01.03.2005
Togarinn Örvar kom í höfn á Skagaströnd sl. mánudag eftir rúmlega 5 sólarhringa siglingu frá Póllandi.Skipið fór í slipp í Gdyna í byrjun janúar og voru gerðar á því talsverðar breytingar. Skut skipsins var slegið út, fiskmóttaka stækkuð og klæðning á millidekki endurnýjuð. Örvar var einnig sandblásinn og málaður hátt og lágt og er nú hinn glæsilegasti. Má segja að það hafi verið gömlum Skagstrendingum mikið gleðiefni að sjá skipið málað í togaralitum Skagstrendings. Örvar fer á veiðar eftir uþb. 10 daga en nú er unnið að því að setja veiðarfæri um borð í skipið og ganga frá vinnslubúnaði á millidekki.
22.02.2005
Hið árlega grímuball staðarins var haldið í Fellsborg fimmtudaginn 10. febrúar. Mættu þar margvíslegar furðuverur á öllum aldri og skemmtu sér vel. Verðlaun, fyrir bestu búningana, voru veitt í þremur aldursflokkum, þá var marserað og svo kötturinn sleginn úr tunnunni. Það er skólafélagið Rán sem stendur að grímuballinu með góðri aðstoð foreldra og kennara.
09.02.2005
Námsstofan á Skagaströnd
Nú er vorönn hjá þeim skólum sem eru með fjarnám.
Fjarnámsnemendur eru farnir að mæta í Námsstofuna
eftir jólafrí og áramótaannir. Tveir nýir nemendur hafa
gert samning um aðgang að aðstöðunni eftir áramót.
Enn skal ítrekað að í Námsstofunni er góð aðstaða til
að stunda fjarnám, nokkrar tölvur og lesstofa. Nú er
búið að tengja fjarfundabúnaðinn sem þýðir að nú er
hægt að sitja kennslustundir í Námsstofunni. Þrír
nemendur hafa nýtt sér það á nýju ári.
Föstudaginn 18. febrúar kemur hingað ungur maður
sem er að vinna lokaverkefni sitt við Háskólann í
Kaupmannahöfn í rafmagnsverkfræði og
tölvunarfræðum. Verkefni hans er unnið í samvinnu við
Flugmálastjórn og er örsmár hluti af
flugumferðarstjórnunarkerfinu á Atlandshafinu. Hann
kemur hingað með sína tölvu og prentara, tengist
kerfinu hér og nýtir sér fjarfundabúnaðinn til að vera í
sambandi við Kaupmannahöfn og Reykjavík. Hann
reiknar með að vera hér í 1-2 vikur. Við lítum á þetta
sem tilraun og ef hún gefst vel og allt virkar eins og það
á að gera geta aðrir fylgt í kjölfarið.
Þriðjudaginn 8. febrúar hófst tilraunaverkefni
Námsstofunnar og Trésmiðju Helga Gunnarssonar ehf.
Helgi kemur inn á Námsstofuna með 1-2 starfsmenn
með sér á morgnanna og er um 2 klst. Umsjónarmaður
Námsstofunnar leiðbeinir þeim um Internetið, póstforrit,
Exel, Word o.s.frv. allt eftir þörfum hvers einstaklings.
Næst mætir Helgi föstudaginn 11. febrúar og síðan
verður næsti dagur ákveðinn.
Þriðjudaginn 22. febrúar verður fyrri hluti námskeiðs í
AutoCAD í tölvuveri Höfðaskóla. Seinni hlutinn verður
þriðjudaginn 15. mars. Fyrirtækið Snertill sem er
viðurkenndur sölu- þjónustu- og kennsluaðili Autodesk
og CADPOINT verður með námskeiðið. Námskeiðið er
á vegum Námsstofunnar og á milli fyrri og seinni hluta
verður hægt að koma í tölvur Námsstofunnar og æfa
sig í verkefnum í AutoCAD eftir samkomulagi við
umsjónarmann.
Þeir sem vilja aðstoð eða nýta aðstöðuna í
Námsstofunni á Skagaströnd er bent á að hafa
samband við undirritaðan.
