09.08.2007
Undirbúningur fyrir Kántrýdaga stendur nú sem hæst og er dagskráin sem óðast að taka á sig mynd. Kántrýdagarnir verða með mjög svipuðu sniði og í fyrra enda feikna vel heppnaðir þá.
Á föstudeginum 17. ágúst er gert ráð fyrir að yngsta kynslóðin byrji með því að bjóða heim í Smábæ á Kofavöllum og kynni húsakynni og bæjarbrag í kofabyggðinni. Eftir það verður boðið til Kántrýsúpu að hætti Sibba í hátíðartjaldi. Þá munu Gummi Jóns og einhverjir fleiri vera með tónlistardagskrá í tjaldinu. Í Kaffi Bjarmanesi verður tónlist að hætti Haldapokanna fram yfir miðnætti. Hljómsveitin Sólon leikur svo fyrir gesti og dansara í Kántrýbæ fram til kl. 03.
Laugardagurinn 18. ágúst byrjar á dorgveiðikeppni á höfninn kl. 11.00. Flóamarkaður verður opnaður í gamla vinnsluhúsinu á Hólanesi (Fjörubraut 8). Þar verður lagt upp með að fólk finni einmitt það sem það vantar hjá þeim sem þurfa einmitt að losna við sömu nytjagripi. Hoppukastalar verða svo settir upp á hátíðarsvæðinu kl 13.00 en barna- og fjölskyldudagskrá hefst kl 15.00. Þar verður margt gott til skemmtunar fyrir börn á öllum aldri. Í Kaffi Bjarmanesi verður kaffihlaðborð kl 15-18. Þegar líður á daginn þyngist takturinn og kl 17.00 verður rokkað í hátíðartjaldi þar sem ungar hljómsveitir taka nokkrar syrpur. Á hótel Dagsbrún verður skjávarpasýning á myndum af fólki og fyrirbærum á Skagaströnd. Barinn á hótelinu verður opinn fyrir þá sem eiga erfitt með að horfast í augu við gömlu myndirnar af sér. Stóru grillin verða svo hituð upp og höfð til staðar fyrir sameiginlegu grillveisluna þar sem hver kemur með sinn búnað og grillmeti. Hugmyndir eru uppi um að veita verðlaun fyrir frumlegasta picnik búnaðinn. Skemmtidagskrá á palli hefst svo kl 20.30 þar sem verður Afró danssýning og Hara systur, Gis Jóhannsson, Lúgubandið, Angela og Hans Birgir og fleiri skemmta. Í Kántrýbæ verður svo dansað fram á nótt við undirleik Kántrýsöngvarans Gis og félaga.
Sunnudaginn 19. ágúst verður hin hefðbundna ómissandi gospellmessa í hátíðartjaldi og hefst kl 13.30. Þar mun séra Fjölnir Ásbjörnsson stýra messuhaldi en Óskar Einarsson stjórna gospellkórnum.
Íbúar eru hvattir til að skreyta hús, garða, götur, bíla, sjálfa sig og hvern annan. Í fyrra var áberandi að íbúar í ákveðnum götum stóðu sérlega vel að skreytingum og eru væntingar til að fleiri sýni góða takta í þessum efnum.
Stöndum saman og skemmtum okkur saman
Tómstunda- og menningarmálanefnd
02.08.2007
Dagana 10.-12.ágúst 2007 verður haldin hátíð sem á sér nú 15 ára langa sögu en það er Handverkshátíð á Hrafnagili. Fáir viðburður eiga sér jafnlangan feril. Hátíðarsvæðið er staðsett 10 km frá Akureyri svo mikill fjöldi fólks hefur gjarnan sótt hátíðina. Setning hátíðar er 10.ágúst klukkan 10. Opnunartími er 10-19 föstudag, laugardag og sunnudag.
Í fyrra tók sýningin sem þá hét “Uppskera og handverk 2006” heilmiklum breytingum og vakti það mjög jákvæða athygli. Hún varð að skemmtilegri blöndu handverks- og fjölskylduhátíðar þar sem allir fundu eitthvað við sitt hæfi. Sýningarsvæðið tvöfaldaðist og dæmi voru um að gestir komu alla daga hátíðarinnar því eitthvað nýtt var að gerast dag hvern. Aðgöngumiðinn kostar 1.000.- og gildir alla helgina, það er frítt fyrir börn. Mjög gott samstarf var haft við Fiskidaginn mikla sem er einmitt haldinn sömu helgi ár hvert. Nú verður gengið skrefinu lengra og ýmsar nýjungar þróaðar enn frekar.
