Kærar þakkir til allra.

Við fjölskyldan viljum þakka fyrir ómetanlegan stuðning sem við höfum fundið fyrir síðan litli stubburinn okkar hann Guðjón Óli fór í aðgerð þann 26. mars og varð fyrir súrefnisskorti sem svo leiddi til alvarlegs heilaskaða. Leiðin frá aðgerðinni afdrifaríku hefur verið löng, erfið og oft á tíðum virst algerlega ófær. En þegar á reynir er gott að eiga góða að! Og höfum við fjölskyldan svo sannarlega fengið að kynnast því. Í kjölfar aðgerðarinnar hefur fólk fylkst okkur að baki og styrkt okkur og stutt í gegnum ófæra skafla og ógnvænlegar hafsins öldur en það ber vissulega að þakka. Foreldrar, systkini, aðrir ættingjar, vinir, nágrannar, sveitungar, samstarfsfélagar og hreinlega aragrúi af góðu fólki hefur sýnt okkur endalausa velvild og hlýjann hug. Góðar kveðjur hafa borist víðsvegar að úr heiminum og er samstaðan að okkar baki hreint út sagt ótrúleg, það sýndi sig eftirminnilega nú 10. nóvember þegar haldinn var samstöðuskemmtun í Félagsheimilinu á Blönduósi fyrir fullu húsi og rúmlega það af tilstuðlan vina, ættingja, umf. Hvatar og annara velunnara. Samhugurinn sem þar var, var reyndar það mikill að engin orð fá því lýst, eða eins og einn góður maður sagði við okkur „Það hefði verið hægt að sameina Austur húnavatnssýsluna eins og hún leggur sig og meira að segja við Vestur sýsluna líka“ Og það finnst okkur segja meir en mörg orð. Hvað sem öðru líður, þá erum við fjölskyldan afskaplega þakklát fyrir alla þá aðstoð og velvild sem okkur hefur verið sýnd á þessum erfiðu tímum. Við viljum hér með þakka öllum þeim sem stutt hafa við bakið á okkur og þá þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við skipulagningu og framkvæmd á samstöðuskemmtuninni þann 10 nóvember síðastliðinn. Þessi dagur rennur okkur aldrei úr minni. Með kærum kveðjum og innilegu þakklæti, Þórdís Erla, Jón Örn og synir.

Framhaldsdeild (dreifnám) er möguleiki í Austur Húnavatnssýslu

Á dögunum fóru fulltrúar sveitarfélaganna í Austur Húnavatnssýslu á fund mennta- og menningarmálaráðherra til að fylgja eftir ósk um stuðning við að starfrækja dreifnám í samstarfi við FNV í heimahéraði. Rökin fyrir beiðninni eru m.a. eftirfarandi: Að gefa nemendum í A-Hún. kost á að stunda framhaldsnám í heimabyggð með stofnun framhaldsdeildar á Blönduósi. Gert er ráð fyrir að núverandi skólaakstur sveitarfélaganna verði nýttur til að gera nemendum úr Húnavatnshreppi og Skagaströnd mögulegt að nýta dreifnám ásamt ungmennum á Blönduósi. Kennslan fer fram í gegnum fjarbúnað, með aðstoð kennara á kennslustað í fjarnámsstofu. Um er að ræða mikið hagsmunamál fyrir fjölskyldur í A-Hún. Ólíkt því sem blasir við nemendum í þéttbýli, eftir að grunnskóla lýkur, verða nemendur í A-Hún. að sætta sig við brottflutning að heiman um 16 ára aldur til þess að geta stundað framhaldsnám. Þetta hefur augljóslega aukinn kostnað í för með sér fyrir forráðamenn sem þurfa að standa staum af kostnaði við dvöl á heimavist og í sumum tilfellum að halda úti tveimur heimilum á meðan á námi stendur. Vonir eru bundnar við að uppbygging dreifnáms komi til með að minnka stórlega brottfall nemenda úr framhaldsskóla. Mörg dæmi eru um að nemendur sem treysta sér illa til að búa fjarri fjölskyldu flosni upp úr námi sökum öryggis- og stuðningsleysis. Ungmenni á aldrinum 16-18 ára eru ákaflega mikilvæg þeim samfélögum sem þau tilheyra. Því er mikilvægt að þau fái tækifæri til þess að dvelja á heimilum sínum eins lengi og kostur er og vera virkir þátttakendur í menningar- félags- og íþróttalífi sinna samfélaga. Annar markhópur dreifnáms eru fullorðnir eintaklingar, eða ungmenni sem flosnað hafa úr námi, sem gætu nýtt sér þennan möguleika til þess að hefja nám eða halda áfram námi sem annars hefði ekki orðið. Sannfæring er fyrir því að slíkt fyrirkomulag hefði víðtæk og mikilvæg áhrif á allt samfélag í Austur Húnavatnssýslu og óskuðu því sveitarfélögin eftir stuðningi við verkefnið. Á fundinum með ráðherra og aðstoðarmönnum hennar komu fulltrúar sveitarfélaganna öllum helstu rökum vel til skila. Fundurinn var jákvæður og árangursríkur og lítur nú út fyrir að ekki sé lengur spurning um hvort, heldur hvenær, dreifnám verði starfrækt í sýslunni.

