MITT KORT hjá Landsbankanum komið í umferð á Skagaströnd

Fréttatilkynning frá Landsbankanum 18. ágúst 2005 Rebekka Maren Þórarinsdóttir var einn af fyrstu viðskiptavinum Landsbankans á Skagaströnd til að fá í hendur greiðslukort með persónulegu útliti, svokallað Mitt kort. Rebekka notaði mynd af sér á kortið sitt sem hún fékk afhent í útibúi Landsbankans á dögunum. Það er því ljóst að verslunarmenn mega eiga von á fjölbreyttum og skemmtilegum greiðslukortum því alls hafa um tvö þúsund viðskiptavinir Landsbankans um land allt hannað sín eigin greiðslukort og eru þau óðum að komast í umferð. Æ fleiri nýta sér þann möguleika að setja eigin myndir á kort sín, til dæmis af börnum, maka, áhugamálum og gæludýrum. Einnig má velja úr sérstöku myndasafni bankans, þar sem meðal annars er að finna merki félaga í Landsbankadeildinni í knattspyrnu. Allir viðskiptavinir Landsbankans geta fengið Mitt kort, bæði debet og kredit, án endurgjalds fyrst um sinn. Hönnun og umsókn kortanna fer fram á netinu (www.landsbanki.is) og er afgreiðslutíminn aðeins örfáir dagar.

Húnabjörg sótti Hegranes SK til Eskifjarðar

Björgunarskipið Húnabjörg á Skagaströnd sótti togarann Hegranes til Eskifjarðar og dró hann til Sauðárkróks en vél togarans bilaði þegar hann var á veiðum út af Austfjörðum. Hegranes SK er ísfisktogari í eigu Fisk Seafood og hefur aðallega veitt fyrir fiskvinnsluna á Sauðárkróki. Björgunarskipið Húnabjörg reyndist mjög vel í túrnum sem tók rúma tvo sólarhringa og er lengsti leiðangur þess hingað til. Komu skipin til hafnar á Sauðárkróki um kl 20 í gærkvöldi. Skipstjóri á Húnabjörgu var Guðmundur Henry Stefánsson.

Næsti hreppsnefndarfundur

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í Hreppsnefnd Höfðahrepps mánudaginn 15. ágúst 2005 á skrifstofu hreppsins kl 1700. Dagskrá: 1. Hafnarreglugerð fyrir Skagastrandarhöfn 2. Sparkvöllur 3. Skipulagsmál: a) Deiliskipulag fyrir Hólaberg b) Svæðisskipulag Norðurlandsskóga 4. Bréf: a) Finnboga Guðmundssonar, dags. 8. ágúst 2005. b) Sjávarútvegsráðuneytisins, dags. 5. ágúst 2005. c) Pjaxa, bókaútgáfu, dags. í ágúst 2005. d) Sjálfsbjargar, dags. 8. júlí 2005. e) Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunarinnar á Bl.ósi, dags. 28. júlí 2005 5. Fundargerðir: a) Húsnæðisnefndar, 10. ágúst 2005. b) Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 3. ágúst 2005. 6. Önnur mál. Sveitarstjóri

Sparkvöllur að komast á lokastig.

Uppbygging sparkvallarins á skólalóðinni gengur vel og styttist óðum í að hann verði fullbúinn. Gerfigrasið var lagt á í byrjun ágúst og veggirnir eru óðum að rísa. Sparkvöllurinn sem er samstarfsverkefni KSÍ og Höfðahrepps hefur verið unnin af Trésmiðju Helga Gunnarssonar og starfsmönnum Höfðahrepps. Verkinu hefur miðað ágætlega og er nú að komast á lokastig þar sem tréverkið í kringum völlinn er vel á veg komið og hellulögn meðfram vellinum er á lokastigi. Gerfigrasið var lagt á af sérfræðingum frá framleiðanda sem gengu frá því á tveimur dögum. Eftir að grasið hafði verið sett á var fyllt í það með einskonar gúmmísandi sem gefur vellinum bæði þéttleika og mýkt. Gúmmísandurinn er hins vegar misvel þokkaður á heimilum þar sem hann vill berast með fótboltagörpum á öllum aldri inn í hús að leik loknum. Í undirlagi sparkvallarins er snjóbræðslulögn sem mun auka mjög á nýtingu vallarins yfir vetrarmánuðina.

