Sjö þúsund tonn á kvótaárinu

Nokkuð minni fiskafli barst á land í febrúar á Skagaströnd en á sama tíma í fyrra. Engu að síður hefur aldrei borist meiri afli á land en á yfirstandandi kvótaári. Þetta kemur glögglega í ljós á súluritinu hér til hliðar. Það sem af er hafa rúmlega 7 þúsund tonn borist á land en voru tæplega sex þúsund í fyrra sem var metár. Heildaraflinn í febrúar var 541 tonn en var í sama mánuði í fyrra 875 tonn. Afli einstakra skipa var sem hér segir: Arnar HU-1, ein löndun, 296,7 tonn Fjölnir SU-58, línubátur tvær landanir, 103,4 tonn Páll Jónsson GK-7, línubátur, ein löndun 69,3 tonn Alda HU-112, línubátur, sex landanir, 35,9 tonn Sæfari SK-112  línubátur, fimm landanir, 8,7 tonn Dagrún ST-12, netabátur, ellefu landanir, 9,3 tonn Ólafur Magnússon HU-54, netabátur, 8 landanir 3,9 tonn

Brunahaninn hefur ekki forspárgildi

Veðurstofa Skagastrandar hefur verið í fríi síðustu klukkustundirnar og þess vegna er eiginlega logn á Skagaströnd. Engu að síður hefur brunahaninn færst úr stað eins og glöggt má sjá á meðfylgjandi mynd. Hann á að vera 45 cm lengra til hægri en hann í raun er og bendir það til að niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave þann 9 apríl verði þjóðinni til mikillar hagsbóta. Ekki er af þessu hægt að draga neinar ályktanir um forspárgildi brunahanans enda hefur hann hingað til verið frekar staður. Myndin var send af veðurskipinu Hallo sem statt er fyrir utan suðurströnd Ástralíu. Samkvæmt því er -0,6 gráðu frost á Skagaströnd. Suðrið sæla andar nú vindum þýðum, sem er um það bil 3 m/s og námundað í logn. Kviðir eru þandir en hviður eru í 4 m/s og má úr þessu gera ráð fyrir auknum vindgangi. Loftþrýstingur hefur staðnæmst við 1026 hPa. Gera má ráð fyrir að frost minnki eða aukist um helgina og að öllum líkindum mun vindgangur aukast. Næst verða veðurfréttir fluttar í næsta hús.

Bústaður byggður á fjórum mánuðum

Hjá Trésmiðju Helga Gunnarssonar á Skagaströnd fæddist stór og fallegur bústaður í gær. Og ekki gerðist það án nokkurs undanfara en síðustu vikur hafa starfsmenn fyrirtækisins veriða að undirbúa smíðina innanhúss og í gær var hafist handa við að setja það saman. Þetta er fallegt hús eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Það er tvílyft, svefnloft er á efri hæðinni. Alls er það 66 fermetrar og þar að auki verönd, hluti hennar er yfirbyggður. Grunnflöturinn er 6x13,5 ferm. Bústaðurinn er heilsárshús og verður flutt til Dalvíkur þar sem Trésmiðjan mun steypa grunn og síðan í byrjun júní verður það flutt á sinn stað. Svo er bara að panta. Á fjórum mánuðum getur bústaður eins og þessi verið kominn á staðinn og allir glaðir.

Suddirarirei kveðja úr geimnum

Veðurstofu Skagastrandar barst í morgun meðfylgjandi gerfitunglamynd frá veðurhnettinum HBY11LL sem sveimar stjórnlaus að morgni dags yfir norðurhveli jarðar. Með myndinni barst óundirrituð kveðja til Skagstrendinga með þakkir fyrir unaðsríka daga á síðustu Kántrýhátíð og er beðið um lagið Súddirarirei með Gylfa Ægissyni ...   Á myndinni má greina hluta af Skagaströnd og þá sérstaklega brunahanann sem ávallt er fyrstur á fætur á morgnanna. Auk þess má glöggt sjá eftirfarandi: Hitastigið er -0,8 gráður Vindgangur er enginn, núll, zero, nada, null, nothing ... og blés’ann fyrir tíu mínútum af suðaustan, af norðan fyrir tuttugu mínútum og vestan fyrir þrjátíu. Í logni blæs helst í hviðum, en hvorki hljómkviðum eða hljómhviðum Af brunahananum má greina að loftþrýstingur er stöðugur í 128 hPa Engar væntingar er af Icesave miðað við stöðu brunahanans sem hefur ekki færstu úr stað síðan í gær. Af ofangreindum má ráða að gott veður er á Skagaströnd og mettir allir kviðir. Það er gott mál nema á milli mála.

Brunahaninn galar ...