Vinadagur í Höfðaskóla 8. nóvember 2012

Þann 8. nóvember er í annað sinn, að frumkvæði verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti, haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti hér á landi. Í tengslum við verkefnið ætlum við að hafa Vinadag í Höfðaskóla þar sem hefðbundin kennsla verður lögð til hliðar fram að hádegi og unnið að ýmsum verkefnum tengd vináttu. Kl. 11:15 ætlum við síðan í skrúðgöngu um bæinn og stoppa við fyrirtæki og jafnvel syngja. Lögreglan stefnir að því að vera í broddi fylkingar. Við hvetjum foreldra, afa ömmur, alla bæjarbúa og nærsveitarmenn til að koma og taka þátt í skrúðgöngunni með okkur og sýna samstöðu gegn einelti. Kl. 13:00 mun skólabjallan hringja stanslaust í 7 mínútur og hvetjum við aðra til að hringja bjöllum, flautum, klukkum á sama tíma Þá er þjóðin hvött til að standa saman gegn einelti í samfélaginu, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Allir eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að einelti fái ekki þrifist í samfélaginu og skólar, samtök og vinnustaðir eru hvattir til að beina sjónum að jákvæðum samskiptum, jákvæðum skólabrag og starfsanda. Er fólk um allan heim hvatt til að sýna samstöðu í baráttunni gegn einelti og kynbundnu ofbeldi með því að hringja alls konar bjöllum kl. 13.00 að staðartíma hvers lands þann 8. nóvember samfellt í sjö mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar. Í tengslum við daginn eru allir hvattir til að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti, sem er aðgengilegur á heimasíðunni www.gegneinelti.is Mörg verkefni sem tengjast baráttudeginum eiga sér langan aðdraganda, eru ólík en eiga það öll sammerkt að vera liður í að efla jákvæð samskipti í samfélaginu. Markmiðið með baráttudeginum er því ekki það að efna til sérstakrar flugeldasýningar á þessum tiltekna degi, dagurinn er fremur tilefni til þess að gefa gaum og benda á margt það sem vel er gert í þessum efnum. Baráttudagurinn er því ekki síður dagur til þessa að líta yfir farin veg, þétta raðirnar, ákveða næstu skerf og bretta upp ermarnar hver í sínum mikilvæga ranni.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 1. nóvember 2012 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun 2013 – fyrri umræða 2. Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla A-Hún 3. Byggðakvóti 4. Minnisblað Samband ísl. sveitarfélaga dags. 2. okt. 2012 5. Bréf: a. Brunavarna A-Hún, dags. 9. október 2012 b. Landssambands hestamanna, dags. 3. október 2012 6. Fundargerðir: a. Félags og skólaþjónustu A-Hún, 10.10.2012 b. Stjórnar SSNV, 2.10.2012 c. Hafnasambands Íslands, 15.10.2012 d. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 7.09.2012 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Quieres hablar Español ?

