Mynd vikunnar

Kalli, Lilli og Ásmundur Þessir duglegu menn unnu allir hjá Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd. Karl Þórólfur Berndsen (f. 12.10.1933 - d. 12.2.1995), sem er lengst til vinstri, var vélvirki og vann lengi á verkstæðinu hjá verksmiðjunni. Sama gerði Þórarinn Hafsteinn Björnsson – Lilli Björns (f. 29.6.1926 - d. 24.5.1985) - sem er á miðri myndinni. Ásmundur Magnússon (f. 4.8.1918 - d. 2.2.1996), lengst til hægri, var vélstjóri og var svo verksmiðjustjóri á árunum 1946 - 1965. Þá flutti hann sig um set og gerðist verksmiðjustjóri á Reyðarfirði í mörg ár. Kalli og Lilli stofnuðu saman Vélaverkstæði Karls og Þórarins 1964 og unnu saman í því fyrirtæki til 1978 er Lilli seldi Kalla sinn hlut og flutti til Akureyrar vegna heilsubrests. Karl hélt starfseminni áfram, undir nafninu Vélaverkstæði Karls Berndsen, til dauðadags. Karl var alltaf mikill íþróttaáhugamaður og seinustu árin stundaði hann golf af ástríðu. Má segja um hann að Hágerðisvöllur væri líklega ekki það sem hann er í dag ef ekki hefði notið gríðalegrar sjálfboðavinnu Kalla við völlinn. Lilli Björns var dverghagur maður sem gat lagfært jafnt vörubíla og minnstu armbandsúr. Saman mynduðu þessir þrír menn öflugt teimi sem hafði áhrif til góðs í samfélaginu.

Golfkennsla á Skagaströnd

Hulda Birna Baldursdóttir, golfkennari, verður með golfkennslu á Skagaströnd dagana 25.–28. júní nk. Kennt verður í eftirtöldum hópum þessa 4 daga: A: 8-12 ára – kennslan verður á íþróttavellinum, kl. 13.00-15.30, í samvinnu við Umf. Fram. Þátttaka ókeypis. B: 13-16 ára – kennslan verður á golfvellinum, kl. 16.00-17.00. Verð 2.000 kr. C: Nýliðar – hóptímar – miðvikudag 26. júní og föstudag 28. júní, kl. 19.00-20.00. Verð 3.000.- kr. D: Einkakennsla – eftir samkomulagi við golfkennarann. Verð 3.000 kr. fyrir 30 mín. Skráning hjá Ingibergi menning@ssnv.is / 892 3080 eða Gunnu Páls pannug@simnet.is / 895 6772 í síðasta lagi föstudaginn 21. júní nk. Golfklúbbur Skagastrandar

Opna Fiskmarkaðsmótið

Minningarmót um Karl Berndsen Háagerðisvöllur - SKAGASTRÖND laugardaginn 22. júní 2013 Keppt verður í karla- og kvennaflokki án forgjafar og punktakeppni með forgjöf, einn flokkur. Nándarverðlaun á par 3 brautum og fyrir annað högg næst holu á braut 4. Keppnisgjald kr. 3.000.- Unglingar 14 ára og yngri kr. 1.500.- Mótið er hluti af Norðvesturþrennunni. Skráning á golf.is og í síma 892 5089 eða 892 3080 fyrir kl. 19:00, föstudaginn 21. júní. Golfklúbbur Skagastrandar