Veðurskipið Bravo sendi þessa gerfihnattarmynd af veðurlagi á Skagaströnd í morgun en einn úr áhöfninni tók hana á frívakt. Á myndinni má vel greina hina björtu strönd, hús og bíl en fátt fólk virðist vera á ferli. Brunahaninn galar í góðviðrinu en færist ekki úr stað. Veðurlýsing Skagaströnd klukkan 11:30: Skyggni  er að minnsta kosti 60 km, bjartviðri hið mesta, sól fer hækkandi á himni, flóðahæð er 1,08 m, 9 m/s, hvíðan er 11 m/s, kviðir eru útistandandi, vindátt er norðnorðvesta, loftþrýstingur er stöðugur i 1024 hPa og loftihiti er -1,7 gráður. Veðurspá Vor í nánd, vetur næstum að baki, Icesave framundan. Næst verða fluttar veðurfréttir frá Skagaströnd.

Brunahaninn og veðurspáin

Veður er á Skagaströnd. Svo hefur verið lengi. Meðfylgjandi mynd er fengin sjálfvirku veðurathugunarkerfi alþjóða veðurmálastofnunarinnar. Af því má ljóst vera að snjóföl er á jörðu. Frekar lyngt er, aðeins 12 m/s, enda hefur brunahaninn lengst til vinstri á myndinni ekki enn færst úr stað. Það gerist aðeins í snöggum suðsuðvestanhviðum. Hann færist svo til baka í norðnorðaustan hviðum. Markvisst er unnið í íþróttahúsinu að minnkun kviða. Sumir mæta á bíl í vinnuna. Teygst á Skagaströndinni í hvassviðri undanfarinna vikna og því orðið lengra í vinnuna. Sjáanlegt frost er aðeins 3,5 gráður. Af er veðurfar í febrúar. Þá var snjólaust og hlýtt var á Ströndinni. Jafnvel golfarar iðkuðu íþrótt sína við nokkurn vegin skammlausar aðstæður. Ekki var þá vatnsaginn tiltakanlegt vandamál enda brúkuðu þeir einfaldlega klofstígvél við barninginn. Eftir jafndægur er jafnan gert ráð fyrir því að vorið sé handan við sæinn. Halda sumir því fram að það komi líklega af Ströndum eins og svo margir sem nú búa á Skagaströnd. Veðrið heldur svo áfram á Skagaströnd. Langtíma veðurspá: Vetrarríkinu mun linna fyrir haustið. Snjókoman minnkar og þá tekur við rigningartíð. Þess á milli má búast við heiðskíru veðri, skýjuðu og stundum þungbúnu. Gert er ráð fyrir að hitinn verði á milli 10 gráða og -5 gráða nema þegar er hlýrra eða kaldara. Ekki verður mjög hvasst næstu mánuði frekar lyngt, svona á milli 2 m/s og 25 m/s og er þá ekki gert ráð fyrir hviðum í þeim mælingum enda verða kviðir orðnir flatir fyrir vorið. Næst verður gefin út veðurspá.

Félagsvist í Fellsborg í kvöld

Kvenfélagið Eining á Skagaströnd verður með aðra umferð félagsvistar í Fellsborg í kvöld. Fyrsti hlutinn var á dagskrá í síðustu viku og var þá fjölmenni. Þriðji hlutinn verður að viku liðinni. Fólk er hvatt til að mæta enda tilvalið tækifæri til að læra spilið félagsvist. Ekki er nauðsynlegt að hafa mætt í síðustu viku enda er tilgangurinn sá að skemmta sér og öðrum. Félagsvistin byrjar klukkan 20:30 í kvöld.