Nýjungar :
· Svokallað verksvæði vakti gífurlega athygli í fyrra og mikið af verkum voru unnin á hátíðinni. Meðal annars var 500 kílóa risi í smíðum, rafmagnsgítar í stærðinni 4 metrar, rennismiðir að störfum, vinnsla á hornum, hnífasmíði og fleira og fleira. Verksvæðið verður ekki minna fjölbreytt í ár. Stór verk í smíðum og fjölbreytt vinna með alls kyns hráefni. Að minnsta kosti eitt stórt verk er í burðarliðnum en það er mótorhjól í fullri stærð skorið í tré. Bæði innlendir og erlendir aðilar mun taka þátt í verksvæðinu.
· Tískusýningar á skinniklæddum palli vöktu mikla athygli í fyrra og því hefur verið leitast við að fá hönnuði inn sem munu sýna verulega flotta hönnun og nýtingu á hráefni. Það kemur ein frá Noregi, Bine Melby sjá meðfylgjandi myndir, en hún er að vinna magnaðar flíkur úr kúaskinnum. Þessi kona mun halda fyrirlestur klukkan 15 á laugardeginum um vinnu sína við að varðveita menningarsögulega bústofna í Noregi og nýtingu á kúaskinnum. Hún mun taka þátt í tískusýningum og vera með sýningu á hönnun sinni.
· Krambúð verður rekin af hálfu sýningarinnar og fjöldi listamanna hafa sent muni sína í þessa listmunabúð. Umsjónaraðili að þessu sinni er Sigríður Örvarsdóttir textílhönnuður og sér hún um uppsetningu og val á munum inn í Krambúð.
· Dimmuborgarjólasveinar munu líta við á leið sinni í Jólagarðinn þar sem þeir ætla að hitta fyrir Grýlu. www.snowmagic.is verkefnið verður á svæðinu og kynnir sig og það sem þau eru að gera. Loðinlumpa Grýlu verður einnig frumsýnd í tengslum við hátíðina, sjá meðfylgjandi mynd.
· Handverksmaður ársins var valinn í fyrsta skipti á hátíðinni 2006. Ragnhildur Magnúsdóttir í Gýgjarhólskoti eða Ranka í Kotinu var valin handverksmaður ársins 2006. Spennandi verður að sjá hver verður fyrir valinu fyrir árið 2007. Sölubás ársins var valinn á hátíðinni 2006. Himneskir herskarar sköruðu framúr við valið í fyrra og hlaut titilinn sölubás ársins 2006. Verðlaunaafhendingar verða á laugardagskvöldinu ásamt því að tónleikar verða með Ljótu hálfvitunum í Tónlistarhúsinu Laugarborg klukkan 21:30.
· Vélasýning var frábær viðbót á síðasta ári því að uppskeruhlutinn verður ekki fullbúinn nema vélar og tæki séu til sýnis á svæðinu. Þetta kryddaði hátíðina verulega og mikil ánægja var meðal gesta með þessa nýjung. Nú verður leitast við að sýna vélar í anda kornræktar á Íslandi, gamli tíminn mun mæta nýja tímanum á sýningarsvæðinu.
· Dýrasýning vakti mikla athygli svo það verður endurtekið, ásamt því að Félag landnámshænsna mun koma með sýningu. Í fyrra voru 65 fuglar sem kepptust um titilinn hæna ársins og hani ársins. Gestir völdu fallegustu fuglana.
· Nýjung á hátíðinni þetta árið er myndlistarsýning undir berum himni.
Gallerí Víðátta 601 hefur það að markmiði að standa fyrir myndlistarsýningum utan hefðbundinna sýningarsala hérlendis og erlendis. Í Gallerí Víðáttu 601 verður Grálist með samsýningu en Grálist er samsýningahópur ungra myndlistamanna sem öll útskrifuðust frá Myndlistaskólanum á Akureyri vorið 2006 og 2007. Grálistahópurinn er óháður og hæfileikaríkur myndlistahópur sem sýnir list sína ýmist saman í heild, í smærri hópum eða sem einstaklingar undir nafni Grálistar.
Hópurinn vinnur í ýmsa miðla myndlistar á frjálslegan, frjóan og skapandi hátt. Gallerí Víðátta 601 verður staðsett á útisvæði hátíðarinnar og verður með afar frumlega útstillingu.
Námskeið – í tengslum við hátíðina verða eftirfarandi námskeið á dagskrá : Leðursaumur með Önnu Gunnarsdóttur, Þæfing með Valborg Mortensen, Hálmfléttingar með Doris Karlsson og Eldsmíði með Beate Stormo.
