiður á Skagaströnd. Hann spyr af myndugleik kennarans, glettni húmoristans, visku hins fjölfróða og kæruleysi grallarans Flestir þekkja Óla. Hann hefur verið afar getspakur í spurningakeppninni og vann til dæmis þá síðustu ásamt konu sinni. Sumir halda því fram að það hafi nú eiginlega verið hún Guðrún sem eigi allan heiðurinn af sigrinum. Hvað um það, Óli er líka með afbrigðum fjölfróður og ekki að efa að keppnin verður ákaflega skemmtileg með mann á borð við Óla við stýrið. Reglur keppninnar eru óteljandi og afar flóknar. Hér er stuttur úrdráttur: 30 spurningar, skrifleg svör - Einn spyrill, sem er dómari og alvaldur - Bjórkassi í verðlaun fyrir þá sem hafa flest svör rétt - „Bjórspurningin“; verðlaun fyrir rétt svar er bjórglas á barnum