Tókstu ekki örugglega eftir auglýsingunni um spænskunámskeiðið sem til stendur að halda á Skagaströnd á næstunni? Endilega drífðu þig í að skrá þig hjá Óla Benna svo hægt sé að byrja sem fyrst. Netfangið hjá honum er: olibenna@hi.is og svo er líka hægt að skrá sig í síma 4512210 og 8993172. Magnús Stefánsson, sem ætlar að kenna, segir að þetta sé létt bara ef fólk nennir og hefur áhuga fyrir að bæta við sig. Fyrirkomulagið verður þannig að kennt verður tvö kvöld í viku með einu kvöldi á milli. Annars verður fyrirkomulagið á kennslunni rætt strax í byrjun og það sniðið að óskum þeirra sem sækja námskeiðið. Ef eitthvað er óljóst í sambandi við þetta hafðu þá samband við Óla Benna í ofangreinda síma. Svo er auðvitað líka á döfinni námskeið í heitreykingu matvæla.......

Ekki skjóta tré!!!!

Tilmæli til rjúpnaveiðimanna Sveitarfélagið og Skógræktarfélag Skagastrandar skora á rjúpnaveiðimenn að stunda veiðarnar utan skógræktarsvæðisins í Spákonufellsborg. Síðastliðið sumar var mjög augljóst að talsvert af þeim viðkvæma trjágróðri sem þar er að vaxa upp hafði orðið fyrir haglaskotum og skemmst vegna þess. Sveitarfélagið Skagaströnd Skógræktarfélag Skagastrandar

Bókasafn Skagastrandar opnar á ný

Bókasafn Skagastrandar opnar á ný í Fellsborg, fimmtudaginn 25.október 2012, kl: 15:00 Opið verður mánudaga frá 16:00-19:00 miðvikudaga frá 15:00-17:00 og fimmtudaga frá 15:00-17:00 Bókavörður

Leikfimi - Zumba, jóga, pilates, circuit training

Leikfimi með Andreu og Höllu Karen Zumba, jóga, pilates, circuit training Þrír tímar í viku = 24 skipti og kostar 21.000 kr Þann 23. október er að fara af stað leikfimi með Andreu og Höllu Karen sem stendur til 6. desember. Leikfimin verður í íþróttahúsi Skagastrandar á þriðjudögum kl. 18:00-19:00, miðvikudögum kl:19:00-20:00 (miðvikudagstíminn breytist kanski) og fimmtudögum kl: 17:00-18:00. Greiða verður fyrir námskeiðið fyrir 25. október. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest Andrea og Halla Karen

Þjóðaratkvæðagreiðsla

Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs fer fram á Skagaströnd laugardaginn 20. okóber n.k. Kosið verður í Fellsborg og hefst kjörfundur kl. 10:00 og stendur til kl. 21:00. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Skagaströnd

Takk fyrir komuna

Við hjá Rannsóknarsetri HÍ á Skagaströnd þökkum öllum sem komu í heimsókn til okkar um safnahelgina. Það gladdi okkur mjög hve margir nenntu að koma og aðstoða okkur við að finna út hvað er á myndum, sem við þekktum ekki. Einnig þökkum við öllum sem tóku þátt í að rifja upp með okkur sögu hafnarinnar. Við viljum minna á að Ólafur Bernódusson er við vinnu í setrinu alla virka daga frá 8 - 12 . Á þeim tíma eru allir meira en velkomnir því alltaf vantar okkur hjálp við að þekkja fólk og staði sem eru á myndum ljósmyndasafnsins. Einnig er fólk velkomið ef það langar að glugga í bækur úr safni Halldór Bjarnasonar, sem eru á staðnum. Bækurnar eru ekki til útláns en mjög góð lesaðstaða er hjá Rannsóknarsetrinu í gamla kaupfélagshúsinu. Ólafur er líka að vinna fyrir Farskólann og tekur fólk í viðtöl t.d. um námsframboð fyrir fullorðna og annað því tengt. Einnig býður hann upp á áhugasviðsgreiningu til að hjálpa fólki við að taka réttar ákvarðanir í sambandi við námsval. Auðvitað er líka hægt að hafa samband við okkur í síma 4512210 á hverjum morgni.