Listamaðurinn Kate Dambach spyrill

Myndlistarkonan Kate Dambach verður spyrill í spurningakeppninni DREKKTU BETUR á föstudagskvöldið þann 17. apríl..  Hún kemur frá Bandaríkjunum en er hér á vegum Nes listamiðstöðvar og kann bara ágætlega við sig á Skagaströnd. Kata lofar að vera með skemmtilegar og fræðandi spurningar. Hún spyr á ensku en Ólafía Lárusdóttir þýðir spurningarnar jafnóðum. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að fjölmenna og njóta flottrar skemmtunar.

Sparnaður í kvöld í Fellsborg

Í kvöld verður kynningarfundur í kvöld kl.20 í Félagsheimilinu Fellsborgá vegum Sparnaðar ehf.  Fyrirtækið er ráðgjafafyrirtæki sem hefur sett sér það markmið að auka samkeppni á fjármálamarkaði  með nýjungum í ráðgjöf, vörum og hugsun.  Hagkerfi Sparnaðar vinnur út frá hugmyndafræðum Ingólfs H. Ingólfssonar sem snýst m.a. um að greiða hratt niður skuldir, hafa gaman af því að nota peningana, spara og byggja upp eignir.  Með Hagkerfi Sparnaðar fá viðskiptavinir aðgang að hugbúnaði til þess að ná stjórn á fjárstreymi heimilisins. Öllum eru velkomnir.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 15. apríl 2009 í Bjarmanesi kl 800. Dagskrá: 1. Kjörskrá vegna Alþingiskosninga 25. apríl 2009. 2. Verkefni og framkvæmdir 2009. 3. Umsókn til Menningarráðs Nl. vestra. 4. Skýrsla atvinnuráðgjafa um hótel. 5. Bréf: a) Björgunarsveitarinnar Strandar, dags. 26. apríl 2009. b) Þórs Magnússonar, fyrrv. þjóðminjavarðar, dags. 24. mars 2009. 6. Fundargerðir: a) Færðslunefndar, 5.03.2009. b) Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún. 24.03.2009. c) Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 6.03.2009. d) Stjórnar SSNV, 17.03.2009. e) Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 27.02.2009 f) Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 26.03.2009 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Tónleika Guðrúnar í Hólaneskirkju

Á skírdagskvöld býður Hólaneskirkja til tónleika með hinni frábæru söngkonu Guðrúnu Gunnarsdóttur. Hún mun syngja sín ljúfu lög við undirleik Valgeirs Skagfjörð.  Enginn aðgangseyrir. Fjölmennum í kirkjuna og eigum saman notalega stund. 

Ívan Árni sigraði í framsagnakeppni grunnskóla í Húnavatnsþingi

Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi var haldin á Laugabakka 26. mars.  Þau Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Hafliðadóttir og Ívan Árni Róbertsson kepptu fyrir hönd Höfðaskóla og stóðu sig öll glæsilega.  Keppendur auk þeirra voru frá grunnskólunum á Blönduósi, Húnavöllum og Laugabakka/Hvammstanga.  Ívan Árni sigraði í keppninni. Í 2. sæti varð Rakel Ósk Ólafsdóttir frá Grunnskóla Húnaþings vestra og í 3. sæti varð Atli Einarsson frá Grunnskólanum Blönduósi.

Draumaröddum norðursins vel tekið

Stúlknakór Norðurlands vestra syngur í dag í Hólaneskirkju og hefjast tónleikarnir klukkan 17. Kórinn hefur þegar komið tvisvar fram , á blönduósi og Hvammstanga, og hefur honum verið ákaflega vel tekið. Aðgangurinn kostar 1.500 krónur og 800 fyrir grunnskólanemendur. Selt er við innganginn. Ástæða er til að hvetja Skagstrendinga til að fjölmenna á tónleikanna. Myndir: Alexandra Chernyshova, listrænn stjórnandi Elínborg Sigurgeirsdóttir, undirleikari Margrét Petra Ragnarsdóttir, einsöngur í Katjusha Sara Rut Fannarsdóttir, Ástrós Kristjánsdóttir og Margrét Petra Ragnarsdóttir, einsöngur í Dont cry for me Argentina Stúlknakórinn á tónleikum í Blönduóskirkju 