Febrúar 2005
Umsjónarmaður Námsstofunnar á Skagaströnd
Hjálmur Sigurðsson
S: 8440985
09.02.2005
Furðuverur dagsins sýndu ýmis skemmtileg tilþrif við
söng og spil á öskudegi. Ungir Skagastrendingar fóru
ótroðnar slóðir og bættu nokkrir upp sönginn með
gítarspili. Íklæddir á ýmsa vegu mættu tónlistarmenn
framtíðarinnar og létu sér ekki muna um að skemmta
starfsfólki á hreppsskrifstofunni og hlutu að sjálfsögðu
góðgjörning að launum. Grímuballið verður haldið í
Fellsborg á fimmtudag milli kl. 19.00-21.00 og eru allir
hvattir til að mæta í grímubúningum.
07.02.2005
Kynning á námi við Háskólann á Akureyri
Laugardaginn 12. febrúar nk. verður kynning á
námsframboði Háskólans á Akureyri. Kynningin verður
haldin í rannsóknar- og nýsköpunarhúsinu Borgum kl.
13:00 til 17:00. Boðið verður upp á kaffiveitingar og
tónlistaratriði. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér
starfsemi háskólans og skoða ný húsakynni að
Borgum eru hvattir til að taka daginn frá fyrir öðruvísi
laugardagsbíltúr.
Dagskrá
13:30 – Kynning á auðlindadeild
Gengið verður um rannsóknarstofur auðlindadeildar um
leið og brautskráðir nemendur kynna nám við deildina.
14:00 – Kynning á félagsvísinda- og lagadeild
Nemendur og starfsmenn kynna nám við félagsvísinda-
og lagadeild.
14:30 – Kynning á heilbrigðisdeild
Nemendur á 4. ári í hjúkrunarfræði og iðjuþjálfun segja
frá reynslu sinni af námi við heilbrigðisdeild.
15:00 – Kynning á kennaradeild
Nemendur á grunnskólabraut og leikskólabraut segja
frá námi við kennaradeild.
15:30 – Tónlistaratriði
Helena Guðlaug Bjarnadóttir, sópran syngur við
undirleik Helgu Bryndísar Magnúsdóttur.
16:00 – Kynning á upplýsingatæknideild
Deildarforseti og nemendur segja frá námi við deildina.
16:30 – Kynning á viðskiptadeild
Nemandi á 2. ári og brautskráður nemandi kynna nám
við deildina og alþjóðlegt verkefni sem unnið er að um
þessar mundir.
Nemendur og kennarar allra deilda verða á staðnum og
svara fyrirspurnum á meðan opið er.
Kemstu ekki???
Fyrir þá sem hafa ekki tök á að koma á þessum tíma
vek ég athygli á námskynningu í Borgarleikhúsinu 5.
mars nk. kl. 11 – 17. Sjá nánar á slóðinni:
http://www.unak.is/template1.asp?
pageid=1025&newsid=799
04.02.2005
Það kom skemmtilega á óvart að Ingvar Jónsson,
brottfluttur Skagstrendingur kom í heimsókn í
íþróttahúsið færandi hendi. Var honum hugsað til
æskunnar sem nú vex úr grasi á Skagastönd minnugur
þess þegar hann ólst sjálfur þar upp að hluti af því er
þátttaka í bolta og keppnisleikum. Færði hann húsinu
keppnistreyjur og bolta til að nota við íþróttaiðkunn.
Árni Geir húsvörður tók við gjöfunum og færi honum
þakklæti Skagstrendinga fyrir þær. Ingvar er eigandi
Nike-búðarinnar á Laugarveginum.
01.02.2005
Undanfarin ár hefur það verið venja að nemendur í 9. og
10. bekk hafa farið í skólaferðalag til Danmerkur annað
hvort ár.
Síðastliðinn vetur barst ósk frá vinabæ okkar í Noregi,
sem heitir Hönefoss, um gagnkvæm nemendaskipti.
Var það einn bekkur í Hov ungdomsskole sem vill
gjarnan koma til Íslands og kynnast landi og þjóð.Var
það samþykkt og hafa nokkur samskipti verið milli
nemenda síðan.