Auglýsing um deiliskipulag Skagaströnd

Tillaga að deiliskipulagi Ægisgrund, Skagaströnd; lóðir opinberra bygginga. Hreppsnefnd Höfðahrepps auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og bygg­ingar­laga nr. 73/1997 með síðari breytingum, tillögu að deiliskipulagi Ægisgrund Skagaströnd, lóðir opinberra bygginga. Á lóð Ægisgrundar 2-12 hafa verið íbúðir aldraðra og verður þar engin breyting á. Á lóð Ægisgrundar 14 hefur verið starfrækt dvalarheimili aldraðra og verður áfram, en að auki mun heilsugæslustöð flytja starfsemi sína í viðbygginu sem fyrirhuguð er. Í tillögunni er markaður byggingarreitur fyrir viðbyggingu, lóðarmörk dregin, grein gerð fyrir bílastæðum og byggingarskilmálar settir fram. Tillöguuppdrættir munu liggja frammi í skrifstofum Höfðahrepps, Túnbraut 1-3 á Skagaströnd til miðvikudagsins 10. ágúst 2005. Athugasemdum skal skila á skrifstofu Höfðahrepps fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 24. ágúst 2005 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd inn­an þessa frests teljast samþykkir tillögunni.

Annasamri íþróttahelgi lokið

Hér eru loksins myndir frá Goggamóti í frjálsum íþróttum í Mosfellsbæ, KB bankamóti í knattspyrnu í Borgarnesi og Bikarkeppni FRÍ 2 deild í frjálsum á Sauðárkróki. Skagstrendingar áttu þar fulltrúa helgina 24/6 – 26/6 sem allir stóðu sig með miklum sóma. Stefán Velemir tók þátt í Goggamótinu í Mosfellsbæ sem haldið var í 15 sinn. Því miður fannst ekki mynd af Stefáni en á myndinni sjáum við aðra keppendur frá USAH og þjálfarann Steinunni Huldu Magnúsdóttur við keppni í spjótkasti. Sæþór, Alex Már, Elías Kristinn og Guðjón Páll kepptu sem Hvöt í 5 flokki í Borgarnesi. Með þeim voru tveir strákar frá Blönduósi og einn úr sveitinni og Ólafur Benediktsson þjálfari Hvatar. Glöggir menn sjá hins vegar að strákarnir eru í búningum Umf. Fram. Þessir strákar gerðu sér lítið fyrir og gerðu eitt jafntefli en unnu 5 leiki og þar með sinn flokk í mótinu. Á myndinni frá mótinu á Sauðárkróki má sjá Sigurrós Ósk, Elna, Laufey Inga, og Kristján Heiðmar með Sunnu Gestsdóttur. Sunna keppti fyrir USAH í nokkrum greinum en okkar fólk fór til að læra og þau voru starfsmenn við ýmsar greinar á mótinu. Skagstrendingar geta verið stoltir af þessum ungu fulltrúum sínum á íþróttavellinum. Íþróttafulltrúi Höfðahrepps

Námsstofan á Skagaströnd

Í Námsstofunni er ekkert sumarfrí. Í gær 6. júlí var kynning á kjarasamningi sjúkraliða í fjarfundabúnaði Námsstofunnar. Þar mættu 6 sjúkraliðar. Þessa dagana er Þóra Ágústsdóttir í Álaborg í Danmörku að vinna að lokaverkefni sínu við háskólann þar. Verkefnið er á sviði Evrópufræði og fjallar um hvers vegna Ísland hefur ekki sótt um aðild að ESB. Síðan er hún væntanleg aftur hingað í Námsstofuna í áframhaldandi vinnu við verkefnið. Karen Lind Gunnarsdóttir er í B.A. námi við Háskólann á Akureyri í sálfræði og samfélags- og hagþróunarfræði. Hún notar aðstöðuna í Námsstofunni til að vinna úr rannsókn sem kallast “Félagslegt umhverfi Evrópubúa”. Hún tekur viðtöl á Skagaströnd, Blönduósi og Hvammstanga og vinnur síðan úr sínum gögnum í Námsstofunni. Hildur Inga Rúnarsdóttir er að ljúka cand.theol við guðfræðideild Háskóla Íslands. Hún er að skrifa kandidatsritgerð í Nýja testamenntisfræðum til 10 eininga sem er rannsókn á frumheimild: Rómverjabréfið 12:9-13 út frá félags- og menningarsögulegri aðferðafræði. Guðlaug Grétarsdóttir er í sumarönn við Háskólann á Akureyri í “Vísindasmiðju” og “Margmiðlun”. Hún er að vinna verkefnavinnu í þessum áföngum ásamt því að undirbúa B.Ed. ritgerð sína. Þeir sem vilja aðstoð eða nýta aðstöðuna í Námsstofunni á Skagaströnd er bent á að hafa samband við undirritaðan. Júlí 2005 Umsjónarmaður Námsstofunnar á Skagaströnd Hjálmur Sigurðsson S: 8440985