Full kirkja á tónleikum Eivarar NÝJAR MYNDIR

Hvinur stormsins eða blíður andblær, lágvært öldugjálfur eða öskrandi öldurót, hjal ástarinnar eða tregi ástarsorgarinnar.  Allt þetta og margt fleira mátti heyra og skilja  þegar hin frábæra færeyska söngkona  Eivör Pálsdóttir hélt tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd sunnudagskvöldið 5. apríl fyrir troðfullu húsi áheyrenda. Með Eivöru var þriggja manna hljómsveit, tveir samlandar hennar sem léku á ýmis hljóðfæri og finnskur trommuleikari. Sú tónlist sem Eivör flutti er að mestu leyti frumsamin og þar mátti greina töluverð áhrif frá færeyskri tónlist og umhverfinu þar, fólkinu, fuglunum, veðurfarinu og landslaginu á heimaslóðum.  Sérstæð túlkun hennar í söng og breitt raddsvið gerði þessa tónleika líka frábrugðna öðrum og myndaði sérstaka stemningu og hugblæ sem þakklátir áheyrendur nutu til fulls 

Skagstrendingar kátir með Músíktilraunir

Hljómsveitin Bróðir Svartúlfs sigraði í Músíktilraunum í ár. Í hljómsveitinni er góð blanda af Skagfirðingum og Húnvetningum þar sem bassaleikarinn Jón Atli er frá Skagaströnd, trymbillinn Andri frá Blönduósi, hljómborðsleikarinn Helgi Sæmundur, gítarleikarinn Sigfús og síðast en ekki síst söngvarinn og textahöfundurinn Arnar Freyr eru frá Sauðárkróki. Segja má að Bróðri Svartúlfs hafi komið séð og sigrað í mörgum skilningi því Arnar Freyr var einnig útnefndur textahöfundur Músiktilrauna fyrir hnittna og vel samda íslenska texta og Jón Atli var valinn bassaleikari Músíktilrauna. Hlutdeild Skagastrandar var góð í úrslitum Músiktilrauna í ár því auk þessa var Almar Freyr Fannarsson valinn efnilegasti söngvarinn. Hljómsveit frá Norðurlandi hefur ekki unnið Músiktilraunir síðan hljómsveitin Jójó frá Skagaströnd náði þeim árangri 1988. Til gamans má geta þess að það var talsverð tenging við þá sem náðu árangri í ár því Viggó bassaleikari Jójó er bróðir Jóns Atla og Fannar sem lék á gítar í Jójó er faðir Almars Freys. Allir eru þeir afkomendur Viggós Brynjólfssonar sem m.a. hefur komið fram sem sérstakur harmonikkuleikari vinnuvélamanna við Kárahnjúkavirkjun ... Bræðurnir Jón Atli og Viggó Magnússynir hafa sem bassaleikarar báðir unnið Músíktilraunir, reyndar með 21 árs millibili en það er spurning hvort slíkt er ekki einsdæmi í sögu Músíktilrauna.

Miðar á tónleika Eivörar

Eivör Pálsdóttir syngur í Hólaneskirkju á Skagaströnd sunnudagskvöldið 5. apríl kl. 20:30. Enn er hægt að fá miða á tónleikana með því að hringja í síma 864 7444 og panta. Aðgangseyrir 1.000 kr. sem rennur óskiptur til kirkjunnar. Tónleikarnir eru í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli

Metaðsókn í opið hús Nes listamðistöðvarinnar

Meira en 150 manns komu á listsýningar Nes listamiðstöðvar á Skagaströnd um síðustu helgi. Sjaldan áður hafa jafnmargir komið til að hitta listamennina og skoða verk þeirra. Það voru listamenn marsmánaðar sem opnuðu hús sín. Gestir komu víða að, fjölmargir frá Blönduósi og jafnvel Sauðárkróki. Meðfylgjandi myndir tók Signý Richter.