Nú hefur verið ákveðið að norsku nemendurnir verði á
Skagaströnd 24.-26. maí en að nemendur 9. og 10.
bekkjar Höfðaskóla verði í Noregi 7.-12. júní. Munu þeir
dvelja í Hönefoss 7.-9. júní en að öðru leyti hefur
dagskráin ekki enn verið fullmótuð.
31.01.2005
Þriðjudaginn 18. janúar sl. var haldinn fræðslufundur
í Höfðaskóla á vegum foreldrafélags skólans. Fyrirlesari
var Jón Páll Hallgrímsson, starfsmaður
Regnbogabarna, sem eru landssamtök gegn einelti.
Jón Páll skipti fyrirlestri sínum í tvennt. Í fyrri hlutanum
ræddi hann eineltismál og aðgerðir gegn þeim en
seinni hlutanum varði hann í forvarnir vegna
vímuefnaneyslu.
Um þrjátíu foreldrar sátu fundinn.
Sama dag hitti Jón Páll nemendur 8.-10. bekkjar og
ræddi við þau um sömu málefni.
Fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemi
Regnbogabarna þá er heimasíðan
www.regnbogaborn.is .
31.01.2005
Um miðjan janúar barst nemanda í 1. bekk pakki frá
Danmörku. Í sendingunni var lítill bangsi, að nafni
Cinnabear. Hafði hann upphaflega verið sendur frá
Michigan í Bandaríkjunum sl. haust og var
skólaverkefni ungs nemanda þar.
Tilgangurinn með verkefninu var að láta bangsann
ferðast sem víðast um heiminn og biðja viðtakendur
hans að senda fréttir og myndir í skólann í Michigan
þar sem nemandinn er. Með þessu á að auka tengsl
og víðsýni milli landa.
Bangsinn hafði upphaflega farið til Hollands og þaðan til
Danmerkur og kom svo hingað til Skagastrandar. Hér
hefur hann m.a. heimsótt leikskólann og svo 1. bekk
grunnskólans.
Héðan fer bangsinn til Svíþjóðar og svo væntanlega til
Frakklands áður en hann heldur heim á leið í byrjun
apríl.
28.01.2005
Eins og öllum er í fersku minni féllu niður rúmlega 30
kennsludagar í haust vegna verkfalls. Á fundi
skólanefndar Höfðaskóla, 12. desember sl., var skipuð
fjögurra manna nefnd til að koma með tillögur til
sveitarstjórnar um úrbætur vegna þessa. Í nefndinni
sátu skólastjóri, formaður skólanefndar og fulltrúar
foreldraráðs og kennara. Voru þær tillögur sendar
hreppsnefnd í árslok.
Á fundi hreppsnefndar Höfðahrepps, þann 11. janúar
sl., var samþykkt að veita skólastjóra Höfðaskóla
heimild til að ráðstafa allt að 500 þús. kr. til að bæta
nemendum elstu bekkjanna upp kennslutap vegna
verkfallsins í haust. Einnig var lögð áhersla á að nýta
alla daga sem best til kennslu.
Á grundvelli þessarar samþykktar og og með hliðsjón
af tillögum nefndarinnar hafa eftirfarandi ráðstafanir verið
gerðar:
Prófdögum í annarlok, í febrúar og maí, og
útivistardögum í maílok hefur verið fækkað og verður
almenn kennsla í stað þess.
Æfingar fyrir árshátíð verða að hluta til utan
hefðbundins kennslutíma, þ.e.a.s. færast aftar á
daginn.
Kennsla verður 29. mars í stað starfsdags
kennara.
Kenndir verða sex aukadagar í 10. bekk og
3 aukadagar verða í 8. og 9. bekk. Þar verða
samræmdu-prófs greinarnar í forgrunni. Þessi kennsla
fer fram á laugardögum og öðrum frídögum í apríl og maí
Með þessum og öðrum aðgerðum hafa bæst við frá
fjórum og upp í fjórtán dagar í kennslu þar sem
áherslan er fyrst og fremst lögð á bóklegar greinar.
Mestur ávinningurinn er á unglingastiginu.
Er þess vænst að þessar aðgerðir vegi að hluta upp á
móti því kennslutapi sem varð í haust.