Frekari upplýsingar á www.handverkshatid.is
Allar nánari upplýsingar gefur Dóróthea Jónsdóttir í síma 864-3633
25.06.2007
Á laugardaginn var Opna TM mótið í golfi á Skagaströnd. Mótið var jafnframt minningarmót um Karl Berndsen.
Á mótinu fór Frímann V.Guðbrandsson úr Golfklúbbi Sauðárkróks holu í högg á braut 7. Brautin er par 3 og 116 metra löng. Er þetta í fyrsta skipti í 22 ára sögu Golfklúbbs Skagastrandar sem það gerist að golfari leikur holu í höggi á Háagerðisvelli.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
Konur án forgjafar:
Árný L.Árnadóttir GSS 82 högg.
Ingibjörg Guðjónsdóttir GSS 102 högg.
Svanborg Guðjónsdóttir GSS 102 högg.
Konur með forgjöf:
Guðrún Á.Jónsdóttir GÓS 75 högg.
Árný L.Árnadóttir GSS 79 högg
Þorbjörg Magnúsdóttir GSS 80 högg.
Karlar án forgjafar:
Einar Einarsson GSS 84 högg
Magnús Gunnarsson GSS 86 högg.
Haraldur Friðriksson GSS 87 högg
Karlar með forgjöf:
Magnús Gunnarsson GSS 76 högg.
Einar Einarsson GSS 76 högg.
Steini Kristjánsson GA 77 högg.
Ágæt þátttaka var á mótinu. Aðal styrktaraðili mótsins var Tryggingamiðstöðin.
25.06.2007
Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd var formlega opnaður 7. júní 1997. Það voru félagar úr Lionsklúbbi Skagastrandar sem höfðu forgöngu um að byggja leikskóla og unni þeir mikið sjálfboðaliðastarf við að fjármagna bygginguna og koma húsinu upp. Höfðahreppur kom síðan að verkinu og hefur verið rekstraraðili leikskólans frá fyrstu tíð. Árið 1996 var tekin í notkun rúmlega helmings stækkun við leikskólann. Á leikskólanum eru nú tvær aldursskiptar deildir og nöfn þeirra og ýmissa rýma eru eftir gömlum húsum á Skagaströnd svo sem Sæból, Lundur og Höfðakot. Aldur leikskólabarna við inntöku hefur smátt og smátt verið að lækka og frá með 14. ágúst 2007 verða tekin inn börn frá 16 mánaða aldri. Í dag er leikskólinn einsetinn þ. e. öll börnin koma að morgni og fara heima eftir mislangann dvalartíma.
Í tilefni af 30 ára afmæli Barnabóls var haldin vegleg afmælishátíð á leiksólalóðinni og sýninga inni á verkum barnanna. Hátíðin hófst kl. 16 í blíðskaparveðri fimmtudaginn 7. júní og kom fjöldi gesta sem fagnaði þessum merku tímamótum með okkur. Það var glatt á hjalla, fluttar nokkrar ræður, nemendakór leikskólans saung og þó að þau allra yngstu væru feimin að standa fyrir framan gestina þá fengu þau bara pabba eða mömmu til að standa hjá sér meðan á söngnum stóð. Eldri börnin sýndu flottar leikfimiæfingar sem þau hafa verið að læra í vetur. Síðan var öllum boðið upp á hina marglofuðu skúffuköku Ásthildar, kaffi og djús sem Vífilfell gaf okkur .
Skólanum bárust margar góðar afmælisgjafir, Höfðahreppur gaf skólanum ½ sett af einingarkubbum. Kvenfélagið Eining og Lionsklúbbur Skagastarndar færðu peningagjafir til leikfangakaupa. Foreldrafélag leikskólans gaf nýja stafræna myndavél. Guðjón fræðslustjóri á Skólaskrifstofunni og Jóhanna leikskólastjóri á Barnabæ færðu starfsmönnum glaðning og sama gerði starfsmennafélag Höfðaskóla.
Við þökkum kærlega fyrir góðar gjafir og öllum þeim sem glöddu okkur með nærveru sinni og hlýhug í garð leikskólans á þessum hátíðisdegi.
Nemendum okkar sem nú yfirgefa leikskólann og fjölskyldum þeirra þökkum við kærlega fyrir samveruna á liðnum árum og óskum þeim alls hins best í framtíðinni. Um leið bjóðum við nýja nemendur og foreldra þeirra velkomna til starfs og leiks.
