Lokun vatnsveitu

  Vegna tenginga í vatnsveitu verður vatnslaust í útbæ vestan Lækjarbakka frá kl 14 í dag þriðjudag og fram eftir degi. Vatnsveiturstjóri

Elínborgardagurinn

menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg miðvikudaginn 9. nóvember 2016 kl. 18:00 Skv. hefð er Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Í Höfðaskóla er dagurinn einnig helgaður minningu Elínborgar Jónsdóttur fyrrverandi kennara við skólann. Af þessu tilefni mun Höfðaskóli standa fyrir menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg miðvikudaginn 9. nóvember n.k. Eins og undanfarin ár mun nemendafélagið Rán, með dyggri aðstoð foreldra, bjóða upp á kökuhlaðborð að lokinni dagskrá. Frítt er á dagskrána en aðgangur að kökuhlaðborði er:  1000 kr. fyrir eldri en grunnskólanemendur  500 kr. fyrir grunnskólanemendur  frítt fyrir þriðja barn frá heimili  frítt fyrir leikskólanemendur Vonumst til að sjá sem flesta í hátíðarskapi. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla.

Mynd vikunnar

Hér bregða þeir á leik, vinirnir Sigurður Bjarnason og Lárus Ægir Guðmundsson. Báðir hafa þeir átt bú sitt og ból á Skagaströnd, eru miklir Skagstrendingar og félagar og verið samstíga um margt. Lárus Ægir fyllir sjötíu árin í dag, 4. nóvember og eru honum færðar innilegar afmæliskveðjur á þeim tímamótum. Þessa mynd af þeim félögum tók Þórður Jónsson 1963, fyrir utan gamla útibúið sem stóð nokkurn veginn þar sem gangbrautin er yfir Oddagötu milli skólalóðar og Olís skálans. Útibúið var vernslunarútibú Kaupfélags Skagstrendinga (KAST).

* Minningarhátíð - Tónleikar *

Fyrirhugaðir eru tónleikar í tilefni af að eitt hundrað ár eru liðin frá fæðingu  Jónasar Tryggvasonar. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur lög eftir Jónas og frumflutt verða tvö ný lög við ljóð Jónasar. Þá mun  Ingi Heiðmar  Jónsson flytja minningabrot úr æfi Jónasar. Einnig mun Valgarður Hilmarsson fara yfir sögu Tónlistarskóla A-Hún og tónlistarfólk sem hóf nám við skólann og hafa helgað sig tónlist að meira eða minna leyti, svo og núverandi nemendur skólans flytja tónlist ásamt kennurum skólans. Hátíðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands- vestra. Tónleikarnir verða í Blönduóskirkju kl 15oo laugardaginn 12 nóv. næstkomandi að lokinni dagskrá þar verður boðið upp á kaffi og meiri  tónlist í boði Tónlistarskólans í Félagsheimilinu á Blönduósi.   Fyrir hönd Tónlistarskólans og undirbúningsnefndar.  Skarphéðinn H Einarsson.

