"Ég var einu sinni frægur"

eftir Jón Gunnar og snillingana þrjá Verður í Fellsborg laugardagskvöldið 20. apríl kl. 20:00 Húsið opnar kl. 19:15 Stórleikararnir Þráinn Karlsson, Gestur Einar og Alli Bergdal leika sig sjálfa; gamla bitra geðilla leikara sem halda að þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir. Sýningin gerist á Kanarí og fjallar um ferð eldri borgara frá Akureyri til Kanarí sem fer algjörlega úr böndunum. Leikararnir nota sögur úr eigin reynslu, Gestur Einar þolir ekki Gogga úr Stellu í Orlofi, Alli Bergdal þolir ekki Skralla trúð og Þráinn Karlsson þolir ekki þegar fólk segir við hann; mikið líturðu vel út! Í sýninguna fléttast leikhústónlist úr þeim verkum sem hafa staðið upp úr á 50 ára leiklistarferli. Skemmtunin er 70 mínútur að lengd, setið er til borðs og barinn er opinn. Sýningin er því tilvalin fyrir vinnuhópa, vinahópa, saumaklúbba eða bara fyrir fólkið af götinni sem vill koma og skemmta sér. Leikstjóri: Jón Gunnar Leikarar: Gestur Einar Jónasson, Þráinn Karlsson, Aðalsteinn Bergdal

Kjörskrá vegna alþingiskosninga

Kjörskrá vegna alþingiskosninga þann 27. apríl 2013 liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar frá 17. apríl til kjördags. Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 23. mars 2013. Sveitarstjóri

Tónleikar í Hólaneskirkju á þriðjudagskvöld

Kvennakórinn Sóldís í Skagafirði heldur tónleika í Hólaneskirkju þriðjudaginn 16. apríl nk. Kórinn var stofnaður á haustdögum 2010 og hefur á að skipa um 40 kórfélögum. Undirleikari er Rögnvaldur Valbergsson og kórstjóri Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Einsöngvarar eru Ólöf Ólafsdóttir og Sigríður Margrét Ingimarsdóttir. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Aðgangseyrir kr. 2.500,- og athygli vakin á að ekki verður hægt að greiða með greiðslukortum. Allir velkomnir.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 17. apríl 2013 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Kjörskrá vegna alþingiskosninga 2013 2. Útboð hitaveitu 3. Gjaldskrá bókasafns 4. Ársreikningur 2012, fyrri umræða 5. Bréf: a. Áslaugar Ottósdóttur, dags. í apríl 2013 b. UMFÍ, dags. 2. apríl 2013 c. Bæjarstjóra Blönduósbæjar, dags. 21. mars 2013 d. SSNV, dags. 27. mars 2013 e. Hollvinum Húna II. dags. 2. apríl 2013 f. Íþróttafélagsins Hugins, dags. í mars 2013 6. Fundargerðir: a. Skólanefndar FNV, 20.03.2013 b. Starfshóps um dreifnám í A-Hún, 02.04.2013 c. Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 21.02.2013 d. Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 03.04.2013 e. Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 11.03.2013 f. Stjórnar SSNV, 26.02.2013 g. Byggðasamlags um málefni fatlaðra á Nl. vestra, 26.02.2013 h. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 14.03.2013 i. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 01.03.2013 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Gamli Kántrýbær Veitingastaðurinn Kántrýbær byrjaði rekstur í þessu húsi. Útvarp kántrýbær var á efri hæðinni. Aðfaranótt 27 október 1997 brann þetta hús til kaldra kola. Hallbjörn Hjartarson, sem átti húsið og starfsemina þar, gafst ekki upp. Hann safnaði peningum hjá þjóðinni og reisti það hús sem stendur í dag á sama stað og þetta var. Nýja húsið með veitingasölu og útvarpi Kántrýbæ var opnað rúmu ára eftir brunann 27. júní 1998.

MANSTU ?

Leikfélagið Kjallarinn kynnir, framlag Höfðaskóla til Þjóðleiks 2012-2013, leikritið Manstu?, eftir Sölku Guðmundsdóttur Sýnt verður í Fellsborg, miðvikudaginn 10.apríl kl. 20.00. Sýningartími er 25 mínútur og kostar 500 kr. inn, frítt er fyrir 10 ára og yngri. Hlökkum til að sjá ykkur Leikstjóri: María Ösp Ómarsdóttir

Tölvunámskeið

Að undanförnu hefur staðið yfir 20 tíma tölvunámskeið fyrir heldri borgara á Skagaströnd og í Skagabyggð. Námskeiðið var haldið í tengslum við félagsstarfið í Fellsborg á máunudögum og fimmtudögum til að fólkið þyrfti ekki að koma sér ferð á námskeiðið. 15 manns skráðu sig í byrjun en 10 manns luku því og eiga þau að geta bjargað sér á netinu og í ritvinnslu nú að því loknu. Námskeiðinu lauk síðasta fimmtudag, 4. apríl , og þá komu Bryndís K. Þráinsdóttir og Jóhann Ingólfsson frá Farskólanum og afhentu fólkinu skýrteini sín til staðfestingar á náminu. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Ólafur Bernódusson en hann er í hlutastarfi hjá Farskólanum. Á myndinni er hluti hópsins með leiðbeinandanum. Auk þeirra sem eru á myndinni luku Valgeir Karlsson, Matthías Auðarson, Jón Ólafur Ívarsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir námskeiðinu.

Tónleikar á Skagaströnd 13. apríl !!

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 13. apríl, kl. 17. Kórinn, sem skipaður er um 80 manns, er undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur en hún hefur stjórnað honum frá upphafi. Þorgerður hlaut nýlega heiðursverðlaun við afhendingu hinna árlegu íslensku tónlistarverðlauna. Á efnisskrá kórsins eru íslensk og erlend tónverk og eru verkin mjög fjölbreytt að gerð og uppbyggingu og gefa kórnum tækifæri til margvíslegrar túlkunar. Enginn aðgangseyrir er tekinn af tónleikagestum og eru allir velkomnir til að hlusta á þennan frábæra kór sem getið hefur sér gott orð, bæði hér á landi og erlendis, enda eftirsóttur á tónleikahátíðir víða um heim.

Breyttur opnunartími í íþróttahúsi

Til reynslu ætlum við að bjóða upp á breyttan opnunartíma í íþróttahúsinu frá 9. apríl til 10. maí. Húsið opnar kl. 6:00 þriðjudaga og föstudaga. Fyrirhugað er að vera með þrek-og þoltíma fyrir konur og karla í salnum þessu sömu morgna sem Halla Karen verður með. Venjulegur opnunartími verður aðra daga. Húsvörður

Truflanir á vatni vegna viðgerða

Milli kl.10:00 og 12:00 föstudaginn 5.apríl gætu orðið truflanir á vatni í Mýrinni. Bæjarverkstjóri