Sumarfríslokun Barnabóls verður frá mánudeginum 9. júlí til mánudagsins 13. ágúst 2007.
Með óskum um skemmtilegt sumarfrí
Þórunn Bernódusdóttir
Leikskólastjóri og starfsmenn Barnabóls
22.06.2007
Laugardaginn 23. júní nk verður Opna TM mótið í golfi haldið á Hágerðisvelli á Skagaströnd. Mótið er jafnframt minningarmót um Karl Berndsen. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar í karla- og kvennaflokki. Aðal styrktaraðili mótsins er Tryggingamiðstöðin.
18.06.2007
Þessa daganna er að koma út ný plata með tónlist Skagstrendingsins Birkis Rafns Gíslasonar. Platan ber nafnið Single Drop. Úrvalslið tónlistarmanna spilar og syngur með Birkir, meðal þeirra eru bræðurnir Ragnar Zolberg og Egill Örn Rafnssynir úr Sign svo og Ásta Sveinsdóttir sem meðal annars hefur sungið með Gus Gus. Plata þessi hefur verið í vinnslu s.l. eitt og hálft ár. Tónlistin er að sögn Birkis tilraunakennt popp-rokk.
Birkir hefur að undanförnu starfað meðal annars með Fabúlu og ýmsum djass- og rokktónlistarmönnum. Í síðasta mánuði var Birkir ásamt Fabúlu og hljómsveit í tveggja vikna tónleikaferð í Kanada. Á síðasta ári samdi Birkir meðal annars tónlistina við eistnesku kvikmyndina Another. Birkir starfar einnig sem tónlistarkennari í í Gítarskóla Íslands og Tónlistarskóla Seltjarnarnes.
Fimmtudaginn 14. júní voru útgáfutónleikar plötunnar í Tjarnarbíói í Reykjavík. Voru tónleikarnir vel sóttir og móttökur áheyrenda mjög góðar.
Platan er væntanleg í verslanir næstu daga en heyra má af disknum á slóðinni: www.myspace.com/singledrop
18.06.2007
Lionsklúbbur Skagastrandar vígði nýja hringsjá á Spákonufellshöfða 17. júní sl.
Gerð hrigsjárinnar er fyrsta verkefni sem Lionsklúbburinn réðst í og var ákvörðun um það tekin á fyrsta félagsfundi klúbbsins 17. október 2004.
Hönnuður hringsjárinnar er Jakob Hálfdanarson sem gert hefur margar slíkar vítt og breitt um landið. Vinna við verkið hófst svo sumarið 2005. Þá var valin sá staður sem hringsjáin stendur á og hafin upplýsingasöfnun fyrir gerð skífunnar og m.a. teknar myndir af fjallahringnum. Á sumrinu 2005 náðust nokkrir slíkir útsýnisdagar og eftir það fóru nokkrir örnefnasérfræðingar yfir myndir af fjallahringnum og báru kennsl á örnefni. Í framhaldi af því var gerð svokölluð innmæld örnefnaskrá og öll örnefni borin saman við landakort af svæðinu.
Sjálf hringsjáin, sem stundum er nefnd útsýnisskífa er þannig gerð að efnið í plötu hringsjárinnar er sérinnfluttur kopar. Örnefni og aðrar upplýsingar eru grafnar í koparinn sem er svo allur krómhúðaður. Það er gert til þess að verja hann gegn spanskgrænu sem oft hefur gert slíkar skífur skellóttar og illlæsilegar en ekki síður til þess að verja skífuna gegn skemmdarfýsn, t.d. rispun þar sem krómið er miklu harðara en koparinn, en mjög algengt er að menn vilji rita fangamark sitt á útsýnisskífur.
Skífan skiptist í nokkra hringlaga sammiðja reiti útfrá miðju skífunnar. Innst eru upplýsingar um heiti staðarins sem hringsjáin stendur á, um staðarákvörðun hennar og hæð yfir sjó, ásamt upplýsingum um það hver stóð að gerð hennar. Í næsta hringlaga reit er stjarna sem vísar til allra höfuðátta og þar eru einnig eyktamörkin gömlu tilgreind.Þá kemur breiðasti hringlaga reiturinn, en í honum birtast örnefnin og þar eru dregnar útlínur fjalla og kennileita.
Stuðlabergsstöpullinn sem skífan er sett á var keypt úr steinsmiðju þar sem mikil krafa er að sjálfsögðu um að skífan sé á réttum fleti og sterkri undirstöðu.