Mynd vikunnar

Ísberg Ís Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908-2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þetta skip: " Ísberg. Þetta var 350 tonna flutningaskip sem keypt var frá Noregi 1983 og var í eigu félagsins Ok h/f en í því átti Skagstrendingur h/f um fjórðungshlut. Skipið sökk í fyrstu ferð sinni en mannbjörg varð". Myndina tók Árni Geir Ingvarsson þegar verið var að lesta skipið í Skagastrandarhöfn fyrir síðustu för þess. Dagblaðið DV sagði frá sjóslysinu á eftirfarandi hátt 2. maí 1983: "Mannbjörg varð er nýasta skip íslenska kaupskipaflotans, Isberg IS, sökk eftir árekstur um 70 sjómílur austur af Grimsby síðdegis á laugardag." Atburðurinn átti sér stað um klukkan 4 að íslenskum tíma. Þýskt flutningaskip, Tilla, keyrði inn í Isberg á miðju skipi bakborðsmegin. Isberg fór á hliðina á nokkrum mínútum og var sokkið eftir tæpa klukkustund. Skipverjarnir fimm komust í björgunarbát og var bjargað upp í þýska skipið, sem var tiltölulega lítið laskað. Skipverjar voru fluttir til Grimsby og komu síðan til landsins í nótt. Skipstjóri á Isberg var Jón Steinar Árnason. Að hans sögn var mikil þoka yfir þegar atburðurinn átti sér stað og skyggni aðeins um 300 metrar. Áreksturinn gerðist mjög snöggt, en skipstjóri Isbergs hafði þó séð hvað verða vildi. „Við vorum byrjaðir að beygja og reyna að forða okkur og síðan stoppuðum við og gáfum þokumerki. Eg prófaði að kalla til þeirra á örbylgjustöð en það gekk ekkert og næsta skref var bara að forða sér því skipið var oltið. Það lagðist á hliðina á 3 til 5 mínútum enda fór þýska skipið alla leið inn í lest," sagði skipstjórinn, er DV ræddi við hann við heimkomuna í nótt. Isberg er 360 tonna frystiskip sem var keypt frá Noregi og kom fyrst til landsins fyrir tíu dögum. Það var byggt árið 1972 og því 11 ára gamalt. Eigandi þess var OK h/f á Isafirði. Þetta var fyrsta ferð þess frá Islandi. Skipið var á leiðinni frá Grimsby til Cuxhaven með um 200 tonn af frystum fiski er áreksturinn varð. Tilla, sem er um 1000 tonna skip, var hins vegar á leiðinni frá Þýskalandi til Bretlands. ÓEF

Opið Hús @ Nes Listamiðstöð

Opið Hús @ Nes Listamiðstöð Opið Hús @ Nes Listamiðstöð View this email in your browser Komdu í kaffi og hitta óktober listamennina okkar ! Laugardagur 29th kl 16.00 - 18.00

A L Þ I N G I S K O S N I N G A R N A R 29. október 2016

AUGLÝSING UM KJÖRFUND Kjörfundur í Sveitarfélaginu Skagaströnd vegna kosninga til Alþingis þann 29. október 2016 fer fram í Fellsborg þann dag og hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 22.00 Kjörstjórnin

Mikil löndun á Skagastrandarhöfn

  Undanfarna daga hefur verið mikið um að vera á höfninni á Skagaströnd. Laugardaginn 22. október og sunnudaginn 23. október var landað um 170 tonnum úr 11 bátum. Mánudaginn 24. október lönduðu 16 bátar um 169 tonnum. Skagastrandarhöfn er nú með facebook síðu þar sem hægt er að fylgjast með hafnarlífinu á Skagaströnd. https://www.facebook.com/skagastrandarhofn.skagastrond.5?fref=nf&pnref=story

Mynd vikunnar

Spákonufellsrétt 1969. Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973) Ásholti, Lárus Árnason (d. 21.5.2011) Ási, Anna Bára Sigurjónsdóttir Sunnuhlíð og Kári Lárusson Ási. Á þessum tíma var mjög algengt að menn á Skagaströnd ættu nokkrar kindur og er talið að þá hafi verið allt að 3000 fjár í eigu Skagstrendinga og starfandi var Sauðfjárræktarfélag Skagstrendinga. Í dag (2016) má ætla að kindurnar séu milli 20 og 40. Ef grannt er skoðað má sjá skátaskálann upp í hlíð Spákonufells. Skálann ber yfir höfuð Önnu Báru. Skálann byggðu skátarnir á Skagaströnd en hann stóð einungis í nokkur ár því hann sligaðist að lokum undan snjó og eyðilagðist.

Endurnýjun vatnslagna mánudaginn 24.okt

Eftir hádegi mánudaginn 24.okt verður vatnslaust í efri hluta Bogabrautar, Hólabrautar og Fellsbrautar. Unnið verður að endurnýjun vatnslaga og getur verkið tekið hátt í 4 tíma.