Áskorun um bætta umgengni og frágang

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að beita sér fyrir bættri umgengni og átaki í umhverfismálum og hefur m.a. staðfest samþykktina sem birt er hér að neðan og fjallar um umgengni og þrifnað utanhúss í sveitarfélaginu. Tilgangurinn með samþykktunum er að skapa aukna möguleika á að taka á því sem miður fer í umhverfismálum á Skagaströnd. Fyrirhugað er að leggja þunga áherslu á að hver og einn taki ábyrgð á umgengni og frágangi eigna og lausamuna í sveitarfélaginu með það að markmiði að það verði til fyrirmyndar í þeim efnum. Auk almennrar umgengni verður lögð áhersla á bættan frágang fasteigna því eitt af meginatriðum í viðmóti hverrar byggðar er frágangur og útlit húsa og annarra mannvirkja. Sveitarstjóri mun, á næstu vikum, í samstarfi við byggingarnefnd og byggingarfulltrúa gera athugasemdir við útlit og frágang einstakra húseigna og fylgja eftir kröfum um frágang þeirra og hyggst nýta sér eftirfarandi ákvæði byggingarreglugerðar nr. 441/1998: Ef byggingarnefnd eða byggingarfulltrúi telja að útlit húss eða annars mannvirkis sé mjög ósnyrtilegt eða óviðunandi á annan hátt, eða að óþrifnaður eða óþægindi stafi af og eigandi (umráðamaður) sinnir ekki áskorun nefndarinnar/byggingarfulltrúa um úrbætur getur hún látið framkvæma á hans kostnað þær endurbætur er hún telur nauðsynlegar. Undirritaður skorar því á hvern og einn að líta „gestsaugum“ á umhverfi sitt og eignir og hefja þegar í stað undirbúning að úrbótum þar sem betur má fara. Skagaströnd, 18. mars 2011 Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss í Sveitarfélaginu Skagaströnd 1. gr. Eiganda eða umráðamanni húss, girðinga og annarra mannvirkja er skylt að halda eignum vel við og halda lóðum og lendum hreinum og snyrtilegum. 2. gr. Óheimilt er að skilja eftir á víðavangi, flytja, dreifa eða geyma lausamuni á þann hátt að valdið geti slysum, mengun eða lýti í umhverfinu. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti, svo sem bílflök, bílhluta, kerru, vélar, tæki, landbúnaðarplast, byggingarefni, báta, skipsskrokka og annað sambærilegt. 3. gr. Tæki og hluti sem ekki eru í almennri eða stöðugri notkun skal geyma þannig að nágrannar og vegfarendur hafi ekki ama af. Bifreiðar og önnur skráningarskyld ökutæki skulu geymd á þar til gerðum stæðum. 4. gr. Óheimilt er að geyma skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja, kerrur, tæki, vinnuvélar, báta eða aðra hluti á almennum bifreiðastæðum, á götum eða á almannafæri. 5. gr. Þeir sem annast flutninga skulu haga þeim þannig að ekki valdi óþrifnaði og haga skal þvotti og hreinsun á mannvirkjum og tækjum þannig að nágrannar og vegfarendur verði ekki fyrir óþægindum. 6. gr. Heilbrigðisnefnd eða aðilum í hennar umboði er heimilt að fjarlægja skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja, tæki, kerrur, vinnuvélar, báta og aðra lausamuni og drasl á kostnað og ábyrgð eiganda að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða eða ábyrgðarbréfi, þar sem eiganda/ábyrgðarmanni skal almennt veittur 10 daga frestur til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri eða bregðast við tilmælum. Telji heilbrigðisfulltrúi svo alvarlega hættu stafa af geymslu hlutar eða tækis að aðgerð þoli enga bið er heimilt að fjarlægja slíka hluti eða tæki án viðvörunar Bílflökum og örum verðlausum hlutum er heimilt að farga strax að loknum fresti sem veittur er samkvæmt 1. mgr. enda hafi þá engin andmæli borist. Skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja og aðrir hlutir og verðmæti sem eru fjarlægð að loknum fresti skulu geymd í vörslu sveitarfélagsins í 45 daga og síðan fargað hafi eigandi ekki vitjað eigna sinna og leyst út gegn greiðslu áfallins kostnaðar, svo sem vegna flutnings- og geymslu. Liggi fyrir skráningarmerki, vélanúmer eða annað sambærilegt skal eiganda tilkynnt um förgunina með tryggilegum hætti með a.m.k. 15 daga fyrirvara. Þá skal viðkomandi sýslumanni og eftir atvikum bifreiðaskrá og veðhöfum og tryggingarfélagi, sé um þá kunnugt, gert viðvart um förgunina með 15 daga fyrirvara. Áfallinn kostnaður vegna töku og geymslu skráningarskyldra ökutækja án skráningarmerkja og annarra hluta er heimilt að innheimta hjá eigendum samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með áorðnum breytingum. Heimilt er að selja nýtilegar hluti úr bifreiðum og annað nýtilegt sem er tekið í vörslu og ekki leyst út samkvæmt framansögðu til að mæta kostnaði vegna töku og geymslu. 7. gr. Hafi rekstraraðili ekki sinnt fyrirmælum innan tiltekins frests sbr. 1. mgr. 27. gr. reglugerðar nr. 789/1999 um mengunareftirlit, eða ekki fylgt tímasettri áætlun um úrbætur, sbr. 2. mgr. 27. gr. reglugerðar um mengunareftirlit, getur heilbrigðisnefnd ákveðið honum dagsektir þar til úr er bætt. Dagsektir renna til rekstraraðila heilbrigðiseftirlits og er hámark þeirra 500.000 kr. á dag. Heilbrigðisnefnd er heimilt að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda ef fyrirmæli um framkvæmd eru vanrækt og skal kostnaður þá greiddur til bráðabirgða af viðkomandi heilbrigðiseftirliti en innheimtast síðan hjá hlutaðeigandi. Kostnaður og dagsektir má innheimta með fjárnámi. Þegar verk það sem eftirlitsaðili lætur vinna er komið til vegna vanhirðu og óþrifa eða heilsuspillandi aðstæðna í húsi, á lóð eða í farartæki er kostnaður tryggður með lögveðsrétti í viðkomandi húsi, lóð eða farartæki tvö ár eftir að greiðslu er krafist. 8. gr. Heimilt er að innheimta gjald fyrir útlögðum kostnaði af eftirlitsskyldri starfsemi fyrir eftirlit samkvæmt þessari samþykkt í samræmi við 3. mgr. 12. gr laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 5. mgr. 37. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Heilbrigðisnefnd skal láta birta gjaldskrá í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld samkvæmt 1. mgr. má innheimta með fjárnámi. Gjöld skulu tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga þegar leyfi eða þjónusta er tengd notkun fasteignar. 9. gr. Um brot gegn samþykkt þessari og um valdsvið, þvingunarúrræði, málsmeðferð, úrskurði og viðurlög skal farið samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. ákvæði 38. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. 10. gr. Framangreind samþykkt sveitarstjórnar Skagastrandar var staðfest á fundi sveitarstjórnar 26. janúar 2011 til að gilda í sveitarfélaginu samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 3., 4. og 5. ml. 5. mgr. 5. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Samþykktin var einnig staðfest af Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra 22. febrúar 2011. Sveitarstjóri Skagastrandar, 16. mars 2011 Magnús B. Jónsson