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 20. júní 2013 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Málefni sveitarfélaga í A-Hún a. Fundargerð, 30. maí 2013 b. Tillaga að framkvæmd hagkvæmniathugunar 2. Grunnskóli - leikskóli 3. Ljósmyndasafn Skagastrandar 4. Bréf: a. Listskreytingarsjóðs dags. 31. maí 2013 b. Tónlistarskólans á Akureyri, dags. 4. júní 2013 c. Eyðibýli á Íslandi, dags. 15. febrúar 2013 d. Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 31. maí 2013 e. Styrktarsjóður EBÍ, dags. 11. júní 2013 5. Fundargerðir: a. Byggingarnefndar, 30. maí 2013 b. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 24.05.2013 c. Stjórnar SSNV, 24.05.2013 d. Byggðasamlags um málefni fatlaðra, 24.05.20113 e. Stjórnar SSKS, 17.05.2013 f. Stjórnar Markaðsstofu Norðurlands ses, 18.04.2031 g. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 31.05.2013 6. Niðurstöður íbúaþings 30.04.2013 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Djásn og dúllerí - Sumaropnun 16. júní 2013

Nú er að ganga í garð fjórða sumarið sem Djásn og dúllerí verða með sölu á handverki og hönnun í kjallara gamla Kaupfélagsins á Einbúastíg. Eins og áður verður opið alla daga vikunnar frá kl. 14-18 Djásn og dúllerí minnir á Facebook-síðuna sína og síma S: 8668102

Mynd vikunnar

Stígandi Hu 9 Stígandi Hu 9 á stími í land með góðan afla á línu. Bjarni Helgason skipstjóri og eigandi í brúnni. Ásmundur Bjarni Helgason fæddist 30. nóvember 1903 að Eyri í Norður Ísafjarðarsýslu og dó 30. desember 1983. Hann var sjómaður allt sitt líf og lengst af skipstjóri. Hann flutti til Skagastrandar 1947 og gerði Stíganda, sem var 22 tonn að stærð, út þaðan í 30 ár. Eftir að hann seldi Stíganda gerði hann svo út á grásleppu á lítilli trillu. Margir sjómenn á Skagaströnd byrjuðu sína sjómennsku sem hásetar hjá Bjarna. Hann þótti afburða sjómaður og vílaði ekki fyrir sér að leggja einn í langferðir á Stíganda sínum. Þannig fór hann einn á honum frá Skagaströnd til Vestmannaeyja í febrúarmánuði (1960?) til að róa þar á vetrarvertíð. Kom hann við á Ísafirði og Reykjavík til að sofa. Bjarni var giftur Lilju Ásmundsdóttur (d. 2.4.1990) og gerðu þau sér heimili að Eyri (Holti) á Skagaströnd. Saman áttu þau fimm börn: Maríu, Helga, Skúla, Kjartan og Birnu. María og Helgi eru nú látin. Margar sögur eru sagðar af Bjarna á Stíganda en sennilega lýsir honum best það sem einn af hásetunum hans sagði um hann: " Bjarni er alltaf bestur þegar veðrið er verst". (Heimild: Skipstjórnarmenn 1. bindi eftir Þorstein Jónsson)

Gestanemi í Rannsóknarsetrinu í júní

Dagana 9. til 22. júní dvelur Sean Lawing á Skagaströnd með fjölskyldu sinni og vinnur að rannsóknum sínum á bókasafni Halldórs Bjarnasonar hjá Rannsóknasetrinu. Sean er doktorsnemi við Íslenskudeild Háskóla Íslands og í ritgerð sinni: "Disfigurement in Old Norse-Icelandic Law and Literature", fjallar hann um ofbeldislýsingar í Íslenskum miðaldasögum og samsvarandi framsetningu þeirra í íslenskum og norskum lögum frá sama tíma. Rannsóknarefnið sem hann vinnur að nú um stundir kallar hann: "Plotting against their Lives: fjörráð and álótsráð in Sturlunga saga". Meðfram doktorsnámi sínu starfar Sean Lawing nú sem fyrirlesari í sögu og ritun við Bryn Athyn College, PA USA.