Kostnaður við gerð svona hringsjár er auðvitað talsverður og jafnframt mikil vinna sem þarf að leggja í gerð hans og uppsetningu. Lionsklúbburinn fékk góðan stuðning frá allmörgum aðilum til að gera verkið framkvæmanlegt og má þar m.a. nefna Pokasjóð, Eignarhaldsfélag Brunabótaf. Ísl, Sjávarútvegsráðuneyti, Höfðahrepp, Fisk Seafood, Landsbankann, Kaupþing banka og Áshrepp.
Við vígsluna mættu auk Lionsmanna nokkrir íbúar og gestir til að taka þátt í vígslu hringsjárinnar og til að skoða uppsetningu og handverk á skífunni. Veður var hins vegar fremur þungbúið til að skífan nýttist vel til að bera kennsl á örnefni. Við vígsluna kom hins vegar fram að Lionsmenn hafa væntingar um að skífan standi í nokkur hundruð ár og því mun fólki gefast tækifæri í framtíðinni til að nýta sér upplýsingar sem á henni eru.
14.06.2007
Opnunartími sundlaugar í sumar
Mánudaga – föstudaga kl. 14:00 – 21:00
Laugardaga og sunnudaga kl. 13:00 – 17:00
Ekki er hleypt ofaní laugina hálftíma fyrir lokun.
13.06.2007
Það er miðvikudagur 13. júní, stafalogn og dálítið skýað. Í höfninni á Skagaströnd liggja bátarnir við bryggjuna án þess að haggast á spegilsléttum sjónum. Sumir eru mannlausir, eiga sér stund milli stríða, áður en þeim verður fleytt á hraðsiglingu út á miðin á ný. Aðrir eru undir löndunarkrana, komnir með afla dagsins að landi enn aðrir eru að koma úr róðri. Sjómennirnir ganga frá fiski til vigtunar og sölu á fiskmarkaði. Þeir láta lítið yfir sér og gefa ekki mikið út á hvort fiskiríið er gott eða slæmt. Einn segist hafa fengið fjögur tonn einhverjar 18-20 mílur. Ekki gefið upp hvar, góðir veiðistaðir eru heilög vé þeirra. Bátarnir eru flestir af stærðinni 8-15 tonn sumir nýlegir með öllum búnaði, jafnvel beitningavélum. Líklega eru um 15-20 bátar á línuveiðum sem landa á Skagastrandarhöfn, margir langt að komnir. Þeir hafa misjafnar forsendur til veiðanna. Bæði eru bátarnir mismunandi og ekki síður veiðiheimildirnar sem þeri hafa. Sumir eru að horfa í kvótann hvað þeir eigi mikið eftir af hverri tegund og hvort hægt verði að leigja meira til að klára kvótaárið, aðrir hafa kvótasterka aðila á bak við sig og mega veiða eins og þeir geta. Byggðakvóti er ekki nefndur á nafn enda fiskveiðiárið að verða búið og ekki farið að hleypa umsóknum að, hvað þá að nokkur viti hvernig úthlutun hans verður. Þórey hafnarvörður, sem vigtar allan afla sem kemur að landi, segir landaðan afla á dag dálítið breytilegan. Það hafi verið svona 25 -50 tonn á dag en hún viti auðvitað ekki hvað þeir séu að taka aflann á mörg bjóð. Fiskiríði hafi verið betra upp á síðkastið en fyrir svona 10 dögum.
Annarsstaðar á höfninni er verið að gera klárt til dragnótaveiða. Fiskiþvottakar stendur uppi á bíl tilbúið til að hífa um borð og menn að skoða spiltengingar og fara yfir búnaðinn. Hafrúnin bíður nýmáluð og tilbúin til nýrra veiðiferða.
13.06.2007
Hallbjörn kántrýkóngur er aftur farinn að senda út kántrýtónlistina sína á öldum ljósvakans. Hann er stórhuga sem fyrr og lætur sér ekki nægja víðáttur loftsins heldur notast við óravíddir internetsins einnig. Auk þess að senda út á FM 96,7 og 102,1 sendir hann kántrýtónana í gegn um heimasíðuna http://www.kantry.is/ þar sem er hægt að ná útsendingunni hvar sem er í veröldinni. Kántrýútvarp á netinu hefur mælst vel fyrir og er gaman að geta þess að Útvarp Kántrýbær á til dæmis stóran hlustendahóp í Þýskalandi, en eins og margir vita eru þjóðverjar dottnir í kántrýgírinn samanber framlag þeirra í Eurovision 2006.