Hver á málverk eftir Sveinbjörn Blöndal?

Fyrirhugað er að halda í sumar yfirlitssýningu á verkum Sveinbjörns H. Blöndals, listmálara. Sveitarfélagið Skagaströnd stendur fyrir sýningunni í samstarfi við fjölskyldu Sveinbjörns og með styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra. Samið hefur verið við Lárus Ægir Guðmundsson að hann annist samantekt á listaverkunum og framkvæmd sýningarinnar. Til að gera hana sem besta hefur verið ákveðið að leita eftir málverkum að láni. Þeir sem vilja lána verk eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Lárus Ægi sem allra fyrst í síma 864 7444  eða í netfang lalligud@simnet.is. Tími og staðsetning sýningarinnar verður auglýstur síðar.

Styrkir til atvinnusköpunar á Skagaströnd

Iðnaðarráðuneyti í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands auglýsir eftir umsóknum í styrki til verkefnisins atvinnusköpun í sjávarbyggðum, sem byggja á tekjum af sölu aflaheimilda fiskveiðiárin 2009/2010 og 2010/2011 til að veiða skötusel og til frístundaveiða, sbr. lög um stjórn fiskveiða. Skagstrendingar eiga eins og aðrir möguleika á að fá styrk til verkefna sem þeir kunna að hafa hug á. Atvinnusköpun í sjávarbyggðum er tímabundinn verkefnasjóður sem hefur það að markmiði að skapa varanleg störf, efla atvinnusköpun og auka fjölbreytni atvinnulífs í sjávarbyggðum. Áhersla verkefnisins er á hagnýtingu nýrra hugmynda og leitast verður eftir því að styðja verkefni sem fela í sér nýsköpun, þekkingaryfirfærslu og hugverk. Stuðningur getur m.a. falist í viðskipta- og vöruþróun, markaðssókn og erlendri markaðsfærslu. Atvinnusköpun í sjávarbyggðum leitar eftir verkefnum sem fela í sér ný atvinnutækifæri og byggja á styrkleikum sjávarbyggða. Hvatt er sérstaklega til stærri samstarfsverkefna fyrirtækja, háskóla og rannsóknastofnanna þar sem fram koma skýrar hugmyndir um afurðir í formi vöru eða þjónustu sem skila varanlegum verðmætum og atvinnu. Lögð er áhersla á klasasamstarf en það er ekki forsenda fyrir stuðningi úr Atvinnusköpun í sjávarbyggðum. Í umsókn þarf að koma fram Skýr lýsing á verkefninu Greining á nýnæmi verkefnisins Greinargóðar kostnaðar- og verkáætlanir Lýsing á væntum ávinningi fyrir sjávarbyggðir Styrkir geta numið allt að 50% af heildarkostnaði verkefnisins.  Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum  og búnaði.  Rafræn umsóknareyðublöð má finna á http://www.nmi.is/impra/ eða með því að smella hér. Umsóknarfrestur er til og með 15.apríl 2011 Nánari upplýsingar veitir Arna Lára Jónsdóttir, verkefnastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands , arnalara@nmi.is Sigurður Sigurðarson markaðsráðgjafi á Skagaströnd getur veitt frekari upplýsingar og aðstoð við gerð umsóknar.