Sveitarfélagið Skagaströnd – Leikskólinn Barnaból

Leikskólanum Barnabóli 10. júní 2013 Leikskólakennari óskast í 100% starf að leikskólanum Barnabóli Skagaströnd frá og með 15. ágúst 2013 Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum leikskólakennara sem er tilbúinn að koma í góðan starfsmannahóp leikskólans Barnabóls. Leikskólinn er tveggja deilda með um 32 nemendur. Berist ekki umsóknir frá leikskólakennurum eða fólki með sambærilega menntun sem uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða leiðbeinanda tímabundið til eins árs. Vakin er athygli á að skv. lögum um leikskóla frá 2008 getur leikskólastjóri farið fram á sakavottorð hjá umsækjanda. Leitast er við að jafna kynjamun og karlmenn jafnt sem konur hvött til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 24. júní 2013 Upplýsingar og móttaka umsókna er hjá leikskólastjóra Þórunni Bernódusdóttur Netfang: barnabol@skagastrond.is Sími 452-2706 Heimsíða: leikskolinn.is /barnabol

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður á Skagaströnd á morgun.

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður á Skagaströnd á morgun, 8.juni. Farið frá Íþróttahúsinu kl. 11, hægt að skrá sig á staðnum. Tvær hlaupaleiðir í boði, 2,5 km og 5 km. Endilega komdu og vertu með, hægt er að kaupa boli í forsölu í Olís á Skagaströnd

Vinnumálastofnun leitar eftir starfsfólki

Vinnumálastofnun Greiðslustofa leitar eftir kraftmiklu og jákvæðu starfsfólki í liðsheild sína. Fulltrúi – Símaver Um er að ræða tímabundna stöðu fulltrúa í símaveri, þarf að geta byrjað sem fyrst Starfs- og ábyrgðarsvið Símsvörun, almenn skrifstofustörf Upplýsingagjöf Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur fulltrúa Stúdentspróf er æskilegt Góð reynsla af skrifstofustörfum Góð tölvukunnátta Góð íslensku- og enskukunnátta Þekking á vinnumarkaði, stjórnsýslulögum og atvinnuleysistryggingarkerfinu er kostur Samskiptahæfni og rík þjónustulund ásamt skipulagshæfileikum, sjálfstæði og metnaði til að skila góðu starfi Fulltrúi – Afgreiðsla umsókna Um er að ræða stöðu fulltrúa til afleysinga frá 01.07.13-01.02.14 Starfs- og ábyrgðarsvið Afgreiðsla umsókna, aðstoð við útborgun, almenn skrifstofustörf Skráning upplýsinga og upplýsingagjöf Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur fulltrúa Stúdentspróf er æskilegt Góð reynsla af skrifstofustörfum Góð tölvukunnátta Góð íslensku- og enskukunnátta Þekking á vinnumarkaði, stjórnsýslulögum og atvinnuleysistryggingarkerfinu er kostur Samskiptahæfni og rík þjónustulund ásamt skipulagshæfileikum, sjálfstæði og metnaði til að skila góðu starfi Sérfræðingur Um er að ræða stöðu sérfræðings til afleysinga í fæðingarorlofi frá 15.07.13-01.02.14 Starfs- og ábyrgðarsvið Gæðastjórnun, innra eftirlit og önnur störf. Formleg samskipti við einstaklinga og opinberar stofnanir Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur · Háskólanám sem nýtist í starfi · Góð þekking á gæðastjórnun · Góð tölvukunnátta · Góð íslensku- og enskukunnátta · Samskiptahæfni og rík þjónustulund ásamt skipulagshæfileikum, sjálfstæði og metnaði til að skila góðu starfi Umsóknarfrestur er til 17. júní 2013. Greiðslustofa á Skagastönd er staðsett á Túnbraut 1-3 og er hlutverk hennar að sjá um greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrir allt landið. Þar starfa nú á þriðja tug starfsmanna. Um er að ræða full störf og eru laun greidd samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi Vinnumálastofnunar á heimasíðu hennar www.vinnumalastofnun.is. Nánari upplýsingar um störfin veitir Jensína Lýðsdóttir, forstöðumaður Greiðslustofu á Skagaströnd í s. 582-4900, Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist á netfang jensina.lydsdottir@vmst.is