Opna TM mótið / Minningarmót um Karl Berndsen

Opna TM mótið, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið á Háagerðisvelli 25. júní. Keppendur voru alls 25 frá sex golfklúbbum. Nokkur rigning var fyrri hluta mótsins en síðan stytti upp. Leiknar voru 18 holur, með og án forgjafar. Úrslit urðu sem hér segir: Konur: Án forgjafar Svanborg Guðjónsdóttir GSS Ingibjörg Ó. Guðjónsdóttir GSS Fanney Zophoníasdóttir GÓS Með forgjöf Svanborg Guðjónsdóttir GSS Ingibjörg Ó. Guðjónsdóttir GSS Fanney Zophoníasdóttir GÓS Karlar Án forgjafar Árni Már Harðarson GA Jón Jóhannsson GÓS Ingibergur Guðmundsson GSK Með forgjöf Ingibergur Guðmundsson GSK Lúðvík Vilhelmsson GÓS Adolf H. Berndsen GSK

Nýr púttvöllur vígður

Fimmtudaginn 23. júní var vígður nýr 9 holu púttvöllur á tjaldstæði Höfðahrepps. Fyrsta púttið sló Ingibergur Guðmundsson, fyrsti formaður Golfklúbbs Skagastrandar en vígslan var keppni milli hans og Hjálms Sigurðssonar, tómstunda- og íþróttafulltrúi Höfðahrepps. Ekki fara sögur af úrslitum en þó töldust þau hagstæðari öðrum aðilanum. Púttvöllurinn er öllum opinn en þeir sem vilja keppa verða að minnsta kosti til að byrja með að hafa með sér púttara og kúlur.

Heimsókn frá Hönefoss

Hönefoss í Ringerike, vinabær Skagastrandar í Noregi, hefur verið hér nokkuð í fréttum undanfarið vegna gagnkvæmra heimsókna nemenda grunnskólanna á þessum stöðum í maí og byrjun júní. Síðastliðið þriðjudagskvöld komu nokkrir meðlimir Norræna félagsins í Hönefoss í heimsókn til Norræna félagsins á Skagaströnd, alls tuttugu og einn að tölu. Veður og veðurspá höfðu verið nokkuð válynd að undanförnu og ollu nokkrum áhyggjum heimamanna sem fannst ekki spennandi að sýna gestunum bæinn og nágrenni í roki og rigningu og 3ja stiga hita. Meðhjálpari bæjarins og mikill áhugamaður um norrænt samstarf, Steindór Haraldsson að nafni, sá að við svo búið mátti ekki standa og ræddi nokkra stund við yfirboðara sinn á efri hæðum. Gengu þær viðræður vel og í sama mund og rútan með gestina renndi í bæinn hætti rigningin og létti til. Var veður síðan hið besta meðan gestirnir dvöldu hér á Skagaströnd. Norrænu gestirnir dvöldu í heimahúsum meðan á dvölinni stóð nutu gestrisni heimamanna. Á miðvikudeginum hófst dagskráin með skoðunarferð um bæinn en síðan var haldið í “Rækjuvinnsluna” þar sem þeir fengu kynningu á saltfiskvinnslunni. Eftir það var haldið út í Kálfshamarsvík þar sem Rafn Sigurbjörnsson oddviti Skagabyggðar tók á móti gestunum og fræddi þá um staðhætti. Að því loknu var haldið í Skagabúð og snæddur dýrindis hádegisverður í boði heimamanna, á borðum var nýveiddur silungur, reyktur silungur og reyktur rauðmagi ásamt meðlæti, m.a. flatbrauði, soðbrauði og rúgbrauði með fjallagrösum. Eftir hádegisverðinn var ekið til baka til Skagastrandar og komið við á netaverkstæði Toppnets. Þar fræddi Ólafur Bernódusson gestina um hákarlaveiðar og sýndi þeim ýmis tæki til veiðanna en síðan var boðið upp á harðfisk, hákarl og brennivín. Flestum Norðmönnunum þótti harðfiskurinn ágætur, hákarlinn fékk heldur lakari viðtökur en ekki var fúlsað við Svartadauðanum. Að loknu öllu þessu var haldið í guðshús bæjarins, Hólaneskirkju. Þar fræddi Steindór meðhjálpari hópinn um sögu kirkjunnar og kirkjukórinn söng nokkur lög. Síðan var haldið í Gamla skólann, saga hússins sögð og drukkið kaffi. Kvöldverður var síðan í Kántrýbæ með gestum og gestgjöfum og öðrum félögum Norræna félagsins, þar sem Steindór kokkur og aðstoðafólk hans bauð upp á fiskiréttasúpu, lambalæri og skyr í eftirrétt. Undir borðum var sungið allnokkuð, sýndur kántrýdans og fluttar tölur. Síðan hélt hver til síns heima, saddur og sæll. Norrænu gestirnir kvöddu svo Skagaströnd á fimmtudagsmorguninn og þökkuðu mikið fyrir sig. Var þá ferðinni heitið til Snorra Sturlusonar í Reykholti og síðan til Reykjavíkur. Norræna félagið á Skagaströnd vill þakka öllum þeim sem aðstoðuðu við þessar móttökur sem tókust hið besta í alla staði.