Evrovision í félagsmiðstöðinni

Unglingarnir í félagsmiðstöðinni Undirheimum fengu nýjan skjávarpa í tæka tíð til að horfa á undankeppni Evrovision. Þau vígðu búnaðinn með því að hafa Evrovision og fylgjast með Sylvíu Nótt. Þótt úrslitin hafi auðvitað verið vonbrigði þá var samt góð stemning og búnaðurinn virkaði fínt.

Sameiginlegur framboðsfundur

Sameiginlegur framboðsfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Höfðahreppi verður haldinn í Fellsborg sunnudaginn 21. maí kl. 17:00. Frambjóðendur L og S-lista munu kynna helstu stefnumál sín og svara fyrirspurnum kjósenda. Íbúar á Skagaströnd eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér sýn framboðanna á málefni sveitarfélagsins. Umboðsmenn listanna.

Leiðbeiningar fyrir kjósendur

Leiðbeiningar um sveitarstjórnarkosningar á kjörfundi eru aðgengilegar á eftirfarandi vefslóð http://www.kosningar.is/framkvaemd_kosninga/leidbeiningar_fyrir_kjosendur/

Ættarmót “Kárastaðaættarinnar” verður haldið á Skagaströnd

Orðsending frá Hólmfríði dóttur Steinþórs. Eins og þið hafið kannski frétt verður haldið ættarmót “Kárastaðaættarinnar”, þ.e. afkomenda Sigurbjargar Sigurbjarnardóttur, sem bjó lengi vel á Kárastöðum á Skagaströnd með tveimur sona sinna, og Kristjáns Kristjánsdóttur, mannsins hennar, í félagsheimilinu ykkar þann 1. og 2. júlí í sumar. Ég held úti vefsíðu á meðan á undirbúningi ættarmótsins stendur, á vefslóðinni http://karastadir.blogspot.com/ , með upplýsingum, myndum, tilkynningum og fleiru tengdu ættarmótinu, og var þar bent á að koma endilega síðunni á framfæri á vefsíðu Skagastrandar, enda sjálfsagt einhverjir meðlimir ættarinnar sem ekki muna vefslóðina okkar, en hefja leitina að vefnum á síðunni ykkar. Með bestu kveðju, Hólmfríður (dóttir Steinþórs, sonar Hólmfríðar, dóttur Sigurbjargar)

Skíðaferð UMF Fram til Akureyrar sumardaginn fyrsta 2006

Það voru þreyttir, rjóðir, sællegir en fyrst og fremst ánægðir Skagstrendingar sem renndu inn í bæinn að kvöldi sumardagsins fyrsta. Ungmennafélagið Fram hefur staðið fyrir skíðaferðum í Tindastól á föstudögum nú eftir áramót. Þátttaka barna og foreldra í þeim ferðum hefur verið mjög góð og raunar framar öllum vonum. Í fyrstu ferðina fóru 50 einstaklingar en að jafnaði hafa um 30 krakkar farið á hverjum föstudegi. Í kjölfar þess var ákveðið að ljúka tímabilinu með því að efna til fjölskylduferðar í Hlíðarfjall á sumardaginn fyrsta, kíkja á Andrésar Andar leika og hafa gaman. Í stuttu máli sagt heppnaðist ferðin frábærlega. Farið var af stað snemma morguns með 38 Skagstrendinga, fullorðna og börn, og ekið sem leið liggur til Akureyrar. Þar var deginum eytt í hreint frábæru veðri og við bestu hugsanlegu aðstæður til skíðaiðkunar sem í boði eru á Íslandi í dag. Fólk renndi sér frá kl 10:00 til 17:00 og voru okkar krakkar síðust úr fjallinu. Eftir það var farið á pizzuhlaðborð á Greifanum og síðan ekið heim í heiðardalinn. Var heimferðin með eindæmum róleg þar sem flestir sváfu á sínu sæla eyra eftir frábæran dag. Myndirnar tala sínu máli. Að lokum vill félagið koma á framfæri þökkum til eftirfarandi aðila fyrir veittan stuðning: Höfðahreppur Vífilfell Íslensk dreifing (Myllan og Kexsmiðjan) Mjólkursamlagið á Blönduósi Sölufélagið á Blönduósi F.h UMF Fram Halldór, Róbert og Elva

Togarinn Arnar

Togarinn Arnar HU 1 kom til hafnar á Skagaströnd sunnudaginn 23. apríl með 582 tonn af frystum afurðum sem er um 1070 tonn upp úr sjó. Áætlað aflaverðmæti er 145 milljónir. Um 2/3 aflans er ufsi en annað er ýmsar bolfisktegundir. Þessi farmur Arnars er með því mesta sem skipið hefur komið með að landi bæði í tonnum talið og verðmætum en verðmæti sjávarafla hefur aukist mjög að undanförnu vegna stöðu íslensku krónunnar. Reiknað er með að Arnar haldi aftur til veiða laugardaginn 29. apríl

Sr. Fjölnir Ásbjörnsson settur í embætti

Á Skírdag var Sr. Fjölnir Ásbjörnsson settur í embætti sóknarprests af Sr. Guðna Þór Ólafssyni prófasti í Húnavatnsprófastdæmis. Í Skagastrandarprestakalli eru auk Hólaneskirkju, Hofskirkja, Höskuldsstaðakirkja, Holtastaðakirkja, Bólstaðarhlíðarkirkja og Bergstaðakirkja. Það má því segja að prestakallið nái frá Víkum á Skaga fram að Fossum í Svartárdal eða rúma 100 km. Að athöfn lokinni var haldið kaffisamsæti í Hótel Dagsbrún. Sr. Fjölnir útskrifaðist frá Guðfræðideild HÍ vorið 2000 og hefur starfað sem afleysingaprestur á Sauðárkróki, í Vestmannaeyjum, á Höfn í Hornafirði og á Tálknafirði. Hann er upp alinn á Sauðárkróki og foreldrar hans búa þar. Sr. Fjölnir er giftur Heiðrúnu Tryggvadóttur kennara og eiga þau tvo syni þriggja og sex ára gamla. Myndir með fréttinni tók Árni Geir

Saumastofan Íris ehf hefur opnað heimasíðu

Saumastofan Íris ehf er komin með heimasíðu en hún er á slóðinni http://www.irisehf.is þar má sjá nokkra Skagstrendinga í fyrirsætustörfum.

Frá Landsbanka Íslands Skagaströnd.

Miðvikudaginn 5. apríl s.l. kom Kór eldri borgara í Húnaþingi í heimsókn til Skagastrandar og söng nokkur lög í Landsbankanum. Hríðargarg, hálka og það sem slíku veðri fylgir aftraði ekki för þessara “söngfugla” og víst er að söngurinn féll í góðan jarðveg hjá þeim sem á hlýddu. Lokalag kórsins var “Borgin mín” lag eftir Hallbjörn Hjartarson, texti eftir Kristján Hjartarson. Kaffi og kleinur runnu ljúflega niður, eins og vera ber á góðum samkomum og fólk kvaddi hvert annað með hlýju og þakklæti fyrir góða stund í minningakörfuna. Stjórnandi kórsins er Kristófer Kristjánsson og undirleikari Óli. J. Björnsson. Hafi kórinn þökk fyrir komuna, vonandi stilla Landsbankinn á Skagaströnd og kórinn saman strengi fljótlega aftur.

Laus störf flokksstjóra í Vinnuskóla

Höfðahreppur auglýsir eftir flokkstjórum til starfa í Vinnuskólanum sumarið 2006. Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Höfðahrepps og er umsóknarfrestur til 18. apríl. Nánari upplýsingar veitir Ágúst Þór í síma 899 0895 eða á netfangi agust@skagastrond.is Sveitarstjóri Höfðahrepps